Morgunblaðið - 03.01.1950, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 03.01.1950, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 3. janúar 1950. MORCUNBLAÐIÐ 9 ÍSLENDINGSEÐLINU MEGUM VJER SÍST GLATA ENN er eitt árið liðið í aldanna skaut. Það hefir um sumt ver- ið oss íslendingum erfitt. — Vorharðindi, aflabrestur og stirð heyskapartíð víða um land hafa skert að mun þjóð- artekjurnar og valdið mörgum landsmönnum miklum örðug- leikum. En eigi dugir um slíkt að fást, enda erum við Islend- ingar misærinu vanastir. Ber oss að herða því fastar róður- inn sem óbyrlegar blæs og stæl ast við hverja raun. Það er ís- lendingaeðlið. Því megum vjer síst af öllu glata, eínfaldlega vegna þess, að þá er oss ekki Hfs auðið í landi voru. .,Fjör kenni’ oss eldurinn, frostið oss herði, fjöll sýni torsóttum gæðum að ná, bægi sem kerúb með sveipanda sverði silfurblár ægir oss kveifarskap frá.“ Þetta er heilræði skáldsins. Það ber oss í heiðri að hafa. Líf íslendinga er barátta við óblíða náttúru um brigðul og torsótt, en mikil gæði. í þeirri baráttu verður vjer að treysta á dug vorn og dáð, þótt bróðurhugur og velvild annarra sje í öðrum efnum mikils virði. Hvað sem öðru líður, vjer munum ekki láta þessa nje aðra örðugleika líðandi stund- ar gefa hinum forna fjanda íslendinga, bölsýninni, byr und ir vængi, heldur munum vjer halda gleði vorri. Vjer eigum þá einnig fyrir mikið að þakka nú, er árið kveður, því að margt hefir geng ið oss í haginn, en eftir því taka menn venjulega minna, og minnst þó eftir því, er án efa varðar oss mestu, en það er, að svo virðist sem heldur hafi birt yfir í heímsmálunum, svo að fremur horfi þar frið- vænlegar en fyrr. Engum ber fremur að fagna því og þakka, en einmitt oss, sem smæstir er- um og síst færir til sjálfsvarn- ar. Skal jeg eigi orðlengja um það, nje aðrar þakkarskuldir vorar. Þó minni jeg á, að enn á þessu ári hafa Íslendíngar átt við betri kjör að búa en flest- ar aðrar þjóðir. Sú staðreynd talar sínu máli, þótt það sje að vísu rjett, að vjer höfum lifað um efni fram. Vil jeg nú leyfa mjer að víkja að þeim vanda, sem við er að etja og þjóðin hugsar um flestu öðru meir um þessar mundir. „Orsök dýrtíðarinnar er sú, að fjárfesting og hallarekstur annarsvegar eru stærri en aukning sparifjár, afskriftir og óúthlutaður arður hinsvegar, að óbreyttum þjóðartekjum“. Þessi orð standa á fyrstu blað síðu í langri, ítarlegri og merki legri skýrslu um efnahagsþró- unina á íslandi síðustu árin sem Benjamín Eiríksson, hag- fræðingur, samdi síðastliðið sumar, að tilhlutan fyrrverandi ríkisstjórnar. Er Benjamín starfsmaður alþjóða-gjaldeyris- Gegn örðugleikum vorum næg- ir uð beitu skynsemdinni íkisst|órnin mun gera skyldu sína Áramólaávarp Ólafs Thors forsælisráðh. Ólafur Thors forsætisráðherra. sjóðsins, lærður hagfræði'ngur og nýtur óvenjumikils álits þeirra, er hann þekkja og dóm bærir eru um fræðigrein hans. Jeg ætla enga tilraun að gera til þess að færa sönnur á þessa staðhæfingu Benjamíns Eiríks sonar, heldur aðeins að leiða athygli háttvirtra hlustenda að því, að í henni felst sannleik- ur, sem auðvelt er að sannprófa og því verður eigi vjefengdur, enda viðurkenndur af fræði- mönnum á sviði hagvísindanna. ★ Jeg býst við, að sóknarhug- ur margra á hendur þeim auð- æfum, sem falin eru í skauti náttúrunnar, hafi skyggt á sann leiksgildi þessa boðorðs. Mjer þykir líklegt, að þörfin til þess að sjá þessa þjóð, •— sem fá- tæktin öldum saman hefir kval ið, þrátt fyrir aflið í elfum landsins og iðrum jarðar, rik- ustu fiskimið og frjóa gróður- mold, — taka tæknina i sína þjónustu, brjóta af sjer hlekk- ina og ryðjast áfram áleiðis íil bjargálna og mannsæmandi viðurværis, hafi leitt oss til þess að syndga gegn þessu lög- máli. Jeg iðrast ekki þessara synda. Þvert á móti fagna jeg flestu, sem gert hefir verið á sviði nýsköpunar og fram- kvæmda síðustu árin. Án efa væri þó sumt betur ógert. En margt myndi líka ógert, sem til farsældar veit, ef hvert fót- mál hefði verið grannskoðað og sjerhvert nýtt framtak vegið á gullvog vísindalegra lögmála. En hjer sjá menn þá eina höfuðorsök hinnar sívaxandi verðbólgu, og nú vita menn, að dýrtíðin verður ekki stöðvuð, nema þjóðin fáist til að sætta sig við það, að dregið verði úr fjárfestingunni í bili, jafnt hins opinbera sem einstaklinga þannig, , að fjárfestingin og hallarekstur samanlagt verði ekki meiri en það, sem þjóðin eykur sparfje sitt á sama tíma, að viðbættum afskriftum og ó- úthlutuðum arði. Þetta er aðeins eitt af mörg um boðorðum, sem íslendingar verða að læra, skilja og hlýða, eigi þeim að auðnast að kom- ast klakklaust út úr þeim vanda, sem allir viðurkenna að við blasir og vex með hverju árinu sem líður. Þannig verða menn t.d. að hætta hinum hörðu kröfum á hendur atvinnurekstri sem rekinn er með halla. Kröf- urnar voru eðlilegar meðan at- vinnureksturinn stórgræddi. Nú eru þær feluleikur. Hver stjett in hefir siglt í kjölfar annarr- ar um kauphækkanir. Af þeim aukna framleiðslukostnaði, sem af þessu leiðir, sprettur ný þörf framleiðslustarfseminnar fyrir aukinn ríkisstyrk. Fjár til þeirra útgjalda aflar ríkissjóð- ur með nýjum álögum á þá, sem kauphækkanirnar hafa fengið. Þetta er í höfuðefnum hingrás- in. Síðustu árin hafa menn því engar raunverulegar kjarabæt- ur fengið, en hinsvegar hefir í stöðugt vaxandi mæli skapast jafnvægisleysi í efnahagsstarf- semi þjóðarinnar, sem færa verður í lag, ef auðið á að verða að veita verðbólgunni viðnám og skapa skilyrði til heilbrigðs atvinnurekstrar og aukinnar atvinnu almenningi til handa í stað þess atvinnuleysis, sem ella ógnar. Þetta er því hættulegur leik- ur sem þjóðinni er vorkunnar- laust að hætta. En eins og nú er komið næg- ir það ekki. Undanfarin ár hefir þjóðin varið meiru til daglegra þarfa en hún gat leyft sjer samfara hinni miklu fjárfestingu þessa tímabils. Við þetta bætist nú, að horfur eru á varanlegu verð falli, a. m. k. nokkurs hluta útflutningsafurðanna og raunar einnig sölutregðu sumra þeirra. Af þessu leiðir, að vjer höfum minnu að skipta, þ. e. a. s. hlut ur hvers og eins verður að öðru óbreyttu að minnka. Þetta er sannleikurinn um- búðalaus. Undan honum fær þjóðin ekki flúið, en afar mikið veltur á, að menn taki skynsam ■ lega þeim ráðstöfunum, sem þetta viðhorf kallar á, enda er það staðreynd, að með skynsam legum aðgerðumm má á vissum sviðum bæta almenningi upp a.m.k. nokkurn hluta þess, sem hann missir í á öðrum. Jeg skal ekki orðlengja um á troðnar slóðir alt næst ár, verður að tryggja ríkissjóði nýja skattstofna, er nema alt að 100 miljónum króna á ári, ef hindra á stöðvun bátaútvegs ins. Er þá óleystur vandi eldri togaranna og jafnvel hinna nýju. Jeg spyr: Hvar endar þetta? Jeg bið þjóðina sjálfrar sin vegna að taka með skilningi og velvilja þeim tillögum, sem nú verða bornar fram til úrbóta, svo að þær verði ekki kæfðar í skilingslausum mótþróa. Jeg minni þjóðina á þá um- sögn víðsfrægs erlends stjórn- málaleiðtoga, sem áður hefir oft verið sögð af honum óvitrari íslendingum, að „engin stjórrv getur skapað þegnum sínum- þá framtíð, sem þeir skapa sjer ekki sjálfir“. Mönnum finnst þetta sjálf- sagt enginn gleðiboðskapur. — Svo er víst heldur ekki. En það er hvorki helfregn nje harm- saga. íslendingar búa nú við miklu betri kjör en nær allar aðrar þjóðir. Æskan kann víst ekki að meta það. Hún hefir litlu öðru vanist. En vjer, sem eldri erum, munum aðra daga, og áttum þó miklu meiri vel- sæld að fagna en feður vorir og mæður. Oss ætti því flestum að vera vorkunnarlaust, og ekki síst þeim, sem best eru stæðir, að slá einhverju af kröfunum og leggja að öðru leyti sinn skerf af mörkum, úr því það er nauð synlegt til að tryggja afkomu vora og hagsæld og frelsi kom- andi kynslóða. Eftir sem áður eigum vjer gnægð óhagnýttra landsgæða og auðlinda. Eftir sem áður getum vjer glaðst yf- ir því, að á ótrúlega mörgum sviðum skapar hin nýja tækni þjóðinni skilyrði til betra af- komu en margar aðrar þjóðir geta gert sjer vonir um. — Og eftir sem áður höldum vjer áfram sókninni, enda þótt nokk þetta að þessu sinni, enda er hvorki staður nje stund til þess, uð dragi úr hraðanum. þótt rjett sje og raunar skylt,1 að segja þjóðinni afdráttarlaust, hvað hennar bíður, að svo miklu leyti sem það virðist liggja ljóst fyrir. Aðeins vil jeg endurtaka þau ummæli, er jeg viðhafði í stuttri áramóta grein, er birtist í Morgunblað- inu í dag, að jeg hygg, að árs- ins 1950 verði síðar getið í sögu þjóðarinnar vegna þess, að þá muni annað tveggja ske, að höllin hrynur eða risið verð ur lækkað og grunnurinn treyst ur. Þeim, til leiðbeiningar, sem vjefengja, að aðgerða sje þörf, minni jeg á þær myndir, sem alþingismenn voru að virða fyrir sjer fyrir jólin. Vísitalan hefir stöðugt farið hækkandi. RaunVeruleg hækk- un hennar er vafalaust um 35 stig á ári alt frá s.tríðsbyrjun. Skattar og tollar hafa hækk- að um yfir 150 miljónir króna síðustu 4—5 árin. Samt hefir hallarekstur ríkissjóðs síðustu þrjú árin verið 175 milljónir króna. Og nú kernur í ljós, að e£ fara Vjer skulum því ekki aumka sjálfa oss umfram það, sem efni standa til, en minnast hins, að nær allar þjóðir veraldar eiga nú við sína örðugleika að etja og glíma flestar við það, sem stærra er og verra viðureignar en vandamál vor. Gegn vorum vanda nægir að beita eigin dóm greind og skynsemi. Ríkisstjórnin mun að sínu leyti leitast við að gera skyldu sina og í engu hirða, hvort bet- ur mælist fyrir eða verr, í bili. Hún vinnur nú með sjerfræðing um og ráðunautum sínum að rannsókn dýrtíðarmálanna í- víðtækasta skilningi og undir- búningi skýrslna og tillagna í málinu. Stjórnin mun viðhafa þann hraða á undirbúningi málsins, sem frekast er auðið. Sýnt þyk- ir þó, — einnig vegna þess að Alþingi mun ætla sjer og þurfa nokkrar vikur til að fjalla um frumvörp þessi, — að eigi verði hjá því komist að gera verði bráðabirgðaráðstafanir til að Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.