Morgunblaðið - 04.11.1949, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.11.1949, Blaðsíða 12
VEÐUEÚTLIT — FAXAFLÓI: SV- og S-kaldi. Smásl>úrÍT. 253. tbl. — Föstudagur 4. nóvember 1949. SKÆÐAB farsóttir herja rjúií-1 una. Sjá grein á bls. 7._______ ~~ “ " i Þar á að vera vislheimHi fyrir 25—30 börn. Harnavemdarnefnd fær Silungapoll til umráða Börnin una sjer ve! á Reykjavíkursýninpnni. BORGARSTJÓRI skýrði frá þvi á fundi bæjarstjórnar í gær, að bæjarráð hefði heimilað sjer að semja við Oddfellowa, um að bærinn taki barnaheimilið Silungapoll á leigu sem vistheimili fyrir þau börn, er Barnaverndarnefnd þarf að ráðstafa ýmissa orsaka vegna. Upplýsti borgarstjóri að vistheimilið myndi geta tekið á móti 25 til 30 börnum. Mikil þörf. < í upphafi máls síns um þetta merka nauðsynjamál skýrði borgarstjóri frá þeirri brýnu þörf, sem nú væri á því orðin, að Barnaverndarnefnd Reykja- víkur hefði aðgang að slíku vistheimili. Árlega þarf nefnd- in að ráðstafa utan heimilis síns allmörgum börnum, ým- ist vegna þess að annað eða bæði foreldri barnanna eru lát- in, eða vegna óreglu á heimili barnanna og af fleiri ástæðum. Bærinn hefur hvergi verið að gerðarlaus í þessu mikla vanda- máli. Reynt hefur verið árang- urslaust að fá heppilegan sama- stað fyrir slíka starfsemi, en því miður hefur það ekki tekist þar til nú. Silungapollur. Nú hefur svo ráðist, að Sum- ardvalafjel. Oddfellowa hefur fallist á að láta bæinn fá Sil- ungapoll, sem staðið hefur ó- notaður á vetrum, en bar er, sem kunnugt er, starfrækt barnaheimili á sumrum. Jeg ritaði Sumardvalafjel. 14. sept. um möguleika á að bærinn íengi húsið til afnota, sagði borgarstjóri, og spurðist fyrir um skilmála þá er settir yrðu fram af hendi fjelagsins. Þann 4. okt. s.l. barst mjer svar við brjefi mínu, sagði borgarstjóri og var þar vel tekið undir þessa málaleitan. Fór Barnaverndar- nefnd upp að Silungapolli til að kynna sjer aðstæður og aðbún- að allan, en nefndin beindi síð- an áskorun um það til bæjar- ráðs, að bærinn tæki Silunga- poll á leigu og starfrækti þar vistheimili fyrir 25 til 30 börn á vetrum og til viðbótar 60 börn á sumrum. Samningar hafa nú tekist milli Sumardvalafjel. og bæjar- ráðs. Endurgjaldslaus afnot í 15 ár. Síðan gerði borgarstjóri grein fyrir samkomulaginu. — Húsið láta Oddfellowar endurgjalds- laust til 15 ára. Bærinn mun hinsvegar taka að sjer að sjá ura kostnað allan við breyting- ar og annað sem til þess þarf að gera húsið sem best úr garði. sem gott vistheimili fyrir börn þau, er þar eiga að dvelja. Sagði borgarstjóri, að leggja þ-yrfti miðstöðvarlögn í húsið, rafmagn heim að því, en allt þetta myndi kosta mikið fje, Væri það lausleg ágiskun, að breytingarnar og nýsmíði myndi kosta hátt á 3. hundrað þúsund krónur. Borgarstjóri gat þess og að Oddfellowar hefðu sett það skil yrði, að þeir sjálfir veldu þau 60 börn, er dvelja ættu að Sil- ungapolli á sumrin. Borgarstjóri skýrði frá því, i að húsið sjálft væri að dómi fróðra manna í besta ásigkomu- lagi, vandað allt, en það var tekið til afnota árið 1930. Framtíðarskipun. I þessu sambandi benti borg- arstjóri á, að það væri æskileg- ast, að hægt yrði sem mest að sameina slíka starfsemi sem barnaheimili og hliðstæðar stofnanir á sama svæði. Hann hefði því falið skipulagsmönn- um bæjarins að gera skipulags- tillögur um slíkt hverfi. — Það mun þó taka mörg ár að koma þessu máli í kring, sagði borg- arstjóri, en eigi að síður mun ekki verða misst sjónar af þessu takmarki. Borgarstjóri benti að lokum á, að með vöggustofunni að Hlíðarenda, og svo nú með leig- unni á Silungapolli, hefði vissu- lega nokkuð áunnist í velferð- armálum æsku Reykjavíkur á þessu ári. Borgarstjóri von- géSur um kaupin á Sturiu-húsunum SIGFÚS SIGURHJARTARSON gerði um það fyrirspurn á fundi bæjarstjórnar í gær, til borg- arstjóra ,hvort hann gæti gef- ið nokkrar uppl. varðandi kaup bæjarins á svonefndum Sturlu húsum við Laufásveg, nr. 53 og 55. — Á síðastl. vori fóru fram at- huganir á möguleikum til þess að af kaupum þessum gæti orð ið, en í húsum þessum hyggst bærinn reka barnaheimili. Borgarstjóri upplýsti, að hann hefði átt mörg viðtöl við eigendur þessara húsa. Garðar Gíslason stórkaupm. á húsið Laufásveg 53. — Bíða varð eft ir því að hann kæmi að utan. Erfingjar Jón Ólafssonar banka stjóra, eiga húsið við hliðina, nr. 55. Eftir umræðurnar sem borg arstjóri hefir átt við þá aðila er hjer eiga hlut að máli, sagð- ist hann vera vongóður um að samningar um kaupin myndu takast. En áður verða þær fjöl- skyldur, sem í húsum þessum búa nú, að fá annað húsnæði. Frekari uppl- sagðist borgar- stjóri ekki geta gefið á þessu stigi málsins. BARNAGÆSLAN á Reykjavíkursýningunni gefst vcl. í gær komu mæður með börnin sín og skildu þau eftir í barnagæslunni, þar sem þau Ijeku s.jer að leikföngum, sem þar lágu frammi. en tvær barnauppcldiskcnslukonur gættu þeirra. — Sjást þrjú börn og cftirlitstsúlkurnar hjer á myndinni, sem tekin var í gær. (Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon). í þriðja sinn á þrem fundum KOMMÚNISTAR fluttu í gær á fundi bæjarstjórnar. í þriðja sinn í röð, ræður sínar um að bæjarsjóður ætti að taka að sjer bankastarfsemi og lána öllum til húsbygginga sem þess óska (!). Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri, skýrði málin enn á sama hátt og hann hefir gert á fyrri fundum bæjarstjórnar og benti með rökfastri ræðu sinni á veil urnar í málflutningi kommún- istanna. Fjölfefli og hraðskák- keppni í KVÖLD mun Baldur Möller tefla fjöltefli á vegum Taflfje- lags Reykjavíkur að Þórsgötu 1. — Keppnin hefst kl. 8. Næstkomandi sunnudag verð ur svo haldin hraðskákskeppni í sambandi við haustmótið. — Keppni þessi fer einnig fram að Þórsgötu 1. Koma þarf upp hæli fyrir vandræðabörn Umræður um málið hefjasl bráðlega. Á FUNDI bæjarstjórnar í gær skýrði borgarstjóri frá því, að bæjarráð hefði falið sjer að eiga viðræður við ráðherra um byggingu hælis fyrir unglinga, er lent hafa á glapstigum. Verkefni ríkisins Með barnaverndarlögunum frá 1947, er gert ráð fyrir að ríkið kosti byggingu slíks hæl- is. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að ekkert hefir verið gert í þessu máli Borgarstjóri sagði, að í þessu máli horfði beinlínis til vand- ræða, og ekki lengur hjá því komist, að hefja raunhæfar að- gerðir. Borgarstjóri ræðir við ráðherra Fræðslufulltrúi bæjarins hcf ir lagt fyrir bæjarráð bráða- birgðatillögur á fundi þcss síð- astl. mánudag. — Á þessum fundi var samþykkt, að fela borgarstjóra að ræða þetta mikla nauðsynjamál við at- vinnumálaráðherra. — Upp- lýsti borgarstjóri á bæjar- stjórnarfundinurri í gær, að hann gerði sjer vonir um að þessar viðræður gæti hafist bráðlega og myndu þær fara fram í samráði við fræðslufull trúa og fræðslumálastjóra rík- isins. Kvikmynd frá Grænlai»ú< sýnd á Ferðafjelagsfundi uuw NÆSTKOMANDI mánudags- kvöld sýnir Árni Stefánsson kvikmynd, sem hann tók í sum- ar á Grænlandi, en hann fór þangað vestur með Súðar-leið- angrinum. Er þetta litmynd. Myndin byrjar á því, þegar lagt var af stað og sýnir undir- búnginn á leiðinni vestur. Síðan eru myndir frá miðunum, beit- ingu, verkun fisksins o. fl. Þá eru myndir frá Færeyingahöfn, Norðmannahöfn, Gottorp o. fl. stöðum, grænlenskri byggð, grænlenskum blómarósum og hrikalegu landslagi. Grænlendingur sjest þar á húðkeipi sínum, og' einnig sjest, er hann kennir syni sínum þá list, að róa honum. Árni Stefánsson og fleiri Is- lendingar fóru með skipi til Noregs á leiðinni heim og loks til Parísar. Nokkrar myndir eru einnig úr þeirri ferð. Það er engum vafa bundið, að húsfyllir vérður ? Sjálfstæð- ishúsinu á mánudagskvöldíð, á skemtun Ferðafjelagsins. im tfípup,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.