Morgunblaðið - 27.09.1949, Side 8

Morgunblaðið - 27.09.1949, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 27. sept. 1949. regtfttM&frfö Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 71 aura með LesbóE. W A vegamótum TÆPUR MÁNUÐUR er til kosninga. Framboðum öllum lok- ið og kjósendur geta farið að átta sig á til fulls hverja end- anlega afstöðu þeir eigi að taka, er að kjörborðinu kemur í lýðræðislöndum, með nokkurra ára kjörtímabili gerist margt milli kosninga. Margir kjósendanna geta, hvað eftir annað, verið á báðum áttum með það, hvaða flokki þeir eigi að fylgja og hvern að styðja, næst þegar kosið verður. Jafnvel þegar kosningabaráttan er hafin fyrir alvöru, kemur það stundum fyrir, að línur flokkanna eru svo loðnar og óákveðnar, að mörgum kjósandanum getur reynst það erfitt, að fylgja einhverjum flokkanna af fullri sannfær- ingu um, að þeir hafi valið sjer rjetta afstöðu í stjórnmál- unum. Að þessu sinni eru línurnar hjer óvenjulega skýrar. Almenningur í landinu er orðinn leiður á höftum og nefndum, sem sitja með alræðisvald yfir framtaki einstakl- inga til að bjarga sjer. Menn vilja, að atvinnuvegir lands- manna geti starfað styrkjalaust, þannig sje að þeim búið. Frjáls, sterkt, þróttmikið atvinnulíf geti blómgvast með þjóðinni. ★ • í kosningafyrirheitum flokkanna, jafnt hinna íslensku sem erlenda flokksins, kemur það í ljós, að allir vilja þeir láta sem þeir vilji fara að óskum almennings um linun eða af- nám viðskipt&haftanna, svo svartamarkaðsbrask og annari óhollustu verði útrýmt og atvinnuvegum landsmanna verði gefið meira olnbogarúm en það hefir riú. Kjósendur spyrja eðlilega: Hvernig hafa stjórnmálaflokk- arnir sýnt þá trú sína í verki að það sje þjóðinni fyrir bestu að viðskipti og atvinnulíf landsmanna njóti frelsis svo þjóð- inni geti vegnað vel. í öll þau ár sem Framsóknarflokkurinn hefir verið til, hefir hann verið hlynntur höftum og hömlum og stefni að því að reka haftapólitík í flokkshagsmunaskyni. Framsókn og Alþýðuflokkur hafa hvað eftir annað fall- ist í faðma þegar um hefir verið að ræða að koma á allskon- ar einokun í landinu. Og verið því fegnir, þegar þeim hefir hugkvæmst, að koma einhverjum hömlum á framtak manna, undir því yfirskyni, að verið væri að koma á einhverskon- ar „áætlunarbúskap", er lækna kynni öll mein. En reynslan hefir verið sú, jafnt hjer á landi sem annarsstaðar, að með hverju fótmáli sem stigið hefir verið á haftabrautinni, hvort það hefir verið gert af fúsu geði eða af illri nauðsyn þá hefir lífsafkoma þjóðarinnar orðið erfiðari. Kjósendur, hvaða flokk sem þeir hafa fyllt á undanförn- um árum, og vilja nú leggja lóð sitt á metaskálarnar til þess að íslendingar geti lifað sem frjáls þjóð í frjálsu landi, vita sem er, að það er Sjálfstæðisflokkurinn einn hinna íslensku stjórnmálaflokka, sem hefir og hefir alltaf haft, atvinnu- frelsi og frjálst framtak á stefnuskrá sinni. Honum einum er því til þess trúandi, að vinna markvisst að því, að hin leiðu, þvingandi og skaðlegu höft, sem nú gera einstakling- um og öllum landsmönnum tjón, leiðindi og óhagræði, verði afnumin svo fljótt sem þess er nokkur kostur. ★ Um kommúnista eða kjósendur, sem geta fengið sig til að greiða þessari fjarstýrðu erlendu flokksdeild atkvæði er allt öðru máli að gegna. Hin íslenska deild kommúnistaflokks- ins, eins og aðarar deildir þeáSa alþjóðlega byltingaflokks, vinnur ekki að því, að þjóðinni vegna vel. Þvert á móti. Flokksdeildin hjer er gerð út til þess, að hjer geti allt, kom- ist í upplausn og vandræði. Og land vort geti orðið vettvang- ur fyrir hinn alþjóðlega kommúnisma, sem vinnur að því, eð auka áhrif og völd einræðisstjórnarinnar austur í Kreml. Þar sem kosningar hafa farið fram í vestrænum lýðræð- íslöndum síðustu árin, hefir það verið framt að því ófrá- víkjanleg regla, að kommúnistar hafi á undangengnu kjör- tímabili tapað um helming atkvæða sinna. Það kann að vera, &ð íslendingar reynist tornæmari á stefnu og starf komm- únista, en allar aðrar frjálsar þjóðir. Því tornæmi verða rnenn að taka sem hverri annari þjóðarsmán, sem vafalaust tekst að þurka af okkur, áður en langt líður. Götulífið breytist. UM ÞETTA LEYTI á haustin tekur fólkið á götum höfuð- staðarins að breyta um svip. Það fara að sjást fleiri og fleiri ný andlit — yngri andlit. — Skólafólkið er farið að streyma til bæjarins og með þessu glað- lega fólki breytist götulífið. Það gengur saman í hópum, er fjörlegt og gerir að gamni sínu. Skólahúfunum fjölgar þótt á hinn bóginn sje eins og þær sjeu að fara úr tísku. • Stórkostlegur gjald- eyrissparnaður. VEL Á MINST, húfur Það er fleira en skólahúfurnar, sem virðast vera að fara úr tísku. Það eru höfuðföt. yfirieitt. Jeg stót stutta stund á götuhorni hjer á dogunum og taldi, að af hverjum tíu mönnum, konum jafnt og körlum, voru 7—8 ber- höfðaðir. — Það er hrein und- anfekning, ef unglingur undir tvítugu sjest með höfuðfat — Stúlkurnar hafa hinsvegar flest ar skýluklúta, ef þær eru ekki með hatta. Ekki er mjer kunnugt um, hvort þetta eru þegjandi sam- tök, eða hvort það stafar af höf- uðfataskorti í verslunum. En hitt er augljóst, að það hlýtur að spara feikna gjaldeyri, að fólkið skuli ganga berhöfðað. • Siður, sem er að hverfa. ÞAÐ VIRÐIST líka alveg vera að hverfa, að karlmenn taki ofan höfuðfötin og hneigi sig, er þeir mæta konum, sem þeir þekkja. — Það segir sig að vísu sjálft, að þeir, sem eru í „berhausaða fjelaginu11, losna við þessa gömlu hæversku. Siðurinn er svo ósköp tilgerð arlegur og mætti hverfa með öllu. Konurnar vilja hvort sem er, vera í öllu jafningjar karl- manna og þá er vist ekki lengur ástæða til standa upp fyrir kon- um í strætisvagni, eða taka of- an fyrir þeim með lotningu og með bukti. Það væri einlega hálfgerð móðgun við kvenrjett- indin. — Eða hvað? • Varð það eilífðarniál? ÞAÐ MUN HAFA verið um þetta leyti í fyrra, að boð var látið út ganga til bifreiðar- stjóra, að þeir yrðu að gera svo vel að láta stilla ljósin á öku- tækjum sínurn og ef þeir gerðu það ekki. fyrir nýar, ættu þeir að fá bágt fyrir hjá yfirvöld- unum. Það skein í gegn. að það myndi ekki verða nein misk- un hjá Magnúsi í þessum efn- um. En annað hvort hafa margir sloppið við hirtingu um ára- mótin — og við að rjetta ljósin, —eða þau hafa skekkst aftur heldur illilega. • Stórhætta á ferðum. EINS OG MARGOFT hefur. verið bent á, er það stórhættu- legt, er bifreiðarstjórar aka með ljós, sem eru skær og vísa of hátt. Er mjer ekki kunnugt um, hvort nýlega hafa orðið stórslys af þesym orsökum, en oft hefur munað mjóu. Ljósastilingarmálið má ekki verða eilífðarmál. Of skær bíla- ljós hafa þegar sent of marga inn í eilífðina fyrir tímann. • Ekkert svar. SUM KVIKMYNDAHÚS- ANNA hafa þann leiða sið, að svara ekki í síma þegar góð að- sókn er að myndum þeirra, einkum á sunnudögum. Ekki er þó haft fyrir að aug- lýsa, að þenna og þenna dag þýði ekki að hringja í síma. — Viðskiftavinirnir eru látnir hafa fyrir því, að hamast á sím- anum og láta hringja í það ó- endanlega. Oft er númerið „á tali“, vegna þess, að svo marg- ir eru að reyna að ná sana- bandi. Oþarfa tímaþjófur. HREINASTI ÓÞARFI er að baka kvikmyndahúsunum þessa erfiðleika. Það er tímaþjófur, og kemur mönnum í vont skap. Að sjálfsögðu ráða kvik- myndahúsin því, hvenær þau láta svara í síma ,eða ekki, en þó varla, nema, að það hafi ver- ið auglýst, að ekki verði svarað, þar sem hitt er venja, sem geng ið er frá sem vísu. o Brevting til bafnaðar. HITT MÁ segja um leið, að mikill munur er á, hve stúlk urnar, sem afgreiða í kvik- myndahúsanna, eru nú liðlegri og liprari í tilsvörum, en hjer var fyrir nokkrum árum. Nú eru þær yfirleitt ekki annað en elskulegheitin sjálf, þótt hjer áður hafi þær verið stuttar í spuna. Kann þetta að stafa af því, að nýjar stúlkur sjeu teknar við, eða hinu, að þær hafi komist að því, að starf ið verður skemtilegra, ef þær eru í góðu skapi. En af hverju sem þetta 'staf- ar, er það greinileg framför og breyting til batnaðar. • Fjallgönguur eftir átta vita. SLYSAVARNAFJELAGIÐ ráðleggur mönnum, að hafa með sjer áttavita í göngurnar. Síðustu atburðir benda til, að ekki sje vanþörf á þeirri ráð- stöfun. En mikið má það vera, ef * sumir gömlu fjallkónganna okk ar, sem voru og hjetu, snúa sjer ekki við í gröfinni við þenna nýja sið. irwilwvllilllllllllHIIIIIIIMmilllllllliiiitiiii.iHiiiiMMlllllllMMtlllllllllini MEÐAL ANNARA ORÐA .... llilllllMIIIIMMIIIMIIMIM^IIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIMIIIilllHMIIIIMIIIIIMMMIMHHIIIIMMIIMIIIIIIMIIlJ Sfarfsemi leiqufiugvjelanna fer vaxandi Eftir Graham Jenkins, frjettaritara Reuters. LONDON: — Eitt hundrað leiguflugvjelar fara pú daglega frá Bretlandi til landa víðsveg- ar í heiminum, alveg á sama hátt og bresku leiguskipin hafa í marga mannsaldra siglt um úthöfin. Hundrað flugvjelar til viðbótar bíða reiðubúnar á breskum flugvöllum, til þess að taka vörur hvert á land sem er. Þessar vjelar — sem sumar hverjar tóku þátt í loftflutning- unum til Berlínar — mynda kjarna þess sívaxandi loftflota, sem tekur að sjer leiguflug og er ekki bundinn við neina sjer- staka áætlun. e • VAXANDI STARFSEMI SKIPULAGNING þessa flota er með sama sniði og skipulagn ing og rekstur skipafjelaganna, sem leigja út skip sín til vöru- flutninga. Starfsemi þessara flugvjela hefir aukist um þriðj- ung frá því 1948. Þó eru ennþá mun fleiri leiguflugvjelar fyrir hendi en not er fyrir. Þeir, sem kunnug- astir eru þessum málum, segja, að aðalástæðan sje sú, að út- flutningsfyrirtæki sjeu enn þeirrar skoðunar, að vöruflutn- ingar í lofti sjeu of kostnaðar- samir. • • GETUR VERIÐ HAGKVÆMT SJERFRÆÐINGAR neita því ekki, að flutningsverð með flug vjelum sýnist í fljótu bragði hátt. En þegar gerður er sam- anburður á þessum flutningum og vöruflutningum með skip- um, kemur oft í ljós, að þeir fyrrnefndu geta verið hag- kvæmir. Þó verður varla hjá því kom- ist, að reyna að finna leiðir til að lækka flugflutningskostnað- inn. Eins og er, leggja fjelögin, sem taka að sjer leiguflug, mikla áherslu á, að vjelar þeirra þurfi ekki að fljúga tóm- ar til baka, er þær hafa skilað vörunum, sem þær voru upp- haflega leigðar til þess að flytja. Með því að fá vörur í flugvjelarnar á bakaleið, er oft hægt að lækka flutningskostn- aðinn um nálega helming. o • „PAPPÍRSVINNA“ STJÓRNENDUR flugvjelanna, sem aðallega stunda leiguflug, leggja og áherslu á, að það stþr auki kostnaðinn við þessi flug, hversu tímafrekt eftirlitskerfi er notað í hverju landi. — Þær skifta oft tugum, skýrslurnar, sem ganga þarf frá, áður en vöruflutningaflugvjel getur fengið leyfi til viðkomu á eih- hverjum flugvelli. Þetta er auð vitað bæði dýrt og tafsamt. En það mun taka langan tíma að útrýma „pappírsvinn- unni“, og flugmennirnir gera sjer þetta ákaflega vel ljóst. • • MARGT ER FLUTT ÞÓ ER það furðulegt, hversu margir hlutir og ólíkir nú eru fluttir flugleiðis. í ár hafa breskar leiguflugvjelar meðal annars flutt jafn ólíkar vöru- tegundir og gufukatla til Suður Afríku, vínber frá Spáni, jarð- arber frá Skotlandi til Norfolk, brjefdúfur frá Englandi til Frakklands, olíuvinnsluvjelar frá London til Damascus og jafnvel sjaldgæfan og dýran apa frá Khartoum til dýragarðs ins í London. Flugmenn leiguflugvjelanna fluttu alt þetta með glöðu geði og án þess að blikna, enda eru þeir margir hverjir gamlir or- ustuflugmenn og vilja mun frekar hafa sjaldgæfa apa inn- anborðs en vjelbyssukúlur eða sprengjur, BOLÍVÍA. — Nýlega lokaði Ar- gentína afmörkuðum hlutum landamæranna að Bólivíu. Var það gert vegna aðgerða uppreist- armanna í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.