Morgunblaðið - 07.01.1950, Síða 1

Morgunblaðið - 07.01.1950, Síða 1
37. árgangur. Örðsending Riissa til athugunar Mun auka á þjóðareininguna Einkaskeyti til Mbl. rfá Reuter. HELSINGFORS, 6. jan. — Finnska utanríkisráðuneytið fjallaði 1 dag um orðsendingu Rússa, þar sem þeir saka Finna um að lialda hlífiskyldi yfir 300 rússneskum stríðsglæpamönnum. A sama tíma barðist stjórn sósíaldemókrat^ fyrir stjórnmálalifi smu. Launahækkun ' Stjórnin mun eiga í vök að verjast, er þingið kemur sam- an á þriðjudaginn kemur til á’ð ræða launahækkanir, 7,5%, sem stjórnin hefur veitt ríkisstarfs- mönnum og fleirum frá 15. febrúar. Telja sumir að fjár- aukalaga sje brýn nauðsyn, en Fagerholm hefur lýst þvl yfir, að þessi gerð stjórnarinnar \ærði ekki aftur tekin. Skapar þjóðareiningu Knefi sá, er Rússar reiða nú að Finnum til að hafa áhrif á forsetakosningarnar, sem fara fram í janúar eða febrúar, kann að valda stuðningi stjórn- arandstöðunnar við stjórnina og kbma henni þann veg að haldi. Santiago. — Stjórnin í Chile hefur skýrt frá því, að 4 hafi farist í landskjálftum þeim, er ufðu í landinu .fyrir áramótin, lögregluþjónn og móðir ásamt 2 börnum sínum. Stórfelldfjár svik í Belgíu BRUSSEL, 6. jan. — Komist hefir upp um fjársvik í Belgíu og nema þau um 10 milljónum belgiskra franka. í hópi þeirra, sem handtekn- ir hafa verið vegna svikanna eru 2 helstu bankamenn lands- ins. Er annar þeirra banka- stjóri Verslunarbankans, Emila Mallien, en hinn hattsettur starfsmaður við bilgiska þjóð- bankann. Eyskens forsætisráðherra átti í morgun tveggja tíma fund með lögreglufulltrúum, dóms- mála- utanríkis- og landvarna- ráðherranum. Sagði forsætis- ráðherrann að fundinum lokn- um, að þessi umfangsmiklu svik stæðu í sambandi við hluta- og skuldabrjef. — NTB. Danskir kommar falsa nöfn undir „friðarávarpi“ Einkaskeyti til Mbl. K.HÖFN, 6. jan. — Komm- únistablaðið „Land og FoIk“ birti í dag svokallað friðar- ávarp, sem undirritað er af 25 meira og minna kunnum mönnum. Þar af er helming- ur ekki kommúnistar. I „frið arávarpinu“ er haldið fram stefnu Rússa og almenningur er þar hvattur til að berjast gegn Atlantshafssáttmálan- um og vígbúnaði. Segir m. a. í ávarpinu: „Við erum seld á mála og land okkar á að verða vígvöllur. Falsaðar undirskriftir. KVÖLDBLAÐ „BERLING SKE TIDENDE“ HEFIR KYNT SJEF, AÐ MARGIR ÞEIRRA SEM SAGT ER AD HAFI SKPIFAÐ UNDIR PLAGG ÞETTA, HÖFÐU EKKI HUGMYND UM AÐ NAFN ÞEIRRA STÆÐI ÞAR ÉNDA HÖFÐU ÞEIR AL- DREI UNDIR ÞAÐ SKRIF- AÐ. HÖFÐU KOMMÚNIST- ARNIR FALSAÐ NÖFN ÞEIRRA ÚNDIR ÁVARPIÐ. Nota sje-r friðarvilja fólksins. Berlingske Tidende segja, að kommúnistar hafi notfært sjer eðlilegan friðarvilja fólksins og reyni að fá sak- laust fólk og hrekklaust til að vinna gegn Vesturveld- unum og einkum, að gera Atlantshafssáttmálann og Marshallhjálpina tortryggi- lega í augum almennings. En þetta tvent sje Rússum mest- ur þyrnir í augum. , Dagblaðið ,.Information“ segir, að Kommúnistar hafi sínar eigih liugmyndir um frið. Það eigi að vera alræði öreiganna, en vissulega sje ekki hægt að hugsa sjer, að það einræði komist á á frið- samlegan hátt. „Vjer berum virðingu fyr- ir einlægum friðarvinum“, segir blaðið, „en ekki fyrir mönnum, sem láta nota sig til að sverta lýðræðið til hags bóta fyrir einræðisríki. Einstaka hrekklausir og einfaldir menn skilja ekki, að kommúnistarnir eru fimmta herdeild friðarhreyf- ingarinnar. En nú virðist svo sem ref- urinn sjc að fara úr hárun- um“. —Páll. Stjórn kommúnista í Kína hlýtur viðurkenningu Timosjenko SEMION TIMOSJENKO mar- skálkur í Rauða hernum er nú nefndur í frjettum, sem líkleg- asti eftirmaður Rosskossovskis sem yfirmaður vesturhers Rússa. — Rosskossovski var gerður landstjóri Rússa í Pól- landi fyrir nokkru. Síjósa Bretar í endaðan febr. ? LONDON, 6. jan. —r Starfs- mönnum breska verkamanna- flokksins hefir verið sagt, að vera undir kosningar búnir í endaðan febrúar, samkvæmt tilkynningu sem frjálslyndi flokkui’inn í Bretlandi hefir sent fjelogum sínum. Starfs- mönnum frjálslynda' flokksins hefir því verið gefin skipun um, að vera undir kósninga- hríðina búnir, hvenaér sem er úr því janúar er liðinn. Hefir verið talað um, að 23. febrúar væi'i líklegastur kosningadag- ur. — Reuter. Bretar slíta stjórnmálasambandi við þjóðernissinnastjórnina LONDON, 6. jan. — Bi'eska stjórnin lýsti því yfir í morgun að hún hefði afráðið að viðurkenna miðstjórn kommúnista í Kína sem stjórn landsins að lögum. Sendimaður Breta í Peping fór í gær á fund utanríkisráðherra stjórnai'innar þar og tilkynnti honum, að Bi'etar óskuðu eftir að taka upp stjórnmálasamband við kommúnistastjórnina. Jafnframt þessu tilkynntu Bretar kín- verska sendiherranum í Lundúnum, að þeir viðurkenndu ekki framar stjórn kinversku þjóðernissinnastjóx'narinnar. FrjeBamönnum vísað frá Tjekkóslóvakíu PRAG. 6. jan. — Frá því var skýrt í kvöld, að 4 erlendum frjettamönnum í Prag hefði verið vísað úr landi. Þessir frjetta- menn, sem lijer um ræðir, hafa starfað fyrir 2 banda rískar frjettastofur, breska og franska. Hafa þessir menn feng- ið tilkynningu um, að dval arleyfi þeirra verði ekki framlengd. Ekkert eitt blað í Vesturlöndum á .nú lengur frjettamann í Prag, Á undanförnum G mán- uðum hefir 10 frjettamönn um verið vísað úr landi. —Reuter. Reknir burtu. VÍNARBORG — Rússar skip- uðu nýlega starfsmönnum fje- lagsskapar nokkurs, sem hefur að aðalmáli vináttu Austurrík- is og Júgóslafíu, að hafa sig á brott af hernámshluta þeirra í Vínarborg. Skrifstofu f jelagsins þar hefur verið lokað, en það hefur ákveðið að starfa áfram á hernámssvæði Vest- urveldanna. Feikikuldar i N-Evrópu Hitar miklir í Ástralíu Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LONDON, 6. jan. — í N-Evrópu er nú alveg óvenjulega mikill kuldi, og varð hann mestur í Svíþjóð í fyri'inótt, eða sá mesti, sem þar hefur verið mældur. í Ástralíu er . hitinn hins vegar svo mikill þessa dagana, að til vandræða horfir. Á norðurhjara Helst lítur út fyrir, að í þessu kuldakasti, sem nú gengur yfir N-Evi’ópu, mælist frostið að jafnaði meira en nokkru sinni fyi’r. í Noregi eru járnbrautar- lestirnar marga tíma á eftir á- ætlun vegna kuldans. Strand- ferðaskipin liggja víða um kyrrt. Fannfergi og stórviðri hafa dregið úr allri umferð og er flutningur matvæla torveld- ur. í Danmörku er hi'íðarveður og hafa flugferðir tafist. Bctra minna, en jafnara Allt er málum öði'u vísi íarið í Ástralíu, þar sem hitinn er víða yfir 100 stig á Farenheit.. í Sidney var hann 103 stig í dag. Er annasamt á sjúkrahús- unum, því að menn velta um sjálfa sig á götunum, bugaðir af hitanum. Brást illa við Sendiherrann brást illa við, sagði, að sig hefði síst várað, að rothöggið kæmi frá vinum stjórnar sinnar og fyrrverandi samherjum. Taldi hann stjórn sína eiga ánnað skilið af Bret- um en þeir brygðust, er mest á reyndi. Kvað stjórn sína enn heyja markvísa baráttu, og væri ekki enn örvænt um, að hún stæðist atlögur kommún- ista. Vilja vinsamlega sambúð. Bretar segja, að þessi viður- kenning þurfi ekki endilega að merkja viðurkenningu á að- ferðum og stefnu kínversku kommúnistastjórnarinnar, en þessi leið hefði verið farin, þar eð hún væri í bestu samræmi við staðreyndirnar. Kommún- istar ráða nú mest öllu kín- versku landi. Noel Baker sam- veldisráðherra komst svo að orði í dag, að Kínaveldi væri svo mikið, að fram hjá því yrði ekki gengið, og Bretar vilja vin samlega sambúð við Kina. Engin sundurþykkja. Embættismenn í Washington ljetu svo um mælt í dag, að þeir byggjust við, að Banda* ríkin mundu með tímanum fylgja dæmi Breta og viður- kenna kínversku kommúnista- stjórnina, en væntaniega ekki á næstu mánuðum. Skýrt var frá því jafnframt, að fullkominn skilningur hefði verið með stjórnum Breta og Bandaríkj- anna um þessi mál og viðhorfi hvorrar þeirrar um sig aLlt frá því utanríkisráðherrarnir Bevin og Acheson ræddust við í Was- hington í september s.l. Aðrir koma á eftir. Almennt er litið sVo á, að ríkisstjórnir ýmissa samveldis- landanna bresku svo og Vest- ui’landa muni veita kommún- istastjórninni viðurkennin^u einhvern næstu daga. Ceylon, Indland og Pakistan hafa þegar veitt henni viðurkenningu. Helsingfors. — Sósí'1;'-* stjórnin í Finnlandi he'- • i lagt fyrir óðal þær áætl»ir r n þjóðnýtingu, sem fráfarar-’i stjórn kommúnista hafði lagt drög að.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.