Morgunblaðið - 27.01.1950, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 27. janúar 1950.
GEIR HALLGRÍMSSON
ÆSKAN VILL EKKI AFSALA SJER SJÁLFS-
ÁKVÖRRUNARRJETTINUM
AFSTAÐA manna til stjórtimálaflokka byggist fyrst og
fremst á grundvallarstefnu viðkomandi flokks og athöfn-
um flokksins til þess að koma grundvallarstefnu sinni í
framkvæmd.
Þegar æskumenn ganga til kosninga, þá eru þessi tvö
sjónarmið efst á baugi hjá þeim sem öðrum kjósendum.
Æskan hlýtur að leita sjer stöðu, þar sem lífsskoðanir henn-
ar og hugsjónir eru í hávegum hafðar bæði í orði og á borði.
Þótt ekki sje hægt að tala um eitt sameiginlegt lífsvið-
horf og eina sameiginlega stefnu allra æskumanna, þá mun
það ekki ofmælt, að helsta áhugamál flestra æskumanna
og þeim eiginlegt, er það að ráða sjálfir sem mestu um
framtíð sína, en vera ekki leiksoppur almáttugs yfirvalds.
Æskumaðurinn vill sjálfur ráða, hvaða verðmætum hann
sækist eftir í lífinu og vill ekki í þeim efnum lúta skil-
yrðislaust boði og banni einhverra stjórnvalda, hvort sem
um bæjar- eðf ríkisstjórnvald er að ræða. Engu síður er
æskumanninum ljóst, að meðferð bæjar eða ríkisvalds ræður
miklu um það, hvort hann hefur möguleika til að afla
þeirra verðmæta í lífinu sem hann hefur hug á.
Af þessu hefur stefna Sjálfstæðisflokksins markast við
meðferð bæjarmála og þjóðmála yfirleitt.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er í senn að virða
sjáifsákvörðunarrjett einstaklinganna og gera
með almennum ráðstöfunum öllum einstakling-
um fært að hagnýta sjer þennan sjálfsákvörðunar-
rjett til að öðlast þau verðmæti, sem hver og
einn kýs, sjer og sínum og almenningi til hags-
bóta.
Engum frekar en æskumönnum og konum er nauðsyn, að
þessi skilningur og þessi stefna sje fyrir hendi hjá yfir-
völdum bæjar og ríkis. Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjórn-
málaflokkurinn á Islandi, sem metur þennan sjálfsákvörð-
unarrjett einstaklingsins. Allir aðrir flokkar hjer hafa á
móti honum brotið og reynt að takmarka sjálfsákvörðunar-
rjettinn á alla vegu.
Próventukarlarnir, sem afhentu eigur sínar gegn því að
njóta framfærslu það sem eftir var ævinnar, urðu flestir
vonsviknir. Líkt mundi æskumönnum fara, ef þeir afhentu
sjálfsákvörðunarrjett sinn. En það er einmitt, sem and-
stöðuflokkar Sjálfstæðismanna fara fram á, að æskumenn
geri, að meira eða minna leyti.
Kommúnistar vilja afmá
sjálfstæði einstaklingsins
Kommúnistar vilja eins og
kunnugt er, er ríkið reki öll
atvinnufyrirfæki og stjórnend-
ur ríkisins hafi forustuna í öll-
um fjelögum efnalegs og and-
legs eðlis, sbr. stjórnarskrá
Sovjeíríkjanna. Kommúnistar
vilja drottna þannig yfir and-
legu og efnalegu lífi allra ein-
staklinga í krafti ríkisvaldsins.
En þar sem kommúnistum hef-
ur eigi tekist að afla slíkra á-
hrifa í meðferð ríkisvaldsins, þá
hafa þeir lagt áherslu á, að
bæjar- og sveitarstjórnaryfir-
völd nái þeim tökum á borgur-
unum, að hver einstaklingur
þurfi sem mest að þiggja af
þæiarfjelaginu, sje því sem háð
astur.
Það er í þessum anda, sem
kommúnistar hafa starfað,
þegar þeir hafa haft á orði,
að rjettast væri að banna
einstaklingum að byggja
sjer þak yfir höfuðið. Það
eykur sjálfstæði einstakl-
ingsins að eiga sjálfur íbúð-
arhús sitt eða íbúð, og komm
únistar eru hræddir við
sjálfstæði einstaklinganna.
Æskumaðurinn vill hinsveg
ar vera sjálfstæður, vill standa
á eigin fótum. Þess vegna hlýt-
ur stefna kommúnista að vera
honum andstæð, ej: æskumað-
urinn hefur ekki glatað eðli
sínu og íslendingsuppruna.
Embættismannavald
kratanna
Munurinn á stjórnarstefnu
krata og kömmúnista er ekki
eðlismunur heldur stigmunur
og má vart á milli sjá, þegar
vinstrikratar eiga í hlut.
Kratar treysta litlu minna
en kommúnistar á voldugt
ríkis- og bæjarvald íil þess að
halda þegnunum hæfilega í
skefjum. Blöskrar þeim þá
ekki að beita skoðanakúgun í
sambandi við atvinnuveitingar
bæjarfjelagsins. Mönnum má
vera í fersku minni, hvernig
Hafnarfjarðarkratar beittu að-
stöðu sinni á atvinnuleysisár-
um fyrir stríð, þegar þeir ráku
stjórnmálaandstæðinga sína úr
vinnu bæjarútgerðarinnar. Og
skipun lista Hafnarfjarðarkrat
anna nú m.a. bendir til þess,
að ekki hafi þeir gleymt með
öllu að haga atvinnuveiting-
um eingöngu eftir stjórnmála-i
skoðunum og launa fylgispekt
með góðum bitlingum. Á lista
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
eru nú sex af tíu efstu mönn-
um starfsmenn bæjarfjelagsins.
Hafnfirðingar munu raun
ar hafa sjeð lítinn annan ár-
angur af áratuga starfi
krata en embættismannalið-
ið. Enda er ekki hægt að
gera sjer vonir um mikinn
annan árangur af hálfu
krata, hvar sem þeir eflast
til áhrifa.
Framsókn berst fyrir
forrjettindum
Það hlutverk, sem kommún-
istar og kratar vilja, að ríkis-
valdið eða bæjaryfirvöldin
hafi, vilja framsöknarmenn, að
samband samvinnufjelaganna
gegni. Það á að tryggja Sam-
bandinu aðstöðu til að drottna
yfir mönnum eins og voldugt
ríkisvald væri. Einstaklingarn-
ir eiga að vera því háðir, því
að þá er ef til vill frekar von
til þess að Framsóknarflokkn-
um aukist fylgi.
Ef Framsóknarmaður er
raunar spurður um grundvall-
arstefnu síns flokks, vefst hon-
um venjulega tunga um tönn,
en kann þó að lokum að svara,
að það sje samvinnustefnan.
— Framsóknarmönnum er þá
gjarnan á það bent, að sam-
vinnustefnan aðgreini ekki
Framsóknarmenn frá Sjálfstæð
ismönnum, ef átt er við það,
að samvinnuf jelög skuli njóta j
fyllsta jafnrjettis á við önnur
starfandi fjelög og einstakl-
inga á sama sviði.
Ef afstaða til samvinnufje
laganna eigi að marka að-
greiningu á stefnu Fram-
sóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins, þá hljóti
það að vera svo. að Fram-
sóknarflokkurinn vilji for-
rjettindi til lianda samvinnu
fjelögunum.
Og þarf ekki að fara um það
mörgum fleiri orðum, að sú en
raunin.
Skattabyrði almennings
þyngist
Það skiptir svo Framsóknar
menn engu máli, þótt forrjett-
indi Sambandsins sjeu slík, að
allur almenningur þurfi a'ð
bera byrðarnar, sem Samband-
ið er losað við og greiða skatta
og útsvör fyrir-þetta milljóna-
fyrirtæki.
Á Akureyri er það upplýst,'
að áhöfn eins togara greiðir
jafnmikið í skatta og útsvör og
öll fyrirtæki KEA og Sam-
bandsins þar til samans.
Reiknað hefir verið út,
að hefði verið lagt á KRON
sem cinstakling árin 1937—>
47 þá hefði það þurft að inna
af hendi í skatta og útsvör
kr. 3.887.911.25. — stað þess
greiddi það aðeins rúm 800
þús. eða rúmar 3 milljónir
minna en einstaklingur
mundi hafa gert. Almenn-
ingur borgar mismuninn.
Ljóst er, að framsóknar-
menn munu efla forrjettindi
Sambandsins eftir megni, ef
þeir næðu aðstöðu til þess í
bæjarstjórn, eins og þeir hafa
gert annarsstaðar, með þeirri
afleiðingu, að skattabyrði alls
almennings í bænum eykst.
Framsókn metur meir
hagsmuni gróðavalds
S. í. S. en þörf
húsnæðisleysingja
Framsóknarmenn, sem allt-
af hafa barist á móti hagsmuna
málum Reykjavíkur, hafa látig
sjer tíðrætt um hinn alvarlega
húsnæðisskort hjer í bænum,
sem stafar m.a. af því, að
menn flýja þaðan, sem stefna
Framsóknarflokksins hefur að-
allega ráðið. Framsóknarmenn
í Fjárhagsráði hafa þó ávallt
viljað draga úr og beinlínis
fellt tillögur um íbúðarhúsa-
byggingar í Reykjavík. Á sama
tíma, árinu 1949 hafa þeir veitt
Sambandinu fjárfestingarleyfi
fyrir milli 10—20 milljón kr.
Og þar á meðal fyrir frysti-
skipi, sem kostar minnst 5
milljónir króna í erlendum
gjaldeyri, þótt frystiskipafloti
landsmanna anni fyrirsjáanleg
um frystiflutningum um
næstu áratugi.
Þessar 5 milljónir í fjár-
festingarleyfi mundu nægja
til þess að byggja yfir 30—
40 fjölskyldur. Og sje að-
eins reiknað með erlenda
gjaldeyrinum, sem til bygg-
inga þarf, en ca. % bygg-
ingakostnaðarins er erlend-
ur gjaldeyrir, þá væri hægt
að byggja yfir 160 fjölskyld
ur, sem nú eru húsnæðis-
lausar, en framsóknarmenn
meta forrjettindi Sambands
ins meir en nauðsyn 30—40
og jafnvel 160 húsnægis-
lausra fjölskyldna. Yfir þá
staðreynd breiða ekki
„myndatökur fyrir kosning-
ar“.
Framsóknarmenri og kratar
stöðvuðu einnig á sínum tírna
lánveitingar veðdeildar Lands-
bankans til íbúðarhúsabygg-
inga, en hinsvegar hafa Fram-
sókn og kratar ekkert við það
að athuga, þótt Sambandið og
fyrirtæki þess virðast hafa sjer
lega góðan aðgang að Lands-
bankanum, meðan flestum öðr
um er þar synjað.
Æskumenn vilja engu
fremur vera ofurseldir ein-
okunar- og forrjettindaauð-
valdi Sambandsins heldur
en alræði ríkisvalds eða of-
urvaldi bæjarstjórnar og
munu því ekki fremur
styðja framsóknarmenn til
áhrifa og valda en komm-
únis^a og krata.
Sj álf stæðisf lokkurinn
er flokkur æskunnar
Sjálfstæðismenn líta svo á,
að þæjarstjórn eigi að leysa
þarfir borgaranna, sem ein-
staklingunum sjálfum er um
megn að leysa. Þannig hafa
Sjálfstæðismenn t.d. búið svo
í haginn fyrir atvinnuvegunum
í Reykjavík, að hvergi annars-
staðar hjer á la-ndi er aðbúnað-
ur af mannahöndum betri.
Sjálfstæðismenn vilja að at-
vinnurekstur sje frjáls og
stundaður af mörgum aðilum.
Sjáífstæðisflokkurinn vill ný.ta
einstaklingsframtakið til úr-
lausnar vandamálunum, eins
og t.d. húsnæðisskortinum.
Sjálfstæðismenn vilja, að
ungir og atorkusamir menn
hafi aðstöðu til þess að
verða bæjar- og þjóðfjelagi
sínu að liði.
Stefna Sjálfstæðisflokks-
ins er því stefna æskunnar
og æskumenn og konur
munu tryggja Sjálfstæðis-
floikknum sigur í kosning-
unum á sunnudaginn kem-
I