Morgunblaðið - 19.08.1949, Side 1

Morgunblaðið - 19.08.1949, Side 1
r>P Bernard Shaw í kínverskri skikkiu. FYRIR skömmu átti Bernard Shaw 93 ára afmæli. í afmælis- boðinu var gamall vinur hans, Robert Hotung, auðugur verk- smiðjueigandi frá Hongkong, sem er 87 ára. Hann hafði gefið Sliaw þessa kínversku skykkju, sem hann er í á myndinni. Svalbarði og Atlantshafsríkin Hlufverk Svalbarða ef til sfyrjaldar kemur Einkaskeyti til Mbl. frá NTB. NEW YORK, 18. ágúst. — Stórblaðið New York Times getur þess i grein, er það birti í gær, að Norðmenn muni fá ríkjum Atlantshafsbandalagsins land undir bækistöðvar á Svalbarða, ef koma skyldi til árása af Rússa hálfu. Þykist blaðið hafa góðar heimildir fyrir þessu. Noregur mun ekki sleppa eignarhaldi á Svalbarða. í gær birtist í stórblaðinu „New York Times“, grein um Sválbarða. Segir þar á þessa leið: „Noregur er staðráðinn í að sleppd ekki eignarhaidi sínu á Svalbarða, en mun ljá At- lantshafsríkjunum landið undir bækistöðvar sínar, ef til rúss- neskrar árásar skyldi koma“. Höfundur greinarinnar vitn- ar i marga merka Norðmenn á Svalbarða máli sínu til stuðn- ings. Svalbarði mikilvægur í stríði. Margir eru þeir staðir víðs- vegar um landið, sem eru heppi legir landflugvjelum til lend ingar, en firðirnir eru hinir bestu lendingarstaðir fyrir flug báta. Norsk stjórnarvöld gera sjer fulla grein fyrir mikilvægi Svalbarða sem hernaðarbæki- stöðvar, ef til styrjaldar kæmi, þar sem norðurskautið væri miðdepill hernaðaraðgerðanna. Norðmenn gera og ráð fyrir keppni um þennan stað, ef til styrjaldar kæmi, og jafnvel fyr. „New York Times“ nefnir sem dæmi, um viðhorf Norð- manna til þessara mála, heim- sókn ríkiserfingjans til Sval- barða og þau ummæli hans, að stundum kunni að vera nauð- synlegt, að fórna lífinu fyrir frelsið. Getur blaðið og um 3 norska tundurspilla, sem hafa verið við Svalbarða nú um sinn, og hin mörgu æfingaflug norska flug- hersins milli Svalbarða og Tromsö. Skemmsta leiðin. Loks bætir blaðið því við, að skemmsta leið milli Bandaríkj- anna og iðnaðarhjeraða Sovjet- samveldisins liggi einmitt um Svalbarða. Hörð áftök í Finnkndi milli verkiallsmanna og lögreglu Einn maður Ijet lífið - sextán særðust. Einkaskeyti til Mbl. frá NTB. HELSINGFORS, 18. ágúst. — í borginni Kemi í Finnlandi kom í dag til óeirða milli lögregluliðs og verkfallsmanna. Einn verkfallsmanna var drepinn í óeirðum þessum. Tíu lögreglu- níenn og sex verkfallsmenn særðust. Lögreglan greip til tára- gassins,. en verkfallsmenn svöruðu með því að beita bareflum Norðmenn kunna að fá aukna Marshall- hjáip á næsta ári PARÍS, 18. ágúst: — Á morg- un munu verða lagðar fyrir ráð efnahagssamvinnustofnunar Ev rópu tillögur um, hvernig Mars hallfjenu skuli skipt á næsta ári. Búist er við, að í tillögun- um sje gert ráð fyiir, að dregið verði úr hjálpinni til nokkurra landa. ; Tillögur þessar, sem unnið hefir verið að að undanförnu, munu þó sennilega gera ráð fyr ir aukinni hjálp til handa Nor- egi og Tyrklandi, og ekki þyk ir ólíklegt, að lagt sje til, að Portúgal fái hjálp, sem nema mundi 30 miljónum dollara, en Portúgal fjekk ekkert framlag á síðasta ári. Að tillögum þessum hafa unnið fulltrúar 6 þjóða. — Reuter. Cripps að koma frá Svisslandi LONDON, 18. ,ágúst. — Sir Staffords Cripps fjármálaráð- herra, er væntanlegur frá Sviss landi til Bretlands á morgun (föstudag). Cripps hefur dvalið á heilsuhæli að undanförnu. Fjármálaráðherrann mun ekki hafa getað dvalið í Syisslandi eins lengi og hann ætl-aði upp- haflega, sökum . fyrirhugaðrar ferðar hans til Washington. — Hann heldur af stað til Banda- ríkjanna með ,Queen Elizabeth' 27. þessa mánaðar. — Reuter. Bærinn tekur lil- boði um smíði leikskóla BÆJARRÁÐ ræddi . síðastl. miðvikudag á fundi sínum, um tilboð þau er bárust um smíði tveggja leikskóla, er bærinn ætlar að láta reisa nú í haust. Á annar þeirra að verða á opna svæðinu á horni Barónsstígs og Njálsgötu, en hinn skólinn við Ránargötu, vestan Bræðraborg- arstígs. Bæjarráð samþykkti að taka tilboði þeirra Þóris Long og Sigurðar Guðmundssonar um smíði húsanna. Var borgarrit- ara og bæjarverkfræðingi jafn- framt falið að gera frumvarp að verksamningi. PARlS — Átj 'in manns ljetu ný- lega lífið, er langferðabíll fjell nið- ur í 490 feta djúpt gil í námunda við Marrakesh í Marokko. og grjóti. Finnar koma sjer upp læki til kjarn- orkurannsókna HELSINGFORS, 18. ágúst: — I Finnlandi er nú verið að búa til fyrsta tækið til sundrunar frumeindakjarnanum, sem gert hefir verið þar í landi. Þetta tæki, sem Lennart Simon pró- fessor sjer um smíðina á, er nokkurskonar rafall. Er ætlunin, að tæki þetta verði fullgert árið 1951. — Er það ómissandi við eðlisfræði- rannsóknir, og var smíði þess hafin fyrir nokkrum árum. í ljós hefir komið, að ekki er unnt að búa tæki þetta til í Finnlandi að öllu leyti. Það, gem á vantar. verður að fá frá Bandaríkj unum. Verður tæki þetta hið stærsta sinnar tegundar á Norðurlönd- um. Eiga Danir þegar eitt slíkt tæki, og í Svíþjóð er annað í smíðum, þótt ekki verði það eins stórt og það finnska. — NTB. Abdullah konungur í Bretlandi LONDON, 18. ágúst. — Ab- dullah, konungur Transjórdan- íu, kom flugleiðis til Bretlands í dag í opinbera heimsókn. — Hann mun meðal annars heim- sækja bresku konungshjónin og eiga viðræður við Bevin utan- ríkisráðherra- I fylgd með konunginum er sonur hans einn og tveir ráð- herrar. — Reuter. Belgiska sijórin fær frausfsyfirlýsingu BRUSSEL, 18. ágúst: — Stjórn Eyskens forsætisráðherra fjekk traustsyfirlýsingu í dag í öld ungadeild belgiska þingsins. — Var traustsyfirlýsingin sam- þykkt með 99 atkvæði gegn 51. í dag fóru fram lokaumræð- ur í deildinni um stefnuskrá samsteypustjórnar kaþólskra og frjálslyndra. — Reuter. Verkfallsmenn fara af æsingafundi í Finnlandi hafa 11 Verklýðs fjelög undir forystu kommún- ista hafið verkföll. Krefjast verkamenn kauphækkunar, sem nemur 10 af hundraði. í borginni Kemi, sem er fyr- ir botni Botniskaflóans, kom síðdegis í dag til átaka milli verkfallsmanna og lögreglunn ar. Var þetta að afstöðnum æs- ingafundi, sem haldinn var í borginni. Er fundinum lauk hjeldu um 1500 verkfallsmanna, syngj- andi kommúnistasönginn „Inter nationalinn“ að brú ár þeirrar er rennur gegnum borgina. —- Brúarinnar gætti lögregluvörð ur, sem hafði verið fyrirlagt að vernda þá verkamenn, sem ósk uðu að hefja vinnu að nýju. Skerst í odda Er verkfallsmenn höfðu hróp að brigslyrðum að verkamönn- unum, tóku um 100 lögreglu menn sjer stöðu á brúnni og skoruðu á verkfallsmennina að hverfa á brott. Verkfallsmenn svöruðu áskoruninni með grjót kasti. Beitti lögreglan þá tára- gasi og kylfum til að sundra mannfjöldanum. Þegar alt kom fyrir ekki skaut lögreglan við- vörunarskotum upp í loftið. Þessum átökum lyktaði svo, að einn verkfallsmanna ljet lífið, mun hann hafa fengið hjartaslag. Sex verkfallsmanna og tíu lögreglumenn særðust. Líta menn mjög alvarlegum augum á ástandið í borginni og bíða frekari atburða, og hefir stjórnin kvatt herlið og lög- regluvaralið þangað. I Stjórnin mun standa ótrauð Hafnarverkamenn í 23 finnsk um höfnum gerðu verkfall í morgun, svo að öll skipaaf- greiðsla stöðvaðist, og hefir stjórnin lýst yfir, að hún muni einskis láta ófrestað til að stöðva verkfallsölduna, sem kommúnistar hafa stofnað til. (Grein um verkföllin í Finn- landi er á bls. 7). an styriöldinni lauk. ítalskir bændur fá jarðir. RÖMABORG —- Ákveðið hefur verið að skifta 3.500.00 ekrum i Suð- ur Italíu a milli 250,000 sniábænda þar. 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.