Morgunblaðið - 07.02.1950, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.02.1950, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 7. febrúar 1950. Noregsbrjef Frh. af bls. 5. sen heitir hann, og er frá Þránd heimi — skaraði svo vel fram úr, að hann er nú talinn í hópi „stóru meistaranna' ‘frá fornu fari, þeirra Oscar Mathiesen og Ivars Ballangruds. Mótið var haldið í Þráhdheimi og varð Hjálmur fyrstur í öllum hlaup- unum nema einu og hljóp þær vegalengdir sem hann sigraði í á skemmri tíma, en nokkur ann ar maður í veröldinni hefir gert í ár. 1500 metra hljóp hann á 2 mín. 21.6 sek., 5000 m. á 8- 22,1 og 10.000 á 17-06,6. í stig- um var frammistaða hans talin 193.676 og er það nýtt meistara met í Noregi. —Vitanlega verð- ur hann einn af þeim fjórum, sem Norðmenn senda til Hel- sinki til að keppa um Evrópu- meistaratignina þar eftir viku, og til samkeppni um heims- meistaratignina, sem háð verð- ur í Eskiltuna í lok febrúar. -------— Tíðarfarið hefir ver- ið óvenju milt hjer í s.unnan- verðum Noregi í allan vetur; fyrir jól bagaði snjóleysið trjá- flutninga i skógunum, en nú er þó orðinn nægur snjór. En skógarhoggið verður ekki eins mikið í vetur og það hefir ver- ið undanfarið og þýðir það hvortveggia í senn, að ekki verður eins mikið af timbri til notkunar í landinu nje eins mikið framleitt af trjeni eða pappír til útflutnings, sem ver- ið hefir að undanförnu. Samt hefir stjórnin þó ákveðið að hætta að skammta dagblöðun- um pappír, svo sem gert hefir verið síðan í stríðslok, og má þegar sjá merki þess, því að ýms blöð hafa aukið síðufjölda sinn undanfarnar vikur. Papp- írsspamaðu^inn hafði m. a. þau áhrif að ýms blöð, einkum þau stærri, fóru að nota smáletur meira en áður, og „Aftenpost- en“, sem er stærsta og útbreidd asta blað Noregs, notar nú nær eingöngu það sem við köllum „lúsaletur“ á allt blaðið. Það er hálfilla þokkað hjá gömlu fólkl, sem er farið að tapa sjón, en hinsvegar sparar það mik- inn pappír. Menninfru. .vg afskipli Eitt af þeim lagafrumvörpum, sem lögð verða fyrir Stórþing- ið nú, er urn stofnun sjerstakr- ar stofu, er annist menningar- leg samskipti við aðrar þjóðir, í líkingu við það sem „British Council“ gerir. Bæði Danir og Svíar hafa lagt grundvöllinn að þesskonar starfsemi og byggt hana á hvorutveggja í senn: stoð ríkisins og einstakra fyrir- tækja. ísland væri þörf á slíkri stofnun líka, sniðinni við fjár- hagsgetu og stærð þjóðarinnar. Það er menningarleg kynning, í samræmi við starfsemi UNES CO, sem er efst á blaði í þess- ari viðleitni Norðmanna til þess að sýna öðrum þjóðum getu sína, hugsunarhátt og andlega og verklega menningu. Norð- menn spara ekkert til slíks. Und anfarið hafa þeir haft sýningu á málverkum norskra lista- manna í Hollandi og í því sam- bandi hafa verið haldnir norsk- ir hljómleikar og norsk leikrit sýnd. Væri ekki hægt að efna til íslenskra hljómleika og jafn vel leiklistarfarar í höfuðborg- um frændþjóðanna hjer eystra? Það væri kynning, sem kæmi sjer vel. Því að hjer í Skandi- navíu þekkir fólk miklu minna til íslands en íslendingar sjálf- ir halda. 1. febr. 1950. Skúli Skúlason. Skolið á þýskan togara úr lofli CUXHAVEN, 6. febrúar. — S. 1. föstudag skaut f jögurra hreyfla sprengjuflugvjel á 6 þýska togara við Helgoland. Af þessum atburði hafa bresku yf- irvöldin í Cuxhaven fyrirskipað rannsókn. Flugvjel þessi er ó- þekkt, áhafnir togaranna halda því fram, að einkennismerki hennar hafi verið hvít stjarna á bláum grunni. — Reuter. Þeir eru ekki hrifnir af Franco SOFIA, 6. febrúar. — Spænsk- búlgarska fjelagið í Sofíu kjöri í dag nýjan forseta, Constantin Mitchev, sem barðist við her- sveitir Francos í borgarastyrj- öldinnj á Spáni. Segir í yfirliti fjelagsins yfir stcrf þess á sein- asta ári, að ,murgsinnis hafa verið færðar sönnur á heilindi búlgarskra verkamanna í garð spænsku þjóðarinnar og baráttu hennar gegn frönsku hættunni og þeim háska, sem stafar af því, að land hennar verði að styrjaldarvettvangi“. Þjóðverjnm ekki leyft að koma sjer upp her Nazisfahreyfingin fær ekki að rísa upp á ný. STUTTGART, 6. febr. — Mc- Cloy er kominn til Þýskalands aftur frá Washington fyrir 3 dög um. Hjelt hemámsstjórinn ræðu í Stuttgart í dag. Sagði hann, að Bandaríkjamenn vildu Þjóð- verjum vel, og mundu standa að endurreisn landsins, sem og að því, að það tæki eðlilegan sess í samfjelagi þjóðanna jafn skjótt og þjóðin væri þess al- búin og hefði til þe%s ábyrgðar- tilfinningu. Hvatti hann Þjóð- verja til að einbeita sjer að við- fangsefnunum, sem væri mest aðkallandi, atvinnuleysinu og flóttamannavandamálinu, Bandaríkjamenn mundu hjálpa þeim til að leysa þau. Hinsvegar mun Þjóðverjum ekki verða leyft að koma sjer upp her nje flota í náinni fram- tíð, og hver minnsti vísir til nasisma verður barinn niður af alefli, svo að öruggt verði, að nasisminn rísi ekki upp á ný. Um Saarhjeraðið, sagði Mc- Cloy, að reynt yrði að koma í veg fyrir langvarandi deilu Frakka og Þjóðverjá um það. Indonesar ætla að koma sjer upp herskipaflota Ráða yfir mjög fulikominni fiofasföð Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LONDON — Indonesar hafa ákveðið að koma sjer upp her- skipaflota. Hafa þeir nú þegar hafist handa í málinu, enda standa þeir að ýmsu leyti vel að vígi. Þannig er flotastöðin í Surabaya, sem hefur yfir 7.000 starfsmenn, og talin er ein sú fullkomnasta í Suðaustur-Asíu, undir algerum yfirráðum beirra. <s>----------------------------- Pólitík Erfiðasta vandamál Indonesa í sambandi við flotahugmynd- ina, er skortur á þjálfuðum sjó- liðsforingjum. Einnig hefur það vilja brenna við, að þeir, sem komist hafa í áhrifaembætti hjá „flotamálaráðuneytinu", hafa fremur mátt þakka það póli- tískri aðstöðu en kunnáttu. í flotastöðinni í Surabaya eru þrjár þurrkvíar, sem tekið geta allt að 8.000 tonna skip og gert við sex kafbáta í einu. Verndargæslufið á leið fil Sómafilands NEAPEL, 6. febrúar. — í dag heldu 2 skip frá Neapel með lið það innan borðs, sem fyrst á að taka við vemdargæslu í Sómalí landi. Fóru þau til Sikileyjar og munu halda þar kyrru fyrir, uns öldungadeild ítalska þings- ins hefir samþykkt frumvarp það, sem gerir ráð fyrir vernd- argæslu ítala í Sómalilandi. Mun deildin greiða atkvæði um það á morgun (þriðjudag) eða miðvikudag. — Reuter. Litkvikmynd Kjarfans Ó. Bjarnasonar KJARTAN Ó. Bjarnason hefur sýnt litkvikmyndir sýnar und- anfarið í Nýja-Bíó við mjög mikla aðsókn. Ákveðið hafði verið að hætta sýna þær nú eftir helgina, en vegna mikill- ar aðsóknar, verða myndirnar enn sýndar í dag. Bevin gengur á fund forsætisráðherra LONDON 6. íebrúar. — Bevin, utanríkisráðherra Bretlands, fór á fúnd Attlees forsætisráð- herra í dag í fyrsta skifti eftir heimkomu sína af ráðstefnu samveldislandanna í Colombo á Ceyloon. Fyrr í dag hafði Be- vin komið í utanríkisráðuneyt- ið. Búist er við, að skýrsla hans um ráðstefnuna muni verða eina viðfangsefni stjómarinn- ar, er hún kemur saman til fundar á morgun (þriðjudag). [ M»rS-£* Eftir Ed Dodð imifltlltlllfKIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIUIIIIH THE Æy-BIG SAftAE HUNTER, REMINGTON CALHOUW, TME. ) CHERRV... .HE'3 SUDDENLV MILLIONAIRE BIG GAME 'T TURNED ARDENT < HUNTER? WHAT'5 HE COMING k ^ VATIONIST' torr HERE r-OP'. AFTER OVER-HUNTING FOR I OH, OAO, DON’l YEARS. HE'5 CONCERNED ) ASK Mt TC ABOUT SAVING WHAT GAME G GO Wl VH /Oi, * THERE 15 LEET...ANO HE'5 \ TO SOMt COMING HERE NEXT WEEK.' j BEASTt.V / UHi ir tK* TUl" BLH, TON' í OAOt inG, VCrtJ MiCH r íke i.osr — Rögnvaldur Calhoun, mill- jónamæringurinn, sem áður var frægur veiðimaður. Hvað ætlar hann að gera hingað? — Já, hann var áður frægur veiðimaður, en nú hefur hann or^jð mjög áhugasamur um náttúrufriðun. — Þegar hann hafði rænt náttúruna ár eftir ár, veitt, drepið, svo að sums staðar nálg- aðist gereyðingu, þá sá hann loks að sjer og vill nú vernda og friða náttúruna. Hann kem- ur hingað í næstu viku. Heima í skrauthýsi milljóna- mæringsins Rögnvalds Cal- houn: —r* Ó, farðu nú ekki að biðja mig um að fara í ferðalag upp í þessar leiðinlegu fjallauðnir. — En Tona mín, jeg er viss um, að þjer myndi líka við veruna í Týndu skógum. Fjelagsmenn í Hreyfli á 8. hundraS Aöalfundur fjelagsins var síðastl. þriðjudag AÐALFUNDUR Bifreiðastjóra fjelagsins Hreyfill var haldinn þriðjudaginn 31. jan. Á fundinum var lýst úrslit- um allsherjaratkvæðagreiðslu þeirrar er fram fór um kosn- ingu stjórnar og annara trúnað armanna. Stjórn fjelagsins skipa nú: Ingimundur Gestsson, form., Bergsteinn Guðjónsson, vara formaður, Birgir Helgason, gjaldkeri, Reynir Hannesson, ritari, Haukur A. Bogason, Guðbjartur Kristjánsson og Bjarni Guðmundsson, meðstj. Tala fjelagsmanna var um síðustu áramót 762. Hrein eign fjelagsins var 291.000 kr. Ár- gjald fjelagsmanna er krónur 125.00. Samið var um kauphækkun fyrir alla launþega í fjelaginu á s. 1. ári og ökutaxti hækkaður fyrir leigubifreiðar. í eigu fjelagsmanna Hreyfils eru nú um 400 fólksflutnings- bifreiðar. Meirihluti þessara bifreiða eru nú yfir 7 ára gaml- ir, þar sem íjeiagsmenn hafa ekki fengið leyfi fyrir bifreið- um síðan 1946, og þá aðeins leyfður influtningur 36 bifreiða. Hinsvegar hafa fjelagsmenn orðið að sæta því að kaupa um 100 nýjar bifreiðar á „svörtum markaði“ Alls hafa verið flu.ttir inn 400 gjaldmælar í leigubifreið-. ar. Enn vantar 150 mæla til þess að hægt sje að setja gjald mæla í allar leigubifreiðar. — Þessir mælar eru nú fullsmíð- aðir í Svíþjóð, en gjaldeyris- leyfi enn ekk: fengist. - Nigeria Frh. af bls. 7 vekur alltaf geysieftirtekt þeg- ar hann kemur til Enugu til’ að sitja á þinginu. Konurnar hans fá aldrei að koma með honum, ekki einu sinni mestu. eftirlætin. 40 eiginkonur hafa yfirgefið hann. Höfðinginn af Bikom er fyr- ir löngu búinn að slíta barns- sóknum. Síðan Sameinuðu þjóð irnar gerðu honum fyrirspurn um kvennaf.jölda hans, hefir hann gefið konunum sínum leyfi til að hveri'a aftur til föð- urhúsanna. Sagt er að fjörutíu hafi yfir-- gefið hann og um það bil 70 sjeu eftir í kvertnabúrinu. Þær- eru tákn um ríkidæmi hans og virðingu, fremur en siðleysi. Þó að fjölkvæni sje viðurkent: í Nigeríu, fer því aftur sem öðru í þessum heimi. Aðalástæðan fyrir því, er þó ekki viljaskortur, heldur sú, að ekki er nægilegt kvenfólk fyr- ir hendi. Þar sem villimenskan fer óðum þverrandi, svo sem mannfórnir og ófriður á milli j þorpa, e/kst stöðugt f jöldi Jungra manna í landinu. — Og kunnugir segja, að brátt verði ekki til meira en ein kona á ’mann í Nigeríu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.