Morgunblaðið - 27.01.1950, Síða 2
2
MORGUISBLAÐIÐ
Föstudagur 27. janúar 1950,
Yfirburðir Sjulfstæðismannu í útvurpsumræðunum
Framh. af bls. 1
mí’tkvisst verið unnið að fram-
í un;. auknum lífsþægindum
og öruggri atvinnu. Fjárhag
bæ;arins hefir verið haldið á
traustum grunni. Skipastóll
F. tk.víkinga hefir þrefaldast,
rr Siar framkvræmdir í hafnar-
m ílum. Tvreim sildarverksmiðj-
ura, komið upp, til þe'ss að vera
viðbúinn að hagnýta síldina,
þegar hfin kemur. Greitt hefir
verið fyrir íbúðabyggingum af
bægarins hendi, og á kjörtíma-
biLinu byggðar yfir 2000 nýjar
íbúðir. Bæjarsjóður sjálfur
byggt á annað hundrað íbúðir,
faað inn á nýja braut og byggir
skv, henni 230—40 íbúðir. Nýtt
raforkuver verið reist, vara-
stoðin, sem framleiðir 10.800
hestöfl. Undirbúningi lokið að
h ni miklu nýju Sogsvirkjun,
tilboða afla og virkjunin hafin
eftic 2 mánuði. Ný hitaveita
vei-ið fullgerð, sem flytur 110
li’ a af heitu vatni á sekúndu.
I gatnagerð orðið miklar um-
bætur, varið til hennar 38 milj.
kr., gerðar vísindalegar athug-
anir og tilraunir, lokið við að
malbika 75%. allra gatna innan
Hringbrautar, aflað nýrra tækja
í stórum stíl. 30 nýir strætis-
vagnar keyptir á 3 árum, og
rekstur þeirra endurbættur á
á ýmsum sviðum. Starfað af
[kappi að skipulagsmálum bæj-
arins og sótt fast fram til þess
takmarks að Ijúka heildarskipu
lagi bæjarins. Unnið að bygg-
ingu nýrra barnaskóla og gagn-
fræðaskóla, húsmæðraskólinn
stórum endurbættur, undirbúið
verklegt nám unglinga. Fjölgað
vistheimilum barna og leikskól-
um, ný vöggustofa tekfri í notk-
un, barnaleikvellir fjórfaldast
og þeir búnir betri leiktækjum,
tekin upp merk nýmæli í upp-
eldismálum, svo sem skólagarð-
ar og unglingavinna. Unnið hef
ir verið að bættum skilyrðum
íþróttaæskunnar, Melavöllur-
inn stórbættur, nýjum æfinga-
völlum komið upp, íþróttafje-
' lögin styrkt, og hafnar framkv.
við framtíðar-íþróttasvæðið í
Laugardal. Nýr sjóbaðsstaður
gerður í Nauthólsvík. Lokið að
; girða Heiðmörk, friðland Reyk-
j víkinga og hafin vegagerð og
trjöplöntun. Hafin bygging
glæsilegrar heilsuverndarstöðv-
ar og unnið á annað ár að undir
l búningi bæjarsjúkrahúss. Feng-
, in,n borgarlæknir og bærinn
tekið í sínar hendur heilbrigðis-
j eftirlitið, miklar umbætur í
| sorphreinsun, undirbúin sorp-
vinnslustöð. Stórfeld aukning
j vatnsveitunnar, og svo mætti
lengi telja.
Dæmið verkin
Allt eru þetta áfangar, sem
náð hefur verið, en mikil verk-
efni eru fiamundan, — verk-
efni, sem mörg hafa verið skýrð
í þessum umræðum og nánara
eru greind í hinni bláu bók
Sjálfstæðismanna, um störf og
stefnu flokksins í bæjarmálum.
Við Sjálfstæðismenn biðjum
ykkur, Rej kvíkingar, að dæma
okkur eftir verkum okkar og
stefnu, en okkur er einnig
skylt, að biðja ykkur að íhuga
alvarlega hvað við tekur, ef
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
ekki meirihluta.
Kommúnistar, Alþýðuflokk-
urinn og Framsókn hafa upp
á tvennt að bjóða: Annað er
hatrið á Sjálfstæðisflokknum,
hitt er hatur þeirra hvers á
öðrum. Ef þessi flokkar fengju
sameiginlegan meirihluta og
ættu því að taka við stjórn bæj-
arins myndi allt loga þar í ill-
indum. En fyrsta afleiðing
slíkrar sambræðslu yrði algjört
fjármálaöngþveiti. Reykvíking-
ar hafa haít. fyrir augum ósam-
komulagið á Alþingi, vegna
þess, að enginn flokkur hefur
þar meirihluta og afleiðingar
þess langar stjórnarkreppur og
stórfeldan greiðsluhalla ár eft-
ir ár. Þetta er hið ,,hreina loft“,
sem Benedikt Gröndal biður
um.
Reykvíkingar munu ekki leiða
ICommúnistum gefið orðið
í SIGLFIRÐINGI, blaði Sjálfstæðismanna á Siglufirði, birtist
r.ýlega grein, þar sem ritstjórinn „gefur kommúnistunum orð-
iV , með því að tilfæra nokkur vel valin ummæli, frá ritsmíð-
u þeirra á úudanförnum árum, þar sem þeir hafa í stuttu
n áli gert grein fyrir stefnu sinni og starfi.
Greinin er svohljóðandi:
Jósep Stalin, einræðisherra Sovjetríkjanna, segir í bók sinni
„Leninisminn“, sem kom út í íslenskri þýðingu Sverris Kristjáns-
Bouar, alþekkts kommúnista, um undanfara sovjetvaldatöku:
„Alræði öreiganna getur alls ekki orðið til fyrir frið-
samlega þróun hins borgaralega þjóðskipulags og lýðræðis.
Það getur aðeins risið upp, er hið núverandi ríki borgara-
stjettarinnar hefur verið molað mjelinu smærra og her
þess, embættismannavaldi og löreglu liefur verið sundrað“.
Þessi kennfoimúla var í hávegum höfð hjá hinum íslensku
rE-.uðfasistum, er kommúnistaárásin á Alþingi var gerð 30.
mars s. 1.
Og ekki hafa íslensku kommúnistarnir alltaf leynt því, að
‘ þeir væru deild úr alþjóðasamtökum óaldarflokks rauðfasism-
ai ... Er Brynjólfur Bjarnason og ísleifur Högnason sigldu á
n.i lstjórnarfund Alþjóðasambands kommúnista í Moskvu 1932,
Voru þeir kvaddir í málgagni sínu í Reykjavík á þennan hátt:
„En fjelagar, það er ekki nóg að tilheyra heimsflokki
kommúnisrnans. — Við verðum einnig allir að vera reiðu-
búnir að framkvæma fyllilega í verkinu fyrirskipanir hans,
nú þegar orlög heillar kynslóðar og socialismans eru í veði“.
Það er von, tð deildin hjer hafi „hvorugum aðilanum getað
óskað sigurs“, er Stalin og Hitler stóðu saman, í aflokinni
he;. ns.'tyrjöld, en krafist þess eftir að í harðbakka sló þeirra á
! rmili, að íslendmgar segðu Þjóðverjum stríð á hendur, en svo að
lol-r.um hafið á loft merki „ævarandi hlutleysis“, er lýðræðis-
þjóðirnar styrktu samtakamátt sinn í Atlantshafsbandalaginu.
Það var alltaf dansað á línunni.
Og ekki átti þróunin að vera lýðræðisleg hjer. á íslandi.
B 'ynjólfur Bjainason segir í einni grein sinni, er hann ritaði
í „Verkalýðsblaðið“:
„Byltingarhugur verkalýðsins magnast, uns hámarki bar-
áttunnar er náð með áhlaupi verkalýðsins, UNDIR FOR-
YSTU KOMMÚNISTAFLOKKSINS A HÖFUÐVÍGI AUÐ-
VALDSINS í REYKJAVÍK og valdanámi hans. Það áhlaup
tekst því aðeins, að meirihluti verkalýðsins, a. m. k. í
Reykjavík, fylki sjer bak við flokkinn.
. Að slík tímamót muni EKKI FALLA SAMAN VIÐ
VENJULEGAR KOSNINGAR, ÞINGSETU EÐA ÞESS-
HATTAR, NEMA FYRIR TILVILJUN EINA ER FLEST-
UM LJÓST, SVO ÞAÐ SEM ÚRSLITUM RÆÐUR, VERÐ-
UR MEIRIHLUTI HANDANNA, HANDAFLIÐ ’. (Letur-
breyting okkar).
Svöná Vár þá hugsunarháttur mannanna, sem ætluðú að sá
■írækórnum socialismans í hjörtu frjálsborinna íslendinga. Og
fj.-‘ a eru sömu mennirnir með sömu skoðanirnar, sem nú eiga,
þ ví ír<iðiir,‘9 fulltrúa á Alþingi íslendinga.
Einar Olgeirsson, sá er ljek hlutverk „Konna“ í kosninga-
baráttu Áka Jrkobssonar, *sagði fyrir tæpum 20 árum, að það
væri draumur sinn um stjórnmálasögu næstu 20 ár,
„— að hjer væri orðinn einn flokkur SAMEINAÐUR ÚR
ALÞÝÐUFLOKKNUM, KOMMÚNISTAFLOKKNUM OG
FRAMSÓKNARFLOKKNUM, en íhaldsflokkurinn horf-
inn, nokkrir af foringjum hans GERÐIR LANDRÆKIR
OG LEYFARNAR AF FLOKKNUM LEYSTAR UPP“.
Þarna var þá hugsunarhátturinn fullkomnaður, aðalandstöðu-
flokkurinn leystur upp, foringjar hans gerðir landrækir og
vinstri flokkunum öllum hrært saman. Þarna var sú rússneska
paradís, sem kommúnistabroddana íslensku dreymdi um. Þannig
lítur þá það þjóðskipulag út, sem tryggja átti hið fullkomnasta
rjettlæti. Og það eru fleiri en Einar og Brynjólfur, sem þannig
hugsa. Jóhanncs úr Kötlum, frambjóðandi kommúnista í Skaga-
firði við síðustu Alþingiskosningar, ritaði fyrir nokkrum ár-
um grein í Þjóðviljann, þar sem svo segir:
„Nú munu hinir frjálslyndu heiðursmenn koma til mín
og segja: En góði vinur, heldur þú því virkilega fram í al-
vöru, að stjórnarfar sem leyfir aðeins EINN FLOKK sje
hið fullkomnasta lýðræði, sem til er í heiminum. — Og
mikið heíd jeg að þeir hristi blessaða kollana sína, þegar
jeg segi hiklaust JÁ“.
Og ekki þarf að Íeita lengi til að sjá hvernig fyrirkomulagið
á að vera í þessum EINA flokki. — í „Verkalýðsblaðinu“, 23.
tbl. 1932, segir svo:
„En þeg-ir búið er að taka ákvarðanirnar, verða allir að
fylgja þeim sem einn maður. Og þess er ekki aðeins kraf-
ist, að ákvórðununum sje fylgt í orði kveðnu, heldur verða
menn að starfa jafn ötullega að, ÞÖTT ÞEIR SJEU Á
ÖÐRU MÁLI. — VILJI OG SKILNINGUR FLOKKS-
HEILDARINNAR VERÐUR ALLTAF AÐ SITJA í FYRIR-
RÚMI FYRIR VILJA OG SKILNINGI HVERS EINS“.
Já, þarna er skoðanafrelsi einstaklingsins virt á kommúnist-
iskan hátt. En frelsi flokksins út á við? í 24. tbl. sama árgangs
stendur:
„Enginn einstakur má koma opinbcrlega fram, nema
samkvæmt fyrirmælum flokksins. Ef út af ber — GRÍPUR
HEIMSFLOKKURINN í TAUMANA“. (Leturbr. hjer).
Fleiri perlur úr málatúlkun kommúnistanna sjálfra er hægt
að tina til, ef þessar nægja ekki, til að sýna hina raunverulegu
ásýnd þeirra. I síðasta blaði var um það rætt hve geigvænlegt
það væri, að pannig hugsandi menn skuli móta ungviðin, vor-
gróður hins- íslenska ættstofns. Með hliðsjón af lýsihgu komm-
únista á sjálfum sjer, þeirri, sem hjer hefur verið birt, geta
ruenn sjálfir dæmt um, hvort svo sje ekki og hvort ekki sje
ástæða til að leta í fótspor Norðmarina og'þurrka út þessá
istefnu, ekki með ofbeldi, heldur riiéð frjálsú vali borgararina,
á sama hátt og Norðmenn gerðu.
Hamingja þjóðarinnar verðut því meiri, sem kommúnistarnir
verða færri. ...
þá ógæfu yfir bæinn. Reykvík-
ingar vilja ekki fá samstjórn
þriggja f jandsamlegra flokka
með kommúnista í fararbroddi.
Jeg vil skora á ykkur, Reyk-
víkingar góðir, að sækja vel
kosninguna á sunnudaginn —
forða ykkur frá ógæfu sundr-
ungarinnar, velja ykkur sam-
henta. styrka, frjálslynda um-
bótastjórn með því að kjósa
D-LISTANN.
Skifting bæjarins
í kjörsvæð!
í DAG birtist hjer í blaðinu
auglýsing yfirkjörstjórnar um
skiptingu bæjarins í kjörsvæði
við bæjarstjórnarkosningarnar
á sunnudaginn kemur. Þar eru
allar götur hvers kjörsvæðis
taldar í stafrófsröð.
Er brýnt fyrir kjósendum aö
kynna sjer fyrirfram, hvar þeir
eigi að kjósa.
Skiptingin í kjörsvæði er
gerð samkvæmt heimilisföng-
um á kjörskránni, en hún er
isamin skv. manntali haustið
1948, með leiðrjettingum (flutn
ingstilkynningum) til febrúar
loka 1949.
Þeir, sem hafa flutt á milli
bæjarhluta síðan í febrúar
1949, eru sjerstaklega beðnir
að hafa hugfast, að heimilis-
fangið við manntal 1948 ræð-
ur kjörstað.
Kjósendur skulu kjósa í þeim
skóla, þar sem gatan. sem þeir
bjuggu við skv. manntali haust
ið 1948 (eða í febrúar 1949), ei'
talin í auglýsingunni.
Yfirkjörstjórnin hefir sent
þeim, sem tilkynnt hafa flutn-
ing á milli kjörsvæða síðan i
febrúar 1949, sjerstaka tilkynn
ingu um að þeir eigi að kjósa
á kjörsvæðinu, sem þeir fluttu
frá, en vera má að sumar til—
kynninganna komi ekki til
skila.
Sömuleiðis hefir samskonar
tilkynning um kjörstað verið
send þeim, sem búa við mörk
(landamerki) kjörsvæðanna,
þar sem helst gæti orðið um
misskilning að ræða, og er þess
vænst, að allar þessar tilkynn-
ingar geti komið í veg fyrir
margan misskilning, því að
það mun tefja og torvelda kosn
inguna, ef mikil brögð verða að
því, að kjósendur komi til rangs
kjörstaðar.
Þessvegna er enn brýnt fyrii?
kjósendum, að kynna sjer aug-
lýsinguna um hvav þeir eigi a’ð
kjósa, og hafa hugfast ,að kjör-
staður þeirra fer eftir lieimilis-
fangi á kjörskránni.
Með 850 kra hraða
á sekúndu
STOKKHÓLMI, 26. jan.: —
Franski stjarnfræðingurinn
Charles Bertand fann nýjg
stjörnu í Lacerta-stjörnumerk-
inu hinn 23. jan. s.l. — Þarna
er greinilega um stjörnu að
ræða, sem orðið hefir til
fyrir kjarnorkusprengingu.
Mælingar sýna, að gastegundir
þjóta út frá stjörnunni met?
850 km. hraða á sekúndu.
"" ' — NTB,