Morgunblaðið - 15.09.1949, Page 8

Morgunblaðið - 15.09.1949, Page 8
8 MORGIJTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 15. sept. 1949. Útg.: H.í. Árvakur, Reykjavflc. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánssön (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbófc Trúin á framtíðina FRUMSKILYRÐI þess að geta sigrast á erfiðleikum er að trúa á möguleika sína til þess að geta það. Þetta hefur ekki öllum íslendingum verið ljóst undanfarin ár. Einn stjórnmálaflokkur þjóðarinnar, Framsóknarflokk- urinn, hefur lagt á það höfuðáherslu um alllangt skeið að telja landsmönnum trú um að hrun og vandræði væru á næsta leyti. Annar stjórnmálaflokkur, kommúnistaflokkurinn, hefur reynt að villa þjóðinni sýn með því að láta sem allt væri með felldu og raunverulega væru engin vandkvæði við dyr hennar. Það, sem aflaga færi væri aðeins því að kenna að við hefðum vonda ríkisstjórn. Hvortveggja þessara kenninga er hættuleg. Engin þjóð getur sigrast á erfiðleikum sínum með því að þylja kvein- stafi og mikla fyrir sjer erfiðleikana. Kenning Framsóknar- flokksins hefur þess vegna verið algerlega neikvæð og eins- kismegandi til þess að tryggja framtíð þjóðarinnar. Afstaða kommúnista hefur einnig verið neikvæð. Tilgangur þeirra hefur verið að koma í veg fyrir að landsmenn litu raunsætt á hag sinn og snerust gegn erfiðleikunum af skilningi á eðli þeirra. Þessi afstaða kommúnista er eðlileg og miðuð við þá baráttuaðferð þeirra að skapa upplausn og vandræði til þess að vinna stefnu sinni fylgi. ★ Viðhorf Sjálfstæðisflokksins hefur verið gjörólíkt við- horfum Framsóknar og kommúnista. Hann hefur hvorki hvatt íslendinga til kolsvartrar bölsýni nje einskærrar bjart- sýni. Sjálfstæðismenn hafa sagt þetta: íslenska þjóðin hefur í dag betri aðstöðu en nokkru sinni lyrr til þess að lifa frjálsu menningarlífi í landi sínu. Hún á betri atvinnutæki til lands og sjávar en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir þessa staðreynd er framtíð hennar nokkur hætta búin ef hún ekki gengur hægt um gleðinnar dyr og gáir að sjer. Það er ekki nóg að hafa eignast góð tæki og mikilvirk. Við þurfum jafnframt að tryggja rekstur þeirra. Á þetta hefur Sjálfstæðisflokkurinn jafnan lagt höfuðáherslu. ★ Kommúnistar þykjast unna nýsköpun atvinnulífsins vegna þess að þeir tóku þátt í henni undir forystu Ólafs Thors. En þeir sviku hana í miðjum klíðum. Síðan hafa þeir unnið gegn henni af öllum mætti. I dag er hvorki tími til þess að aðhyllast bölsýni Tímaklík- unnar nje yfirborðsstefnu kommúnista. Leið Islendinga til þess að tryggja framtíð sína er að líta raunsæjum augum á ástand athafnalífs síns. Ef þeir gera það kemur þetta í Ijós: Hinum glæsilegu framleiðslutækjum er hætta búin af dýrtíð og verðbólgu. Framleiðslan er ekki lengur samkeppn- isfær á erlendum mörkuðum. Þess vegna verður ríkissjóður að borga stórfje í uppbætur á útflutningsafurðir og þyngja stöðugt álögurnar á borgarana til þess að geta risið undir þessum álögum. Þetta eru megindrættirnir í þeirri mynd, sem við blasir. ★ Þessi mynd getur þýtt hrun, en húnþarf ekki að gera það. Hún getur þýtt hrun og vandræði, ef þjóðin fæst ekki til að átta sig á nauðsyn þess að aka seglum eftir vindi, miða eyðslu sína og lífskjör við aflamöguleika sína. Á þetta hefur Sjálfstæðisflokkurinn þráfaldlega bent. — Hann kemur ekki til þjóðarinnar og krefst stórkostlegrar skerðingar lífskjara hennar. Hann beiðist þess eins að hún stilli kröfum sínum í hóf þannig að hún ekki leiði yfir sig böl og ógæfu atvinnuleysis og vandræða. Við íslendingar getum horft vongóðir gegn framtíðinni. Við þurfum ekkert hrun að óttast — ef við áttum okkur á raunveruleikanum sjálfum. Við þurfum aðeins að hverfa tíl aukinnar hófsemi, ekki aftur til þröngra lífskjara og frum- stæðra atvinnuhátta. Þetta er allt og sumt. Sjálfstæðisflokkurinn treystir því að þjóðin sameinist um eð treysta framtíð sína og láti bölsýnisvæl Framsóknar og hafgúusöng kommúnista sem vind um eyrun þjóta. \Jíl?uerjí áhrifar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Kveðjur. HJER ÁÐUR fyr söfnuðust Reykvíkingar saman við höfn- ina þegar millilandaskipin voru að koma eða fara. Þá var stund- um sóðalegt á hafnarbakkan- um, áður en hann var malbik- aður, en bæjarbúar óðu held- ur aurinn upp í ökla, en að neita sjer um þessa saklausu skemtun. Þá fyltust skipin af aðkomu- fólki, svo ekki var rúm fyrir skipverja eða farþega. Nú er þetta að nokkru brevtt. Menn þyrpast út á ílugvöll til að kveðja og taka á móti far- þegum. Skamt öfganna á milli. FYRIRKOMULAGIÐ við skip- in í gamla daga var óþolandi og mjög undan þvi kvartað. En nú er svo komið, að ástandið er síst betra á flugvöllunum. Því nú er farþegum stíað sam- an um leið og þeir koma á völl- inn og þótt það líði 2—3 klukku tímar, áður en flugvjelin fer, geta þeir, sem koma til að kveðja, ekki haft samband við kunningja sína, en verða að híma undir vegg allan tímann til að geta veifað þegar vjel- arnar fara. Það má nú segja, að skamt sje öfganna á milli. • Ekki viðunandi. OG í EINU orði sagt, far- þegaafgreiðslan á flugvellinum í Reykjavík er ekki viðunandi. Á sunnudaginn var fór flug- vjel til útlanda fullhlaðinn far- þegum. Þeir áttu að mæta kl. 7 og er ekkert við því að segja, þótt vjelin ætti ekki að fara fyr en kl. 8, því margskonar undirbúningur tekur sinn tíma. Skömmu fyrir 8 var búið að afgreiða alla farþega, en þá kom það fyrir, sem ekki er hægt að gera við, að vjelin fór ekki fyrr en kl. 9. Farþegarnir voru stíaðir í loftillri holu, en þeir, sem voru að kveðja hímdu úti undir vegg í morgunnnepjunni. • Omurleg vinnuskilyrði. MENN GÆTU nú haldið, að eftir að búið er að skoða í ferða- töskur farþega og gangá frá vegabrjefum þeirra, mætti sleppa þeim meðal annara manna, ef bið verður á því að flugvjelarnar leggi af stað. Varla ætti að þurfa að ctt- ast, að farþegar frá íslandi fari að reyna að smygla einhverj- um ósköpum. — Hvað ætti það svo sem að vera? Og svo eru það hin erfiðu vinnuskilyrði, sem tollverðir og afgreiðslufólk flugfjelaganna á við að búa. • Smalar eða tollverðir. ÞEGAR FLUGVJEL kemur erlendis frá á Reykjavikurflug- völl stendur röð af tollvörðum til að stugga mönnum frá fsr- þegunum. Það ætti að vera ærið verk fyrir tollverðina að tollskoða farangur, þótt þeir þurfi ekki að gegna smalastörfum um leið. — Mjer er líka kunnugt um, að þessum embættismönn- um leiðist þetta starf, sem alls ekki ætti að þurfa að vera í þeirra verkahring, ef svo væri gengið frá farþegaafgreiðslum, þarna, sem annarsstaðar er gert. Hlutverk vallar- stjórnar. OG ÞAÐ er svo sem ekki upptalið allt enn. Flugfjelögin eru sjálf látin byggja farþega- afgreiðslur fyrir ærið fje og fyrirhöfn, — hvort í sínu lagi á vellinum. Auðvitað er, að það er hlut- verk vallarstjórnarinnar, að hafa afgreiðslur í lagi og ein ætti að duga á ekki stærri flug- velli og með ekki meiri um- ferð en er um Reykjavíkurvöll- inn. Flugfjelögin ættu ekki að taka þetta í mál, heldur krefj- ast mannsæmandi vinnuskil- yrða. Gera má ráð fyrir, að mesta flugumferðin sje búin í sumar, en það má ekki láta þessa skömm viðgangast annað sum- arið til. • í Fossvogskapellu. SMÁTT OG SMÁTT eru jarð arfarahalarófurnar að hverfa af götum bæjarins. Er það fyrst og fremst að þakka útfararfyr- irkomulaginu, sem haft er í Fossvogskapellunni. Þar fer allt smekklega fram og látlaust. Þeir, sem kynnast hinum nýja útfarasið sjá, að hann er miklu betri, en sá gamli og fleiri og fleiri kjósa hann. • Einföld og smekkleg atliöfn. ÚTFÖR frá Fossvogskapell- unni er alveg jafn hátíðleg og virðuleg og útför úr heimahús- um og kirkju, eins og áður tíðkaðist og enn kemur fyrir. Að innan er kapellan öll hin smekklegasta og öll útfararat- höfnin fer fram í þessum virðu- lega sal, ef menn óska. hvort sem um jarðsetningu eða bál- för er að ræða. Það er enginn troðningur í heimahúsum eða halarófur í misjöfnum veðrum á götunum, með bílaorgi og tilheyrandi há- aða. Engin lungnabólguhætta við gröfina. Útfarasiðir Fossvogskapell- unnar verða ofan á í framííð- inni. Á því er enginn vafi. ...........................MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM..............................................IIMIIII.I.... MEÐAL ANNARA ORÐA ..... | imiimmimimimimmmmmiimmiiimmiiimmiimmimmimiiimimiimiimiiiimmimiiiimmimimiiiiiimmimiimmiiiiiiimmiimiiii£ Um tvennt að velja; einn heim eða engan Eftir Charles Croot, frjettaritara Reuters. KAUPMANNAHÖFN: — Sam- kvæmt yfirlýsingu, sem sextán þekktir heimspekingar og stjórnmálamenn hafa birt, hef- ir mannkynið nú aðeins um tvennt að velja: einn óskiftan heim til að lifa í eða als engan. Meðal þeirra manna, sem _ita undir yfirlýsinguna, eru Albert Einstein, John Steinbeck, Be- veridge lávarður, Boyd Orr lá- varður og Thomas Mann. í yfirlýsingu þeirra, sem gef- in var út í bæklingi í sambandi við atómsýningu þá, sem nú er haldin í Kaupmannahöfn, segir meðal annars: • • EINSKIS NÝT TOGSTREITA ,,VIÐ erum þeirrar skoðunar, að sú hætta vofi yfir, að mann- kynið tortími sjálfu sjer. Þegar tekið er tillit til þeirra eyði- leggingaraðferða, sem mann- kynið nú ræður yfir, er öll tog- streita um stjórnmál, kyn- þætti og trúarstefnur einskis virði“. í formála, sem Niels Borh prófessor, hinn heimsþekkti, danski atomfræðingur, skrifar að bæklingnum, lýsir hann yf- ir. að „gegn hinum nýju evði- leggingaröflum finnst engin vörn“. ÞRJÁR LEIÐIR MENNINGIN, segir hann, horf ist nú að líkindum í augu við stærstu hættuna, sem nokkru sinni hefir ógnað henni. Fram- tíð mannkynsins er komin und- ir getu mannanna til að taka höndum saman gegn hinni sam- eiginlegu hættu. í bæklingnum segir Einstein, að Vesturveldin eigi um þrent að velja: 1) Varnarstríð gegn „austr- inu“, meðan Ameríka ræður enn ein yfir atomsprengjunni. 2) Skiftingu heimsins í tvær vopnaðar herbúðir. 3) Alheimsstjórn. • • EINA LAUSNIN VARNARSTRÍÐ, fullyrðir Ein stein, myndi þýða það, að Rúss ar leggðu þegar í stað undir sig Evrópu, alt að ströndum At- lantshafsins. Þetta mundi aftur leiða af sjer miklar atom- sprengjuárásir á Evrópu, til þess að hrekja þá frá hernumdu svæðunum. í lok slíkrar styrjaldar mundi mikill meirihluti Evrópubúa vera fallinn í valinn, en álfan sfálf í rústum. Einstein heldur því á hinn bóginn fram, að það hafi ætíð leitt. til styrjalda, þegar þjóðirn ar hafi keppst um að vopnast og lifað í tveimúr andvígum herbúðum. Þriðja leiðin — al- heimsstjórn — sje því eina lausnin, sem borið geti nokk- urn jákvæðan árangur. • • ER ÞAÐ ÓHJÁ- KVÆMILEGT? OG HANN er ekki þeirrar skoð unar, að það sje vonlaust verk að reyna að stofna til alheims- stjórnar. „Við erum allir borgarar í i einum heimi og munum hreppa sömu örlög“, segir hann. „Er það þá óhjákvæmilegt, að erfða venjur okkar og skaplyndi eigi að leiða af sjer algera tortím- ingu? Pandit Nehru, sem einnig j-it ar í bæklinginn, segir: ..Það er ekkert efamál, að alheimsstjórn verður að koma og mun koma. Hjer er um að ræða einu lækninguna á hinni ’ pólitísku sýki. sem heimurinn á við að stríða“. • • OG ENN BEVERIDGE lávarður skrifar: „Það veiður engan veginn auðvelt að mynda alheimsstjórn en án slíkrar stjórnar getur ekk ert okkar vænst öryggis og frið samlees lífs“. Boyd Orr lávarður, forseti samtakanna, sem kalla sig „Einn heímúr“, ségir: . Skugpi þriðja harmleiksins hefir nú þegar fallið á okkur. i Frh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.