Morgunblaðið - 07.02.1950, Page 14

Morgunblaðið - 07.02.1950, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 7. febrúar 1950. ... Framhaidssagan 30 BASTIONS-FÓLKIÐ Eftir Margaret Ferguson Svartar hanafjaðrir Eftir AMELIE GODIN 6. „Jæja, er þetta nógu stór- fenglegt fyrir þig“, spurði Mallory. Hún kinkaði kolli. „Jeg hef aldrei sjeð neitt þessu líkt. Utsýnið út um gluggann minn er fallegt, en þetta .. þetta er næstum ó- trúlegt". „Það er ekki oft eins stór- kostlegt eins og nú. En þú mátt ekki fara að temja þjer að reika ein út um klettana eftir myrkur, Sherida. Mjer mundi líka það mjög illa, að vita af þjer einni. Þú verður að lofa najer því a ðfara ekki ein. — Gættu þín. Þarna er hola eftir kanínu“. Vindhviða skelltist á bak hennar, svo að hún missti snöggvast jafnvægið, en Mall- ory rjetti hana við aftur Hún fann að hann greip um hand- legg hennar og undir hann, svo að vindurinn þrýsti henni upp að honum. Snöggvast var hún- einskis annars meðvitandi en að hann hjelt handleggnum um hana, sterkur og stöðugur á milli hennar og klettabrúnar- innar. Hún hafði ekki svarað spurningu hans, og hann hristi hana lítið eitt. „Jeg veit að þú hefur ævin- týraþrá, Sherida, en það er alls ekki hættulaust fyrir þig að fara hingað ein, jafnvel þó að tungsljós sje. Ætlarðu að lofa mjer að gera það ekki?“. „Já, auðvitað lofa jeg því. Mig langar sannarlega ekki til að bæta því á herðar þínar að detta fram af klettunum í myrkrinu. Og þó að það sje fallegt hjerna, held jeg að maður geti orðið blátt áfram hræddur að vera hjer einn. Jeg er ekki orðin nógu vön Corn- wall ennþá“. „Já, Cornwall getur verið nokkuð kuldalegt“, sagði Mall- ory lágt. „En ertu ekki hrædd við einveru, Sherida? Ef til vill veistu hvernig hún getur verið og hefur unnið sigur á henni. En jeg vona samt að þú hafir ekki þurft að þola það“. 5»Jú, jeg held að jeg hafi gert það“, sagði hún og henni fannst hönd hans grípa dálítið þjettar um handlegg hennar „Já, auðvitað hlýturðu að hafa gert það. Þjer hlýtur að hafa fundist þú einmana, þeg- ar þú komst fyrst til Bastions. Mjer fannst jeg sjá það strax og þú komst inn í anddyrið um kvöldið og þurftir að standa augliti til auglits við okkur öll. Við vorum þjer öll ókunn- ugt og eins og óráðin gáta. Það hlýtur að hafa verið erfið stund fyrir þig“. „En það stóð ekki lengi. Þið voruð öll svo vingjarnleg. Jafnvel sjálft húsið var vina- legt“. „Fannst þjer húsið vina- legt?“, spurði hann. „Já, jeg held að það sje það þrátt fyrir dökka bletti á fortíð þess. Ros- anna sagði einhvern tímann að húsið hefði komist óspillt út úr öllum ógöngum fólksins, sem var í sambandi við það. Það undarlega er að Leah hefur aldrei fundist það_ Hún segir að andrúmsloftið í húsinu hafi vond áhrif á hana. Þess vegna' ’t"* { ; ; \ s ; I 'i %! | í j'f jj t'Íftíl'1 hefur hún látið umbreyta her- bergjunum sínum svona gersam lega. Það er nokkurs konar ögrun frá hennar hálfu gagn- vart húsinu, býst jeg við. Mjer hefur alltaf fundist það best fyrir hana að við flyttum frá Bastions, en hún hefur aldrei viljað taka það í mál. Samt finnst mjer leiðinlegt til þess að vita að hún getur ekki fellt við húsið. En hún er ekki fædd og uppalin hjer á Cornwall eins og Rosanna, og það þarf meira en hjátrú okkar og hug- myndaflug til að hafa áhrif á hana“. Þetta var í fyrsta sinn, sem hann hafði minnst á Rosönnu við Sheridu. Henni fannst líka hann frekar vera að tala við sjálfan sig en hana. Hann hjelt enn um handlegg hennar, en horfði út yfir sjóinn. Allt í einu var eins og hann hrykki upp úr hugleiðingum sínum og vildi hrinda þeim frá sjer. „Þjer hlýtur að vera orðið kalt. Við skulum koma inn og fá okkur eitthvað heitt að drekka, ef við getum það án þess að vekja alla í húsinu“. Að baki þeirra stóð húsið, sterkt og örugglega lokað fyrir vindi og myrkri En sú undar- lega tilfinning greip Sheridu að það væru ekki allir í hús- inu sofandi værum blundi, þrátt fyrir það að það sást ekki ljós í neinum glugga. Þau læddust hljóðlega fram hjá berbergjum Leah. hituðu sjer mjólk frammi í eldhúsinu og fóru síðan hljóðlega upp á efri hæðina. Seinna, þegar Sherida fór að hugsa um það, fannst henni þessi yfirdrifna leg. Það var ástæðulaust að varkárni blátt áfram kjána- breiða einhvern leyndardóms- fullan ævintýrablæ yfir jafn hversdagslegan hlut og að líta eftir veikri tík. Enda þótt þau gengu varlega, brakaði sums staðar í stiganum. Það var ekert, sem benti til þess að Le- ah væri ekki steinsofandi. En Sherida vissi að hún var vak- andi. Það var einhver á verði á bak við lokaðar dyrnar. „Góða nótt, Sherida, og þakka þjer fyrir hjálpina, og göngutúrinn. Ef þig langar einhvern tímann aftur til að virða fyrir þjer eitthvað stór- kostlegt frammi á klettunum, þá láttu mig vita. — Jeg skal koma með þjer .... en gleymdu ekki loforðinu. Engar gönguferðir í myrkri“. Hann snerti hana ekki, en benni fannst hann taka um hönd sína og henni fannst eins og undarlegan straum leggja á milli þeirra „Nei, jeg skal ekki gleyma því“, sagði hún. „Góða nótt“. 14. KAFLI. Leah hafði frá því fyrsta neit að að láta færa sjer morgun- verð í rúmið. í rauninni var henni ákaflega illa við allt, sem minnti hana sjálfa og aðra á áð það þyrfti að meðhöndla hana varlega eins og sjúkling. Þegar vinir hennar og -kunn- ingjar sendu henni dýrindis silkinátttreyjur og slæður, herðaklúta, spil og getraunir, bækur og blöð, þá kom á hana harnðeskjulegur svipur og hún sagði við Mallory: „Það er eins og fólki sje ekki nóg að fæt- urnir á mjer sjeu máttlausir, það vill gera mig alla mátt- lausa að heilanum meðtöldum". Allar gjafirnar voru sendar á kirkjubasarinn. Leah notað- ist enn við háa rúmið, sem minnti á spítalarúm, en klukk- an átta á hverjupi morgni var hún komin í stólinn með rauða áklæðinu fyrir endanum á borðstofuborðinu, með silfur- kaffi- og te-könnuna fyrir framan sig. Sherida var fyrst af hinu fólkinu niður til morgunverð- ar þennan morgun. Leah sat ein við borðið og blaðaði raul- andi í litlum brjefabunka, sem var fyrir framan hana. Hún bauð góðan daginn og hjelt á- fram að opna brjefin. Sherida gekk út að glugganum og teyg aði svalt morgunloftið_ „Það er fallegt veður eftir rokið í nótt“, sagði hún. „Það var hræðilega hvasst, en út- sýnið frá klettunum var dá- samlegt. Jeg fór snöggvast þangað með Major St. Aubyn, þegar við vorum búin að ganga frá Judy og hvolpunum henn- ar. Jeg vona að við höfum ekki vakið þig, frú St. Aubyn. Jeg fór út með heitt vatn og annað smávegis“. „Jæja“, sagði Leah og brosti lítið eitt. „Nei, þú gerðir mjer ekkert ónæði. En jeg heyrði einhvern umgang, og jeg var hálf hrædd um að innbrots- þjófar hefðu komist inn og ætluðu að hnupla dósunum hans Mallory". „Mjer þykir það leitt“, sagði Sherida. „Jeg hefði kannske átt að koma inn, en jeg hjelt að þú værir sofandi, af því að við heyrðum ekkert hljóð innan úr herbergjunum þínum“. „Jeg er ekki vön að æpa, þó að jeg heyri umgang á næt- urna“, sagði Leah þurrlega „Þetta skiptir engu máli. — Mallory var hvort er eð kom- inn með Judy á heilann og hann hefur auðvitað ekki get- að ráðið við áhyggjurnar. Jeg vona að hann hafi ekki haldið þjer vakandi lengi. Góðan dag inn, vina mín“. Christine hafði það fyrir sið að koma hljóðlega inn og gera ekki vart við sig, fyrr en ein- hver tók eftir henni. Hún kyssti Leah, en þegar Sherida bauð henni góðan daginn, virti hún hana ekki svars, en leit illúðlega á hana. Hún var föl yfirlitum með dökka bauga í kring um augun. „Kæra barn, en hvað þú ert fölleit í dag“, sagði Leah full umhvggju. „Ertu með höfuð- verk?“. „Nei. Að minnsta kosti ekki lengur. Það er ekkert að mjer annað en það að jeg svaf ekki vel. Það var svo mikill há- vaði í nótt, svo að jeg hafði ekkert næði Þú lást líka lengi vakandi, var það ekki, Leah?“. „Hvað eruð þið að segja? Svaf enginn neitt í nótt, eða hvað“, sagði Mallory um leíð Friðrik leit nú til hliðar og sá hann þá afgamla og keng- bogna kerhngu, sem hjelt á öxi í annarri hendi, en á bakinu bar hún allstóran brennibagga. Hún skjögraði að honum og spurði með skærri titrandi rödd: — Hvað hefur eiginlega gengið hjer á? Friðrik ætlaði að reyna að svara henni, en áður en hann gæti það hafði hún skorið sundur böndin á höndum hans og fótum og sagði: — Já, já, þú þarft ekki að útskýra þetta. Það eru þorpararnir litlu, skógardjöflarnir, strákarnir mm- ir, sem hjer hafa verið að verki. Friðrik vildi fara að segja henni alla söguna, en kerlingin hristi bara hausinn og sagði: — Jeg veit það allt saman, veit það allt. Flýttu þjer bara burt út úr skóginum. Jeg get ekki skilað þjer því sem strákarnir tóku frá þjer, en jeg get bætt þjer það að nokkru og gefið þjer góð ráð. Hún leitaði í pilsvasa sínum nokkra stund og tók upp þrjú pappírsspjöld, eitt gult, eitt flekkótt og eitt hvítt og rjetti honum þau. — Gerðu nú svo vel, taktu við þessum spjöldum og týndu þeim ekki. Taktu nú vel eftir því sem jeg segi. Gakktu beint áfram, þangað til þú kemur út úr skóginum. Þá sjerðu fyrir framan þig stóra konungshöll. Þú skalt fara beint inn um hallarhliðið. Þar fyrir innan sjerðu hænsnakofa sem hefur sjö dyr. Þú skalt fara inn um miðdyrnar, því að þar finnurðu þrjá svarta hana. Þú átt að taka upp hvem han- ann á fætur öðrum og kippa einni fjöður úr stjelinu á hverjum þeirra. Og nú skaltu leggja á minnið það sem jeg segi: Með fjöðrinni úr miðhananum geturðu skrifað á flekk- ótta spjaldið, hvert þú viljir komast. Með stjelfjöður hanans til vinstri geturðu skrifað á gula spjaldið, hvað mikils fje þú óskir í hvert skipti og með stjelfjöður hanans til hægri geturðu óskað þjer að þú verðir fallegasti maður í heiminum. , j TfftfijCT rmj$iGfrkxnnkcxl * staðreynd, að ekkert slíkt væri til í Ameríku. „Nei, mikil ósköp,“ sagði hann, „og það sem meira er Niagara- fossinn myndi slökkva þetta á minna en minútu.“ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimaiitint I»ao, sem hjartanu er kærast, kemur blýanturinn upp uin. ★ , Eruð þið búin að selja húsið ykk- ar?“ „Nei, Þegar við vorum búin að lesa auglýsinguna, sem sölumaðurinn samdi fyrir okkur, hættum við við það. „Það virtist vera nákvæmlega eins og húsið, sem við höfum alltaf verið að leiía að.“ ★ „Ef það væri ekki einn hlutur, sem kæmi í veg fyrir það, myndi jeg kalla bróður þinn sköllóttan lygara." „Hvað er það?“ „Hárið á honum.“ ★ „Þjónn, Jeg hef nákvæmlega fyrir matnum, en því miður ekkert i drykkjupeninga handa yður.“ „Leyfið mjer að laga reikninginn ofurlítið, herra." ★ Skrafhreifni ferðamaðurinn: „Það var svo heitt i Afríku, að hitinn ætl- aði að gera út af við dýrin. Jeg sá hund, sem var að elta kött, og þeir gengu báðir.“ ★ Ameríkani sá eitt sinrx Vesúvíus gjósa, og vai' honum þá bent á þá Góð gleraugu eru fyrir öllu. | Afgreiðum flest gleraugnarecept = og gerum við gleraugu. • Augun þjer hvílið með gler- | augu frá T Ý L I H. F. Austurstræti 20. SÖLL’BíxÐ. VIÐGERÐIK, VOGIR I Reykjavik og nágrenni lánnm við sjálfvxrkar búðarvogir a meðan á viðgerð stendur. Hverfisgötu 49. Sími 81370. Ólafur GUlcoon & Co. h.f. EF LOFTVR GETVR ÞAÐ EKK ÞA HVER?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.