Morgunblaðið - 18.12.1949, Side 8
8
M O RGV N B L A Ð IÐ
Sunnudagur 18. des. 1949.
Næg atvinna og mikil framleiðsla í Færeyjum
j
PÁLL Ólafsson. ræðismaður
íslands í Pæreyjum, var meðal
farþega með Dr. Alexandrine
hingað til Reykjavíkur s.l.
þriðjudag. Hefur Morgunblaðið
hitt hann að máli og leitað tíð-
inda hjá ’ionum um atvinnu-
líf og efnahagsmál Færeyinga
um þessar mundir.
Næg atvir.na og
mikil framleiðsla
Atvinna hefur undanfarið
verið svo mikil í Færeyjum,
segir Páll Ólafsson, að orðið
hefur að flytja inn hundruð
verkamanna, verslunarfólks og
manna í ýmsum sjergreinum.
Framleiðsla er þar mjög mikil
og munu m.a. .verða flutt út á
þessu ári um 30 þús. tonn af
saltfiski, sem allt er selt, auk
ísvarins fiskjar og hvalafurða.
— Hvernig er afkoma al-
mennings í Færeyjum?
Hún er mjög góð og nægar
vörur eru fluttar til landsins.
Skömmtun er þar aðeins á ör-
fáum vörutegundum.
Hátekjur stríðsáranna eru
að vísu horfnar og veruleg
vandkvæði eru á útgerð hinna
eldri togara Færeyinga.
Isfirskir knattspyrnumenn
heimsóktu Færeyjar í sumar,
prúðir reglupiltar, sem gerðu
landi okkar sóma.
Annars átti jeg tal við rit-
stjóra tveggja aðalblaðanna í
Þórshöfn áður en jeg fór hing-
að heim um ástand og horfur
á ýmsum sviðum í Færeyjum,
en að baki þeim standa tveir
stærstu stjórnmálaflokkarnir,
Sambandsflokkurinn og Fólka-
flokkurinn. Sögðu þeir mjer
álit sitt á færeysku efnahags-
og atvinnulífi, eins og það er
nú. Ennfremur ræddi jeg við
einn af bestu bændum Fær-
evja um viðhorfin í landbún-
aðarmálum.
Jeg álít að orð þessara
manna geíi góða hugmynd um
Færeyjar 1 dag. '
Rálegra í færeyskum
stjórnmálum
Ejden Möller, ritstj. Dimma-
lætting, málgagns Sambands-
flokksins, komst m.a. þannig
að orði:
Þróunin hjer í Færeyjum
hefur s.l. ár verið örugg og án
meiriháttar breytinga bæði á
sviði stjórnmála og efnahags-
mála.
Það er nú liðið rúmlega hálft
annað ár síðan að hin færeysku
heimastjórnarlög, sem ákveða
stöðu og stjórn Færeyja innan
danska ríkisins, komu til fram-
kvæmda. Hefur öldurnar nú
lægt verulega í hinni sterku
þjóðernisbaráttu, sem staðið
hefur yfir í mörg ár og hafði
ekki hvað síst mikil áhrif á af-
stöðuna til Danmerkur.
í bili eru engin færeysk-
dönsk ágyeiningsmál ofarlega
á baugi og í Lögþinginu er að-
allega unnið að innanlandsmál
um okkar Færeyinga.
í árslok 1950 eða byrjun árs
ins 1951 eiga að fara fram kosn
ingar til Lögþingsins, sem háð-
ar skulu fjórða hvert ár. En
undirbúningur þessara kosn-
inga er ennþá ekki hafinn. •—
Kcsningaáróðurinn hjer í Fær-
Togaraútgerðin á við erfiöleika að etja
Frásögn Páls Ólafssonar ræðismanns
Islands í Þórshöfn.
eyjum byrjar sjaldan fyrr en
rjett fyrir kosningarnar.
Flokkaskiptingin
í Lögþinginu
Flokkaskiptingin í Lögþing-
inu er nú þannig, að Sam-
bandsflokkurinn hefur 6 full-
trúa, Fólkaflokkurinn 8, jafn-
aðarmenn 4 og hægfara Sjálf-
stjórnarflokkurinn 2. Land-
stjórn eyjanna er mynduð af
Sambandsflokknum, jafnaðar-
mönnum og hægfara Sjálf-
stjórnarmönnum. — Forsæti
ctjórnarinnar skipar lögmaður-
inn, Andreas Samuelsson, sem
í mörg ár hefur verið formað-
ur Sambandsflokksins. Land-
stjórnin fer með æðsta vald í
innri málefnum Færeyja ásamt
hinum danska ríkisumboðs-
manni, H. C. Vagn-Hansen. Ut-
anríkismálum er framvegis
stjórnað frá Kaupmannahöfn
en Færeyingar hafa rjett til að
senda fulltrúa til samninga við
útlönd um mál„ sem snerta
Færeyjar sjerstaklega í við-
skiptalegum efnum. Ennfremur
er hagsmuna Færeyinga gætt af
3 rikisþingmönnum frá þeim,
tveimur í fólksþinginu og ein-
um í landsþinginu.
Fjölþætt löggjöf
Lögþingið hefir s.l. ár sett
margvíslega löggjöf fyrir Fær-
eyjar. Má þar á meðal nefna
víðtækar umbætur á fjelags-
málalöggjöfinni, elli- og slysa-
tryggingar hafa verið hækkað-
ar með aðstoð Dana. Ennfrem-
ur hafa verið sett ný lög um
vinnufólk og lög um laun kenn
ara. Færeyingar og danska rík
ið bera sinn helming hvor að-
ili af kostnaðinum við hina
nýju fjelagsmálalöggjöf og lög-
in um laun kennara. Af hag-
nýtum framkvæmdum, sem
Færeyingar nú standa andspæn
is, má nefna víðtækar umbæt-
ur í sjúkrahúsmálum og mikl-
ar hafnarframkvæmdir hafa
staðið yfir allt þetta ár. Eru
þær fyrst og fremst við höfn-
ina í Þórshöfn sém er verið að
stækka verulega. Munu þær
kosta um 10 miljónir króna.
En það er einnig unnið að hafn
arbótum á öðrum þýðingar-
miklum útgerðarstöðum, svo
sem á Suðurey, Norðureyjun-
um og Vogey og Austurey.
Góður afli við Grænland
Á sviði verslunar og við-
skipta hefir þetta ár verið Fær-
eyingum hagstætt. Aflabrögð
við Grænland voru mjög góð.
Var meginhluti aflans saltaður
og fluttur út til Suður-Evrópu,
þar sem gott verð fjekkst fyr-
ir hann. En útflutningi ísvar-
ins fiskjar til Englands var
einnig haldið áfram enda þótt
sá útflutningur væri miklu
minni en undanfarin ár. Fær-
eyski togaraflotinn, en í honum
Póll Ólafsson.
eru nú um 40 skip, á í bili við
örðugleika að etja þar sem
kostnaðurinn við rekstur þeirra
er orðinn mjög mikill. Flestir
togaranna hafa þó stundað veið
ar allt árið og nú eru margir
þeirra að veiðum í Hvítahafi.
í Færeyjum hefir eins og víða
annarsstaðar verið mikill skort
ur á húsnæði hin síðari ár en
sá skortur er nú í rjenum eftir
að skömmtun hefir verið ljett
af byggingarvörum. Um þess-
ar mundir er verið að byggja
mörg hús í Færeyjum, bæði í-
búðarhús fyrir 1—2 fjölskyld-
ur og verslunarhús. Byggingar-
efnið er aðallega sement, timb-
ur, sem flutt er inn frá Dan-
mörku og Svíþjóð.
Höftin afnumin
Flest styrjaldarhöftin hafa
nú verið afnumin í Færeyjum.
Þannig er aðeins skömmtun á
kaffi, smjörlíki og sykri. —
Skömmtun á þessum vörum
verður ef til vill afnumin á
næsta ári. Verðlagi er haldið
niðri og verðbólgan, sem um
tíma var yfirvofandi, virðist
vera liðin hjá. Færeyingar
flytja inn nær allar nauðsynj-
ar sínar frá Danmörku (mat-
vörur) og Englandi (kol, vefn-
aðarvörur o. s. frv.).
Útflutningurinn er eins og áð
ur var sagt fyrst og fremst fisk
ur, sem seldur er til Englands,
ítalíu og Spánar. Nokkrar fleiri
afurðir éru fluttar út svo sem
málning, sem unnin er úr fær-
eyskum fjallaleir, unnar ullar-
vörur, vetlingar, treyjur o. fl.
Á Suðurey eiga Færeyingar
sína eigin kolanámu, sem sjer
okkur að verulegu leyti fyrir
kolum. Kol til iðnaðar og skipa
verður þó að flytja inn frá Bret-
landi.
Konungskoman stærsti
viðburður ársins
Stærsti viðburður ársins í
Færeyjum var koma Friðriks
konungs og Ingriðar drottning-
ar í júlímánuði. Mikill viðbún-
aður hafði verið hafður undir
konungskomuna og konungs-
hjónin heimsóttu auk Þórshafn
ar mörg hinna færeysku byggða
laga og komust þannig í kynni
við fólkið. Var komu þeirra al-
mennt fagnað mjög. Færeying
ar hafa jafnan verið konugs-
hollir menn. Það vakti sjerstaka
ánægju að Ingríður drottning
vígði nýjan barnaleikvöll í Þórs
höfn og ber hann nafn drottn-
ingarinnar.
Þetta voru ummæli Ejden
Möller ritstjóra Dimmalætting,
málgagns Sambandsflokksins.
Það, sem að Knut Vang, rit-
stjóri Dagblaðsins, sem er mál-
gagn Fólkaflokksins sagði
mjer var fyrst og fremst um
útgerðina í Færeyjum, segir
Páll Ólafsson. Knut Vang
komst m. a. þannig að orði:
Erfiðleikar
togaraútgerðarinnar
Hluti af togaraflota Færey-
inga er í dag rekinn með tapi.
Á það einkum við hin eldri og
minni skip. Það er augljóst orð-
ið að framleiðslukostnaður
þeirra er orðinn of mikill. Önn
ur orsökin eru ljeleg aflabrögð
þeirra. Er óhjákvæmilegt að
vinna að vísindalegum rann-
sóknum til eflingar útgerð
okkar,
Höfum við gert okkur vonir
um að sjómannaskóli í Færeyj-
um gæti stuðlað að þessu. Mín
skoðun er sú, og hún er í sam-
ræði við skoðun margra ann-
ara, að við verðum að gjör-
breyta sjómannaskóla okkar og
gera hann að fiskveiðaskóla
þannig að sjómenn okkar læri
þar ekki aðeins siglingafræði
heldur að fara með ný veiðar-
færi og margt annað er viðkem
ur tækni og nýjum vinnubrögð-
um við fiskveiðar.
Við verðum eins og íslending
ar að reyna að gera útgerð okk-
ar fjölþættari.
Við erum nú aftur byrjaðir
að. fullverka saltfisk. Þá fram-
leiðslu verðum við að auka. —
Jafnframt því verðum við að
kynna okkur frystingu fiskjar
og afla markaða fyrir fryst fiski
flök. Hvað viðvíkur niðursoðn-
um fiskiafurðum þá er .1. F.
Kjölbro í Klakksvík forgöngu-
maður á því sviði. Ætti hann
að njóta opinbers styrks til þess
að leita erlendra markaða fyrir
framleiðslu sína.
Vandamál togaraútge’.ðar
okkar verða ekki leyst nema
allir leggist á eitt um það. —
Fólkaflokkurinn vill styðja
einkarekstur þeirra og vili að
Lögþingið styrki útgerð þeirra.
En engin ákvörðun hefur verið
tekin um þetta mál ennþá. —
Meirihluti Lögþingsins hefur
ekki getað leyst það.
Forgöngumenn
um Grænlandsveiðar.
Við byggjum miklar vonii á
fiskveiðunum við Grænland og
erum þess fullvissir að það
mundi borga sig að koma upp
miklum mannvirkjum í Færey-
ingahöfn. Færeyingar hafa s.l.
mannsaldur verið forgöngu-
menn um Grænlandsveiðar en
ef við eigum ekki að verða þar
eftirbátar annara verðum við
að byrja á mannvirkjagerð þar
á næsta sumri til þess að skcpa
okkur bætta aðstöðu til veið-
nana.
Færeyingar hafa ekkert á
móti samvinnu við aðrar þjóð-
ir í Grænlandi, en sú samvinna
verður að vera á jafnrjettis-
grundvelli.
Síðustu árin hafa handfæra-
veiðar við Grænland gefið góð-
an arð. Þær hafa þann kost
fram yfir línuveiðarnar að til-
kostnaðurinn er minni. En Fær-
eyingar hafa svo slæma reynslu
af handfæraveiðunum frá fyrri
tímum og þeim hungurlaunum,
sem þær veittu fyrir stríð, að
jafnvel þó þær sjeu allarðsam-
ar nú má það ekki hindra að
allt verði gert til þess að greiða
götu nútímaveiðiaðferða, botn-
vörpu-, herpinóta- og linu—
veiða.
Hvalveiðarnar við Færeyjar
eru þýðingarmikill þáttur at-
vinnulífs okkar. Á næstu árum
verðum við einnig að notfæra
okkur betur með nýtísku veið-
arfærum síldargöngurnar, sem
árlega leggja leið sína fram hjá
landi okkar.
Dreifðasti
fiskiskipaflotinn.
Færeyingar eru minnsta Norð
urlandaþjóðin. En engin þjóð á
Norðurlöndum á fiskiskip sín
dreifð um svo stór svæði sem
þeir. Jafnvel þót að við vildum
viðhalda þessu ástandi og
treysta aðstöðu útgerðar okk-
ar í Grænlandi, þá er einnig
mikil þörf á að við gerum eitt-
hvað fyrir bátaútveginn heima
fyrir.
Síðustu árin hafa margar
hafnir verið gerðar hjer, en við
þurfum að fá enn fleiri.
Færeysk fiskimið hafa vcrið
hart leikin af erlendum vciði-
skipum. Danska stjórnin hefur
ekki varið fiskimið okkar, held
ur vanrækt það fullkomlega.
Það er ósk okkar að taka
sjálfir landhelgisgæsluna í okk-
ar hendur. Getum við í þessu
efni byggt á reynslu íslendinga.
Fylgjast með
íriðunartilraunum íslendinga.
Við fylgjumst með tilraunum
íslendinga til friðunar fiskimið-
um sínum með miklum áhu.ga.
Að sjálfsögðu viljum við sem
lengst halda þeim rjettindum,
sem við höfum í íslenskri land-
helgi og vonum að um þau
megi semja á vinsamlegum
grundvelíi án nokkurs milliliðs.
| Við óskum einnig að taka þátt
í vísindalegum rannsóknum á
þeim slóðum, sem fiskifloti okk
ar sækir til og álitum að hann
gæti veitt alþjóðlegum hafrann
sóknum töluverða aðstoð ef sam
vinna tækist við han.
Fjárlögin nálgast
10 miljónir kr.
Fjárlög munu á næsta ári
nálgast 10 milj. kr. Tekurnar
fást aðeins með sköttum og toll-
um. Lögþingsskatturinn, sem er
tekjuskattur, er rennur í land-
sjóð Færeyja, hefur farið hækk
andi en hefur þó hingað til /er-
ið lægri en hliðstæður skattur
í hinum Norðurlöndunum. Fvrir
Lögþinginu liggur nú frum-
varp um eignarskatt. En óvíst
er að það verði samþykkt.
Framhald á bls.12.