Morgunblaðið - 26.04.1950, Side 8

Morgunblaðið - 26.04.1950, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 26.1 apríl 1950 WglltlHðMfc Otg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgCuna.X Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlíinds, í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók, Kapphlaupið um misnotkun 1. maí JAFNÁN þegar hátíðisdagur verkamanna, 1. maí, nálgast upphefst rimma milli kommúnista og Alþýðuflokksmanna i’m það, hver skuli hafa forystu um hátíðahöld dagsins. — Raunar stendur þessi deila fyrst og fremst um það, hvor ílokkurinn eigi að fá tækifæri til þess að misnota hinn al- inenna hátíðisdag launþega, kommúnistar eða kratar. Sagan hefur sýnt það að báðir þessir flokkar eiga þá ósk heitasta að flokksmerkja sjer verkalýðssamtökin og beita þeim fyrir hinn pólitíska stríðsvagn sinn. Kommúnistar hafa verið ofan á í verkalýðsbaráttunni í mörgum hinna stærstu verkalýðsfjelaga allmörg undanfarin ár. Hafa þeir óspart r.eytt þeirrar aðstöðu sinnar. Frægast er það þó er þeir ljetu verkalýðsfjelög í Reykjavík boða til æsingafundar þann 30. mars s.l. ár í sambandi við þýðingarmikið utanríkismál, sem Alþingi hafði til meðferðar. Ekki alls fyrir löngu ljetu kommúmstar verkalýðsfjelögin einnig standa fyrir fundi í Reykjavík, sem hafa átti það hlutverk að undirbúa stofnun samtaka, sem notuð skyldu til þess að hindra framkvæmd löglegra dóma, er kveðnir höfðu verið upp yfir nokkrum grjótkösturum og ofbeldisseggjum. Þannig noía kommúnistar verkalýðssamtökin. Alþýðaflokkurinn aðhyllist ekki Moskvalínuna og tekur þess vegna engan þátt í misnotkun verkalýðssamtakanna á Islandi í þeim tilgangi að þjóna hagsmunum Rússa. Þess vegna hefur hann unnið með öðrum lýðræðisflokkum að vtanríkis- og öryggismálum íslendinga af heilindum og drengskap. Að vísu hafa einstakir undanvillingar í liði hans hlaupið yfir á snæri kommúnista í þessum málum, en það hefur lítt komið að sök nema þá helst fyrir samheldni flokks- ins sjálfs. Engu að síður er Alþýðuflokkurinn þess reiðubúinn að rnisnota verkalýðssamtökin í þágu flokkspólitískra hagsmuna sinna. Eins lengi og hann gat barðist hann gegn því að þau yrðu leyst úr sambandi við flokkssamtök sín. Alþýðuflokks- menn reyndu í lengstu lög að binda full rjettindi innan verkalýðsfjelaganna því skilyrði að meðlimir þeirra væru jafnframt flokksbundnir í Alþýðuflokknum. Sjálfstæðismenn fengu það þrælaákvæði afnumið. Laun- þegar fengu full rjettindi innan samtaka sinna, hvar sem þeir stóðu í stjórnmálaflokki. Afstaða Sjálfstæðismanna til launþegasamtakanna er þessi: - C.lfjWl1-- Launþegasamtökin eiga að vera opin fólki, hvar sem það stendur í stjórnmálaflokki. Þau eiga að vera til vegna hags- rnuna Iaunþeganna sjálfra, en ekki vegna pólitískra spekú- lanta. Það á þess vegna hvorki að nota þau til þess að berj- ast fyrir framkvæmd Moskvalínunnar í öryggismálum ís- lendinga nje til þess að hressa upp á hið hripleka flokks- skrifli kratanna. Fólkið innan launþegasamtakanna tilheyrir cllum stjórnmálaflokkum. Það er þess vegna móðgun við það að einstakir stjórnmálaflokkar merki sjer samtök þess og beiti þeim fyrir stríðsvagn sinn. Hinir sósíalistisku flokkar spyrja stundum að því í fá- visku sinni, í hverju barátta Sjálfstæðismanna fyrir hags- munum launþega, sjómanna og verkamanna, sje falin. Svarið er mjög nærtækt. Afkoma verkamannsins og sjó- mannsins byggist fyrst og fremst á því, að þeir hafi góð og fullkomin atvinnutæki og hafi varanlega atvinnu, sem skapi þeim mannsæmandi lífskjör. Sjálfstæðismenn hafa haft um það alla forystu bæði á Alþingi, í ríkisstjórn og í athafnalífinu yfirleitt, að bæta atvinnutækin, fjölga þeim , og skapa breiðari og tryggari grundvöll undir atvinnulífið. Þetta er staðreynd, sem allir íslendingar þekkja. Það er til þess að treysta rekstur þessara atvinnutækja og afkomu alls , almennings, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt þátt í þeim láðstöfunum, sem Alþingi hefur nýlega samþykkt til við- ,• reisnar og sköpunar jafnvægis í efnahagsmálum þjóðarinnar. (í>) íslendingum er það ekki síður nauðsynlegt að skilja nauð- i '!ávn þeirra ráðstafana og hjálpa til við framkvæmd þeirra en trúa á nauðsyn atvinnulífsumbótanna á liðnum árum. u?ar i .4 £§ UrlfaéVmíÁ OR DAGLEGA LÍFINU Pokaleg framkoma „MARGT er skrítið í kýrhausn um“ skrifar „Skyrhákur“ í stuttu en ágætu brjefi. „Jeg fæ ekki keypt skyr í mjólkurbúð- inni, nema jeg komi með ílát undir það, eða pappír, en kaupi jeg þar tvö vínarbrauð, fæ jeg tíu punda poka. Þó eru þau líka frá samsölunni. Er þetta ekki skrítið?“ Allt er best í hófi V. G. hefir sent Daglega lífinu línu um minningargreinar og langar greinar í blöðum. Hann segir: „Telja má fagran sið og góð- an að minnast látinna manna með greinum í dagblöðum, þeg- ar í hófi er. En öllu má ofgera. 1—2 dálkar, nema um sjerstaka yfirburði eðá afbragð merkra manna sje að ræða. Og sama eða svipað þessu ætti að gilda um málefni þau öll, sem ekki eru margbrotin. Greinar stuttar, eða skiptar í pósta eftir efni, munu flestir lesa með athygli. En margir munu hlaupa yfir eða sneiða alveg hjá langlokunum Ieiðin- legu. Þar má oftast búast við hálfdönskum embættastil og ó- ljósum rökum, ellegar lofi eða lasti, langt úr hófi og miklu stagli endurtekninga“. Formáli ferðasögu Hvaða atburðir liggja til þess, að útlendingar ákveða, oft með litlum fyrirvara, að heim- Þegar farið er að rita langt-Isækja Island? Wayne Mineau mál um tvítuga menn og nið- breski blaðamaðurinn, sem hing ur að ungbörnum, eins og sjest hefir, þá vakna spurningarnar: að kom í fyrrasumar í boði Flug fjelags íslands og þessir dálk- Verður hægt að rita greinar um ar gátu um s. 1. sunnudag, seg nærri alla menn, sem andast? Eða má ætlast til þess, að rit- stjórar geti eða vilji ljá rúm fyrir langar greinar um marga æskumenn, eða eldra fólk, sem þeir hafa ef til vill aldrei sjeð nje heyrt getið að afreksverk- um neinum? • Skotið yfir mark „SJEST hafa oft greinar á 2, 3, 4 og 5 dálkum blaða, eftir góða meðalmenn. Held jeg, að mörgum greinanna sje skotið yfir mark. Býst við, að fleiri en jeg þreytist eða forðist að pæla gegnum allt það væntan- lega skrum, orðastagl og endur- tekningar. Við þá menn, sem koma með slíkar greinar, vil jeg að rit- stjórar segi: Farðu heim, góð- urinn minn, og styttu grein þína í einn eða hálfan dálk, svo skal jeg taka hana. • Langlokurnar leiðinlegar „HÁMARK fyrir almennar ir svo frá: „Jeg var á skemmtigöngu á Hampstead-heiði og mætti þar lágvöxnum, viðmótsþýðum manni, sem spurði til vegarins til Kenwood. Þetta var íslend- ingur, sem kominn var í fyrstu ferð sína til Englands. Við röbbuðum saman stundarkorn og skildum svo. • Heyrt í strætó „OG eftir það rak hver tilvilj- unin aðra. Daginn eftir viðtal okkar var jeg staddur í stræt- isvagni og heyrði einn farþeg- anna segja við kunningja sinn: „í ár ætlum við að reyna nýj- ar slóðir. Jeg ætla með fjöl- skylduna í tveggja vikna ferða- lag til íslands". Næstu sjö dagana rakst jeg á þrjár aðrar fjölskyldur, sem ætluðu að eyða frídögunum í „hinu kalda norðri“. • Hverir, eldfjöll, sólskin „ÞETTA vakti forvitni mína. minningagreinar ætti að veraJeg hugsaði með mjer: Hvað veldur hrifningu sumra manna og áhuga þeirra á þessu landi, sem fæstir muna þó sjálfsagt eftir, þegar þeir velta fyrir sjer, hvar best sje að eyða sumar- levfinu? Svo jeg sló upp í alfræðiorða- bókinni og las um land með heitum hverum og eldfjöllum, sólskini og hraunbreiðum — landið þar sem elsta þing heimsins hefir aðsetur“. Nokkrum dögum síðar, segir Wayne Mineau að lokum, var hann kominn til Lundúna til viðræðna við íslenska embætt- ismenn þar. Þeir fræddu hann um landið og þjdðina, og svo barst boðið um að heimsækja ísland. ,,Og auðvitað tók jeg því tveim höndum“, segir blaða- maðurinn. Lífið er enginn leikur FÓLKIÐ, sem vill kunna sín, hefir áhyggjur þessa dagana- Spurningin er: Eiffa menn að vera samkvæmisklæddir á „síðari frumsýningunum" í Þjóðleikhúsinu? Er frumsýn- ingin, sem raunar engin frum- sýning er, að öðru leyti en því að ráðamennirnir hafa ákveðið, að hún skuli heita því nafni, svo mikil frumsýning, að það taki því að mæta til hennar í samkvæmisfötum? (Jeg vona að þetta skiliist). Eða á mað- ur bara að koma klæddur eins og venjuleg blók, hugsandi sem svo, að „frumsvningin“, sem fylgir frumsvningunni, sje nafn ið eitt og eintómt plat? Svar (samkvæmt upplýsing- um skrifstofu Þjóðleikhússins): Fólk ræður því alveg sjálft. Viðbótarupplýsingar: Á ann- ari „frumsýningu“ Fialla-Ev- vindar s. 1. sunnudagskvöld voru sumir gestanna í viðhafn- arklæðnaði. aðrir { venjuleg- um, þokkalef'um fötum. — Og sagan endurtók sig á síðari ,.frumsýninc'u“ Nvársnæturinn ar í fyrrakvöld. iMnmiiiiniMM MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Enn slafar hæffa af segulmðnnuðum lumlunlulfum Eftir Hubert Stehr, frjettamann Reuters. HAMBORG: — Undan strönd- um Þýskalands ógnar f jöldi segulmagnaðra tundurdufla öllum siglingum, sem ekki eru um þær skipaleiðir, er slædd- ar hafa verið. Frá ársbyrjun 1948 hafa tundurdufl sökkt eða valdið skemmdum á 21 kaup- skipi undan þýsku ströndinni. Meiri hluti þessara skipa var utan þeirra siglingaleiða, sem slæddar hafa verið. • • SEGULMÖGNUÐU TUNDURDUFLIN FYRIR um 4 mánuðum rakst 10.000 smál. kaupskip á tund- urdufl 30 mílur N.-V. af Wes- er. í febrúar s. 1. rakst vitaskip og smáskip á tundurdufl 40 mílur norð-austur af Kiel. Sjerfræðingar telja, að þrjár tegundir tundurdufla sje í sjónum undan Þýskalands- ströndum, en það eru aðeins segulmögnuðu tundurduflin, sem eru þeim skipum hættuleg, sem sigla utan við slæddar sigl ingaleiðir. Þessi tundurdufl liggja á sjávarbotni, og eru þau svo gerð, að ekki er víst, að þau springi, er fyrstu skipin sigla yfir þau, heldur þegar tiltekinn fjöldi hefir farið hjá- • • ÞARF AÐ MARGSLÆÐA VEGNA þessa kænlega útbún- aðar er nauðsynlegt að slæða staðinn 13 sinnum, þar til full- yrt verður, að þar sje ekki framar nein tundurduflahætta. Þegar þetta er athugað, þá ligg ur í augum uppi, að það svæði, sem tundurduflaslæðararnir verða að fara yfir, er geysivíð- áttu mikið, og tekur því lang- an tíma að slæða siglingaleið- irnar, svo að öruggt sje. • • 18 SLÆÐARAR SKIPIN, sem slæða eftir tund- urduflunum undan ströndum Þýskalands hafa bækistöðvar sínar í Cuxhaven. í þessum flota eru 18 tundurduflaslæð- arar og hjálparskip með 600 manna þýskri áhöfn alls. Tundurduflaslæðararnir eru lítil trjeskip um 100 smál. að stærð. Þeir eru 130 feta langir og rista 514 fet. Þeir draga á eftir sjer rafmagnsþræði, svo að hvert það tundurdufl, sem þræðirnir fara yfir, springur fyrir aftan slæðarana. • • MARGAR LEIÐIR SLÆDDAR SKÖMMU eftir lok heimsstyrj- aldarinnar tók breski flotinn að vinna að ónýtingu tundurdufl- anna við strendur Þýskalands og hafði í sínu liði margar deild ir tundurduflaslæðara úr þýska flotanum fyrrverandi. í árslok 1947 var því lýst yfir, að helstu hafnirnar væri öruggar orðnar og nokkrar siglingaleiðir til Norðursjávar hefði verið slæddar. Þessi floti slæðingarskipa var svo minnk- aður í janúar 1948. Og það er alltaf unnið af alefli að hreins- un siglingaleiða við strendur Þýskalands. • • ENGINN IIEFIR LÁTIST ÞÓTT mennirnir sjeu ótrauðir, þá verður því ekki í móti mælt, að starfi þeirra er ákafléga hættulegur. Samt hefir ekkert dauðaslys hent enn, og mun það aðallega að þakka sjerstök- um öryggisútbúnaði. Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.