Morgunblaðið - 15.09.1949, Blaðsíða 9
Fimmtudagtir 15. sept. Í949.
WO RGL' ISBLAÐIÐ
$$»\\\\\\\\\\\\'"’
I > » \ \N\W W\\\'
-sxxtíy/////////,,.
411 kjósendur í 8 kjördæmum geta veitt
Sjálfstæðisflokknum hreinan meirihluta
EINS OG skýrt var frá í b'að-
inu í gær sóttu á fjórða hundr
að manns haustmót ungra
Sjálfstæðismanna á Suðvest-
urlandi að Selfossi síðastlið-
inn laugardag. Var þetta ungt
fólk úr sjö fjelögum ungra
Sjálfstæðismanna. Ungir Siálf
stæðismenn úr Rangárvaila-
sýslu sóttu ekki mótið, því að
þeir hjeldu þetta sama kvöld
samkomu, og var hún mjög
fjölmenn. Mótið tókst með
ágætum, og bar glögg merki
um þann mikla baráttuhug,
sem ríkir með ungum Sjálf-
stæðismönnum, og einbeittan
áhuga á að tryggja Sjálfstæð-
ísflokknum sem glæsilegastan
sigur við Alþingiskosningarn-
ar í haust. Var þeim forustu-
mönnum samtakanna, sem
töluðu á mótinu, ákaft fagn-
að, og einnig hinum reynda
og vinsæla þingmanni Árnes-
inga, Eiríki Einarssyni, sem
í lok mótsins ávarpaði unga
fólkið.
Magnús Jónsson, formaður
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, stjórnaði mótinu. Kvað
hann haustmót það, sem Sam-
handið efndi til í fyrrahaust á
Þingvöllum, hafa tekist svo vel
og vakið svo almenna ánægju,
að stjórn Sambandsins hefði
talið rjett að gera slíkt mót að
föstum lið í starfsemi samtak-
anna. Væri það mikils virði að
gefa ungu fólki úr mörgum fje-
lögum, sem ætti sameiginlegar
hugsjónir, tækifæTÍ til að koma
saman og kynnast.
Sigurður Bjarnason, alþing-
ismaður, flutti aðalræðuna á
mótinu. Var ræða hans þrótt-
mikil hvatning til ungra Sjálf-
stæðismanna að vinna sem ötul
legast að glæsilegum sigri Sjálf
stæðisflokksins við þessar kosn
ingar- Hann benti á það, hversu
gæfusöm sú æska væii, sem nú
lifði í landinu. Hún hefði sjeð
rætast þann draum margra horf
inna kynslóða, að Island yrði
alfrjálst lýðveldi. Hún hefði
ennfremur orðið sjónarvottur
stórstígari framfara en nokkru
sinni hefðu orðið á landi voru.
í hennar hendur yrði landinu
og atvinnuvegum þjóðarinnar
skilað blómlegra og með betri
skilyrðum til glæsilegrar fram
tíðar en nokkur æskukynslóð
hefði áður notið. Þótt margt
hefði áunnist, biðu þó óteljandi
verkefni starfsamrar og þrótt-
mikillar æsku. Hún yrði bæði
að standa vörð um þau verð-
mæti, er henni væru í hendur
fengin, og halda áfram á fram-
farabrautinni. Stórfelld rækt-
un íslenskrar gróðurmoldar
veeri eitt mikilvægasta verkefn
Miklll imróttuhugur ungru Sjúli-
stæðismnnnu ú Suðvesturlundi
Glæsilegt hcaustmót SUS á Selfossi
ið, sem æskan ætti framundan,
en einnig á öðrum sviðum þjóð-
lífsins, bæði verklegum og and
legum, væri þörf starfsglaðra
og þióðhollra æskumanna til
þess að fullkomna það starf að
búa öllum landsins börnum
efnahagslega velmegun og ham
ingjuríkt líf.
Ræðumaður vjek að lokum
að hlutverki ungra Sjálfstæðis-
manna sjerstaklega og kosn-
ingabaráttunni fram undan. —
Hann lagði áherslu á það, að
þannig yrði framtíð æskunnar
best tryggð, að hugsjónir Sjálf-
stæðisstefnunnar næðu sem
víðast að festa rætur hjá þjóð-
inni. Stefnuleysi samstjórnar-
skipulagsins, sem þjóðin hefði
búið við alt frá 1927, hefði haft
í för með sjer ýmiskonar spill-
ingu og fálmkennd tök á vanda
málunum. Nú hefði þjóðin
tækifæri til að skapa sjer
styrka og örugga stjórn með
því að veita Sjálfstæðisflokkn-
um hreinan meirihluta á Al-
þingi. Þetta væri auðvelt, ef
unga fólkið legði sig fram í bar
áttunni.
Við Alþingiskosningarnar
1946 hefðu aðeins 411 kjós-
endur þurft að yfirgefa
Framsóknarflokkinn og Al-
þýðuflokkinn í 8 kjördæm-
um til þess að gefa Sjálf-
stæðisflokknum hreinan
meiri hluta á Alþingi. Þessi
staðreynd sýnir glöggt
hversu auðvelt það er fyrir
kjósendur að tryggja Sjálf-
stæðisflokknum hreinan
meirihluta á þingi og fá ör-
ugga og heilsteypta stjórn
til að leysa vandamálin.
Ræðu Sigurðar var mjög fagn
að af mótsgestum.
Asbjörn Sigurjónsson, for-
maður Sjálfstæðisfjelagsins
Þorsteinn Ingólfsson í Kjósar-
sýslu, tók næstur til máls. —
Benti hann á það, hversu at-
orkusamir einstaklingar hefðu
haft forustu um að byggja upp
atvinnulíf bjóðarinnar í anda
Sjálfstæðisstefnunnar. — Hin
miklu höft á athafnafrelsi ein-
staklinganna hefði hinsvegar
leitt til ófarnaðar og ýmiskon-
ar spillingar. Sigu- Sjálfstæðis
stefnunnar væri sigur aukinna
framfara og því bæri æskunni
að tryggja hann sem glæsileg-
astan.
Gunnar Helgason, formaður
Heimdallar, kvað hið sívax-
andi fylgi unga fólksins við
Sjálfstæðisflokkinn gleggsta
sönnun þess, að stefna flokks-
ins væri lífiæn og í besta sam-
ræmj við hugsjónir æskunnar.
Hið stóraukna fylgi flokksins í
kosningunum 1946 hefði ekki
hvað síst verið hinum sterku
æskulýðssamtökum flokksins
að þakka. og með einingu æsk-
unnar nú myndi auðnast að ná
því takmarki og tryggja flokkn
um hreinan meiri hluta á Al-
þingi.
| Guðlaugur Einarsson, bæjar-
stjóri, flutti kveðju frá ungum
, Sjálfstæðismönnum á Akra-
I
nesi. Hvatti hann unga Sjálf-
stæðismenn til þess að vinna
sem ötullegast fýrir hugsjónir
Sjálfstæðisstefnunnar, sem ein-
ar væru þess megnugar áð
Uyggja æskunni gæfuríka fram
tíð. — .
Björn Gúðmundsson, formað-
ur fjelags ungra Sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum,
kvað Sjálfstæðisstefnuna ætíð
hafa átt mikil itök í hugum
Vestmannaeyinga, enda væri
atvinnulíf þeirra byggt upp af
framtaki einstaklinganna. —
Væru ungir Sjálfstæðismenn
þar einhuga um að stuðla að
glæsilegum sigri Sjálfstæðis-
i flokksins í því kjöidæmi.
Jóhann Pjetursson, formaður
ungra Sjálfstæðismanna í Kefla
I vík, sagði það augljóslega vera
’ í þágu unga fólksins sjálfs að
! sameina krafta sína til baráttu
Frá haustmóti ungra Sjálfstæðismanna á Selfossi.
fyrir sigri Sjálfstæðisflokksins
við bessar kosningar. •— Ungir
Sjálfstæðismenn í Keflavík
myndu einhuga vinna að því,
að formaður Sjálfstæðisflokka-
ins yrði kjörinn þingmaður þess
kjördæmis með stærri meiri-
hluta en nokkru sinni áður. —
Bað hann mótsgesti að lokurn
að hvlla formann flokksins með
ferföldu húrrahiópi.
Pál! Daníelsson, ritstjóri,
flutti ávarp frá Stefni, fjelagt
ungra Sjálfstæðismanna i Hafn
arfirði. Hann kvað fylgi Sjálf-
stæðisflokksins meðal unga
fólksins i Hafnarfirði sívax-
andi. Frantbjóðandi flokksin i
þar nyti mjög mikils trausts og
vinsælda, enda treystu jafnvel
kratarnir sjer ekki að finna að
honum. Ungir Sjálfstæðismenn
í Hafnarfirði gerðu sjer ljóst,
að ekki myndi vera hægt að
losna við Emil, en þeir væru
staðiáðnir í því, að hann skyldi
í þetta sinn verða uppbótarþing
maður. (Hinn fjölmenni hópur
Hafnfirðinga á mótinu tók rækt
lega undir þessi orð Páls).
Gunnar Sigurðsson, formað-
ur Hjeraðssambands ungra
Sjálfstæðismanna í Arnessýslu,
flutti aðkomugestum að lokum
árnaðaróskir ungra Sjálfstæðis
manna í Árnessýslu og kvaðst
fagna því, að Sambandsstjórn ■
in hefði kosið að halda þetta
haustmót í Árnessýslu. Ungir
Sjálfstæðismenn þar í sýslu
myndu ekki liggja á liði sínu
við þessar kosningar, heldur
leggja fram sinn skerf til að
geia sigur flokksins sem mest-
an.
Eiríkur Einarsson, alþingis-
maður ávarpaði unga fólkið að
lokum nokkrum orðum. Hvatti
hann það til að vinna ötullega
fyrir hugsjónir sínar og ljetta
eigi baráttunni fyrr en fullur
sigur væri unninn.
Magnús Jónsson, formaður
SUS flutti stutta ræðu um leið
og hann sleit mótinu. Þakkaði
hann fyrst hinar ágætu mót-
tökur Árnesinga og bað móts-
resti hrópa ferfalt húrra fyrir
Árnessýslu. Síðan mælti for-
maðurinn nokkur hvatningar-
orð til unga fólksins. Benti hann
á, að samtök ungra Sjálfstæðis-
manna væru nú langöflugustu
stjórnmálasamtök íslenskrar
æsku. Með aukinni þekkingu á
eðli stjórnmálastefnanna og
starfi stjórnmálaflokkanna
hefði vaxíð jafnt og þjett skiln
ingur unga fólksins á því, að
Sjálfstæðisstefnan væri stefna
æskunnar, stefna framtíðarinn
ar. Sjálfstæðisflokkurinn hefði
einnig þráfaldlega veitt þessu
Frh. á bls. 12.