Morgunblaðið - 21.03.1950, Side 7

Morgunblaðið - 21.03.1950, Side 7
Þriðjudagur 21. mars 1950. MORGUNBLAÐ19 7 Þjóðnýfingin skapar ný og háttlaunuð opinber störf I HINUM nýafstöðnu kosning- um í Bretlandi, kom í ljós, að fylgi Verkamnnaflokksins fer hart minnkandi þar í landi, og máttu jafnaðarmenn, að margra áliti, hrósa happi yfir að halda meirihluta í þinginu. Þær á- stæður, sem kunna að liggja til grundvallar þessari fylgis- sukningu jafnaðarmanna, eru eflaust margar og misjafnar að eðli, — en ein er þó sú, er mestu hefir' valdið fylgishrun- inu, og hún er hin vægðarlausa þjóðnýtingarstefna breska Verkamannaflokksins. Viðvíkj andi hinu takmarkalausa þjóð- nýtingarbrölti bresku jafnaðar- mannanna, hefir margt komið fram í framkvæmdinni, sem almenningur í landinu, og ekki síst innan vjebanda Verka- mannaflokksins, hefir ekki get að sætt sig við, og kemur ein hlið þeirrar óánægju fram í grein þeirri er fer hjer á eftir í lauslegri þýðingu, en hún er skrifuð stuttu fyrir kosningarn ar, og er eftir Robert Brown, frjettaritara Reuters. London: Ritdeilur. Sú ákvörðun 52ja ára gamals námumannaleiðtoga, að leggja niður starfa sinn í stjettasam- bandi sínu, til þess að taka við stöðu á vegum stjórnarinnar, er færði honum 4000 sterlingsp. árstekjur, með því að taka sæti í stjórn hinna þjóðnýttu kola- náma, hefir vakið upp löngu linðar ritdeilur. .,Sto!ið of mörgum leiðtogum“. Gagnrýnendurnir halda því fram, að stjórnin hafi þegar „stolið“ allt of mörgum af mik- ilhæfustu leiðtogum verkalýðs- samtakanna, með því að setja þá í stöður, í ráðum þeim er hafa verið stofnuð, til þess að hafa á hendi stjórn kolanám- anna, járnbrautanna, raforku- veranna og allskonar annarra iðnaðarfyrirtækja, sem hafa ver íð þjóðnýtt af stjórninni, siðan Verkamannaflokurinn tók við stjórn 1945. Alvarleg aðvörun til verkalýðssamtakanna. Það var skipan James Bow- man, sem framkvæmdarstjóra hjeraðsráðsins, sem hefir á hendi framkvæmdastjórn kola- námuiðnaðarins í norð-vestur- hluta Englands, sem varð til þess að vekja upp þetta mál. Bowman var varaforseti námu- mannasambandsins breska, og var fulltrúi þess í T. U. C. A síðustu árum hefir Bowman ver ið talinn og það af meðlimum innan allra pólitískra flokka, sem einn af allra hæfustu mönn um meðal forustumanna verka- lýðssamtakanna. Hefur það jafnframt verið álit manna, að Bowman komi til með að standa framarlega í alþjóðamálum, sem talsmaður fyrir skipulagn- ingu vinnunnar. Sú ákvörðun hans að láta af störfum í þjón- ustu námumannasambandsins, kom því öllum á óvart. Dag blaðið „Machester Guardian“ Breskir ýðsleiStoi Eftirsjá — en stolt. Verkalýðssamtökin hafa fylgst með hvörfum þessara leiðtoga sinna, frá störfum innan vje- banda sinna með eftirsjá, sem þó hefir verið blandin stolti. Verkalýðssamtökin börðust fyr- ir þjóðnýtingu og vonuðUst eft- ir viðurkenningu á þýðingu þeirra viðvíkjandi efnahagsmál um þjóðarinnar, með því að vera beðin um að leggja fram krafta, til þess að skapa henni árangur. Enn leita þeir ráða hjá Bevin. sagði um þetta vnál, „að það væri alvarleg aðvörun til verka lýðssamtakanna í heild“. Fyrsta tjónið. Fyrsta stóra tjónið fyrir verkalýðssamtokin, var það er Ernest Bevin gerðist alþingis- maður. En þann dag í dag, þótt nærfellt 10 ár sjeu liðin frá því að hann tók sæti í stjórninni, koma verkalýðsleiðtogar til hans til þess að leita ráða og stuðnings, er sjerstaklega erfið vandamál steðja að þeim. George Isaacs, atvinnumálaráðherra. Árið 1945 varð samband starfandi prentara og aðstoðar- jnanna þeirra, að sjá af aðal- ritara sínum, George Isaacs, þegar hann var gerður að at- vinnumálaráðh. í bresku jafn- aðarmannastjórninni. Lord Citrine — 8500 punda árstekjur. — Árið 1946 hvarf Sir Walter Citrine (nú Lord Citrine) frá starfa sínum sem aðalritari T. U. C., en þar hafði hann starfað í 20 ár, og tók við stöðu í framkvæmdaráði hinna þjóð- nýttu kolanáma. Nú hefur hann verið gerður að framkvæmdastjóra Raforku- málaráðuneytisins, en það gef- ur honum 8500 strlingspund í árstekjur. Eby Edwards, Jack Benstead, Sir Joseph Hallsworth. EBBY Edwards lauk sínum 15 ára starfsferli, sem leiðtogi breskra námumanna, er hann árið 1946 var skipaður í fram- kvæmdaráð kolanámanna. Árið eftir hætti Jack Benstead störf- um, sem aðalritari sambands járnbrautarmanna, og tók við stöðu í framkvæmdaráði sam- göngumála, og sama ár hætti Sir Joseph Hallsworth, sem er einn með glæsilegri þingmanns- efnum breska verkalýðssamtak- anna, störfum fyrir flutninga- sambandið, en þar hafði hann starfað í 30 ár, og var skipað- ur í framkvæmdaráð kolanám- anna. Síðan var hann færður í raforkumálaráðuneytið, sem framkvæmdastjóri fyrir norð- vestur England. jjiins Fómirnar veikja samböndin. Mönnum er nú orðið ljóst að hvörf hinna mikilhæfu manna, frá störfum innan verkalýðs- hreyfingarinnar, leiðir til þess að veikja hana. Ellegar eins og stórblaðið Manchester Guardian orðaði það, að hinar stöðugu fórnir á leiðtogum verkalýðs- samtakanna, ,,er einskonar vjel ræn ofþensla, sem hlýtur að leiða að Ijelegri framleiðslu“. Hvað gera Verkalýðs- samtökin? „Gera verkalýðssamtökin nokkuð til þess að örfa unga, efnilega menn til þess að undir- búa sig til þess að geta verið hæfir til þess að gerast eftir- menn Mr. Bowman og þeirra annarra, sem eins og hann, hafa horfið frá störfum innan verka- lýðssamtakanna, til þess að taka við stöðum í hinum ýmsu í’áðum hins þjóðnýtta iðnaðar?“ bætir blaðið við: „Það eitt er að vísu alvarlegt málefni, að Mr. Bowman getur sjeð sjer fært að hverfa frá störfum fyr ir námumannasambandið, jafn viðsjárverðum tímum, en það sem enn alvarlegra er, ér það, að hvarf eins manns, geti orðið þess valdandi að veikja öfluga hreyfingu“ Verkalýðssamböndin svara þessu á þá leið, að samböndin veiti skólastyrki til efnilegra ungra manna innan verkalýðs- samtakanna, til þess að þeim geti verið fært að stunda nám í hinum ýmsu verklegu skólum samtakanna og jafnframt í Ox- fordháskólanum. Einnig hafa þau í undirbúningi að stofna til námskeiða í öllum stórborgum landsins, þar sem mönnum gefst kostur á að læra allskon- ar skipulagsstarfsemi og frjetta þjónustu. 8500 pund eða 1500 pund. Meðal almennings hefir mik- ið verið gert af því að gera samanburð á kaupi því er verka lýðssamtökin greiða leiðtogum sínum, og kaupi, sem greitt er til starfsmanna hinna nýskip- uðu ráða hins þjóðnýtta iðnað- ar. . Hinar 8500 sterlingspunda árstekjur Lord Citrine, eru næstum því átta sinnum meiri, heldur en hann hafði sem aðal- Framh. á bls. 8. Svar fll ÞorvaEd ar Arnasonar ÞORVALDUR ÁRNASON skatt -stjóri í Hafnarfirði hefir nú tvívegis tekið sjer penna í hönd til þess að rita um kirkjumál. Hann er fullur vandlætingar og gremju við óháða Fríkirkju- söfnuðinn í Reykjavík. Ekki er það til þess að bera hönd fyrir höfuð safnaðarins að jeg svara Þorvaldi nokkrum orðum. Veit jeg að þessi söfnuður þótt ung- ur sje og fámennur, hefir nóg ráð til þess sjált'ur, ef honum þykir ástæða til. En Þorvaldur ræðst líka að mjer og Kirkju- blaðinu í þessum skrifum sin- um og þykir mjer þessvegna rjett að gera grein fyrir afstöðu minni í þessum rhálum. þótt jeg hinsvegar viti að lesendur greina Þorvaldar finni að hann skortir rökín fyrir þeim sakar- giftum, sem hann ber á mig. Það er ekki úr vegi að kynna sjer eðli mála og málavöxtu alla, áður en farið er að skrifa opinberlega um viðkvæm mál. Þetta virðist mjer Þorvaldur ekki hafa gjört. I grein sinni í Mbl. 25. febr., þ. á., virðist hann bera mjer á brýn að jég hafi brugðist skyldum mínum sem biskup landsins. Það er í næstu málsgrein eftir að hann hefir lýst því yfir að sjer virð- ist vanta „kristilegan streng“ í sjera Emil Björnsson, sem nauðsynlegur sje í öllum við- skiptum manna á milli. Þorvaldu’’ segir: ,,Og á ekki biskup landsins — yfirmaður kirkjunnar að taka í taumana, þegar slíkt á sjer stað (stofnun óháða fríkirkjusafnaðarins)? Og síðar ... „biskup verður þó að vera húsbóndi á sínu heimili" .... Þorvaldur hefði átt að vita, að biskup landsins, hefir ekki skyldur og ekki rjett til þess að skifta sjer af málum Frí- kirkjusafnaðarins. Veit ekki Þorvaldur að fríkirkjusöfnuð- urinn hefir sagt sig úr lögum við þjóðkirkjuna og þá auð- vitað um leið biskup hennar. Þessi sakaigift Þorvaldar fell- ur því um sjálfa sig. Jeg er enginn húsbóndi á heimili frí- kirkjusafnaðarins. I grein sinni í Mbl. 17. þ. m., sem hann nefnir „Greinin í Kirkjublaðinu" — skrifar Þor- valdur af óskiljanlegri fljót- færni þó ekki sje meira sagt. Kirkjublaðsgrein sú sem hann talar um er skrifuð af fjdlstu hógværð og rjettsýni á þessum málum. Hann segir að þar sje dreginn taumur annars aðilj- ans. Greinin heldur fram þeim málstað sem að dómi blaðsins er rjettastur og sannastur. Jeg hefi annars ekki neitt látið í ljós um skoðanir mínar á prestskosningu fríkirkju- safnaðarins og afleiðinum henn -ar. Jeg kom á engan hátt að þeim málum Jeg hefi vígt sjera Emil Björnsson til safnaðar síns eftir að hann hafði af rjett- um yfirvöldum hlotið staðfest- ingu sem forstöðumaður safn- aðarins. Jeg gjörði þáð með gleði, því að jeg hefi trú á því að þessi efnilegi og ágæti ungi maður, reynist góður stárfsmað -ur kristinnar kirkju. Kirkjublaðsgreinin er ekki skrifuð til þess að kljúfa og súndra, heldur til þess að styðja að einingu innan fríkirkju- safnaðarins eins og þessi orð greinarinnar sanna, en þau eru höfuðatriði að því er varðar til- gang þessarar greinar: „Væri æskilegt, að þær við- ræður mættu leiða til þess," að, f ríkirk j usöínuðurinn þyrfii, ekki að klofna í sundur, held- ur mætti takast að finna sam- komulagsgrundvöll á þá lund, að hinn nýi söfnuður hjeldi á- fram að vera í fríkirkjusöfn- uðinum og greiða þannig gjöl 1. sín eins og áður, en fengi jafn- framt fullan rjett til afnota sf Fríkirkjunni á svipaðan hátt og þeir, sem leysa sóknarband inn, -an þjóðkirkjunnar halda þrátt fyrir það rjettinum til sóknar- kirkju sinnar“. Og síðar .... „Mætti þar miklu um orka góð- gjarnir menn og hógværir inn- an beggja safnaðanna, ef þeir vildu beita sjer að því að vinna, að skynsamlegum sáttum tiþ sóma og gagns báðum aðilum“. Það er þessi grein, sem Þor- valdur segir um að sje „full af fyrnum og blekkingum í garð hins nýkjörna prests og meiri hluta safnaðarstjórnar frí- kirkjusafnaðarins“. — Sjera Þorsteinn Björnsson er ekki nefndur á nafn í greininni og hvergi að honum vikið. Mjer hefir ævinlega verið hlýtt til fríkirkjunnar í Reykja vík og hefir verið hin bróður- legasta og besta samvinna milli fríkirkjusafnaðarins og saínaða þjóðkirkjunnar á liðnum árum. Það er óhætt að fullyrða að þjóðkirkjan hefir gleymt en ekki erft þótt ýmsir af hennar ágætu meðlimum tækju sig sarhan og mvnduðu fríkirkju- söfnuðinn á sínum tima, og þakkarvert að stjórnarskráin gefur öllum mönnum frelsi til þess að stofna söfnuði og dýrka guð á þann hátt sem þeim best hentar. Mjer virðist Þorvarldur líta of myrkum augum á atburðinn í fríkirkjusófnuðinum. Fólkið, sem óskað hefir eftir prests- þjónustu sjera Emils Björnsson ar hefir ekki klofið sig út úr söfnuðinum. Það óskar að vera þar áfram og vill greiða hin- um nýkjörna presti safnaðarins sinn hluta af launum hans eins og ekkert hefði í skorist. Mjer virðist það koma úr hörðustu átt að menn úr fríkirkjusöfn- uðinum, sem sjálfur er grund- vallaður á klofningi úr þjöð- kirkjunni, taka svona hart á því sem fram hefir farið. Hins- vegar veit íeg að fjöldi manna karla og kvenna sem fríkirkju- söfnuðinum tilheyra líta allt öðrum augum á þetta mál. Greinar Þorvaldar Árnason- ar eru ekki til þess fallnar að, sameina. ’ Þær eru á meðal hinna utanaðkomandi afla, sem óheill og sundrung hafa valdið í málum fríkirkjúsafnaðarins, og erin ér tími fyrif góðgj arna og hógværa menn að miðla máluml , Sigurgeir Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.