Morgunblaðið - 27.09.1949, Blaðsíða 16
HULDU-OÐIÐ reyndist koma
VESURÚXLIT — FAXAFLÓI;
S-V eSa V-kaldi, skúrir
únistum Htilsvirði. — Sjá greist
á blaðsíðu 2,
220- tbl. — Þriðjudagur 27. sejítember 1949.
Glæsilegl bjeraðsmól Sfái:
slæðismanna í Sandqerði
HJERAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Gullbringusýslu var
haldið með miklum glæsibrag í samkomuhúsinu í Sandgerði
síðastl. iaugardag. Mótið sótti hátt á fjórða hundrað manns
úr nálega öllum hreppum sýslunnar. Sjálfstæðismenn og
konur handan Hafnarfjarðar úr Kjós og af Kjalarnesi, Sel-
tjarnarneshreppi, Kópavogshreppi og Garðahreppi f jöl-
menntu á þetta einstæða hjeraðsmót Gullbringusýslu. Er
þessi hoimsókn þessara Sjálfstæðismanna handan Hafnar-
fjarðar ótvíræður vottur um samhug þann, sem ríkir meðal
kjósenda Ólafs Thors um það að gera kosningu hans sem
glæsilegasta.
„Ungfrú Evrópa”
Björvin Pálsson, Sandgerði,'®'
setti mótið og bauð gesti vel-!
komna. Tilnefndi hann sem
fundarstjóra Alfred Gíslason,!
bæjarfógeta í Keflavík.
Ræður voru margar fluttar
og voru ræðumenn þessir:
Axel Jónsson, Sandgerði, Guð-
mundur Jónsson, Rafnkelsstöð-
um, Garðahreppi; Björvin Páls
son, Sandgerði, Helgi S- Jóns-
son, Keflavík, Karvel Ögmunds
son, Ytri-Njarðvík, og Axel
Jónsson, Felli, Kjósarhreppi.
Þá flutti formaður Sjálfstæðis-
flokksins og þingmaður kjör-
dæmisins, Ólafur Thors, kjarn
orta og sköruglega ræðu um
landsmál og horfur í stjórn-
málum.
Mikil „stemning“ var á hjer
aðsmótinu og er einsætt, að
Sjálfstæðismenn og konur á
Suðurnesjum eru nú meir en
nokkru sinni áður ákveðin í
að gera sigur Ólafs Thors sem
mestan. Var hann ákaft hyllt-
ur af fundarmönnum.
Dans var síðan stiginn fram
til kl. 2 og skemmtu menn sjer
hið besta. — Þetta fyrsta hjer-
aðsmót Sjálfstæðismanna í
Sandgerði var Sandgerðingum
til hins mesta sóma.
Ævar R. Kvaran og Alfreð
Andrjesson skemmtu með söng
og upplestri milli ræðna, með
undirleik Vigdísar Jakobsdótt-
ur og Fritz Weisshapel og fórst
prýðilega, eins og slíkra lista-
manna er von.
UH 83 m. TUNNUR
Á MIÐNÆTTI s. 1. laugardags-
kvöld, var saltsíldaraflinn, af
Norðurlandssíld, orðinn 83.758
tunnur.
Á sama tíma í fyrra, var bú-
ið að salta í 114.800 tunnur í
hinum ýmsu söltunarstöðvum á
Norðurlandi.
Fagriklettur frá Hafnarfirði,
er aflahæsta skip síldveiðiflot-
ans. Hann er nú með um 11 þús.
mál og tunnur síldar. Næsta
skip er Ingvar Guðjónsson frá
Akureyri með um 10.200 mál
og tunnur og Helga frá Reykja- j
vík er með um 9.800. — Helgi
Helgason frá Vestmannaeyjum
er næsta skip með um 8,800
I
mál og tunnur. (
Undanfarna daga hafa um 25
síldveiðiskip-stundað veiðar við
Norðurland.
Sjerstakur forstöðu-
maður Hvífa-
,Sú rödd var svo fögyr-Ff
)ii hefur
TIMINN HEFIR látið mikið yfir
því, að Framsóknarmenn hafi
sýnt kvenþjóðinni þann ein-
staka heiður, að hafa konu í
(
lefsta sæ'i listans hjer í Reykja
j vik. Sá „heiour" samsvarar því
! að kona væri i 9. sæti á lista
, Sjálfstæðismanna, því að áður
en Framsókn kæmi að sínum
fyrsta manni væri Sjálfstæðis-
flokkurinn búinn að fá alla 8
þingmenn Reykjavíkur kosna.
| Miðað við úrslitin síðast hafði
8. sætið á Sjálfstæðislistanum
1448 atkvæði, en fyrsta sæti
Framsóknarlistans 1438 atkv.
NÝLEGA fór fram samkeppni
um fegurstu konu Evrópu og
mættu til mótsins konur úr
mörgum Evrópulöndum. ,,Ung-
frú Frakkland“ hlaut fyrstu
verðlaun og titilinn „Fegurðar-
drottning Evrópu“, eða ..Ung-
frú Evrópa“ Hún kvað vera
fríð mjög og sjest hún hjer á
myndinni.
bandsins
Sjópróf í London
LONDON, 26. sept. — í dag
hófust í London sjópróf vegna
strands breska skipsins „Magda
lena“, sem brotnaði í tvennt
við Brasilíuströnd, er það var
í jómfrúarferð sinni frá Bret-
landi.
Skipið var 17,000 tonn.
Besta veður var og skygni
ágætt, er það strandaði. Þykir
mál þetta allt hið furðulegasta.
—Reuter.
OrSabók verður samin
banda fornbóksölum
LONDON — Á alþjóðlegri ráð-
stefnu, sem fornbóksalar nýlega
efndu til í London, var ákveðið
að semja orðabók yfir „versl-
unarmál“ þeirra á sjö tungu-
málum.
Auk þess verður gefin út al-
þjóðleg nafnaskrá yfir fornbók-
sa'.a.
Reuter.
Á FUNDI bæjarráðs, er haldinn
var í fyrradag, var samþykkt,
að heimila borgarstjóra að ráða
forstöðumann að sjúkrahúsi
Hvítabandsins.
Það starf var fyrir nokkru
til umsóknar. Bæjarráð sam-
þykkti að ráða Jón Þórðarson
bókara í bæjarskrifstofunum
til starfsins.
Vill fá flugvallar-
svæðið skipulagf
BÆJARRÁÐI hefir borist er-
indi frá flugmálastjórninni
varðandi byggingu flugvjela-
verkstæðis á Reykjavíkurflug-
velli, svo og umsókn um að raf-
leiðslur verði lagðar að af-
greiðslu Olíufjelagsins við flug
völlinn.
Bæjarráð tók þessi erindi
bæði fyrir á fundi sínum síðast-
liðinn föstudag. — Vísaði bæj-
arráð báðum þessum málum
frá á þessum forsendum:
Bæjarráð getur ekki orðið
við erindum þessum, þar sem
flugmálastjórnin hefir ekki
leitað samninga við bæjarstjórn
ina um flugvallarsvæðið, og
enginn skipulagsuppdráttur hef
ir verið gerður af svæðinu,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Veiði um helgina
UM helgina var yfirleitt lítil
síldveiði, en eitt skipanna,
Fagriklettur, bætti en við afla
sinn. — Á Grímseyjarsundi
fjekk hann 1200 tn. í salt og
um 300 mál í bræðslu.
í gær var ekkert veiðiveður
og var flotinn í vari eða í höfn.
Um afla skipanna á laugar-
daginn símar frjettaritari Mbl.
á Siglufirði:
Síðasta laugardagskv. fengu
eftirtalin skip síld:
Fagriklettur 1200 mál, Snæ-
fell 60 tunnur, Skjöldur 50,
Njörður 40, Súlan 50, Grótta
50, H. Hafstein 30, Pólstjarnan
40, Ingvar Guðjónsson 80,
Sjarnan 40, Auður 40. Særún
20, Arnarnes 100, Ágúst Þór-
arinsson 50, Björgvin 200 Stefn
ir 40, .Þorsteinn 60.
Þetta var veitt út af Siglu-
firði og sundinu.
Hatvælaráðslelna
í Singapcre
SINGAPORE 26. sept. — Níu
lönd taka þátt í ráðstefnu, sem
hófst hjer í Singapore í dag, og
fjalla á um landbúnaðarmál og
ástandið í matvælamálum Asíu.
Ráðstefna þessi á að ganga
frá tillögum, sem lagðar verða
fyrir fuhd matvæla og land-
búnaðarráðs Sameinuðu þ'jóð-
anna, en hann hefst næstkom-
andi nóvember.
Fulltrúi Pakistan er formað-
ur Singapore-ráðstefnunnar.
Frá Páfagarði.
RÓMABORG — Blaðið í Páfa-
garði segir, að kjarnorkuspreng-
ingin í Rússlandi sje sönnun þess,
hve þörfin tii afvopnunar sje
knýjandi.
En Rannveig Þorsteinsdóttir
eykur listanum atkvæði, segja
Framsóknarmenn. — Hvers
vegna? Það er fjarska ólíklegt,
nema að Reykvíkingum sje ætl-
að að halda að hún sje ein-
hvern veginn öðruvísi en aðrir
Framsóknarmenn.
Katrín sagði: „Jeg kaus mjer
þetta sæti (þ. e. annað fallsæti
listans) á listanum af því að
jeg veit að minn flokkur er vax
andi flokkur“. Það var hlegið.
Nú hefir Rannveig talað.
Rannveig sagði: „Jeg lýsi
stríði á hendur allri fjárplógs-
starfsemi“. Þær eru vígalegar,
jómfrúrnar.
Og Rannveig sagði meira.
Tíminn birtir kafla úr ræðu
hennar á fundi Framsóknarfje-
lags Reykjavíkur, sem haldinn
var síðastliðinn föstudag. Rann-
veig lýsir ástandinu, eftir tæpra
þriggja ára valdaferil Fram-
sóknarflokksins. Hvernig er
þetta vottorð Rannveigar um
hin þjóðhollu áhrif Framsókn-
ar í valdastólunum?
Því að nú er þess að minnast
að Framsóknarflokkurinn hefir
líka gefið út stefnuskrá eða
kosningaávarp til kjósenda. í
því stendur m. a.:
„Með myndun nýrrar ríkis-
stjórnar var á árinu 1947 hafið
viðnám gegn öngþveitinu í fjár-
málum landsins og þá fyrst og
fremst verðbólgunni".
Nú lýsir fröken Rannveig
„viðnáminu“. Það hljóta að vera
mikil viðbrigði! Eftirvæntingin
vex! Látum frökenina tala:
„í skjóli vöruþurðar og frá-
leitra ráðstafana stjórnarvald-
anna (þeirra, sem hófu „við-
námið“, takið eftir) sagði Rann
veig, blómgast svartur markað-
ur og margvísleg okurstarf-
semi“. (Varð einhver nissa?)
— „Rannveig lýsti fjármála- og
viðskiptaástandinu í landinu
eins og það er nú orðið (takið
eftir: „nú orðið“ — eftir tæpra
þriggja ára valdaferil Fram-
sóknar) — öngþveiti atvinnu-
jveganna, skuldasöfnun ríkisins
! og auknum reksturskostnaði
i þess, álögunum á almenning,
[ erfiðleikum venjulegs launa-
fóiks að sjá sjer og sínum far-
borða (frökeninni hefir kannske
orðið hugsað til hinnar illvígu
andstöðu Framsóknarmanna í
þinglokin gegn launauppbót-
inni til launafólksins) og kák-
ráðstöfunum þeim, er gerðar
hafa verið í dýrtíðarmálunum“.
Ekki gleymdist að setja rús-
ínuna í pylsuendann!
Hvernig stendur í stefnu-
skránni? „Viðném gegn örtg-
þveitinu — og þá fyrst og
fremst verðbólgunni“.
Hefir ekki Rannveig talað af
sjer?
Framsóknarmenn lýstu á-
standinu ófagurlega, þegar fyr-
verandi stjórn fór frá völdum.
Nú lýsir efsta fröken Jistans
hjer í Reykjavík ástandinu eftir
„viðnám“ Framsóknar. Síst er
það fegri lýsing!
Líklega mætti líta með meiri
yfirsýn og hófsamara mati á
bæði tilfellin.
En það, sem komið hefir
greinilega í ljós er þetta, að
fröken Rannveig er bara alveg
eins og aðrir Framsóknarmenn,
kannske dálítið klaufsk í við-
bót, þar sem hún hittir fyrst
og fremst sig og sína, þeg'ar
hún reiðir brandinn í upphafi
baráttunnar.
Verður Beran gerður
kardínáii!
PÁFAGARÐI, 24. sept.: —
Heyrst hefir, að páfinn hafi í
hyggju að útnefna 15 nýja
kardinála á þessu ári, svo að
þeir verði 70 eins og gert er
ráð fyrir. Búist er einnig við
því, að í nóv. n.k. þá muni páfi
gefa út tilskipun, þar sem nýj-
um kardínálaembættum verð-
ur bætt við á næsta ári. munu
þau verða 35 alls.
Beran erkibiskup er miðdep-
ill togstreitunnar milli ríkis og
kirkju í Tjekkóslóvakíu. —■
Stepinac erkibiskup tekur nú
út 16 ára fangelsisrefsingu, en
það mundi ekki vera í fyrsta
skipti, sem páfi gerði fangelsað
an biskup að kardínála, þótt
svo yrði nú. — Reuter.