Morgunblaðið - 17.08.1949, Blaðsíða 12
VEÐURUTUT — FAXAFLOI:
SA-kalíli eða stinningskaldá. —
Kigning, |tegar líður á daginn.
FRJALSLYNDU stefmmnj eru
að skapast ný baráttumál. —1
Grein á bls. 7.
183. tbl. — Miðvikudaginn 17. ágúst 1949.
fiþreifanlegt sönmm<
irgngn fyrir skríis-
Érás kommiínislsi
Kasfaði lögregian grj ófi í sjáifa sig?
ENGINN, sem sjer kvikmynd Sigurðar Norðdahls af atburðunum
við Austurvöll 30. mars s.l. getur annað en sannfærst um frum-
kvæði kommúnista að óeirðum þeim og skrílslátum, sem þar
urðu.
Myndin sýnir mikinn fjölda friðsamra borgara fyrir framan
Alþingishúsið meðan kommúnistar halda útifund sinn við Mið-
bæjarskólann. Hún sýnir að kommúnistafundurinn er fámennur
eg að meðan hann stendur yfir fer allt fram með reglu og frið-
semd við Austurvöll. En nokkru eftir að kommahópurinn er
kominn í Kirkjustræti byrja skrílslætin. Mannsöfnuðurinn sjest
í kring um bíl þann, sem einn af æsingamönnum kommúnista
hafði sett í gjallarhorn og ætlaði að nota til að trylla með lið sitt.
Grjótkast áður en nokkur
iögreglumaður hefst handa
Þá sjest grjóthandlöngurum
kommúnista bregða fyrir og
bríðin að þinghúsinu hefjast.
Þetta gerist áður en nokk-
ur lögreglumaður hreyfir
sig til aðgerða gagnvart
óaldarseggjunum. Er þar
með afsönnuð sú höfuðlygi
kommúnista að árásin á
þinghúsið hafi þá fyrst haf-
ist er lögreglan hafði beitt
kylfum.
Ennfremur sjást greinilega
ýmsar ofbeldisaðgerðir komm-
únista gagnvart löggæslumönn-
um og friðsömum borgurum.
Sjest, hvernig einstakir ofbeld-
ismenn beita bareflum og grjót-
kasti.
En þýðingarmesta sönnun-
argagnið um sekt kommún-
ista er það að allt er með
friði og spekt við Austur-
vöil þar til hópganga þeirra
kemur þangað. Gasárás
lögreglunnar kemur þá
fyrst til greina þegar grjót-
kast og meiðingar komm-
únistaskrílsins hafa náð
hámarki og lífi fjölda
manna er stór hætta búin.
Vegsummerkin
En vegsummerki þau, sem
myndin sýnir að atburðunum
loknum, eru ekki síður athygl-
jsverð. Framhlið Alþingishúss-
ins blasir við nær rúðulaus.
Grjóthrönnin í Kirkjustræti er
jafnhá gangstjettarbrúninni og
greinilega sjest að mikill hluti
braungrýtisins við gangstígi
Austurvallar og umhverfis
styttu Jóns Sigurðssonar hefur
verið rifinn upp og notaður til
árásarinnar á þinghúsið.
Kommúnistar halda því að
sjálfsögðu fram að lögregl-
an hafi rifið þetta grjót upp
til þess að kasta því í sjálfa
sig, Alþingi og friðsama
borgara!!!
En bæði þeir, sem sjá mynd-
ina og fylgdust með atburðun-
um sjálfum 30. mars, sáu að það
voru kommúnistar sjálfir, sem
þenan verknað frömdu og sögð-
úst gera það í minningu Jóns
Sigurðssonar!!
Sögulegt sönnunargagn.
Þessi kvikmynd Sigurðar
Nordahls er sögulegt sönnunar-
gagn, sem mikils virði er að
skuli vera til. Enda þótt hún
hefði getað verið greinlegri, þá
sýnir hún greinilega höfuð-
drætti atburðanna 30. mars. —
Og hún sannar áþreifanlega
sekt kommúnista og ábyrgð á
hinum einstæðu ofbeldisaðgerð-
um gagnvart löggjafarsamkomu
þjóðarinnar, löggæslumönnum
og friðsömu fólki. Það er kjarni
málsins.
Myndin verður sýnd í Aust-
urbæjarbíó í síðasta sinn í kvöld
kl. 7. Síðar verður hún sýnd
víðsvegar um land. Er vonandi
að sem flestum gefist tækifæri
til að sjá hana.
Ný gerðaf skrá-
setningarmerkjuim
Á K V E Ð IÐ hefur verið að
leggja niður þá gerð af skrá-
setningarmerkjum bifreiða, sem
tíðkast hefur og sem svo mjög
hefur verið látið illa að.
Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur
ákveðið að láta gera nýja gerð
skrásetningarmerkja. — Verða
stafir þeirra þrykktir í merkið
sjálft, en þeir síðan silfurhúð-
aðir, en grunnurinn er svartur.
Er hjer um erlenda fyrirmynd
að ræða, sem fengin er á margra
ára reynsla, bæði í Bretlandi og
Bandaríkjunum.
Bifreiðaeftirlitið er búið að
bjóða út skrásetningarmerkin, *
en af þeim þarf að gera 22 þús.1
stykki, eða fyrir 11000 bíla og
bifhjól, sem nú eru skrásett í
umferð hjer á landi.
5096. farþeginn með „Gullfaxa". Veiðiveður ekki
gefl fyrir Norður-
í gær
LÍTIL síldveiði var í gær,
enda var bræla á miðunx’.m og
veiðiveður ekki sem best. Útlit
var fyrir betra veður með
kvöldinu. Blaðinu bárust eftir-
farandi skeyti frá Siglufirði,
Húsavík og Raufarhöfn í gær-
kvöldi:
Siglufjörður: Hingað komu
15—20 skip í dag með síld.
Fór mest af henni í söltun. —•
Fanney var með mestan afla,
eða 700 mál, sem allt fór í
bræðslu. Frjettir bárust ekki
um neina veiði í dag, en flotinn
er dreifður um veiðisvæðið.
Húsavík: — I dag var saltað
hjer í 700 tunnur og 1200 mál-
um landað í bræðslu. Síldin
var veidd við Rauðunúpa og
Sljettu. Það var ekki veiðiveður
í morgun, en veður fer batnandi
með kvöldinu.
Raufarhöfn: — Geir goði frá
Vestmannaeyjum landaði hjer
700 málum í dag, en löndunar
bíða: Þorsteinn frá Akranesi,
með 700 mál, Víðir frá Akra-
! nesi með 600 mál og Heimir
frá Vestmannaeyjum rneð 200
mál. Stormur er á veiðisvæðinu
og frekar lítið veiðist.
5000. farþeginn, sem flaug með „Gullfaxa“ á milli landa, kom
bingað 29. júlí s.l. Hann heitir Jens Gausland og er bóndi að
Jaðri í Noregi. Hann sjest á meðíylgjandi mynd ásamt flug-
stjóranum, Sigurði Ólafssyni, og flugfreyjunni, Kristínu Snæ-
hólm. „Gullfaxi“ var keyptur hingað til lands 8. júlí í fyrra.
14, nóv. samkomu-
dagur Alþingis.
Kjördagar 2 eða 3
TVENN bráðabirgðalög voru
sett á ríkisráðsfundi í gær. —
Annað voru lög um breyting
á lögum nr. 3 frá 14. febrúar
1949 um samkomudag reglulegs
Alþingis 1949. Var ákveðið, að
hann skyldi vera 14. nóvember
næstkomandi. Hitt var breyt-
ing á lögum um kosningar til
Alþingis nr. 80 frá 7 sept. 1942.
Segir þar, að kjördagar skuli
tveir og þrír, ef veður hamlar,
þannig að kosning geti ekki
farið fram í einhverju kjör-
dæmi.
rr
í logi frá Færeyingahöfn
fil Álasunds
BERGEN, 16. ágúst. — Björg-
unarskipið Jason lagði af stað
frá Færeyingahöfn á Grænlandi
í gær (mánudag), með skipið
Stavsund í eftirdragi. Er ætl-
unin, að björgunarskipið dragi
Stavsund alla leið til Álasunds
í Noregi og mun ferðin taka 12
til 13 daga. Er talið, að hjer
sje um að ræða þá lengstu leið,
er norskt björgunarskip hefur
haft skip í togi. — NTB.
Barmen' eign
skaflfellsku
bændanna
TOGARINN Barmen, sem bræð
urnir á Kirkjubæjarklaustri
björguðu af strandi, ásamt
nokkrum sveitungum sínum, er
nú örðinn íslensk eign.
Samningar munu ekki hafa
tekist milli björgunarmann-
anna annars vegar og hins veg-
ar eigenda og vátryggjanda og
var bændunum þá gefið afsals-
brjef fyrir togaranum.
Dómkvaddir menn voru látn-
ir meta skipið, og möttu þeir
það á um 600 þús. kr. Er það
mat talið síst of hátt og telja
kunnugir Barmen vera hið
besta skip. Sagt er að vjelar
þess beri það með sjer að þær
sjeu nýjar. Þá.er skipið og búið
öllum veiðarfærum.
Bændurnir munu hafa hug á
að selja Barmen annað hvort
hjer innanlands eða til útlanda.
Togarinn hefur legið vestur við
Ægisgarð í allt sumar.
Milli 10 og 20
otvaðir við aksiur
FRÁ því var skýrt.í Mbl. síð-
astl. sunnudag að ökuníðingur
hefði ekið vörubíl sínum á einn
af sjúkraflutningavögnunum.
Maðurinn, sem ók þessum
bíl, gaf sig fram við rannsókn-
arlögregluna á mánudaginn og
jafnframt við slökkviliðið. Við-
urkendi maðurinn að hafa verið
drukkinn, er hann ók bílnum,
sem var R-3670, en það er vöru-
bíll.
Þá ók maður nokkur á bif-
reiðinni R-1665 á eitt af bif-
hjólum Landssímans og eyði-
lagði það, þar sem það stóð við
Múla-Kamp. Maðurinn ók á
brott, en lögreglunni tókst að
handsama hann nokkru síðar.
Það sem af er ágústmánuði
hefur götulögreglan handtekið
milli 10 og 12 menn, sem
drukknir voru við akstur. —
Flestir þeirra voru handteknir
að næturlagi.
Nýja kjölið kom
í gær
í GÆRDAG kom fyrsta sum-
arslátraða dilkakjötið á mark-
aðinn hjer í Reykjavík, en sum-
arslátrunin hófst í fyrradag, á
um 20 stöðum víðsvegar um
landið.
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins, er verðleggur landbúnaðar-
vörur, hefur ákveðið, að dilka-
kjötið skuli kosta krónur 19.60
kg. í smásölu. Er það allmiklu
lægra verð en frjettst hafði um
og ber að fagna því.
Dilkarnir munu yfirleitt vera
mjög sæmilegir. Hjer í Reykja-
vík fer slátrun þeirra fram í
Sláturfjelagi Suðurlands.
Þjóðarafkvæðagreiðsla
í Belgíu
BRtJSSEL, 16. ágúst. —
Gaston Eyskens, forsætisráð-
herra Belgíu, lýsti því yfir í
dag, að allt yrði gert til að
leysa vandamáhð i sambandi
við Leópold konung. Mun
stjórnin, sem er samsteypa
(kaþólska flokksins og frjáls-
i lyndra, 1 eitast við að leysa
þetta mál í samvinnu við stjóin
arandstöðuna, tn sósíalistinn
Spaak er þar í fyrirsvari.
Munu 3 aðalflokkar þings-
ins nú i meginatriðum hafa
komið sjer saman um þjóðarat-
kvæðagreiðslu til að skera úr
um, hvort Leopold konungur
skuli hverfa hexm eða ekki.
—• Reuter.