Morgunblaðið - 31.08.1949, Blaðsíða 2
2
M O RGU N B L AÐlÐ
Miðvikudagur 31. ágúst 1945''
VALDABRfiSKlB EITBAR STJÓRNMÁLIN
Oheilindin eyðileggja Framsókn
SJALFSTÆÐISMENN hafa
margoft bent á, að umbóta sje
J>örf í atvinnu- og fjárhagsmál-
um landsmanna. A meðan
helstu atvinnuvegir eru reknir
með styrkjum af almanna fje
•og athafnir einstaklinganna
•eru heftar og hindraðar af ým-
iskonar nefndum og algerum
lagabönnum, þá er vissulega
breytinga þörf.
Lang-varandi
Jæknisaðgerðir
Umboðsmenn Sjáílfstæðis-
manna í ríkisstjórn hafa æ
ofan í æ gert tilraunir til þess
að' fá samkomulag um að ráð-
stafanir yrðu gerðar til að
greiða fyrir því. að atvinnu-
vegirnir gætu starfað styrkja-
laus og ljett yrði af einhverj-
ura þeim höftum, er nú liggja
oins og mara á athöfnum ein-
staklinganna.
Hið sjúklega ástand atvinnu-
og fjárhagslífsins verður ekki
læknað imeð neinum skyndi-
ráðstöfunum eða skottulæknis-
meðölum. Það verður að gera
margar og margskonar ráðstaf-
anir og lækningin mun að lík-
indum taka langan tíma
Líkurnar til varanlegs bata
eru þeim mun meiri, sem frek-
ar er hægt að forðast ósam-
komulag og illdeilur út af þeim
úrræðum, er beita verður. —
Ráðstöfun getur orðið að gagni
ef utn hana er samkomulag, en
hún kann að verða til ills eins,
ef að nauðsynjalausu er stofn-
að til haturs og sundrungar um
hana.
Saínkomulag æskilegt
Þessvegna hafa Sjálfstæðis-
menn viljað leita samkomulags
um lausn þessara mála til
lengstra laga. Slíkt samkomu-
lag hefur því miður ekki tekist.
Alþýðuflokkurinn trúir sam-
kvæmt stefnu sinni á hÖft og
hömlur og sem allra mesta í-
hlutun ríkisvaldsins um mál-
ef'ni einstaklinganna. Forvstu-
menn hans viðurkenna að vísu,
að ekki sje vænlegt til lengdar
að láta atvinnuvegina lifa á
oninberum styrkjum. en þeir
hafa talið, að enn væri ekki
tímabært að breyta til í þess-
inn efnum.
Ákefð Alþýðuflokksins í að
■tileinka sjer og verja núverandi
ástand í atvinnu- og fjármálum
er ekki skynsamleg, en hún
hvílir þó á málefna-grundvelli.
Framsókn andvíg
málefnaíhugun
Framsóknarmenn láta að vísu
svo í öðru orðinu, sem beir geri
sjer Ijóst, að núverandi ástand
sje ekki viðhlítandi. En mál-
efnaleg íhugun þeirra á vanda-
máíunum er ærið stopul.
Það var engin tilviljun, að
Tíminn skyldi sjerstaklega
finna að því, að Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokksráðherrarnir vildu
í sumar fá nokkurt svigrúm til
að kynna sjer og íhuga greinar-
gerð um þessi efni, er lærðasti
hagfræðingur, íslenskur, hafði
samið að tilhlutan ríkisstiórn-
aiinnar. Blaðið þorði raunar,
eklci að setja út á það berum
orðum, að leitað skyldi álits
h.uHauss mjög lærðs fræði-
rnj.uns í þessu efni. Hitt fanst
blaðinu fyrir neðan allar hell
ur, að menn þyrftu tíma til að
lesa og setja sig inn í þær merki
legu rannsóknir, er hagfræðing
urinn hafði gert
Tímatakmark Hermanns
Slík vinnuaðferð“ er óþekt
á stjórnmálaheimili Hcmanns
Jónassonar. Hermann hefur
ekki áhuga fyrir lausn aðkall-
andi vandamála Hans eina á-
hugaefni er það að koma rík-
isstjórninni frá völdum. Ætíð
frá því að stjórnin var mynduð,
hefur hann fullyrt víðsvegar um
landið. að hún skvldi vera farin
frá eftir 2—3 mánuði. Loksins
taldi hann um síðustu mán-
aðamót, að draumur sinn væri
að rætast og tilkynti í Tíman-
um, að nú væri dauðastund
stjórnarinnar komin — „Um
næstu helgi“, sagði hann að
stjórnin myndi segja af sjer.
Ráðherrar flokksins og aðrir
ráðamenn gerðu sjer hinsvegar
grein fyrir, að það var hvorki
holt u.pp ;i áframhaldandi
stjórnmálasta,'f í landinu, nje
hafði Framsókn sjálf rrálefna-
grundvöll til þess að hverfa úr
ríkisstjó. ninni um þá helgi, er
Hermanr hafði ákveðið. Þess-
vegna tóku þeir það ráð til að
friða Hermann, að segja að
stjórnarsamstarfinu væri „raun
verulega slitið“ en segja þó
alls ekki af sjer, heldur bara
lýsa yfir því. að þeir ætluðu að
gera það eirsl'vern tíma síðar.
Órólegi maðurinn
í Framsóknar-stofunni
Með Hermann var farið eins
cg æstan og óróan mann, sem
situr í stofu og heimtar, að ein-
hver, sem þar er inni, hypji sig
út. Honum er til fróunar sagt,
að maðurinn sje farinn, þó að
hann hreyfi sig hvergi. Þegar
sá órólegi segir: ,.Já, en jeg sje
dónann. Hann er alls ekki far-
inn“, þá er hann huggaður með
því, að maðurinn sje að minsta
kosti „raunverulega farinn“,
þótt hann sje enn inni í stof-
'unni. Ef sá órólegi trúir betur
Ísínum eigin augum, heldur en
' I
I hinu, sem honum er sagt, að sje
„raunverulegt“ og lætur sjer'
það ekki lynda, er því að lokum
bætt við, að hinn fari „eftir
svo sem rúma tvo mánuði“.
Það er farið að miða við
alveg sama frestinn og Her-
mann hefur ætíð sjálfur gert
um fall stjórnarinnar. Hann
hefur ætíð boðað dauða hennar
eftir svo sem tveggja til þriggja
mánaða tíma.
Bóngóðir við
Stefán Jóhann
Elcki ckal um það sagt, hvort
Hermann hefur skilið, að sam-
starfsmenn hans voru beinlínis
að hæðast að honum, með því
að tiltaka einmitt þennan frest,
því að vitanlega skilja þeir jafn
vel og allir aðrir, að yfirlýs-
ingar um afsögn þeirra eftir
kosningar hefir harla litla þýð-
ingu. Það eru ekki slíkar yfir-
lýsingar gefnar nú, sem skera
úr um hverjir fari með stjórn
landsins þá, heldur úrslit kosn-
inganna.
Svo er og að sjá sem Tíminn
skilji þetta öðru hvoru, því að
hann þarf viðbótar skýringa. —
Fyrst var sú, að Stefán Jóhann
hefði beðið Framsóknarráðherr
ana svo vel að vera í stjórninni,
að þeir hefðu ekki getað fengið
af sjer, að neita honum um það.
Hvernig færi, ef Stefán Jóhann
bæði þá nú ennþá betur að kosn
ingunum afloknum? Mundu
þeir þá fara eða alls ekki fá
af sjer að synja jafnágætum
manni ekki útátameiri bónar?
„Sitja vegna
síldarmjölsins“
Þá fann Tíminn það snjal-
ræði, að skýra áframhaldandi
stjórnarsetu Framsóknarráð-
herranna, þrátt fyrir það, að
þeir væri ,,raunverulega“ farn-
ir, með því að þeir hefðu þurft
að sitja í stjórninni „til að út-
hlu-ta síldarmjöli11-
Á þann veg varð Tíminn til
að sanna þá ásökun á Fram-
sóknarflokkinn, að óværð hans
stafaði meðal annars af síldar-
leysinu. Strax og aðeins fór að
örla á síld, þótti það svo miklu
skifta, að úthlutun síldarmjöls
átti að vera nægileg ástæða fyr-
ir að halda áfram því samstarfi,
sem sagt var að ,,raunverulega“
væri slitið!!!
Klofningurinn
í Framsókn
Enginn skyldi halda að allar
þessar fáránlegu skýringar Tím
ans kæmi eingöngu af því, að
það sjeu svo rniklir kjánar. sem
skrifa í það blað. Nei, þannig
fer oftast, þar sem sundrung
og óheilindi eru öllu ráðandi.
Flestir þingmenn Framsókn-
arflokksins eru sammála Sjálf-
stæðismönnum um það, að þjóð
inni ríði nú ekki mest af öllu
á auknum fjandskap og illind-
um, heldur þurfi þolinmæði og
þrautgæði til þess að sigrast á
meinsemdum atvinnu- og fjár-
hagslífsins.
Valdabrask Hermanns Jónas-
sonar samrýmist ekki heilbrigð-
um stjórnarháttum. Framsókn-
armennina skortir hinsvegar
enú kjark til þess að hristg
valdabraskarann af sjer. Þess
vegna sannast á þeim, að erfitt
er tveimur herrum að þjóna.
Þeir geta ekki í senn farið eftir
sannfæringu sjálfra sín og
hjálpað Hermanni Jónassyni
upp í forsætisráðherrastólinn
með aðstoð kommúnista.
Vegna þessa tvískinnungs
skapast óheilindin innan flokks
ins og tvísöglin í Tímanum.
Framsókn þarf að fá
hvíld
Sjálfstæðismenn vilja heil-
brigt samstarf við aðra flokka,
en það verður að játa, að Fram-
sóknarflokkurinn hefur í senn
gert sjálfan sig óstarfha;fan inn
á við og ósamstarfshæfan út á
við. Hann verður að lækna eig-
in meinsemdir áður en hægt er
að treysta honum til að lækna
meinsemdir þjóðlífsins í heild.
Fyrverandi kjósendur Fram-
sóknar munu býsna margir átta
sig á þessu. Þess vegna munu
þeir ætla Framsóknarflokknum
eðlilega hvíld. svo að hann þurfi
ekki að þreyta sig á áhvrgð af
stjórnarstörfum og geti í ein-
verunni fundið sjálfan sig og
í friði gert upp við valdabrask-
arann.
Stef fær ekki gjald
af grammofónpiötum
STEF hefur ekki rjett til að krefjast gjalds fyrir flutning tón-
verka af grammófónplötum, sem gefnar hafa verið út til sölu
til almennings, að því er Haraldur V. Ólafsson forstjóri Fálkans
h.f. hefur skýrt Morgunblaðinu frá, en Fálkinn hefur aðal-
umboð fyrir „His Masters Voice“ grammofónplötufjelagið.
Svar við fyrirspurn.
Yfirlýsing Fálkans er á þessa
leið og er hún dagsett 29. ágúst:
„Út af kröfu sem ,,STEF“
hefir gert um greiðslur fyrir
rjett til opinbers flutnings
hljómlistar af grammofónplöt-
um, sem þegar hafa verið gefn-
ar út til sölu, viljum vjer hjer
með taka fram, að samkvæmt
skeyti er vjer í dag höfum mót-
tekið frá, „International Federa
tion of the Phonographic Indus
try“, sem er samband grammo-
fonplötu-iðnaðarins erlendis,
hefir „STEF“ ekki heimiltl til
þess að krefjast greiðslu fyrir
flutningsrjett á, His Masters
Voice — Columbia — M.G.M.
— Parlophone eða Regal plöt-
um, þar sem gjald (Copyright)
af öllum slíkum skrásettum
grammofonplötum er greitt
jafnóðum og þær eru framleidd
ar“.
Óftasl rembing
Þjóðverja
PARÍS, 30 . ágúst — Moch, inn
anríkisráðherra Frakka, hjelt
ræðu í Suður-Frakklandi í dag,
þar sem hann minntist á uppá-
stungu Winston Churchills um
að Þýskaland fengi sæti í
Evrópuráðinu. Sagði Moch, að
sjer þætti mjög varhugavert
að hefja nú svo náið samstarf
við Þjóðverja. Það hefði komið
í ljós, að þeir væru enn fullir
af þjóðarrembingi og hel'ðu
ekkert lært af síðustu styrjöld.
Þetta sagði Moch samt aðeins
vera persónulega skoðun sína
en ekki túlkun á skoðun
frönsku stjórnarinnar í heild.
— Reuter.'
Staksteinar
Utanfarir og pólitík
BLÖÐ allrá hinna rauðu hálf
bræðra, kommúnista, Alþýðu
flokksmanna og Framsökn-
ar hafa undanfarið rætt mik
ið utanfarir og eyðslu gjaid-
eyris. Eru blöðin sammála
um það, að það sje fyrst og'
fremst ótætis „íhaldið“, sem
fyrir þessum ferðalögum og
eyðslu standi.
Einmitt það. Undarlegt er
lífið og sannarlega ekki
rjettlátt, ef það er að eins
fólk úr einum stjórnmála-
flokki á Islandi, sem fær að
litast um í heiminum. En
er þetta virkilega þánnig.
Hafa þær þúsundir íslend-
inga, sem farið hafa utan t.
d. á þessu sumri allar verið
úr Sjálfstæðisflokknum? Er
Viðskiptanefnd virkilega svo
hlutdræg að lofa ekki nein-
um nema eindregnum Sjálf-
stæðismönnum að fara út
fyrir Pollinn? Ef svo væri.
fyndist mjer Viðskiptanefnd
voðaleg stofnun. En Við-
skiptanefnd veitir ekki gjald
eyrisleyfi til utanferða eftir
pólitískum lit umsækjenda.
Það vita allir nema blöð
hinna rauðu hálfbræðra.
Florida og Monte Carlo
EN þessi blöð segjast vera
viss um það að Sjálfstæðis-
menn eyði miklu af gjald-
eyri, sem sje stolið undan og
skemmti sjer fyrir hann í
Florida!!
Ljótt er að heyra, ef satt
væri. En annars kom bað í
ljós þegar ríkisstjórnin Ijet
rannsaka, eftir því, sem unt
var, inneignir íslendinga
vestan hafs, að stærsti inn-
flytjandi landsins, Sambana
íslenskra samvinnufjelaga,
hafði engum eyri skilað af
umboðslaunum sínum til ís-
lenskra banka. Ætli Sjálf-
stæðismenn hafi skemmt sjer
fyrir hann á Florida?
En fór nokkur, sem Tím-
inn kannast við til Monte
Carlo, eða þekkir Þjóðvilj-
inn nokkurn, sem „iifði
hátt“ í Stokkhólmi og viðar
á Norðurlöndum. Getur Al-
þýðublaðið gefið upplýsing-
ar um flokk, sem sendi tvo
fulltrúa til þess að sitja UN&
þingið í París vegna þess að
tveir þingmenn hans þurftu
að ,,fá jobbið“?
I
Bjálfaleg brigslyrði
SANNLEIKURINN er sá að
þessi brigðslyrði rauðu blað
anna um það að Sjálfstæðis-
menn eyði löglegum og ólög-
legum gjaldeyri til skemti-
ferðalaga í útlöndum eru
eitthvað það bjálfalegasta,
sem hjer hefur sjest á prenti.
Kjarni málsins er að mikill
fjöldi Islendinga úr öllum
stjettum og stjórnmálaflokk-
um hefur farið til útlande
undanfarin ár til þess að
skemta sjer og víkka sjón-
deildarhring sinn. — Þetta
fólk hefur verið misjafnlega
efnum búið og lifað misjafn
lega vel. Flestir hafa að sjalí
sögðu farið vel með íerða
Frh. á bls. 12.
■s