Morgunblaðið - 22.12.1949, Side 10

Morgunblaðið - 22.12.1949, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 22. des. 1949. Framhaldssagan 41 11111111111111 nitiimiiiiiiiimiimimimtMiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiimmiimiiiHiimmiiiii . j, iMiimmiMmmmmimM Hún hafði heyrt höggin. — Henni hafði verið svarað. Hún tók af sjer annan skóinn og barði með hælnum í rúðuna. Hún brotnaði og brotin hrundu niður á gólfið. En hávaðinn var ekki mikill. Hún var viss um að enginn hefði heyrt það. Hún beygði sig yfir gatið. „Francis“. Francis reyndi af öllum mætti að svara, en kom ekki upp nokkru hljóði. Hann barði í gólfið með hælunum. „Francis! Heyrirðu til mín? Hann barði aftur i gólfið. „Geturðu ekki talað?“ Hann barði tvisvar. „Berðu tvisvar fyrir nei,“ hvíslaði hún, „og einu sinni fyr ir já“. Ekkert svar. „Geturðu ekki talað?“ Hann barði tvisvar. „Er þetta ekki Francis?" Hann barði einu sinni. „Guði sje lof“, sagði hún. — „Ertu særður?“ „Nei“. „Hvað á jeg að gera?“ Ekkert svar. Hverju gat hann svarað? „Kemst jeg inn?“ „Nei“. „Á jeg ekki að fara og sækja hjálp?“ „Jú“. „Ertu í hættu?“ „Já“. Ó. Mathilda, og það ert þú líka Flýttu þjer. Flýttu þjer burt. En hann gat ekkert sagt. Hann barði bara einu sinni. „Jeg fer og sæki lögregluna“. „Já“. Hann langaði til að hrópa: Tyl, þú mátt ekki sækja Grandy. Forðastu hann í lengstu lög. Þú mátt ekki einu sinni segja honum að þú hafir fundið mig. Flýttu þjer bara strax til lögreglunnar eða ein- hverra yfirvalda. Flýttu þjer áður en kvenmðaurinn sjer þig. En farðu varlega. Þú mátt ekki hlaupa. Ó, Tyl, vertu varkár. „Jeg flýti mjer“, sagði hún. Honum fannst hún mundi hafa lesið hugsanir sínar. Hann barði einu sinni í gólfið. „Já“. „Vertu óhræddur", sagði hún. Hann gat ekki svarað því. Vertu óhræddur. Hvernig átti hann að geta annað en verið hræddur? Ó, Tyl, hún hafði opin augun. Hún hafði fundið slóðina. En hann gat ekki tal- að. Hann gat ekki varað hana við. Bara að hún færi nú beint til lögreglunnar og færi var- lega. Bara að hann hefði getað sagt henni það. Hann var orðinn vongóður núna .... alltof vongóður. Það var hræðilegt að vera þannig á milli vpnar og ótta. Hann var hræddur vegna hennar. Hann óskaði þess næstum því að hún hefði ekki fundið hann. Hann sneri til höfðinu á gólfinu í ör- vinglun. Hann óskaði þess jafn- vel frekar að geta verið róleg- ur í vonleysinu. 29. KAFLI. Mathilda fór aftur í gegnum limgirðinguna. Hún beygði sig niður og bóttist taka eitthvaðj upp, ef ske kynni að konan I í næsta húsi væri enn við glugg KT OG SAKLEYSI Eftir Charlotte Armstrong IM IIMMMMIIMMMIIMIIIIIIMIIIIIIIIIMMIMIIIMMIMIIMIIMIMIIMIMIMMMMMMIIIMIIMMIIIMIIMIIIIHIMIMIIIIIIIIMimillllMIIMIIIIIMMIIIIMMMMIMII ann. Svo gekk hún greitt yfir grás flötina og út á götuná. Hún gekk dálítinn spotta eftir göt- unni, en svo tók hún til fót- anna og hljóp eins og fætur toguðu Hún hafði ákafan hjart slátt og náði varla andanum. Hún varð fyrst og fremst að komast nógu langt í burtu og komast svo í síma. Henni var svo umhugað um að flýta sjer að hún tók ekki eftir gamla bíln um, þangað til hún heyrði hvellt bílflaut og hann rann upp að gangstjettinni. „Tylí Tyl!“ Hún átti fullt í fangi með að nema staðar. „Tyl! Hvað er að þjer, vina mín“. Og Grandy steig út úr bíl- skrjóðnum og greip um axlir hennar. Elsku Grandy. Hann mundi vita, hvað hún ætti að gera. Hún var búin að gleyma öllu nema því einu að hún var að flýta sjer og hún varð að bjarga Francis. Og þarna var Grandy komin til að hjálpa henni. Alla sína ævi hafði hún trúað honum fyrir vandræðum sínum. Hún fleygði sjer í fang hans. Henni ljetti svo að hún fór að gráta. „Ó, Grandy, jeg .... jeg er búin að finna Franeis. — Jeg fann hann. Það hefir eitthvað hræðilegt skeð“. „Svona“, sagði hann. „Svona, Tyl. Stilltu þig og reyndu að segja mjer alt“. „Ó, Grandy, þú verður að hjálpa mjer að finna lögreglu- þjón. Eða einhvern til að ná honum út. Hann er þarna inni. Hann er þarna“. „Hvar?“ „í kjallaranum. Hann er bund inn. Hann getur ekki talað. Ó, Grandy, við verðum að flýta okkur“. „Þú Segir að þú hafir fundið Francis? Ertu alveg viss?“ „Auðvitað. Það er hann. Ó, Grandy, flýttu þjer“. „En hvar, vina mín?“ ___„í húsinu þarna. Þessu hvíta. Sjerðu það ekki? Hann er þar í kjallaranum. Jeg sá það í gegnum gluggann. Hvað eigum við að gera?“ „Ná í lögregluna", sagði Grandy. „Tyl, vina mín, hvern- ig...... Heyrðu, ertú alveg viss?“ „Já, alveg viss“. „Sá nokkur þig?“ „Jeg veit það ekki. Þessvegna verðum við að flýta okkur“. „En hvernig veistu að það var hann?“ i * „Jeg braut rúðuna“. „Tyl, vina mín. . . .“. „Ó, flýtum okkur. Hann er í hættu“. „Já“, sagði hann. „Það er eitt hvað bogið við þetta“. Nú var hann ekki undrandi lengur en rólegur og ákveðinn. Hann mundi áreiðanlega gera það sem rjett var. „Tyl, heldurðu að þú getir tekið bílinn og farið og fundið einhvern síma. Þú hring ir í lögregluna. Spurðu eftir Gahagen sjálfum. Heldurðu að þú getir það ekki?“ „Jú, jú, jeg get það“, sagði hún. „Á meðan fer jeg og hefi auga með húsinu“. „Ó, já“, sagði hún ánægð. — „Það er einmitt ágætt, Grandy. Þú ferð og heldur vörð .... þú heldur vörð um Francis". „Já, það er einmitt", sagði hann. ,.Þú hringir úr einhverj- um símaklefa. Við viljum ekki að þetta frjettist út um allan bæ“. „Láttu mig fá tuttugu og fimm eyring“, sagði hún ákveð- in. Hann vissi að hún mundi fara eftir þessum fyrirmælum hans. Hún mundi reyna að ná sam- bandi við Gahagen. Það mundi allt taka sinn tíma. Frú Press opnaði bakdyrnar tortryggin á svip. En þegar hún sá hver var kominn, opnaði hún upp á gátt. „Ofan í hvað getum við stungið honum?“ spurði Grandy án nokkurra málalenginga. „Ferðakistu“, sagði hún. „Náðu í hana“. „Hún er uppi á háalofti“, „Dragðu hana niður“. Hún skildi að mikið lægi á, svo hún fór án þess að spyrja neins. Grandy fór í símann. „Press? .... Getur þú sent flutningabifreið hingað innan fimm mínútna? Það liggur á. Löreglan. Segðu þeim að þeir eigi að ná í kistu“. Svo bætti hann við og byrsti sig: „Það er tilgangslaust að senda hann ef hann getur 'ekki verið kom- inn innan fimm mínútna. Þú veist hvað er í húfi. Þetta er þitt hús.....Já, jeg átti líka von á því. Segðu þeim að hún sje full af bakteríum. Tauga- veikisbakteríum, eða hvað þú vilt“. Grandy lagði tólið frá sjer. Skellir og dynkir heyrðust ofan úr stiganum. Hann fór fram á ganginn og hjálpaði frú Press með stóru kistuna. Þau fóru bæði niður til að sækja Francis. Þótt hann væri rammlega bundinn á höndum og fótum áttu þau þó fullt í fangi með að ráða við hann. .— Hann barðist um í höndunum á þeim eins og hann mögulega gat. Hann vissi að eitthvað illt var á seyði. Þessi mikli flýtir gat aðeins stafað af því að Tyl hafði sagt eða gert eitthvað, svo að Grandy hafði komist að því að hún hafði fundið hann. Nú var öll von úti. Hann mundi aldrei fá að sjá hana aftur og þakka henni fyrir og útskýra þetta allt fyrir henni. Sárast var að fá aldrei að sjá hana aft- ur. — Konan var sterk og Grandy hafði líka furðu mikla krafta, þótt hann væri farinn að eld- ast. Þau drógu hann með mikl- um erfiðleikum upp kjallara- tröppurnar. Viðureignin uppi í anddyrinu var ógeðsleg og varla hægt að lýsa henni með orðum. Það var eins og tóma kistan gini við bráðinni. Og maður- inn, lifandi en vanmáttugur, neitaði að fara ofan í hana. En hann beið lægri hlut. Um leið og hann steyptist ofan í kistuna, slóst höfuðið við, svo að hann missti meðvitundina. „Best að Ijúka því af núna“, sagði konan og bljes mæðinni. í klandri með Simba Etfir GILBERT VEREN 13. Hann stóð upp, trítlaði yfir sviðið og kom að Simba. — Jeg get ekki þolað svona fílfulæti, sagði hann. — Ef þú vilt vera fyndinn, þá verðurðu þó að halda þig innan rjettra kurteisistakmarka. Þú ættir að reyna eitthvað annað. Varstu ekki eitthvað að tala um töfrabrögð við mig. — Svoleiðis myndi vera fólkinu til skemmtunar. — Fyrirgefið, fyrirgefið, skólameistari, stamaði Simbi út úr sjer. Mjer þykir þetta ákaflega leitt, en jeg var orðinn svo spenntur, að jeg vissi ekkert, hvað jeg var að gera. Jú, það var alveg rjett, við getum sýnt hjerna nokkuí töfrabrögð. Tommi farðu og sæktu áhöldin. Áhorfendurnir voru nú orðnir reglulega áhugasamir og þeir voru þegar búnir að fyrirgefa okkur allar fyrri mis- gjörðir. Jeg staulaðist inn á leiksviðið með stóran skáp, sem innihjelt áhöldin okkar og lagði hann fyrir framan Simba, sem ræskti sig og sagði: — Herrar mínir og frýr, — nei, frúr, sagði hann. Jeg ætla nú að sýna ykkur snilldarlegt bragð. Jeg hef hjerna tvö nýorpin egg. Þið getið sjálf sjeð, að þau eru alveg ný. Takið nú eftir. Jeg legg þessi egg í stráhattinn minn, sem hjálparmaður minn heldur á. Svo mun jeg slá á botninn á stráhattinum með þessu priki, svo að eggin kastast upp og lendir í hægri jakkavasa mínum. Viðbúnir. Einn, tveir og þrír og nú. Bjáninn sá arna, hann Simbi hitti alls ekki sjálfan hatt- inn, heldur kom höggið á hnúana á mjer, svo jeg sárkenndi til. —• Krafturinn af högginu var samt svo mikill, að eggin köst- uðust upp og fóru í sitt hvora átt. Annað lenti á píanó- nótunum, en hitt kastaðist upp í lampann og datt þaðan á ennið á skólameistaranum, en allt innihaldið lak niður á andlit hans. Við þetta stóðu nokkrir fínustu mennirnir upp 14. cg gengu út, þar á méðal skólameistarinn sjálfur, sem sam- tímis var 1 óða önn að hreinsa eggjasletturnar framan úr sjer með vasaklút. „Æ, jeg hef ekki húið lil op fyrir höfuðiS, jeg var húin að steingleyma, að þú hefðir höfuð“. ★ Hún heimtaði að hafa með sjer ótölulegan fjölda kjóla og þau komu á járnbrautarstöðina hlaðin farangri. „Jeg vildi“, sagði eiginmaður henn ar hugsandi, „að við hefðum tekið píanóið með okkur.“ „Vertu ekki að reyna að vera fynd- inn,“ hreytti hún út úr sjer. „Jeg er ekki að reyna að vera fyndinn," svaraði hann dapurlega, „jeg skildi farseðlana eftir á þvi.“ Nærgætni. Frú Greetv- „Tómas, heyrði jeg ekki klukkuna slá tvö um leið og þú komst inn?“ Hr. Green: „Jú, elskan, hún byrj- aði að slá tíu, en jeg stöðvaði hana, svo að hún vekti þig ekki.' ★ Smith: „Konan mín er sannarlega nýtin. Hún bjó mjer til bindi úr gömlum kjól, sem hún átti.“ Jones: „Það er ekkert. Konan mín bjó sjer til kjól úr bindi sem jeg átti.“ ★ Eiginmaðurinn: „Við ættum að hugsa ofurlitið um framtiðina, við verðum að spara meira. Ef jeg dæi, hvar værir þú þá stödd?“ Konan: „Jeg! Nákvæmlega hjer. Spurningin er. Hvar myndir ])ú vera staddur?" ★ Stúdent vi8 annan stúdent. „Jeg var að lesa áðan í blöðunum, að niu prófessorar og eimi stúdent hefðu farist i flugslysi.“ Hinn: Ó, vesalings maðurinn.“ ★ Rektor háskóla var eitt sinn sagt, að einn af stúdentunum drykki meira en góðu hófi gengdi. Rektor ákvað að gera skyldu sína og athuga málið Nokkrum dögum síðar, skömmu eftit morgunverð, mætti hann slúdentin- um, gekk beint til hans og spurði: „Ungi maður, drekkið þjer?“ „Hva — hva — hva,“ stamaði ungi maðurinn, „hað, herra rektor, ekki svona snemma morgúns, þakka yður fyrir.“ IIMMMMMIII Húsnæði Togarasjómann vantar íbúð nú þegar, 2 herbergi og eldhús Tvennt fullorðið í heimili. Árs fyrirframgreiðsla og einhver húshjálp. Tilboðum sje skilnð á afgr. blaðsins fyrir lnugardag merkt: ,,Húshjálp — 280“. 7IIIIIIIIIMIMIMIIIMIMMIMMMMIMMMMMII EINAR ÁSMUNDSSON hœatarjettarlögma'Sur Skrifstofa ; Tjarnargötu 10. — Sími Í407.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.