Morgunblaðið - 01.09.1949, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 1. sept. 1949.
MORGVNBLABlÐ
9
HINN 25. ágúst Ijest Jón
Björnsson kaupmaður hjer í bæn
um, eftir mjög langvarandi sjúk-
dóm. Hann var fæddur 29. sept.
1887, sonur merkishjómmna
Björns Kristjángsonar alþingis-
manns og bankastjóra og . konu
hans Sigþrúðar Guðmundsdóttur
(Þórðarsonar á Hól). Átti hann
því til góðra að telja í báðar ætt
ir. —
Jón Björnsson naut mikilla vin
sælda og álits; en hann var ekki
hneigður fyrir að starfa að opin
berum málum, og gerði því allt
hvað hann gat til þess að koma
sjer hjá almennum deiium Þó
komst hann ekki hjá því að vera
kosinn í bæjarstjórn Reykjavík-
ur 30. janúar 1938, og í hafnar-
stjórn og varamaður í bæjarráð
og framfærslunefnd sama ár, og
endurkjörinn í þær nefndir 1939
■—1941. Þá átti hann og meðai
annars sæti í stjórn Eimskipa-
fjelags íslands og Verslunarráðs-
ins.
Jón Björnsson.
Á unga aldri byrjaði hann
verslunarnám, bæði í Þýskalandi
og Englandi og hafði aflað sjer
framúrskarandi reynslu og þekk-
ingar í öllum verslunarrekstri
er hann á æskuskeiði keypti
verslun föður síns, sem hann svo
rak ásamt versluninni Jón Björns
son & Co., til síðustu stundar.
Með Jóni Björnssyni er í val fall
inn einn af nýtustu og reyndustu
borgurum þessa bæjar. Alit frá
æsku hafði hann stundað og
stjórnað hjer verslun, með svo
óvenjumiklum dugnaði og fram-
sýni að furðu sætti. Var verslur.
hans þekkt um land allt fyrir
sjerstök vörugæði, áreiðanleg-
heit og lágt verð. Enda heyrði
jeg aldrei hallað á hann og störf
hans, hvorki í orði nje verki.
Hann var hinn mesti dreng-
skaparmaður. Manna hjálpfús-
astur, enda bjargvættur margra,
sem til hans leituðu í erfiðleik-
um sínum.
Þann 16. október 1910 kv.enf-
ist Jón, efíirlifandi konu sinni
Jakobínu Sigurveigu Guðm.d.
írá Grjótnesi í Presthólahreppi.
Hinni ágætustu konu. Varð þeim
hjónum sex barna auðið, sem nú
eru öll upkomin og hafa notið
góðrar menntunar og umhvggju
þeirra. Eru börn þeirra þessi:
Björn Kr. verslunarroaður. Guð-
mundur Jóh. stýrim., Hörður
efnafræðingur, Gunnar verslun-
armaður, Úlfar læknir og Sig-
þrúður stúdent.
Jeg sem skrifa þessar línur,
átti því láni að fagna að njóta
yináttu hans um árafjölda. Get
jeg ekki hugsað mjer mann, sem
er betri vinur vina sinna og
tryggari fjelagi en hann var. Um
margra ára skeið, hittumst við
ávalt vikulega og hjeldum þann-
ig við vináttu okfear, sem hjelst
alt til enda. Jeg get ekki látið
vera að geta þess, sem rnjer virð-
ist svo góð mynd af mannkosta-
rnanninum Jóni Björnssyni, að
er við ferðuðumst nokkrum sinn-
um saman erlendis, þá gætti hann
mín eins og jeg væri barn og
sýndi mjer alla þá alúð og natni,
sem hann gat mjer í tje látið,
þó jeg væri mörgum árum eldri
Þannig var hann fullur alúðar
og umhyggju.
I dag, er hann er borinn til
graiar, kveðjum við hann með
innilegu þakklæti fyrir vináttu
um árum, og biðjum Guð að
hans og órjúfandi tryggð, á liðn-
blessa minningu hans.
G. Á.
Howley hershöfðingi
fer frá Berlín
BERLÍN 31. ágúst — Howley
hershöfðingi, sem verið hefur
að undanförnu yfirmaður
bandaríska hernámsliðsins í
borginni er nú að láta af störf-
um. Fór hann í dag flugleiðis
frá Berlín áleiðis til Bandaríkj-
anna. Hann ræddi við blaða-
menn um stöðu borgarinnar.
Hann sagði, að með þeirri á-
kvörðun, að Vesturveldin her-
næmu hluta Berlínar hafi tveim
ur þriðju borgarbúa verið bjarg
að undan ógnarstjórn. Hann
kvaðst gleðjast yfir því, að íbú-
ar Vestur-Berlínar væru nú að
taka stjórn borgarmála að
nokkru leyti í eigin hendur.
Hann sagðist trúa því, að Berlín
arbúar myndu ekki missa sjón-
ar á því markmiði, að gera borg
sína að nýju að höfuðborg sam-
einaðs og óháðs Þýskalands.
—Reuter.
Frumvarp Trumans
um hernaðaraðsfoð
í nefnd
WASHINGTON, 31. ágúst —
Undirnefnd sú, sem utanríkis-
og hermálanefnd öldungadeild
ar Bandaríkjaþings skipaði til
að fjalla um frumvarp Tru-
mans forseta um hernaðarað-
stoð, hefur komið fram með
málamiðlunartillögu.
Eíns og kunnugt er, eru
þingmenn ekki á eitt sáttir um
hve há þessi upphæð skuli
vera. En i frumvaipinu fer
Truman fram á 1450 milljón
dollara fjárveitingu í þessu
skyni. Lagði nefnd þessi til,
að hernaðaraðstoðin yrði tak-
mörkuð við 1000 milljón doll-
ara. Ennþá verður ekki sjeð,
hverjar lyktir málið muni fá.
— Reuter.
Byilingin í Bolivíu
La PAS 31. ágúst — Útvarp
Boliviu kom í dag með frjetta-
tilkynnihgu frá stjórninni, að
nú mætti telja, að byltingin í
landinu væri bæld niður. Hafa
stjórnarherirnir náð á sitt vald
aðalbækistöð byltingarmanna í
ICochabamba sem er önnur
stærsta borg landsins. — Reuter
Efíir GUY BETTANY,
frjettaritara Reuíers.
HAMBORG. Þýska lögregl-
an á breska hernámssvæðinu í
Þýskalandi hefur lagt sig mjög
fram um að reisa elkur við
þeirri glæpagengd, sem óð i
kjölfar hruns nasismans.
Lögreglunni fer frain.
En þýska lögreglan er að
sumu leyti langt frá því að full
nægja þeim kröfum, sem Bret-
ar gera til hennaar Margir lög-
reglumannanna eru mjög ung-
ir, og nutu því margir hverjir
stjórnmálauppeldis Hitlers-
stjórnarinnar. Það hendir enn
of oft, að þeir ógni borgurunum
fram úr hófi
Breskir lögreglumenn hjer
virða á skynnsamlegan hátt
margar aðferðir Þjóðverja til
að komast fyrir glæpi, og vfir-
leitt verður að telja, að góð sam
vinna sje með þýsku lögreglu-
foringjunum og öryggislögregl-
unni, sem er skipuð Bretum.
í sept. 1945 náði morðfar-
aldurinn hámarki á breska her-
námssvæðinu, en þá voru 167
manns drepnir. Nú eru framin
þar 15 morð mánaðarlega að
meðaltali, og í hverjum 14 til-
fellum af 15, ér komist að því,
hver morðinginn er,
Enda þótt framdir sjeu enn
mjög margir glæpir miðað við
það, sem gerist í Bretlandi, þá
hafa orðið miklar framfarir í
því að komast fyrir glæpina. í
júlí 1946, var aðeins komist fyr-
ir 36 morð af 61, en nú er svo
komið, að þetta má verða í flest-
um tilfellum.
Á öndverðu ári 1947 voru
framin meir en 1000 rán á mán-
uði og hafðar voru hendur í
hári 768 manna. í apríl síðastl.
voru 162 slík afbrot framin og
varð komist fyrir 119 þeirra.
Árið 1947 voru kærðir yfir
250 þúsund þjófnaðir mánaðar-
lega. miðað við 34 000 nú
Glæpum frömdum með skot-
vopnum hefur fækkað úr 216
í 30 á mánuði. en samtímis hef-
ur uppljóstrunum fjölgað úr 20
í 65 af hundraði.
50.000 lögreglumenn.
Eitt fyrsta verk örvggislög-
Ireglunnar, er hún tók við í
Þýskalandi, var pð afnema hina
svonefndu stjórnarlögreglu, er
var með nefnið niðri í öllu. —
Til að mynda er skárr.ing bú-
staðaskifta ekki framar í hönd-
um lögreglunnar, en hefúr ver-
ið fengin bæjaryfirvöldunum í
hendur.
Liðinu hefur verið skift nið-
ur, þannig að hinir 50.000
þýsku lögreglumenn a breska
henámssvæðinu hafa verið að-
skildir í 41 deild. Er ein fvrir
hvert hjerað svo og hverja borg
sem hefur 100.000 íbúa og þar
yfir.
Hamborg, sem er stærsta
borg Þý'skalands (með 1,500.000
íbúa) að Berlín undanskilinni,
hefur 6,000 manna lögreglulið,
en venjulega hafa einstakar
deildir lögreglunnar þetta frá
750 og upp í 1500 manns. Ýfir-
stjórn lögreglunnar er ekki í
höndum innanríkisráðuneytis-
ins, eins og áður var, heldur fer
með hana gæslunefnd viðkom-
andi staðar.
Þýska lögreglan
handarjaðri breska
Foringjar frá öryggislögregl-
unni, eru við allar liðsdeildir
lögreglunnar, sem eru 41 tals-
ins, eins og fyrr greinir. Hafa
þeir yfirumsjón með lögregl-
unni og eru henniinnan hand-
ar um ýmislegt ,auk þess, sem
þeir líta eftir hagsmunum her-
námsyfirvaldanna.
Breska öryggislögreglan
er vinsæl.
I öryggislögreglurmi eru liðs-
menn hvaðanæfa úr breska
heimsveldinu Aðallögreglufull
trúinn er fyndinn íri, M. S.
ORourke að naíni, og hefur
hann aflað sjer víðtækrar
reynslu í heimalandi sínu, og
erlendis.
I lögreglunni eru foringjar
frá Bradford, Cardiff og Ply-
mouth, ásamt mönnum frá Pale
stínu-lögreglunni, nýlendulög-
reglunni og víðar og víðar að.
Flestir hafa þeir verið lánaðir
öryggislögreglunni Hafa þeir
aflað sjer góðs orðstírs hjá þýsk
um lögreglurr.önnum fyrþ- áreið
anleik, slóttug'uhe't og haldgóða
reynslu svo og fyrir þrótt þeirra
og leikandi lund,
Þessir mor.n eru svo óáleitnir
í starfi sinu og leysa það af
hendi með svo mikilli háttvísi.
að þýskur almenningur er naum
ast vitandi um návist þeirra.
Lögregla Hamborgar er fuIJ-
komin.
Rannsóknariögregla Ham-
^borgar er hin stærsta og full-
komnasta í allri Evrópu Nýjasti
kjörgripur hennar er áhald.
sem notað er til rannsókna smá
agna, ef þær eru of litlar til að
við verði komið venjulegri eína
greiningu.
Verður það fyrir áhrif hljóð-
bylgna.
J. Timmerman. annar aðal-
maður öryggislögreglu Breta í
Þýskalandi og fyrrum starfandi
í hinni konunglegu kanadisku
lögreglu, hefur komið þessari
stofnun á fót.
Útbúnaður hennar hefur ver-
ið fenginn að frá mögum borg-
um í Þýskalandi, jafnframt því,
sem nýjum hefur verið bætt við
svo að nú fyllir heildarsafnið
hálfa aðra hæð stórhýsis Sam-
einaðavátryggingarfjelagsins í
Hamborg, þar sem bækistöðvar
Hamborgarlögreglunnar hafa
verið frá því stríðinu lauk.
Annað atriði útbúnaðar lög-
reglunnar, sem mun ekki eiga
nokkurn sinn líka, er í sam-
bandi við ritvjelaletur og Upp-
runa þess. Er nú svo komið, að
lögreglunni er ekki einasta
kleift að rekja ritvjelaletrið til
gerðar ritvjelarinnar. heldur
getur hún jafnvel af letrinu,
komist eftir einkennistölum
vjelarinnar, sem ritað var á. —
Þetta getur mjög auðveldað
henni að rekja ýmis mái til upp
runa síns.
Ástæður minkamli glæpa.
Glæpirnir eru í rjenun í
Þýskalandi og verður það bæði
rakið til þess, hve lögreglan er
góð og eins hins, hve dregið
hefur úr hörmungum fyrstu
áranna eftir styrjöldina. Sú er
enn ein ástæðan, að aðflutt
fólk hefur smám saman' vefið
flutt burtu. Foringjar öryggis-
lögreglunnar bresku leggja á-
herslu á, að aðfluttir menn, sem
margir hverjir hafi verið harð-
skeyttir óbótamanna áður en
þeir komu til Þýskalands, hafj,
framið flesta stórglæpina, sem
framdir hafi verið í Þýskalandi,
eftir stríð.
Nasistar verða sakaðir um
þessa hlið málsins, þar eð þeir
oftsinnis tæmdu fangelsi her-
tekinna landa og smöluðu glæpa
mönnunum til Þýskalands, þar
sem þeir skyldu vinna.
Uppljóstranir þeirra glæpa,
sem flóttamenn fremja, eru
ákaflega örðugar vegna þess, áð
þeir sem dveljast í flóttamanna
búðunum, eru fullir fjandskap-
ar til lögreglunnar, svo að það-
an getur hún engra upplýsinga
eða hjálpar vænst. Auk þessa
er þeim, er þar búa, mjög í
mun að halda hlífiskildi hver
yfir öðrum.
Neitað um gjaldeyri
til kaupa á rottu-
eilri
Á FUNDI heilbrigðisnefndar,
er haldinn var fyrir nokkru
síðan, lagði borgarlæknir fram
synjun viðskiptanefndar, um.
gjaldeyrisleyfi fyrir kaupum
á rottueitri fyrir Reykjavíkur-
bæ.
Eitrið átti að kaupa í Dan-
mörku og var beðið um 9000
kr. yfirfærslu í þessu skyni.
í sambandi við synjun þessa,
samþykkti heilbrigðisnefnd að
skora á viðskiptanefndina, að
veita hið umbeðna gjaldeyris-
leyfi. Benti nefndin í því sam-
bandi á, að hún telji mikla
nauðsyn á, að stöðugt sje hald-
ið áfram að útrýma rottu í
bænum. ,
Þessa samþykkt gerði heil-
brigðisnefnd á fundi sínum 12.
ágúst s.l. Morgunblaðinu er ó
kunnugt um það hvort við-
skiptanefnd hafi endurskoðað
afstöðu sína til þessa máls,
síðan og veitt gjaldeyrisley.fi
fyrir kaupum á eitrinu.
Bann við erlendum
frjettum í kommún-
ista-Kína
SHANGHAI, 31. ágúst — Blað-
ið North China Daily News,
sem gefið er út af Englending-
um, sem búsettir eru í Shang-
hai, er síðasta blaðið á erlendri
tungu sem gefið er út í komm-
únista-Kina. í blaðinu í dag er
skýrt frá því, að útgáfa blaðs-
ins muni hætta, vegna þess, að
kommúnistar hafa bannað að
birta erlendar frjettir, nema
þær komi frá rússneskum
heimildum. — Reuter.