Morgunblaðið - 01.09.1949, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 1. sept. 1949«]
Framkvæmd IræSslulaga
fjórir gagnfræSaskólar
Ræff við fræðslufuiifrúa og skóiastjóra
FRÆÐSLUFULLTRÚI
Heykjavíkurbæjar, skólastjór-
ar gagnfræðaskólanna og
barnaskólanna hjer í bænum
ræddu í gær við blaðamenn,
um fyrirkomulag á starfsemi
þessara skóla, með hliðsjón af
áhrifum hinna nýju fræðslu-
laga. — Sem bein og eðlileg
afleiðing þeirra, munu fjórir
^ágnfræðaskólar verða starf-
•andi hjer í bænum á vetri
komanda, en þessa skóla eiga
að sækja allflest þeirra barna,
«r voru í gagnfræðadeildum
f>eim, er störfuðu í barnaskól-
unum í fyrravetur, svo og
ílest þeirra barna er á síðastl.
vori luku barnaprófi. — Hef-
ur börnum þeim, sem hjer
«eiga hlut að máli verið skipt
* skólana eftir ákveðnum regl
«um.
Gagnfræðaskólarnir munu
taka til starfa 1. október næst-
komandi.
IMokkur orð um fræðslulögin.
Samkvæmt nýju fræðslulög-
unum eru barnaskólar 6 ára
.skólar í stað 7 ára áður. Skóla-
.skyldan hefst á því ári, er barn-
ið verður sjö ára. Þau börn,
^em fædd eru á árinu 1942,
verða því skólaskyld í haust.
A því ári, sem börn verða
13 ára (í ár börn fædd 1936),
taka þau svonefnt barnapróf.
t*au, sem ná því, hafa lokið
barnaskólanámi, en eiga síð-
an að stunda nárr. í gagnfræða-
Ækóla í tvö ár Því námi lýkur
•neð unglingaprófi á því ári,
sem nemandinn verður 15 ára,
■og hefur hann þá fullnægt skóla
.skyldu sinni. — Að loknu eins
árs námi í viðbót getur nem-
andinn gengið undir miðskóla-
f>róf, sem veitir rjett til inn-
,göngu í lærdómsdeild mennta-
Ækóla eða í kennaraskóla- —
Þeir nemendur, sem stunda
tveggja ára gagnfræðanám að
loknu unglingaprófi, ganga und
«r gagnfræðapróf, sem verður
með öðrum hætti en tíðkast
I>efur til þessa og mun veita
rjettindi til inngöngu í ýmsa
-sjecskóla.
fSyrjað að framkvæma lögin.
Segja má; að framkvæmd
hinna nýju fræðslulaga hefjist
J Reykjavík með barnaprófi vor
ið 1S48 og kennslu í gagnfræða
deildum barnaskólanna hjer s.l.
veíur. Nemendur þeirra deilda
setjast nú í 2 bekk gagnfræða-
skólanna, sem nú geta tekið
fleiii nýja nemendur en áður.
Þó er þar eigi nægilegt hús-
rými fyrir alla nemendur á
gagnf'ræðastigi, og starfa því
gagnfræðadeildir í Miðbæjar-
-og Laugarnesskóla í vetur. —
f Austurbæjarskóla og Mela-
.skóla verða aðeins börn á aldr-
inum 7—12 ára, en engar gagn
fræðadeildir eins og s. 1. vetur.
Skiptingin.
Til þess að tryggja það, að
hæfilegur fjöldi nemenda verði
í hverjum þeim skóla, sem ann-
ast gagnfræðakennsluna. svo og
til þess að gera skólasóknina
eins haganlega og við verður
komið í vetur var það ráð tekið
að skipa i skólana eftir ákveðn-
um reglum. sem nú verður skýrt
frá. Skipting þessi fer að mestu
eftir skólahverfum, en sumpart
eftir deildaskipun frá s. 1. vetri.
Er þess vænst, að aðstandendur
festi sjer reglur þessar í minni
og hlíti þeim, enda verða und-
anþágur frá þeim eigi veittar
fyrst um sinn.
Börn fædd á árunum 1935
og 1936, sem lokið hafa barna-
prófi. eru skólaskyld næsta vet-
ur. og fer kennslan fram í eft-
irtöldum skólum:
Gagnfræðaskólinn við Hring-
braut. — Nvr gagnfræðaskóli
tekur til starfa í haust í hús-
inu nr. 121 við Hringbraut. Þar
hefur verið tekin á leigu ein
hæð og innrjettuð til skólahalds
vegna skorts á skólahúsnæði. í
þessum skóla verða 6 deildir.
Þangað eiga þau börn að sækja
skóla, sem voru í 1. bekk gagn-
fræðadeildar í Melaskóla s. 1.
vetur, ennfremur þau börn, sem
voru í deildunum 12 ára A, 12
C og 12 E í Melaskóla s. 1. vet-
ur og luku barnaprófi.
Arni Þórðarson, kennari, hef
ur verið skipaður skólastjóri
þessa nýja skóla,
Gagnfræðaskóli Vesturbæj-
ar. — Sá skóli starfar í Stýri-
mannaskólanum gamla eins og
að undanförnu og verða þar 10
deildir. Auk þeirra nemenda,
sem fyrir eru í skólanum, verða
teknar 2 deildir í 1. bekk, og
eru það börn sem luku barna-
prófi í vor úr deildunum 12 B
og 12 D í Melaskóla. — í 2.
bekk verða tekin börn f- 1935,
sem voru i gagnfræðadeildum
Miðbæjarskóla s. 1. vetur og
eiga heima vestan Lækjargötu.
Miðbæjarskólinn. — Þau
börn f. 1936, sem luku barna-
prófi í Miðbæjarskólanum í vor,
verða í 1. bekk gagnfræðadeild-
ar í Miðbæjarskóla í vetur.
Verða þar 4 deildir.
Gagnfræðaskólinn við Lind-
argötu. — Unnið hefur verið
að viðgerð og endurbótum á
Franska spítalanum, og tekur
þar til starfa sjálfstæður skóli
í haust með 8 deildum. í 2. bekk
þess skóla verða þau börn tek-
in, sem voru í gagnfræðadeild-
um Miðbæjarskólans s. 1. vet-
ur og eiga heima austan Lækj-
argötu, en hin fara í Gagnfræða
skóla Vesturbæjar, eins og áður
var getið.
Þau börn f. 1936, sem luku
barnaprófi í Austurbæjarskóla
í voru og eiga heima á svæð-
inu norðan Bergþórugötu og
Brautarhólts að þeim götum
meðtöldum, eiga einnig að
sækja skólann við Lindargötu.
Jón Gissurarson, kennari, hef
ur verið skipaður skólastjóri
þessa skóla.
Gagnfræðaskóli Austurbæj-
ar. — Sá skóli, er áður starfaði
í Franska spítalanum og Sjó-
mannaskólanum, tekur nú til
starfa í hinni nýju skólabygg-
ingu við Egilsgötu. í skólanum
rúmast 22 deildir. Auk þeirra
iÍt) ci b ó h
211. dajgur ársins.
Árdegisflæði kl. 1.50.
Síðdegisflæði kl. 13,25.
Næiurlæknir er í læknavarðstof-
unni. simi 5030.
Nælurvörður er i Ingólfs Apóteki,
sími 1330.
Næturakstur annast Hreyfill, sími
6633.
I.O.O.F. 5=1309181/2=
ftjónaefni
Nýlega hafa opjnberað trúlofun
sína ungfrti Kristin Árnadóttir,
Hellnafelli, Grundarfirði og Halldór
Sigurjónsson bifreiðastjóri, Grafar-
nesi.
S.l. laugardag opinberuðu trúlofun
sina ungfrú Greta Jónasdóttir, Boða-
slóð 5, Vestmannaeyjuin og Kristinn
Sigfússon, Norðurkoti, Kjalarnesi.
Brúðkaun
Nýlega hafa yerið gefin saman í
hjónaband af sr. Garðari Þorsteins-
svni, ungfrú Þóra Jónsdóttir frá Laxa
mýri og Páll Flygenring. Hafnarfirði
Tveir ræðismenn
í Finnlandi
I siðasta Lögbirtingablaði, er frá
því skýrt, að skipaðir hafi verið tveir
ræðismenn í Finnlandi. Er anuar ^
Heillaráð
þeirra í Abo og er það Bror Sievers. j
— Hinn er í baenum Kotka og heitir
sá K. W. M. Fjörd.
Baðvörðurinn
í Nauthólsvik hættir störfum í dag.
Til Strandarkirkju
N. N. 50, T. M. 15, E. G. 20, I. S.
10, I. B. A. 10, Kagnar 20, H. J. 25,
H. G. P. 150, Þ. S. 5, áheit 50, Eirík-
ur 50. Jóna S. Sigurðard. 100, N. N.
200, N. N. 200. F. J. 10, T. G. 10,
K. J. 50. R. B. 5, B. S. 15. Rúna 20,
kona á Snæfellsnesi 50. gömul áheit
Helga 60, Fríður og Gunna 50, tvær
mæðgur 50, tvær konur á Skagastr.
150. gamalt áh. J. R. 50. Guðmundur
50. ónefndur 20. Haraldur Þórðarson
10. Illa Þorbjörnsd. 15, N. N, 20,
Karl 10, K. Á. I. 10, N. N. 50, Kona
10, N. N. 50, H. 0. 100, tvö áh. 40,:
N. N. 60. gamalt áh. 10, áheit 20,
stúlka 5. Guðríður Þorkelsson 20, A.
A. 10, N. N. 50, E. I. 2, S. L. 25,
Þ. Þ. 10, Þ. Þ. 20, G. R. 10, N. N.
15, ónefndur 100. gamalt áh. 5, Þ.
Þ. 10. gömul kona að vestan 10, E.
S. 30. Standard 10. áh. frá B. Ö. 30,
H. K. 17, P. J. 10, H. G. B. 20,
N. N. 50. gömul og ný áh. V. V. 50,
F. H. 50, S. J. gamalt áh. 10, G. T.
H. 10, V. K. 5, gamalt áb. ónefndur
5, J. J. 10, 4 áh. í brjefi 200, N. N.
50, N. N. 50, É. R. 15, J. A. 300,
ónefnd 50, gamalt og nýtt 70, gam-
alt áh. L. J. 20, óriefndur 20, FI. B.
10. N. N. 50, S. J. Kaupmh. 10,
Ingunn Hallgrimsd. Holti 100, Inga
g. á. 20. N. N. 5. A. H. 20. S. T. 50,
S. G. Hafnarf. 10.
Til bóndans í Goðdal
Nokkrir vinnufjelagar 240,00.
Þegar lenglar á rafmagnsfram-
lengingu vilja losna, t. d. þegar
þjer eruð nieð straujárn eða ryk-
sugu, þá er ágætt að binda þá sam
an eins og sjest á myndinni.
lendgir: 16—19—25—31—49 m. —«
Frjettir og friettayfirlit: Kl. 11—13
—14—15.45—16— 17,15 -18—20-.
23—24—01.
Auk þess m. a.: Kl. 13,15 Óperm
músik eftir Verdi og Rossini. Kl«
16,15 Lundúna-symfóníuhljómsveitiil
leikur. Kl. 19,00 Óperettumúsik. Kl«
0,15 Músik frá Grand Hotel.
Noregur. Bylgjulengdir 11,541
452 m. og stuttbylgjur 16—19—23
—31,22—41—49 m. — Frjettir kl.
07,05—12,00—13—18,05— 19,00 —
21,10 og 01.
Auk þess m. a.: Kl. 16,10 Siðdegiss
hljómleikar. Kl. 19,00 ,,Maskerade‘*
eftir Holberg. 1 hljeum verða lexkirj
lög eftir Grieg.
Danmörk. Rylgjulengdir 1250
31,51 m. — Frjettir kl. 17,45 og
kl, 21.00.
Auk þess m.a.: Kl. 18,40 Symfónitj
hljómleikar. Kl. 19,30 Leikrit í til-
efni af þvi að 10 ár eru liðin frú
byrjun heimsstyrjaldarinnar síðarij
Kl. 20,15 Kvöldhljómleikar. Kl. 21,13
Stúdentarnir koma til borgarinnar.
Svíþjóð. Bylgjulengdir: 1388 og
28,5 m. Frjettir kl. 18 og 21,15.
Auk þess m. a.: Kl. 18,30 Rosg
Marie, operetta eftir Friml. Kl. 19,3.Sj
Hvemig heimsstyrjöldin braust út«
Kl. 20,05 Symfóníutónleikar. Kl«
21,30 Tríó í b-dúr opus 99 eftir Schu-
bert.
Frh. á bls. 12
Til bágstöddu
hjónanna
Einar 100. G. J. 100.'
Flugferðir
Loftleiðir:
1 gær var flogið til Vestmannaeyja
(2 ferðir), Isafjarðar. Þingeyrar, Ak-
ureyrar (2 ferðír).
1 dag verður flogið til Vestmanna-
eyja (2 ferðir), Akureyrar, ísafjarð
ar. Sands, Bildudals og Patreksfjarðar
Hekla kom frá Kaupmannahöfn í
gær kl. 17.30. fuilskipuð farþegum,
fer aftur í fyrramálið til Prestwick
og Kaupmannahafnar, væntanleg aft-
ur á laugardag.
Fiugfjelag íslands:
Áætlunarferðir vcrða farnar í dag
I til Akureyrar (2 ferðir), Vestmanna-
eyja. Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Keflavíkur, Siglufjarðar og Ólafsfjarð
ar. Þá verður einnig flogið til þeirra
| staða, sem ekki var hægt að fljúga til
í gær sökum óhagstæðs veðurs.
j 1 gær var flogið til Akureyrar og
■ Isaf jarðar.
I Gullfaxi kom í gaér frá Prestwick
og London. Flugvjelin fer áætlunar
ferð til Kaupmannohafnar á laugar-
dagsmorgun.
Skipafrjettir
Eimskip:
Brúarfoss er í Leith. Dettiföss er í
Kaupmannahöfn. Fjallfoss er í Lond
on. Goðafoss er á leið frá Reykjavik
til Antwerpen og Rotterdam. Lagar-
foss var væntanlegur til Reykjavikur
i nótt. Selfoss er á Akureyri. Trölla-
foss er í New Yórk. Vatnajökull er
fyrir norðan.
'vifnin
Landsbókasafnið er opið ki. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka dage
aema laugardaga, þá kl. 10—12 o(i
1—7. — ÞjóSskjalasafnið kl. 2—7
alla virka daga. — Þjóðminjasafnið
kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga oa
sunnudaga. — Listasafn Einan
jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu
áögum. — Bæjarbókasafnið kl
10—10 alla virka daga nema laugar
daga kl. 1—4. Náttúriigripasafnið
opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðjv
daga og fimmtudaga kl. 2—3.
Fimmtug
Ingibjörg frá
Tjörnum
*
^ r
■s if
Gengið
Sterlingspund-----------
100 bandarískir dollarar
100 kanadískir dollarar
100 sænskar krónur -----
100 danskar krónur -----
100 norskar krónur------
100 hollensk gyllini----
100 belgiskir f-ankar —
1000 fariskir frankar---
100 svissneskir frankar —
Otvarpið:
___ 26,2*
___ 650,56
___ 650,50
___ 181.00
___135,5'
____131,10
___ 245,51
___ 14.80
___ 23,90
— 152,20
8,30—-9,00 Morgunútvarp. — 10,10
Veðurfregnir. 12.10—13,15 Hádegis-
útvarp. 15,30—16,25 Miðdegisútvarp.
— 16,25 Veðurfregnir. 19,25 Veður-
fregnir. 19,30 Tónieikar: Harmoniku-
lög (plötur). 19,40 Lesin dagskrá
næstu viku. 19,45 Auglýsingar. 20,00
Frjettir. 20,20 Cítvarpshljómsveitin
(Þórarinn Guðmundsson stjórnar).
Lagaflokkur eftir Pelibes. 20,45 Dag-
skrá Kvenrjettindafjelags Islands. —
Erindi: Islenskt sveitalíf um aldamót-
in (frú Sigríður Björnsdóttir). 21,10
Tónleikar (plötur). 21,15 Iþróttaþátt
ur (Jóhann Bernhard). 21,30 Tón-
leikar: Joel Berglund og Set Svan-
holm syngja (nýjar plötur). 21,45
Á innlendum vettvangi (Emil Björns
son). 22,00 Frjettir og veðurfregnir.
22,05 Symfóniskir tónleikar (plötur):
a) Píanókonsert nr. 3 í d-moll eftir
Rachmaninoff. b) Symfónia í þrem
þáttum eftir Strawinski (nýjar plöt-
ur). 23,05 Dagskrárlok.
Erlendar útvarps-
stöðvar
Brelland. Til Evrcpulanda. Bylgjc
FIMTUG er í dag, fyrsta septem-
ber húsfrú Ingibjörg Jónsdóttir
frá Tjörnum í Eyjafirði, dóttir
heiðurshjónanna Júlíönu Jóns-
dóttur og Jóns Jónssonar trje-
smiðs, sem bæði eru látin. Þau
hjónin eignuðust 4 börn og varð
Ingibjörg ung að sjá á eftir þrem-
ur bræðrum sínum og nú síðasii
á eftir foreldrum sínum, sem
bæði ljetust með stuttu millibili.
Oft hafa skifst á skin og skúr-
ir í lífi Ingibjargar og mörg henn
ar spor verið þung, en ávalt hef-
ur hið góða skap hennar sigrað
alla erfiðleika. Eins er með okk-
ur vini hennar að okkur þykir
gott að koma til Ingibjargar þeg
ar illa liggur á okkur, og erfið-
leikar steðja að. Ingibjörg sjer
alltaf einhver ráð og glaðlyndi
hennar og lífsánægja þeyta burtu
öllum leiðindum og frá henni fer
maður endurnærður, horfandt
björtum augum á framtíðina.
Ingibjörg er gift ágætismanni,
Haraldi Ásgrímssyni, og hafa þau
hjá sjer fósturdóttur 10 ára og
tvítugan son. Önnur börn Ingi-
bjargar eru tvær dætur búsettar
í Hafnarfirði og ein í Ameríku.
Ekki er að efa að gestkvæmt
verður á Njálsgötu 5 í dag og
margir verða þeir, sem flytja af-
mælisbarninu hamingjuóskir.
Imba mín, jeg þakka þjer allar
ánægjustundirnar, og alla þína
hjálp mjer og mínum til handa.
Megi góður Guð gefa þjer langa
og hamingjuríka lífdaga.
Vinkona.