Morgunblaðið - 27.01.1950, Qupperneq 11
Föstudagur 27 janúar 1950.
11
MORGUNBLAÐIÐ
Frú Þórsflna
frá Borganresi.
ALLT til síðustu ára hefir það
varla þótt í frá sögur færandi,
þótt alþýðu-kona, sem slitið hef-
ir æfi sinni við kröpp kjör og
margvíslega erfiðleika, kveddi
þetta jarðlíf og safnaðist til feðra
sinna, eins og stundum er kom-
ist að orði um nýlátið fólk. —
Flestar sjómanna- og verka-
mannakonur áður fyrr á landi
voru, urðu einar um lengri eða
skemmri tíma æfinnar að ann-
ast einar heimili sín, vegna þess,
að menn þeirra stunduðu störf
sín utan vjebanda heimilisins og
voru því örsjaldan heima við —
Þær ólu vel flestar mönnum sín-
um 5—7 börn í þröngum og erfið-
um húsakynnum. Á þeim árum
var ekki ljett undir með húsmóð-
urinni með því að kaupa tilbú-
inn fatnað, mat og annað það,
sem heimilið þarfnaðist, eins og
nú á sjer oft stað. Efnahagurinn
leyfði það ekki og líka þótti siálf
sagt að berjast hinni góðu baráttu
og komast áfram af eigin ramm-
leik. Þetta var oft harður, en
gagnlegur skóli. Húsmóðirin, á
þessum heimilum vann alltaf
sjálf, matreiddi, prjónaði, saum-
aði, þvoði o. s. frv. — Auk þess
annaðist hún uppeldi barnanna
sinna.
Það er ekki fyr en nú á allra
síðustu árum, að mönnum er far-
ið að skiljast það, að þessar kon-
ur unnu stórvirki á heimilum sín-
um og vel flestar þeirra unnu af-
rek, sem vert er þess, að ekki
gleymist.
Einnar þessara kvenna verður
hjer minnst með nokkrum orð-
um, það er frú Þórstínar Gunn-
arsdóttur frá Borgarnesi.
Þórstína var fædd 15. ágúst ár-
íð 1882, að Fögruhlíð við Djúpa-
vog. Þar ólst hún upp með íor-
eldrum sínum og systkinum. Til
Reykjavíkur fluttist hún skömmu
eftir aldamótin. Árið 1906 giftist
hún eftirlifandi manni sinum,
Einari Ólafssyni. Hann var son-
ur hinna mætu hjóna Ólafs Jóns-
sonar og Ásgerðar Sigurðardótt-
ur, frá Stóru-Fellsöxl. — Þau
hjónin, Þórstína og Einar eignuð
ust 7 börn og eru 6 þeirra á lífi
PÍISNHNGASANDUR
frá Hvaleyri.
Skeljasandur, rauðamöl
og steypusandur.
Sími 9199 og 9091.
GuSmundur Magnússon.
Nýir kjólar
Garðastræti 2. Simi 4578. í
■•iiMimir
FJALARf
64 39
" SI7B5
BIVHJAVÍK
Alþýðuilokkisrsnn i Hainarfsrði
aineilar bæjarstjóranum og heyk-
ist á óskorun sinni unl borgaraiund
aiiuiminimiiiiiiii9»iiiiiiiiMiiii.<i(r<ivii
öll fullorðin og gift. Börn þeirra
eru: Ásgeir dýralæknir, Gunnar
starfsmaður hjá Mjólkursamsöl-
unni, Ásgerður á Akureyri, Loft-
ur, Sigurbjörg og Þorsteinn, öll
hjer í Reykjavík. Áður en Þór-
stina giftist, átti hún dóttur, Láru
Jónsdóttur, konu Sigurðar Gríms
sonar, lögfræðings.
Um aldarfjórðungs skeið
bjuggu þau, Einar og Þórstína,
hjer í Reykjavík og var Einar
ailan þann tíma sjómaður. Þegar
hann hætti sjómennsku, fluttust
þau hjónin upp í Borgarfjörð og
hafa átt þar heimili í 20 ár, þar
af 16 ár í Borgarnesi. Þar áttu
þau lítið og snoturt hús á kyrr-
látum og fögrum stað vestan við
Skallagrímsgarðinn og undu þau
þar vel hag sínum. Fyrir nokkru
kenndi Þórstína sjúkdóms þess
er varð henni að aldurtila. Hún
ljetst í London 12. janúar síðast-
liðinn, að lokinni skurðaðgerð, í
sjúkrahúsi þar í borg.
Mjer voru ekki kunnar ættir
Þórstínu. .Hún var hingað svo
langt að komin. En hugsað get jeg
mjer, að það hafi verið gott og
grandvart fólk, starfsamt og dug
mikið, glaðlynt og gestrisið, því
þannig var hún sjálf. Jeg held
að jeg hafi engum, hvorki karli
eða konu kynnst, sem hafði iafn
ljetta og glaða lund og Þórstína.
Ekki var það vegna þess að allt
Ijeki í lyndi allar stundir — síð-
ur en svo. Á heimilum, þar sem
börnin voru svo mörg eins og
hjá henni og heimilisfaðirinn
fjarri flestar stundir, og þessa
heims gæði oft af skornum
skammti, þá verður húsmóðir-
in að vera allt í öllu. — Innan
veggja og vjebanda heimilisins
er konan stór og stærst, þegar
hún fórnar öllu fyrir heimili sitt
og börnin. Þetta var hlutskipti
Þórstínu. Hún vann sín störf með
bros á vör og kvartaði aldrei yf-
ir skyldustörfum sínum.
Einar og Þórstína lifðu saman
í nær 44ra ára ástúðlegu hjóna-
bandi. Þau voru samhent og sam-
taka í sambúðinni. Bæði voru
gestrisin svo að af bar og öllum,
sem þau höfðu einhver kynni af,
stóð heimili þeirra opið og sann-
aðist á beim málshátturinn, að
þar sem er hjartarúm þar er líka
húsrúm. Það munu margir Borg-
firðingar hafa reynt fvr og síðar.
Þegar jeg nú kveð máffkonu
mína og óska henni Guðs bless-
unar, þá minnist jeg hinna sjald-
gæfu eiginleika hennar, glaðværð
ar og ljettlyndis. Þeir menn, sem
gæddir eru svo dásamlegum eig-
inleikum, flvtja gleði og bros til
annara samborgara sinna, án þess
að vera sier þess meðvitandi að
svo sle. Fin látna heiðurskona
hefir lokið miklu og nytsömu
æfistarfi.
Bjart er yfir minningu hennar.
Sigurður Ólafsson.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag áttu
fulltrúar flokkanna í Hafnar-
firði samræður um það, hvern-
ig haga bæri umræðum flokk-
anna um bæjarmál fyrir vænt-
anlegar bæjarstjórnarkosning- •
ar' , |
Fulltruar Alþýðuflokksins
vildu helst sameiginlegan fund,
og yrði umræðunum útvarpað
þaðan. Sjálfstæðismenn töldu
að úr því hægt væri að koma
því við að útvarpa umræðun-
um til bæjarbúa, þá væri það
sú lang æskilegasta tilhögun,
sem kostur væri á, að láta ein-
ungis fara fram útvarpsumræð
ur og vera ekki að hrekja fólk
út í misjafnt veður, til þess að
sækja fund í húsi, sem ekki
tekur nema nokkur hundruð
manns, — og einnig gæfi það
fyrirkomulag ræðumönnum
kost á að notfæra tíma sinn
truflunarlaust og því meiri
vissa fyrir því, að bæjarbúar
fengju af umræðunum gleggri
yfirsýn yfir gang bæjarmál-
anna.
Niðurstaðan af þessum sam-
ræðum varð sú að einungis út-
varpsumræður voru látnar
fara fram, og ríkin- almenn á-
nægja í bænum, yfir því að
þessi leið var farin.
Bæjarstjórinn ekki alvarlega
tekinn
1 lok umræðnanna varð ein-
um ræðumanna Alþýðuflokks
ins, Helga Hannessyni, bæjar-
stjóra, það á að lýsa óánægju
sinni fyrir bæjarbúum, yfir
því að þessi tilhögwn var á höfð,
(enda upphafsmaður þess að
útvarpað skyldi frá fundi), með
því að skora á Sjálfstæðismenn,
að mæta Alþýðuflokksmönnum
á borgarfundi. —- Tóku Sjálf-
stæðismenn þegar áskorun bæj
arstjórans, og kváðu sig fúsa til
að mæta Alþýðuflokksmönnum
hvar og hvenær sem er, til um-
ræðna um bæjarmál Hafnar-
f jarðar.
Það, sem síðan hefir skeð í
þessu máli, lýsir aftur á móti
greinilega, hve mikils Alþýðu-
flokksmennirnir meta orð og at
hafnir bæjarstjóra síns, en gang
ur málsirís, fer hjer á eftir í orð
sendingu sem Sjálfstæðisflokk
urinn í Hafnarfirði sendi út til
Hafnfirskra kjósenda í dag.
Orðsending til Hafnfirðinga:
EINS OG bæjarbúum er þeg-
ar kunnugt.. var það að sam-
komulagi milli stjórnmálaflokk'
anna, að útvarpa umræðum um :
bæjarmál s.l. mánudag. Með i
þeim hætti taldi Sjálfstæðis-;
flokkurinn, að almenningi í
bænum væri gert auðveldara í
að hlíða á málflutning fulltrúa
flokkanna og taka síðan sína
afstöðu til þeirra mála, sem:
mestu skifta í þessum kosning-,
um. í lok þeiri.a útvarpsum-'
ræðna kom einn ræðumanna
Alþýðuflokksms. Hclgi Hannes
son bæjarstjóri, fram m"eð k-
skorun til Sjálfstæðisflokksins,
að mæta Alþýðuflokknum á
almennum borgarafundi, til
frekari umræðna um bæjar-
málin. Tóku Sjálfstæðismenn
þegar fúslega þessari áskorun
og staðfestu það síðan með
brjefi dags. 24. þ. m., svohljóð-
andi.
Brjefið:
Þegar fulltrúar stjórnmála-
flokkanna áttu tal saman um
það, s.l. sunnudag, hvernig
haga bæri sameiginlegum um-
ræðum um bæjarmál fyrir í
höndfarandi bæjarstjórnar-
kosningar, þá varð það að sam-
komulagi, að umræðunum
skyldi útvarpað s.l. mánudags-
kvöld. Það varð einnig að sam-
komulagi þá, að opið skyldi
standa og óákveðið, hvort halda
skyldi almennan umræðufund
án útvarps síðar, ef þess þætti
þörf.
Undir útvarpsumræðunum s.
1. mánudagskvöid, kom einn
ræðumanna. bæjarstjórinn, sem
talaði af hálfu Alþýðuflokks-
ins, fram með áskorun til okkar
um að mæta Alþvðuflokksmönn
unum á almennum umræðu-
fundi. Teljum við, að með þess-
ari áskorun bæjarstjórans sje
áður nefnt samkomulag flokk-
anna, um athugun á fundi síð-
ar úr gildi fallið.
Þrátt fyrir það þó við teljum
að með útvaipsumræðunum
hafi náðst til alls þorra bæj-
arbúa og þeir einnig fengið þá
yfirsýn yíir bæjarmálin, sem
unt sje að gefa með sameigin-
legum umræðum stjórnmála-
flokkanna um málin, og að
annar fundur í þessu skyni sje
gersamlega óþarfur, — auk þess
sem bæjarbúar hafa fengið all-
mikla fræðslu um málin, af
vikublöðum flokkannna að und
anförnu. Þá viljum við samt
ekki skorast undar. sameigin-
legum umræðufundi flokkanna
sem Alþýðuflokkurinn boðar
til, með þessum skilyrðum þó:
1. Að fundurinn verði hald-
inn næstkomandi föstudags-
kvöld kl. 8.
2. Að fundurinn verði al-
mennur.
3. Að fundurinn X'erði ekki "
lengir en 4 klst.
4. Að Sjálfstæðisflokkurim
fái jafnan ræðutíma á móti Al-
þýðuflokknum.
5. Að fundarhúsið verði ekki -:
opnað fyrr en kl. 7,30 e.h., og ::
að okkar flokkur hafi rjett fíl ;
að fylgja.st með því, að svo verði ;
gjört og einnig rjett til að ganga ;
úr skugga um, að fundarsalirn ;:
ir sjeu tómir, þegar þeir verði *
opnaðir fyrir fundarmenn.
6. Að fólki verði ekki leyít
að safnast saman annarsstaðar
í fundarhúsinu, áður en fundur
hefst, og fái Sjálfstæðisflokkur
inn heimild til að hafa eftirlit
með því.
7. Að umræðunum verði ekki
útvarpað.
Þetta tilkynnist Alþýðu- ;
flokknum hjer með.
Hafnarfirði 24. jan. 1950.
f.h. Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði.
Þorleifur Jónsson, (sign).
Ingólfur Flygenring .sign).
Helgi S. Guðmundsson (sign).
Guðlaugur B. Þórðarson (sign).
Síðan hefir oss ekki tekist,
þrátt fyrir margítrekaðar fyr-
irspurnir vorar, að fá svar um
það frá AÍþýðuflokknum, hvort
þessi umræðufundur fari fram
eða ekki, fyrr en kl. 8 e.h. fimtu
daginn 26. janúar eða tveimur
sólarhringum, eftir að vjer tök-
um áskoruninríi skriflega, og
var þetta svar á þá leið, að AI-
þýðuflokksmennirnir, sjeu runn
ir frá áskorun sinni, og fundur
þessi muni ekki verða haldinn.
Verður sæmd Alþý'ðuflokksins
af þessari kokhreysti bæjarstjór
ans því minni, en til stóð í upp-
hafi.
Mun því Sjálfstæðisflokkur-
inn halda kjósendafund sinn,
svo sem fyrr hafði verið ákveð-
ið, í Hafnarfjarðarbíó í kvöld
kl. 8,30 s.d.
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisflokksins
Frá kabaret-sýningu 5. K. I.
í kvöld heldur S.K.T. kabaret-sýningu í G. T.-húsinu. Korna
þar fram margir kunnir listamenn, en að lokum er dansað.
Hjer að ofan er mynd úr leikþættinum „Kjöt og fiskur'4 ’ .4.
myndinni eru Valdimar Lárusson, Klemens Jónsson og Sóíveig
Jóhannsdóttir.