Morgunblaðið - 03.01.1950, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.01.1950, Blaðsíða 16
VEÐURUTLITIÐ. FAXAFLOI; SUNNAN oð s-a gola eða kaldi. Skýjafl en víðast úrkomulaust. oratm ÁRAMÓTAÁVARP forscta ís- lands á bls. 2 og forsætisráS- herra á fels. 9. 1. tbl. — Þriðjudagur 3. janúar 1950. lin rólegustu úramói, sem um getur í sögu höiuðborgurinnur Yonandi veldur fiugarfars- breyfing gagnvarf óspektum áramófabrennurnar þéttu iakasl vei og voru fjöísótfar CAMLÁRSKVÖLDS 1949 mun vafalaust lengi verða minnst serr. eins hins i ólegasta í tugi ára. Almenningsálitið átti sinn f.nara þátt í þessu. Það hefur nú með öllu fordæmt skríls- og skemmdaræði það, er gripið hefur um sig hjer við áramótin og komið hefur hinu mesta óorði á höfuðborgina út um byggðir landsins. Eitthvað á þessa leið sagðisí' þeim frá yfirmönnum götulög- reglunnar, Erlingi Pálssyni og Guðbirni Hanssyni, en báðir hafa þeir í fjölda mörg ár tekið fceinan þátt í stÖrfum lögreglu- tnannanna á götum bæjarins á gamlárskvöldum. Á.ramótabrennurnar. Það var líka tvennt annað, sem olli þessum rólegheitum. — Stórrigning var framundir miðnætti og svo brennurnar, sem kveikí voru í úthverfum bæjarins. Sýnt er að þær vöktu ánægju fólks, því þær drógu til sír hundruð bæjarbúa, en flest m.un þó hafa verið við þær á vellinum fyrir neðan Sjómnnna skólann. Mest voru það ung- lingar, sem við brennurnar voru, en einnig fullorðið fólk. I Miðbænum. í Miðbænum safnaðist saman talsverður mannfjöldi í Aust- urstræti og svo minni hópar víðar í Miðbænum. Var það ’fnjög áberandi hve mikið var tþar af börnum innan við ferm- ingaraldur, og jafnvel innan við 10 ára aldur og er leitt til þess að vita, að börn sjeu að þvælast á.götunum um og framyfir mið- nætti, eftirlitslaus af foreldr- anna hálfu. Sprengingar. Nokkrar heimatilbúnar sprengj ur voru sprengdar á víð og dreif um bæinn. T. d. var ein mjög stór sprengja sprengd við Lækjartorg. Var það heimatil- búin sprengja. Pundsniðursuðu d.ós er fyllt hafði verið með sprengiefni, en vafið síðan utan um hana snæri. Ekkert slys varð á fólki við sprengingu þessa, eða aðrar þetta kvöld. Atburður við höfnina. Gamlárskvöld leið svo án þess að til neinna verulegra tíðinda drægi. Einu sinni var lögreglumönnum þó skipjð að grípa til kylfna sinna, ef þörf krefði. Þetta var niður við höfn, cn þangað fóru nokkrir lög- reglumenn á eftir manni, er þeir höfðu frjett um að myndi æcia að stytta sjer aldur, í öl- æði. Tókst lögreglumönnum að n'> manni þessum á síðasta auraabliki, en .um leið ætiaði skríllinn, sem á eftir hafði kom- ið að ráðast á lögreglumennina og virtist hafa helst í huga að hrekja þá í sjóinn. Gaf þá einn. yfirmannanna í lögreglunni fyr irskipun um að lögreglumenn skyldu verjast með kylfum, en eftir nokkra stund dró úr lát- unum, en hann kallaði síðan yfir mannfjöldann og skýrði honum frá því hvað þarna hefði verið að gerast. Dró þá verulega úr aðförinni að lögreglumönnunum, en sýnt var að þessi skríll, sem í vofu um 200 manns, hefði ella reynt að hrekja lögreglumennina fram af bryggjunni. Þetta atvik var það eina, sem talist getur alvarlegt í sam- bandi við gamlárskvöld, en það er þó aðeins smámunir á móts við ýmsa atburði fyrri ára. Ein eimpípa. Við höfnina var annars allt rólegt. — Mjög fá skip inni og á aðeins einu skipi var blásið í eimpípu og var það gamli Selfoss.- Eftir því sem leið á nóttina ágerðist drykkjuskapur á göt- um úti og var kjaílarinn jafnan fullskipaður og vel það. Enginn eldur, Slökkviliðið var ekki kallað út í eitt einasta skipti í sam- bandi við eldsvoða eða íkveikj- ur. Tók Karl Ó. Bjarnason vara slökkviliðsstj. undir orð lög- reglunnar, um að gamlárskvöld hefði verið óvenju rólegt. Áramótin. Afar miklu af flugeldum var skotið um miðnætti og var bjarminn frá þeim, blysum og öðrum skrautljósum stundum svo mikil að þarna sló á himininn. Dansleikir voru að venju í öllum samkomuhús- um bæjarins, en mjög víða í heimahúsum skemmti fólk sjer með vinum og kunningjum og það jafnvel betur en fólkið sem á dansleikina fór. Á miðnætti fór fólk víða út úr húsum s'án- um, út á götu, og söng nýja árið inn í líf sitt með áramóta- sálminum: Nú árið er liðið í aldanna skaut. ur uri framboís- lista SjálfslæiS’ manna Á FUNDI Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfjelaganna í Reykjavík, sem haídinn verður í Sjálfstæðishús- inu í kvöld, verða lagð- ar fram tillögur kjörnefnd ar um framboðslista Sjálf stæðismanna í bæjarstjórn arkosningunum. Fulltrúaráðið samþykk ir listann endanlega og er mjög áríðandi að fulltrú- ar mæti vel á fundinum. Blaðamannafélagið segir sig úr alþjóða- sambandinu ALLSHER J AR ATK V ÆÐ A- GREIÐSLA hefur farið fram innan Blaðamannafjelags ís- lands um það, hvort fjelagið skyldi vera áfram í alþjóða- blaðamannasambandinu, sem stofnað var í Kaupmannahöfn 1945, eða segja sig úr því, eins og blaðamannafjelög margra þjóða hafa þegar gert. Atkvæðí voru talin á gaml- ársdag og reyndust 26 vera með því að B.í. segði sig úr alþ j óðablaðamannasamband- inu, en 15 voru á móti og einn seðill var auður. Atkvæði bárust ekki frá tveimur fje- lögurn í tæka tíð. Áður hafa sagt sig úr al- þjóðasambandinu danskir, norskir, sænskir, breskir, amer ískir og belgiskir blaðamenn og var búist við að fleiri segðu sig úr sambandinu. Rólegl gamiárs- kvöld á ákureyri AKUREYRI, 2. jan.: — Gaml- árskvöld leið hjer á Akureyri |án þess að nokkuð bæri til sjer stakra tíðinda. Lögreglan hafði því kyrrlát áramót. Margir dansleikir voru þá um kvöldið, svo sem á Hótel Norðurland og í samkomuhúsi bæjarins, en þar efnir Rauða krossdeild Akureyrar jafnan til mikils dansleiks á gamlárs- kvöld. Víðar voru og dans- skemmtanir í bænum. Veður var hið fegursta um kvöldið og á nýársdag svo á betra varð ekki kosið. Þýskir fangar í Tjekkóslóvakíu Berlín. — í Tjekkóslóvakíu eru enn um 42,000 þýskir stríðs- fangar. Er aðbúð þeirra og ævi hin versta. Þórhallur Frímannsson var* sonur bóndans að Austara-Hóli og var hann einn 15 eða 16 syst- kina. Þórhallur var aðeins 23 ára gamall. Röskleikamenni tal inn af þeim er til þekktu. Ætlaði til rjúpna. Um kl. 9,30 um morguninn cr þetta hörmulega og jafn- framt sjaldgæfa slys varð. fór Þórhallur að heiman frá sjer og ætlaði hann til rjúpna í fjall- íð Austarahólstraðir, sem er fyr ir ofan bæinn. Snjóþungt var í fjallinu þennan dag og farið að bleyta snjóinn. Þórhallur var á skíðum, en hann hafði farið á rjúpnaveiðar í fjallinu undan- gengna daga og var vanur rjúpnaveiðimaður. Af ferðum Þórhalls heitins segir ekki frekar. Sjá skíði í snjóskriðu. Um miðaftan var heimilis- fólkið að Austara-Hóli farið að óttast um Þórhall og var skömmu síðar hafin skipuleg leit að Þórhalli. Þetta kvöld var veður hið besta og er leitarmenn höfðu íarið um fjallið í nær fimm klukkustundir, komu þeir þar sem snjóskriða hafði fallið og riett á eftir sjá þeir hvar skíði stendur upp úr snjónum. Þarna íundu þeir Þórhall örendan. — Hann var strax fluttur heim til sín. Hjeraðslækninum að Hofs- ósi hafði verið gert aðvart og kom hann að Austara-Hóli um kl. fimm á gamlársdagsmorg- un, eftir níu eða tíu klst. ferða- lag. Læknirinn skýrði þá frá því, að undangenginni rann- sókn, að Þórhallur myndi hafa látið lífið skömmu eftir að snjó flóðið fjell yfir hann. Sex metra breitt. Snjóflóðið sem Þórhalli varð oð bana, var aðeins sex metra breitt. Það mun hafa fallið um kl. 11.15 um morguninr,. Úr á handlegg Þórhalls hafði stöðv- ast á þessum tíma. Fjórir sækju Fríkirkjuna A þriðja þús. bílar skemdusl NOKKUÐ á þriðja þús- und bíla lentu í árekstr- um á árinu 1949. Bílar þessir skemmdust því nær allir að meira eða minna leyti og fjöldi þeirra mjög mikið. Er tala árekstr- anna svipuð og hún var á fyrra ári. Kunnugir telja að tjónið á þessum bílum öllum muni nema nokkr- um milljónum króna alls. Rannsóknarlögreglan skýrði Mbl. frá þessu, en kærur þær, sem alls bár- ust til hennar vegna bíla- árekstranna voru 1,091. í árekstrunum biðu sex manns bana, en meiri og minni meiðsl hlutu 100 manns. Þrír hestar og tvö lömb voru ekin niður. Síðasti dagur sýn- ingarinnar á gömlu erf. málverkumun SÍÐASTI dagur málverkasýn- ingarinnar í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar er í dag, en þarna eru sýnd gömul erlend málverk eftir kunna meistara. Aðsókn að sýningunni hefur verið góð og farið ört vax- andi, enda ekki daglegur við- burður að sýning sem þessi sje haldin hjer. í dag, síðasta dag sýning- arinnar, er hún opin kl. 2—11 eftir hádegi. r' Maður ferst í snjóflóði er hann ætlaði til rjúpna Flóðið sem lók hann var aðeins 6 m. breill I j ÞAÐ SVIPLEGA slys vildi til norður í Fljótum, daginn fyrir j gamlársdag, að ungur maður, Þórhallur Frímannsson frá bænurry Austara-Hóli, fórst í snjóflóði skammt að heiman frá sjer. NÚNA um áramótin var út- runninn frestur til að senda umsóknir um prestsembættið við Fríkirkjuna í Reykjavík. Fjórir menn hafa sótt um embættið, Emil Björnsson, cand. theol., sr. Þorsteinn Björnsson, prestur á Þingeyri, sr. Árelíus Níelsson og sr. Ragnar Benediktsson. Kosning fer fram 22. þ. m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.