Morgunblaðið - 05.01.1950, Page 7

Morgunblaðið - 05.01.1950, Page 7
, Fimmtudagur 5. janúar 1950 MORCUNBLAÐIÐ 7. Umræður um tunnu- verksmiðjuna á Akureyri Áki vanrækfi að úfvega nauðsynlegf lánsfje fil hennar í GÆR var fundur í sameinuðu Alþingi. Á dagskrá var m. a. þingsályktunartillaga um rekstur tunnuverksmiðju á Akur- eyri. — Jóhann í». Jósefsson, sjávarútvegsmálaráðherra flutti ræðu við það tækifæri, þar sem hann rakti forsögu þessa máls og benti á ýmsa erfiðleika, sem tunnuverksmiðjurnar á Akureyri og Siglufirði ættu við að etja, einkum vegna fyrirhyggjuleysis Áka Jakobssonar, sem hann sýndi þegar hann var sjávarútvegsmálaráðherra. Svaraði ekki Ráðherra benti á, að hann hafi á sínum tíma, er hann sat í síldarútvegsnefnd, beitt sjer mjög fyrir því að hjer yrði framleitt sem mest af síldar- tunnum. Hefði síldarútvegs- nefnd hugsað sjer að gera samning til nokkurra ára um tunnukaup við tunnuverk- smiðjurnar á Akureyri og Siglufirði. í því skyni var Áka Jak- obssyni, þáverandi sjávarút- vegsmálaráðherra, ritað brjef og farið fram á, að síldarút- vegsnefnd yrði veitt nauðsyn- leg heimild til þessara tunnu- kaupa. En svar frá Áka barst aldrei. Áki gleymdi að útvega fje Hinsvegar lagði hann fram frumvarp 1945 um ríkisrekst- ur á þessum tunnuverksmiðj- um. Þetta frumvarp var lögfest á Alþingi og stjórn fyrir»verk- smiðjurnar skipuð. Voru strax hafnar ýmsar framkvæmdir, t.d. pöntuð tvö tilbúin stál- hús í Englandi. En eins og svo oft endra- nær vanrækti Áki algjörlega að sjá fyrir nokkru fje til þessara framkvæmda. Þegar svo jeg tók við sjávar útvegsmálunum var búið að gera margskonar fjárfrekar skudbindingar fyrir ríkið, en engir peningar til. Hef jeg síðan staðið í stappi við láns- stofnanir, til að fá þær til að leggja fram bæði rekstrarfje og stofnfje. Árangurinn hefur orðið sá að fengist hefur lán íil að eign- ast annað stálhúsið, en við hitt sluppum við án skaðabóta. Þá hefur ríkið lagt fram stórfje til efniskaupa. 4—5 falt dýrar Fram hefur farið athugun á útkomunni á þessari tunnu- gerð og komið í ljós að inn- lendu tunnurnar eru 4—5 sinnum dýrari en erlendar tunnur. Um gæði skal jeg ekki segja, en margar kvartanir hafa komið fram. Ekki skal jeg þó fullyrða að þær sjeu allar á rökum reistar, en eithvað hlýtur að vera til í því. Verða að vera samkeppnisfærar Um samning þann er stjórn verksmiðjunnar gerði við Ak- ureyrarbæ um „verulegan ár- legan rekstur“ mun jeg ekki ræða. — Auðvitað verður samningsrjettur að vera í heiðri haldinn, en einnig verð- ur að sjá fyrir fjárreiðunum. Má og benda á að í 1. gr. laganna um tunnusmíði, er það greinlega gert að skilyrði að tunnurnar verði að vera sam- keppnisfærar hvað verð og gæði snertir. Ráðherra endaði ræðu sína með því að segja að nauðsyn- legt væri að hjer yrði nokkur tunnusmíði, en líta yrði í því sambandi bæði á hagsmuni framleiðendanna og þeirra, sem taka eiga við framleiðsl- unni. ★ TILLAGA Gísla Jónssonar um ábyrgð ríkissjóðs á láni handa Flateyjarhreppi til þess að full- gera hraðfrystihús og fiskiðju- ver í Flatey á Breiðafirði var samþykkt á Alþingi í gær sem ályktun Alþingis með 26 sam- hljóða atkvæðum. Söfnunin til barnahjálpar S.Þ.namkr.3,7 miljónum Yörur voru sendar hjeðan til sjö landa SÖFNUNIN iil barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem hófst hjer á landi fyrir tveimur árum, nam samtals kr. 3.683.300.92. Þar af 3.2 millj. kr. í peningum. Voru vörur keyptar hjer á landi fyrir peningana og sendar til 7 landa. Söfnuninni er nú lokið og hefur fjelagsmálaráðuneytið gefið út eftirfarandi frjett um söfnunina: í janúarmánuði 1948 var efnt til-fjársöfnunar hjer á landi til ágóða fyrir hinn alþjóðlega barnahjálparsjóð Sameinuðu þjóðanna. Nefnd var kjörin af 8 stórum fjelögum og fjelaga- samböndum til að standá :fyrir fjársöfnuninni og var Þorsteinn Sch. Thorsteinsson lyfsali, for- maður Rauða kross íslands, kjörinn formaður nefndarinnar. Alls safnaðist í peningum kr. 3.210.028,24, en auk þess bár- ust söfnuninni ýmsar vörur, matvæli, lýsi, fatnaður o. fl, að verðmæti kr. 455.296.16. Vaxta- tekjur námu kr. 17.976.52. — Frh. á bls. 12. — Brdðabirg ðalausn (Framh. af bls. 2) framlag ríkissjóðs samkvæmt 5. gr. um 2.5 millj. króna. Um aths. við þessa grein vísast að öðru leyti til þess, sem sagt er í aths. við 14. gr. 14. gr. segir: „Komi ákvæði 12. gr. til framkvæmda, er rík- isstjórninni heimilt að inn- heimta söluskatt samkvæmt 21. gr. laga nr. 100/1948 með allt að 30% af tollverði allrar inn- fluttrar vöru, að viðbættum að flutningsgjöldúm áætlaðri álagningu 10% — tíu af hundraði.“ Sú greinargerð fylgir, að rík- isstjórnin væntir þess, að Al- þingi samþykki varanlegar ráð- stafanir í dýrtíðarmálunum fyr ir 1. mars, svo að ákvæði 12. gr. komi ekki til framkvæmda og þá ekki heldur ákvæði 14. gr. En þrátt fyrir þetta hefur ríkisstjórnin þó talið sjer skvlt að benda á tekjustofna til að standa undir fiskábyrgðinni til 15. maí, ef Alþingi gegn von- um stjórnarinnar neitar að fall ast á þær úrlausnir, er stjórnin mun bera fram varðandi dvr- tíðarmálin, til þess þannig að forðast að það hendi, að ríkis- sjóði verði bundnir baggar fisk- ábyrgðarinnar, án þess að tryggðar sjeu tekjur til að standa undir þeim. Komi ákvæði 12. gr. laganna til framkvæmda, þarf ríkissjóð ur að fá tryggðar tekjur vegna ábyrgðarinnar, er nemi 42 millj. kr. Lagt er til að söluskattur- inn samkv. 21. gr. laga nr. 100/ 1948 hækki mjög verulega, þannig að í stað þess að þessi skattur er nú innheimtur með 6% þá sje hann frá 1. mars innheimtur með allt að 30%. Nokkrar undanþágur eru frá skattinum í 23. gr. nefndra laga og má áætla að undanþágurnar nái til um 50—60 millj. kr. af heildarinnflutningi. Eingöngu bráðabirgðalausn í almennum athugasemdum ríkisstjórnarinnar við lagafrum varpið segir svo: Eins og fram hefur komið í yfirlýsingum þeim, er forsæt- isráðherra hefur gefið f. h. rík- isstjórnarinnar, er nú unnið að því á hennar vegum að undir- búa heildartillögur, sem að því miða m. a. að gera bátaútveg- inum fært að starfa á heilbrigð- um grundvelli, í stað þess að framleiðslu þessari sje haldið uppi með styrkjum úr ríkis- sjóði. Á það hefur jafnan verið lögð höfuðáhersla af fulltrúum báta- útvegsins, síðan verðbólgan færðist í aukana, að gerðar væru ráðstafanir af hálfu bings og stjórnar til þess að þeim yrði kleift að byggja atvinnu sína á viðunandi starfsgrund- velli. í samþykktum aðalfundar Landssambands íslenskra út- vegsmanna undanfarið hefur þetta sjónarmið jafnan verið haft á oddi, þótt um leið hafi verið gerðar aðrar kröfur, svo sem um ábyrgðarverð o. fl., meðan öðrum ráðum yrði ekki við komið. Framleiðslukostnaður flestra sjávarafurða er nú svo sem kunnugt er miklu hærri en ér- lent markaðsverð þeirra. Við þetta bætist fallandi verðlag á sumum þessum afurðum, og er því ljóst að stórt átak þarf til þess að fá þessum málum kom- ið í það horf hjer heima fyrir, að unnt sje að halda áfram fram leiðslu sjávarafurðanna, án með gjafar úr ríkissjóði, og þar með tryggja atvinnu almennings á hagkvæman hátt. Það er lausn þessa vanda- máls, sem ríkisstjórnin leitar nú eftir með ráði bestu manna. Mun hún kappkosta að leggja niðurstöður sínar fyrir Alþingi svo fljótt sem þess er kostur. Vitanlega er hjer um slíkt stór- mál að ræða, að ríkisstjórnin verður að vanda sem best til undirbúrtings þess, áður en það' er lagt fyrir Alþingi. Þessum undirbúningi miðar nú vel á- fram. Þótt allur hæfilegur hraði verði við hafður á meðferð aessa máls, bæði hjá ríkisstjórn inni og Alþingi, þykir sýnt að verja þurfi svo miklum tíma í athugun og afgreiðslu þess, að ekki tjái að láta hjá líða að gera til bráðabirgða nauð-* synlegar ráðstafanir til að gera bátaflotanum fært að hefja vcið ar nú þegar, í Stað þess að hann bíði þeirrar heildarúrlausnar, sem að er stefnt. Af þessum ástæðum er þetta frumvarp fram komið. í frumvarpinu er i fyrsta lagi lagt til, að til febrúarmánaðar- loka sje tekin ábyrgð á blaut- fisksverði bátaflotans og hlið- stæðar ráðstafanir gerðar vegna hraðfrystihúsanna og saltfisk- verkunar, þeim, er áður hafa tíðkast, síðan farið var út á þá braut að veita stuðning rikisins til þess reksturs, er hjer um ræðir, með því að tryggja aðil- um ákveðið verð fyrir fiskinn. Verðbreytingar þær, sem í frumvarpinu greinir, frá því sem ákveðið var í lögum s.l. ár, byggjast á breyttum aðstæðum við þennan rekstur, hvað kaup- gjald og rekstrarvöruverðlag snertir. Er þar gengið svo langt til móts við kröfur útvegs- manna sem fært þykir. Ríkisstjórnin telur það fært og vill le«gja á það höiuð- áherslu, að Alþingi lögfesti fyr- ir lok febrúarmánaðar þau úr- ræði til frambúðar í þessu efni, sem hún mun bera fram og ætlast þar af leiðandi ek>i til að þörf verði fyrir bráðabirgða- ráðstafanir þær, er hjer um :æð ir, lengur en til 1. mai’s. Ef Alþingi hins vegar gegn vonum ríkisstjórnarinnar hefur ekki fallist á tillögur hennar eða samþykkt aðra fi’ambúðar- lausn fyrir 1. mai’s, hefur rík- isstjórnin til öryggis gert ráð fyrir framlengingu þessa fcráða birgðaástands til vetrarvertiðar loka, enda falli bráðabirgðaráð- stafanir úr gildi hvenær sem er á þessu tímabili, þegar heildar- löggjöf verður sett um þessi efni, sem gerir þær ráðstafanir ónauðsynlegar. Sá varnagli er hjer sleginn, að fiskábyrgðin framlengist til vetrarvertíðarloka, ef heildar- ráðstafanirnar fást ekki lög- festar í tæka tíð. í viðræðuxn, er fram hafa farið milli ríkis- stjórnarinnar og fulltrúa út- vegsmanna að undanförnu, heí ur það komið greinilega fram, að þeir telja sjer engan veginn fært að hefja útgerð rneð tveggja mánaða ábyrgð eira að bakhjalli, án þess að um leið sje gert ráð fyrir framhaldi á- byi’gðarinnar til loka vertíðar, ef heildarlöggjöf um þessi efni hefur ekki verið sett fyi’ir lok febrúai’mánaðar eða síðar í» þessu tímabili. Þessar bráðabirgðatiTlögur hníga aðeins að því að leysa vanda bátaútvegsins. Er þó svo komið hag togaraútvegsins a'ð flestir hinna eldi’i togara hafa nú um langt skeið verið bundp- ir við festar sakir undangeng- ins hallai’eksturs, en nýju tog- ararnir berjast nú í bökkum, þeir, sem skársta hafa afkom- una. En svo sem að framan greinir, væntir ríkisstjórnin þess, að Alþingi samþykki hið allra bráðasta endanlega skipan þessara mála er rjetti hlut a'Jlr- ar útflutningsframleiðslu landa manna. ,Á bökkum Bolafljóts4 fær góða dóma í Danmörku SKÁLDSAGA GUÐMUNDAR DANIELSSONAR, „Á bökkum Bolafljóts“, sem nýlega kom út á dönsku hjá Gyldendalsícrlag- inu og sem nefnist „Jorden er min“ á því máli, hefur fengið góða dóma í dónskum blöðum. „Engin tilgerð“. < Bernhard Jensen segir t. d. um skáldsöguna í blaðinu Köb- enhavn, „að hún sje mjög læsi- leg saga, sem sje laus við allar pólitískar tilhneigingar, heim- spekilegar hugleiðingar, og þrauthugsaða tilgerð. Sagan sje lífið sjálft.“ Telur gagnrýnandinn, að hún lýsi mjög vel lífi íslensks sveita fólks og hælir mjög náttúru- lýsingum og mannlýsingum sögunnar. Jensen bendir einnig á, ao skemmtileg kímni komi fram hjá höfundi, t. d. þar sem því er lýst er gamla konan íær sendibrjef í fyrsta sinni á æv- inni og er hrædd um að húft hafi bi’otið eitthvað af sjer úr því að þessi ósköp dundu yfir hana! „Þetta er góð bók, sú fyrsta á dönskum bókamarkaði, eftir þenna unga íslending. Það á að taka henni vel og ætti ekki að verða síðasta bókin eftir hann á dönsku“, segir gagnrýnancl- inn að lokum. í sama streng taka gagnrýn- endur flestra annara danskra blaða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.