Morgunblaðið - 17.07.1949, Page 12
Flutningar leiðangurs
Lauge Kochs ganga vel
í DAG fer siðasti hópur sjerfræðinga úr leiðangri T>auge
Kobh.s flugleiðis til Ella-evjar á Grænlandi með íslenska Kata-
♦irafiugvjelinni ,,Vestfirðingur“, 10 fóru í fyrradag, 10 í gær.
’i’vö skip, sem einnig flytja leiðangursmenn til Ella-eyjar fara
vestúr á þriðjudag. Er það norska skipið .Polarstar", sem
iTggUr í Reykjavík og tekur 26 menn og „Gustav Holm“, sem j
liggur á Akureyri.
íslenskur þulur í Hollywood
mmmam
Fiatningarnir til Ellaeyja.
Morgunblaðið átti stutt viðtal
við dr. Lauge Koch í gærmorg-
tin um undirbúning og flutn-
inga hjeðan til Grænlands und-
anfarið. Hann sagði frá á þessa
trdð.
— Þann 13. júlí flaug ieg í
L.atalínaflugbát danska flotans,
sem hjer er í Reykjavík og Ov-
erby flotakapteinn stjórnar, til
Austur-Grænlands til að-kynna
nCer' í-sinn við Austur-Græn-
tendr Við Ellaeyju var hægt að
tetrda flugvjelum Fórum við
iþví-'næsta dag í flugvjel frá Loft
ieiðum með 10 sjerfræðingum
og einnig fór lítil dönsk flugvjel
jrneð þrjá menn. Lentum við hjá
Ellaeyju og hittum hópinn sem
heíir dvalið þar vetrarlangt. en
m hópi eru tveir Svisslend-
Mrgar. tveir Danir og fjórir Eski
Knóar.
í gærmorgun fóru er.n 10
manns með flugvjel Loftleiða
og. ráðgert er að 10 fari á sunnu
<1 ígsmorgun.
li'er sjálfur sjóleiðina.
Koch fer sjálfur með Gustav
Holrn og ráðgerði að faia til Ak-
ureyrar í gær. Gustav Holm
verður með leiðangursmönnum
við Grænland í sumar, en
N^rska • skipið snýr heim aftur
og kemur ekki fyrr en í haust
að sækja leiðaneursmenn sem
alltr koma sjóleiðis til íslands,
en verður flogið bjeðan til Dan-
*»e»kur,-
Koch bjóst við að leiðang-
ursmenn gætu unnið að rann-
sókrtum sínttm v.ið blýnámurn-
ar fram í miðjan september.
Hoíaíofíngi
í ðieifmókn hjer
RAUFARHÖFN, laugardag:
Ereskur flotaforingi með aðmír
álstign, kom hingað í gær á
lystisnekkju sinni. Hjeðan fór
flotaforinginn í dag áleiðis til
Grímseyjar og vestur um iand
til Reykjavíkur.
Með flotaforingjanum eru
þrír karlmenn og ein kona.
— Einar.
Fjöldamorð
í Indó Kína
PARlS, 15. júlí — 12 menn
Ijetust og 176 særðust alvar
Jega 1 gær víðsvegar í Indó-
K ína. Voru hátíðahöld í land-
íifu í tilefni af Bastilludegin-
trrti, en hermdarverkamenn frá
Vi t Nam fjelagsskapnu.n not-
uð.u tækifæríð til að kasta
sprengjum yfir mannmjöldann.
—Reuter. I
Hreyfill fær að selja
upp 4 bílasíma
BÆJARRÁÐ hefur rætt um-
sögn bæjarverkfræðings, varð-
andi umsókn Bifreiðastöðvar-
innar Hreyfill, um að setja upp
bílasíma á fjórum stöðum í
bænum. Einhverjar breytingar
hefur bæjarverkfræðingur orð-
ið að gera á um staðsetningu
símanna frá tillögum Hreyfils-
manna. Bæjarráð samþykkti
tillögur verkfræðingsins í mál-
inu, á fundi sínum s. 1. föstu-
dag.'
Valnið í Sundlaug-
unum hreinsað
BÆJARVERKFRÆÐINGUR
hefur lagt fyrir bæjarráð á-
ætlanir um uppsetningu á
tækjum til að hreinsa vatnið í
Sundlaugunum.
Voru áætlanir hans lagðar
fram á fundi bæjarráðs s. 1,
íöstudag og samþykkt að fela
bæjarverkfræðingi að láta
koma slíkum hreinsunartækj-
um fyrir.
Fulllrúar Vesturveld-
anna og Rússa ræða
samgönguhömlur
BERLtN 16. júlí: — t dig gafu
starfsmenn vesturveldamia hjer
til kynna að fjármálasjerfræð-
ingar Vesturveldanna muni
ræða hjer samgönguhömlur
Rússa við Berlín, sem a’t hafa
sjer stað undanfarið, er þeir
koma á fund með sjerfræðing-
um Rússa á máiiudagmn kem
ur.
Fiílltrúar Vesturveldat na eru
taldir munu leggja mjög mikla
áherslu á að fá Rússana til að
tryggja að leiðir milli her
námssvæðanna verði haldið
opnum fyrir flutninga tu Berlín
ar-
Flutningar á ám og t lofti
hafa gengið tiltölulega v°l í dag
milli hernámssvæða Vesfurveld
anna og Berlínar.
Lögregla af hern;in.rsvæði
Rússar stöðvar ökumenn ennþá
hjer og þar að sögn ökumanna.
Eru þeir spurðir, hvgrt þeir
flytji með sjer vesturmork.
Ráðgera Ameríkumeim og
Brdtar nú, að fella loftflutninga
til Berlínar niður eins Iljótt og
hernámsyfirvöldin telja það
tímabært.
Larry Thor, útvarpsþulur, sem var skírður Arnleifur
Lavvrence Þorsteinsson.
Pilturinn frá Lundar,
sem varð frægur þulur
ARNLEIFUR Lawrence Þorsteinsson er ungur maður af ís-
lensku bergi brotinn. Hann hefir lagt á margt gjörfa hönd
um dagana, verið kaupamaður í sveit, skógarhöggsmaður, i
byggingarverkamaður og veiðimaður í skógum Kanada og 6
ér í her Kanada, en er nú aðalþulur hjá einu stærsta útvarps- *
fjelagi Bandaríkjanna, CBS í Hollywood og rödd hans heyfist
um öll Bandaríkin daglega.
Bæjarsjóður lánar
fil Þjóðminjasafnsins
ÁÆTLAÐ er að til þess að
ljúka byggingu hins veglega
Þjóðminjasafns á Háskólalóð-
inni, muni þurfa 300 þúsund
krónur. Þessa fjárhæð mun
Reykjavíkurbær lána ríkinu.
Mál þetta var rætt á fundi
bæjarráðs er haldinn var s. 1.
föstudag, en bæjarráðsfulltrú-
ar allir samþykktu, að heimila
borgarstjóra að lána fyrr-
greinda fjárhæð úr bæjarsjóði.
Bæjarráð setti það að skil-
yrði, að tryggt verði að bygg-
ingu hússins verði lokið fyrir
næsta haust, þannig að þar
megi halda fyrirhugaða Reykja
víkursýningu.
Lán þetta er veitt til eins
árs.
Unnið við Lunduna-
höfn yfir helgina
LONDON, 16. júlí — Nokkrir
hermenn’munu vinna yfir helg
ina við höfnina í London. Verð-
ur unnið við að ferma skip
Sem á að senda til Hong Kong.
Flestir hinna 5000 hermanna
sem unnið hafa við höfnina fá
þó frí yfir helgina. — Reuter.
’Setti niarkið hátt.
Vikublað eití í Toronto segir
nýlega æfisögu þessa unga)
Vestur-íslendings, sem setti
markið hátt og hefir nú fengið .
stöðu. sem einn hæst launaði út-
varpsþulur Bandaríkjanna.
Hann hefir nú stytt nafn sitt
og kallar sig Larry Thor. Hann
er fæddur í Lundar í Manitoba
í Kanada, en ekki getur biaðið
frekar um ætterai hans.
Fijettamaður og þulur.
Arnleifur fekk snemma áhuga
fvrir útvarpi og fekk stöðu hjá
lítilli útvarpsstöð, þar sem hann
skrifaði sjálfui frjettirnar og las
þær upp. Kaupið var 70 doilarar
á mánuði (455 kiónur). Smám
saman tókst Arnleifi að fá betri
og betri stöður innan útvarps-
ins og í dag er hann ekki að-
eins þulur, heldur og eftirlits-
maður með fjölda stÖðva hins
stóra útvarpsfjelags CBS. Hann
fær nú meiri laun fyrir hálfa
klukkustundar útvarpsdagskrá
en hann fekk fyrir mánuðinn.
Blaðið segir að lokum, að
Arnleifur, eða Larry, sje
kvæntur, þau hjónin eigi þrjá
sonu.
NEW YORK — Gallup stofn-
unin í Bandaríkjunum hefur
kannað skoðanir manna um það,
hvort Truman verði enn forseti
Bandaríkjanna 1952. 57% sögðu
já, 32% sögðu nei og 11 höfðu
enga skoðun í málinu.
REYKJAVÍKURBRJEF er á
blaðsíðu 7.
Eldur í skipsflaki
NOKKRU eftir hádegi i gær
kcm unp eldur í flaki breska
tundurspil'isins sem liggur í
fiörunni hjá vjelsmiðjunni við
Elliðaárvog.
Eldurinn kom upp framarlega
í flakinu og mun hafa verið
orðinn allmagnaður, er slökkvi-
liðið kom á vettvang. Þar sem
eldurinn kom upp, var verið að
vinna í gærmorgun með log-
suðutækjum við að rifa innan
úr skipsskrokknum. Mun það
hafa verið neisti, sem leynst
hefur, er valdið hefur íkveikj-
unni. Slökkviliðið var um hálf
tíma að ráða niðurlögum elds-
ins.
Cóð gróðrar- og
smiHilíS í N.-ís.
ÞÚFUM, N.-ís. — Hin ákjós-*
anlegasta gróðrar- og sprettu-
tið hefir verið hjer síðan 16.
júní.
Túnsláttur er að byrja og
tún orðin sæmilega vel sprott-
in. Má slíkt heita einsdæmi eft
ir svo hart vor.
Fjenaðarhöld voru vonum
betri eftir tíðarfari — P.P.
Nýlf íbúðarhverfi
skipulagf
LOKIÐ er við að gera framtíð*
arskipulag af svæðinu við Bú-
staðaveg, á milli Grensásvegar
og Rjettarholtsvegar. Á þessu
svæði á áð reisa íbúðarhúsin,
sem Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri flutti tillögu um í bæj-
arstjórninni nú í vor.
Sumargestir
í HveragerSi
HINN nýstofnaði leikfloKk-
ur „Sumargestir“, heimsækir
Hveragerði í kvöld og hefúp
aþr leiksýningar og eftirherm-
ur. —•