Morgunblaðið - 05.02.1950, Page 1
37.
érgangui
30. tbl. — Sunnudagur 5. fcbrúar 1950.
Prentsmiðja Morguzibla’Ssins
16 síður og Lesbók
Kvnr eru 370,000 jap-
unskru stríðsfanga?
Rússar (óku þá höndura, en síðan hefir
ekki til þeirra spurst
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB.
• WASHINGTON, 3. febrúar. — í tilkynningu, sem bandaríska
•utanríkisráðuneytið gaf út í dag, segir, að Rússar reyni nú að
'fcreiða yfir, að þeir hafa ekki enn skilað 370.000 japanskra
stríðsfanga, með því að krefjast þess, að Hiorhito keisari verði
kvaddur fyrir stríðsglæparjett.
Pólskum lögum breytt til sum-
ræmis reglum Rauða hersins
Rokossovsky ætl
ar að reynast
köilun sinni trúr
Hollandspriris
Nokkuð seint af stað farið.
í tilkynningu stjórnarinnar
segir, að krafa Rússa komi nokk
uð seint, þar sem nú sjeu hálftj
fimmta ár síðan Japanir gáfust
■upp og margir mánuðir síðan
rjettarhöldin fyrir stríðsglæpi
lauk. Er því ljóst, að krafan er
sett fram til að leiða athygli
frá japönsku stríðsföngunutn,
sem Rússar hafa ekki skilað enn
og enginn veit hvar eru niður
komnir.
Dylgja um sýklahernað
Orðsending Rússanna var
send Bretlandi, Bandaríkjun-
um og þeim hluta Kína, sem
kommúnistar ráða. Segir í
hénni, að stefna skuli keisaran-
um og fjórurn hershöfðingjum
Japana fyrir stríðsglæparjett,
og er gefið í skyn, að keisarinn
hafi haft á prjónunum ráða-
gerðir um sýklahernað.
Slærsta, fljótandi
hvalolíusföó heims
BELFAST, 4. febr. — Stærsta,
fljótandi hvalolíustöð í heimi
er nú í smíðum í Belfast. Mun
Skipið kosta 2,000,000 punda.
Er það 23,000 smál_, á að
heita „Juan Peron“ og fer til
Argentínu. Vonast er til að
'kona Perons skíri skipið, er
því verður hleypt af stokkun-
um hinn 4. apríl. — Reuter.
JNyfin í kúnum hækkaði
við hljómlislina
THORPE, SURREY: — Hún
^íora Johnston hefir með sjer
glymskratta, er hún fer í fjós-
ið. Árangurinn er sá, að nyt
kúnna glæðist, ef leikin eru fyr
ir þær lög á mjöltum. — Talið
gr, að hljómlist auki á ártægju
kúnna, eins og bjöllurnar, sem
þær bera stundum, gera.
Nú er ekki um annað að
gera fyiir kúabændur, en
ganga úr skugga um, hvort kún
um þeiria geðjast betur að
Bach eða Chopin. Ef til vill
gest þeim líka best að dægur-
lögum eða villimannasöngvum.
i J — Reuter.
Ingrid Bergraan
liggur á sæng
ROM, 4. febr. — Ingrid Berg-
man dvelst nú á fæðingadeild
ásamt syni sínpm tveggja
nátta. Sagði hún starfsmönn-
um sjúkrahússins í dag, að hún
mundi „dveljast þar um mán-
aðarskeið, ef nauðsyn krefur“,
til að losna við blaðamenn og
Ijósmyndara, sem sitja um
hana. — Myndatökumaðurinn
Rosselleni, „maðurinn, sem jeg
elska og ætla að giftast", dvald
ist með Bergman og syni henn-
ar í nokkrar stundir í dag, en
hún hefir nú sótt um skilnað
við mann sinn. — Reuter.
Taugasfríðinu hsldur
álram við Helmstedt
BERLÍN, 4. febrúar: — Síðast-
liðna nótt stöðvuðust allir flutn
ingar með bifreiðum til Berlín-
ar. Árdegis í dag var slakað svo
á hömlunum, að vel mátti við
una. Síðdegis í dag varð svo enn
breyting á, svo að einum 12 bif
reiðum er hleypt hjá varðstöð-
inni á klukkustund, en það er
miklu minna en þörf krefur.
Menn eru undrandi yfir þessu
háttarlagi Rússa og austur-
þýsku yfirvaldanna og eiga erf-
itt með að gera sjer ljóst, hvar
enda muni.
Sligamenn brenna
á Malakka-
þorp
skaga
LONDON, 4. febr. — A vestan-
verðum Malakkaskaga rjeðust
um 100 stigamenn inn í þorp
nokkurt í dag og brenndu það.
Að minnsta kosti 1000 manns
urðu heimilis- og húsnæðis-
lausir fyrir þetta tiltæki spell-
virkjanna. — Reuter.
Ungverjar viðurkenna.
BUDAPEST, 4. febrúar. — Ung-
verska stjórnin hefur viðurkennt
stjórn uppreistarmanna í Indó-
Kína.
BERNHARD prins, sem nú er á
þriggja tnánaða ferðalagi til
Suður-Ameríku og Kanada.
26 miljónum vindllnga
smyglað
HAMBORG, 4. febrúar. — Á
fimmtudaginn komst upp um
afar víðtækt smyglmál í fríhöfn
inni í Hamborg. Voru það toll-
verðir, sem komust fyrir smygl-
ið. Þegar hefur 26 milljónum
bandarískra vindlinga verið
smyglað frá fríhöfninni, en toll-
eftirlitið hefur komist yfir 8
milljónir aftur. — NTB.
Franska sljórnin lafir
PARÍS 4. febrúar: — Bi-
dault forsætisráðherra
Frakka reyndi í dag að
endurskipaleggja stjórn-
ina, þar cð jafnaðarmanna
ráðhcrrarnir 5 hafa sagt af
sjer. Mun forsætisráðherr-
ann ætla að reyna að
þrauka. leita svo trausts-
yfirlýsingar þingsins á
þriðjudag.
Enda þótt jafnaðarmenn
hafi sagt af sjer embætt-
um, er ekki víst, að þeir
greiði atkvæði gegn stjórn
inni. Það fer eftir því,
hvort Bidault fellst á að
greiða þær launauppbæt-
ur til lægst launuðu verka
mamiunna, sem voru brott
fararástæða ráðherranna.
— Reuter.
Kunnurr breskur
bankamaóur láfinn
LONDON, 4. febrúar. — í dag
Ijest í Bretlandi Norman lávarð
ur, 78 ára að aldri. Norman var
einn kunnasti bankamaður
Breta. Hann varð framkværáda
stjóri Englandsbanka 1907,
varabankastjóri 1915 og banka-
stjóri 1920 til 1944.
Víðtækar tilraunir með
þrýstiloftshreyfla í fjar-
stýrðum flugtækjum
Fullkomin rannsiknarstofnun í Bandaríkjunum
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
WASHINGTON, 4. febrúar. — Bandariski flugherinn hefur
komið sjer upp tilraunasal, þar sem þrýstiloftshreyflar verða
íeyndir. Er þar hægt að skapa sama ástand og skapast við 4000
km. hraða miðað við klst.
Við breytileg skilyrði «
Þessi reynslusalur er 30 m.
langur og hluti stórfenglegrar
rannsóknarstöðvar, sem reist
verður í Wood Ridge í New
Jersey. í þessum sal verður m.
a. hægt að gera tilraunir við
sama loftþrýsting og er í 26.000
metra hæð.
Fjarstýrð
í þessari nýju tilraunastöð
verður einkum reynd ný teg-
und þrýstiloftshreyfla, einfald-
ari en tíðkast hefur. Brenna
hreyflar þessir minna eldsneyti.
Hafa flugur knúðar þeim farið
hraðara en hljóðið. Verða frek-
ari tilraunir gerðar með þá, eink
um í sambandi við fjarstýrðar
flugvjelar og sprengjur.
Tveir kálfar úr sama eggi
STOKKHÓLMI, 4. febr. —
Árið 1948 bar kýr nokkur á
Vermalandi 2 kálfum, og telst
það varla í frásögur færandi.
Nú hafa hinsvegar verið færð-
ar fullar sönnur á, að kálfarnir
eru komnir úr sama eggi —
Þarna er um feikiathyglisverð-
an atburð að ræða, því að hann
ljettir mjög undir við rann-
sóknir, sem gerðar eru á kúm
í sambandi við mjólkurfram-
leiðsluna. Aðeins einu sinni
áður vita menn til að 2 kálfar
hafi verið komnir úr sama
eggi. Var það vestur í Banda-
rikjunum. +— NTB.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
VARSJÁ, 4. febr. Það er ekki
ýkja langt síðan einn kunn-
asti hérshöfðingi úr her Rússa
Rokossovsky marskálkur, var
gerður hermálaráðherra Pól-
lands. Spáðu menn því þá, að
hann ætti að hirða leifar frels
isins í landinu til handa Rúss-
um. Það kom líka fljótlega á
daginn, í hvers þjónustu mar-
skálkurinn var.
í stuttu máli má segja, að
kostur alls þess, sem kallast gat
frelsi, hafi stórum þrengst við
komu þessa manns, enda var
Rússland fyrirmyndin.
í samræmi við rússnesk lög
í dag voru t.d. samþykkt lög
í Póllandi, þar sem þjálfun
pólska hersins er breytt í sam-
ræmi við þá sem er gildandi í
Rauða hernum.
Lækkaður herskyldualdur
Þannig er herskyldualdur-
inn lækkaður úr 21 í 20 ár,
svo að tala herskyldra manna
eykst allverulega. Þessu er svo
hagað í Rússlandi, og telst það
ærin ástæða, þótt annað kæmi
ekki til.
Liðsmönnum f jölgav
Áður en tjeð lög gengu I
gildi, var liðsíoringjum ekki
heimilt að gegna störfum nema
til fimmtugs. Þessu var nú.
breytt svo, að liðsforingjum er
leyfilegt að gegna herþjónustu
til sextugs.
Rússneski marskálkurinn
viðstaddur
Er lögin voru samþykkt, var
Rokossovsky viðstaddur og
1 fylgdist með atkvæðagreiðsl-
‘ unni, svo að ekki færi framhjá
honum, ef einhver ætlaði að
1 skerast úr leik. Mönnum er best
að gera sjer þess fulla grein, að
þeir eiga að breyta í samræmi
við rússneskan vilja.
Viðskiplasamningur
Rússa og NorSmisnna
IMOSKVU, 4. febrúar. — For-
maður norsku verslunarsendi-
nefndarinnar fór frá Moskvu á
föstudag. Munu samningar hafa
náðst um, að Rússar seldu Norð
mönnum korn, en Norðmenn
seldu þeim fisk og hvalolíu í
staðinn. —* NTB.