Morgunblaðið - 12.11.1949, Síða 6

Morgunblaðið - 12.11.1949, Síða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 12. nóv. 1949. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Frarnkv.stj.: Sigfús JðnuBon. LIFINU Ritstjóri: Valtýr Stéfánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla' Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintalúð, 7» aura með Lesboii. Undirbúningur stjórnarsamstarfs SÍÐAN að kosningum lauk og ríkisstjórnin sagði af sjer hefur lítið gerst, er miði að myndun nýrrar ríkisstjórnar í landinu. Forseti íslands hefur að vísu rætt við formenn stjórnmálaflokkanna og hvatt þá til að hraða myndun þing- ræðisstjórnar. En samningaumleitanir þingflokkanna um stjórnarmyndun bíða þess að þing komi saman, sem verður 14. þ. m. Enda þótt þetta hlje á raunhæfum tilraunum til þess að koma nýrri ríkisstjórn á laggirnar, hafi orðið, mætti ætla að ílokkarnir teldu annað henta betur til undirbúnings þing- ræðisstjórn en heiftúðugar árásir hver á annan. En einn lýðræðisflokkanna, Framsóknarflokkurinn, hefur engu að síður haldið uppi stöðugum árásum og rógi um Sjálfstæðis- flokkinn, allt frá því að kosningum lauk. Það er hans aðferð til þess að undirbúa jarðveg þingræðisstjórnar í landinu. En það er önnur hlið á framkomu og Framsóknar síðan að kosningunum lauk, sem er dálítið skopleg. Svo að segja öaglega hefur Tíminn haldið uppi harðri barsmíð á Alþýðu- flokkinn. Þessi barsmíð hefur átt að sanna Alþýðuflokknum og blaði hans að honum bæri helg skylda til samstarfs og undirgefni við Framsókn. Er ekki annað sýnt en að Fram- sókn telji sjer trú um að hún geti beinlínis þröngvað Al- þýðuflokknum til fylgis við sig. Tilefni þessarar annarlegu uppviðrunar Framsóknar við Alþýðuflokkinn eru þau ummælr Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar forsætisráðherra um kosningaúrslitin, að hann telji þau ekki leggja Alþýðuflokknum þá skyldu á herðar að standa að stjórnarmyndun. Til þess er ekki ástæða að gera hnotabit Tímans og Alþýðu- blaðsins um þetta atriði að frekara umræðuefni að sinni. Hins vegar er ekki ástæðulaust að ræða stuttlega um þýð- ingu kosningaúrslitanna almennt fyrir stjórnarmyndun og stjórnarfar landsmanna almennt. Eins og kunnugt er fjekk enginn einn flokkur aðstöðu til þess að mynda ríkisstjórn er styðjist við meirihlutafylgi hans eins á Alþingi. Engum einum flokki ber þess vegna þing- ræðisleg skylda til þess að mynda flokksstjórn. Það er sú ályktun, sem fyrst og fremst verður dregin af úrslitum kosninganna. Sjálfstæðisflokkurinn benti þjóðinni á það fyrir kosningar að ef hún vildi vinna að aukinni festu í stjórnar- fari sínu, heilbrigðari stjórnarháttum, öruggari fjármála- stjórn, þá yrði hún að veita einum flokki, stærsta flokknum, meirihlutaaðstöðu á Alþingi. Ef hún gerði það ekki gæti hún ekki búist við öðru en áframhaldandi samstjórnum ilokka með meira og minna sundurleitar skoðanir á viðfangs- efnunum. Dómur þjóðarinnar fjell og styrkleiki flokkanna á þingi breyttist sáralítið. Þess vegna standa íslendingar nú frammi fyrir stjórnarkreppu, sem enginn veit í dag, hvernig kann að leysast. Aðfarir okkar íslendinga við myndun ríkisstjórna undan- farin ár, hafa verið þunglamalegar og klaufalegar. Vikur og mánuðir hafa liðið og engin stjórn hefur fæðst. Flokkarnir hafa skipað viðræðunefndir, sem setið hafa á fundum og gert hvert uppkastið á fætur öðru að stjórnarsáttmála. Eftir mikið þóf hefur svo slitnað upp úr eða gengið saman og þingræðis- stjórn hefur fæðst á grundvelli víðtækra sáttmála, sem jafn- vel hafa fjallað um smáatriði, meira og minna þýðingarlaus fyrir stjórnarstefnuna og stjórnarfar þjóðarinnar. Þessi aðferð ber það greinilega með sjer, að það, sem mjög skortir á í íslenskt stjórnmálalíf, er gagnkvæmt traust stjórn- málaleiðtoganna og hæfileikar til þess að greina á milli aðal- atriða og aukaatriða. Þess vegna hefur verið dútlað við að breyta nöfnum á nefndum og ráðum, smávægilegar laga- breytingar, sem raunverulega skiptu engu máli, hvorki vegna þjóðmálastefnu nje hagsmuna þeirra, sem hiut eiga að máii. En þjóðin verður að gera sjer það ljóst, að þetta er ekki aðeins sök stjórnmálaleiðtoganna, sem hún hefur fengið þingmannsumboð. Það er hennar eigin sök. Hún hefur fellt dórninn og hún verður að hlýða sínum eigin úrskurði. Tískutónlist vekur hneyksli SIRA Árelíus Nielsson hefir fyrstur manna sent mjer brjef um nýtísku söng, eða gól, sem farið er að iðka hjer á landi. Tísku tónlist þessi hefir borist með kvikmyndum og grammó- fónplötum hingað. — Öllum ber saman um, að vælið sje leiðinlegt og eigi lítið, ef þá nokkuð skylt við tónlist. — Það er ekki hægt að lýsa í hverju þessi samsöngur er fólg inn, en það virðist helst vera, að hver söngmaður, eða kona væli með sínu nefi á sem hjá- kátlegastan hátt. • Pistill prestsins PRESTURINN tekur til athug unar einn söngflokk, Ránardæt ur, sem orðið hafa vinsælar fyr ir söng sinn, enda hafa þær góðar raddir og söngeyra, að því er best verður vitað. En þær hafa fallið fyrir tískutón- listinni, blessaðar. Svo hefst pistill síra Árelíus- ar: ,,Jeg hlustaði á barnatímann í gær. Hann er oft eftirtektar- verðasti timinn í útvarpinu. — Ljett gleði og ljúf alvara skipt- ast þar á. Ljós og skuggar lið- innar bernsku og æsku líða gegnum vitundina. Ljós og skuggar frá þeim stundum, þeg ar mamma og amma sögðu sín- ar sögur, rauluðu sín ljóð. — Stundir þeirrar sáningar, sem borið hefir íslenskri menningu kjarnmesta ávexti. • Viðbrigði „ÞESSVEGNA hrökk jeg við með hrolli, þegar „Ránardæt- ur“ hófu söng sinn. Stúlkurnar hafa góðar raddir og allgóða þjálfun. Lögin voru góð. En raddirnar voru afskræmdar, líkt og takmarkið væri að gera þær líkari fuglagargi en kven röddum. Og lögin heyrðust naumast, fyrir meðallagi hljóm næm eyru. Á líklegustu og ó- líklegustu stöðum voru þau skreytt- með jóðli, ýlfri og góli af öllum hugsanlegum gráðum að formi og skyldleika. Nú veit jeg, bæði sem hlust- andi og um nokkur ár leiðbein andi ungra stúlkna, sem syngja með gítar-undirleik, að slíkur söngur er undarlega nærri því að stilla strengi saknaðar, gleði og fegurðar í hjörtum barna og saklausra sálna til fullkomins samhljóms, sem vekur sönn bros og gullin tár. • Ofögur fyrirmvnd ,.NÚ VIL jeg spvrja: Spillir ekki þessi erlenda skrækja- tíska smekk íslenskra barna fyrir göfgandi áhrifum og ein faldri fegurð söngs og orða Ijettra laga og ljóða. | Hugsið ykkur: Sjö og átta ára börn svngja vísurnar: ,.Nú er frost á Fróni“ og „Svífur að haustið“, með slíkum skræpu- tónum, skrykkjum og rykkj- um ,að áherslur liggja jafnvel á síðust.u samstöfum íslenskra kjarnvrða. Er þetta ekki byrjunin að sökkva í glaum erlendra skríls láta? • Söngur Ránardætra ,,OG VILDU ekki „Ránardæt- ur“ atliuga það framvegis að nota sínar fallegu raddir og söngtækni til söngs í samræmi við íslenska nafnið sitt. Fátt lætur Ijúfar í evrum né á lífmeiri bergmál í íslenskum sálum en söngur Ránardætra. Öldurnar hafa lengstum sung- ið íslendingum þrótt og frið, hvort heldur það eru ljettar bár ur við bláan fjörusand, effa ólg andí brimboðar á skerjum og flúðum við faðm úthafsins. 7. nóv. 1949. Árelíus NieIsson“. Utbreiddara en liann vreit SANNLEIKURINN er nú sá, að þessi tískutónlist er út- breiddari en presturinn heldur. Og þótt forsjónin hafi forðað honum til þessa, frá að heyra unglinga syngja „Nú er frost á fróni“ og fleiri íslensk lög í jazztakt, þá er það svo sem gert og heyrist oft hjer á landi. Bæði einstaklingar og hljóm- sveitir syngja og leika „Fjár- lögin“ í „viltu geimi“. Fáir þola að sígild lög og þjóðlög sjeu útsett í jazz og síst í trylltan takt. En hvort ástæða er til að taka svo djúpt í árinni, eins og presturinn gerir, að alt sje að sökkva í skrílmensku. Það myndi jeg taka með fyrirvara. o Fleiri kvartanir FLEIRI kvartanir hafa borist útaf söng Ránardætra í barna- tímanum. — Þessi söngur hef- ir farið eitthvað illa fyrir brjóst ið á hlustendum. Og verð jeg að segja, að þeim er ekki lá- andi. Það er nú tími til, kominn, að farið sje að finna upp á ein- hverju skemtilegra efni fyrir börnin, en verið hefir í barna- tímunum undanfarin ár. Það er sama tuggan upp aftur og aftur, engin hugkvæmni, eða tilbreyting fyrir yngstu hlust- endurnar, sem þó eru svo þakk lát fyrir hvað lítið, sem er, eins og sjá má á ánægju þeirra með jólabarnatímann, þótt varla sje þar hugkvæmninni fyrir að fara. I MEÐAL ANNARA ORÐA .... I immmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi 11 • i Mannfal lekið á fljótari og örugaari hátt en tíðkast hefir Eftir frjeettaritara Reuters. OTTAWA: — Sjerfræðingar stjórnarinnar hafa nú með hönd um manntal til reynslu í Kana da, og taka 120.000 manns þátt í tilraun þessari. Sú aðferð við manntalið, sem hjer er verið að reyna, kann að valda gjör- breytingu á þeim gömlu aðferð um, sem notaðar hafa verið um aldaraðir, er manntal hefir ver ið tekið. • • SPARAR TÍMA OG KOSTNAÐ ÞESSI tilraun er nú gerð til að fá úr því skorið, hvort hin nýja aðferð sje hæf til notkunar, þegar næst fer manntal fram í Kanada 1951, en manntal er tekið þar á 10 ára fresti. En niðurstöðum þessara tilrauna verður gefin gaumur um all- an heim. Embættismenn vona, að nýj ungin muni minnka manntals- kostnaðinn um helming frá 3ví, sem verið hefir. Og talið er, að með henni fáist vitneskja um helstu staðreyndirnar á 6 til 9 mánuðum eða á meira en helmingi skemmri tíma en tíðk ast hefir hingað til. • • VJELAR VIÐ MANNTALIÐ í SAMBANDI við nýju aðferð- ina verða notaðar nýjar, hrað virkar vjelar. Þesskonar vjelar til vinnusparnaðar við mann- tal hafa aldrei áður verið not- aðar í heiminum. Helstu nýjungarnar eru þess ar: — 1) Við tilrauna-manntalið verður notuð merkjaaðferð. — Notað verður 7 þumlunga spjald í stað hins langa og ó- handhæga sniðs þessara eyðu- blaða, sem áður hefir verið notað. Á spjaldinu er 31 spurn ing um einstaklinginn og heim ili hans. Skrásetjarinn, sem kveður dyra letrar þær upp- lýsingar, sem hann fær með kúlupenna, en í honum er sjer stakt blek. Spjald þetta verður lagt til grundvallar, þegar sam- ið er manntal þeirra 13.000.000 manna, sem Kanada byggja. Það er láti'5 inn í vjel, (raf- eindavjel), en þar eru burstar, sem gata spjöldin á rjettum stöðum, er þeir snerta þetta sjerkennilega blek, og verða þau á eftir hæf til skýrslu- gerðarinnar. í þessu felst raunar það, að vjelin gerir á svipstundu það, sam margar hendur eru vanar að vinna. . Önnur vjel mun raða á ann- an hátt og sundurliða niður- stöður þær, sem fást á þessum mörgu spjöldum og veita þann ig fljótt og nákvæmlega undra verða tölfræðilega mynd af húsakosti og atvinnu íbúa Kanada. • • VERKINU ST.TÓRN AÐ FRÁ MÖRGUM STÖÐUM 2) Kanada vinnur nú ekki framar úr gögnum manntals- ins á einum stað. Árið 1951 verður manntalinu stjórnað frá skrifstofum, sem eru víðsveg- ar. í St. Johns, Halifax Montre al, Toronto, Winnipeg og Van- couver. Verða 18.000 manns í bjónustu þeirra. Áður var öllu þessu verki stjórnað beint frá Ottawa. Vegna þess að nákvæmni og skilningur hvers einstaks skrá- setjara verður nú brýnni en nokkru sinni fyrr, hefir mann- talsstofnunin gefið út 94 bls. ritling eða handbók honum til leiðbeiningar í starfi hans. Yöruverð hækkar vegna gengisíellingarinnar LONDON, 11. nóv. — Samkv. tölum, sem verslunarmálaráðu neytið breska birti í kvöld, hækkaði vöruverð í stórsölu um 2,1%, þegar er gengis- fellingin var um garð gengin. Nokkru olli tímabundin hækk- un á ávöxtum og grænmeti um verðaukningu þessa. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.