Morgunblaðið - 04.08.1950, Page 6

Morgunblaðið - 04.08.1950, Page 6
6 T1 WORGUNBLÆÐIB Föstudagur 4. ágiist 1950 fdorMiniltlðdtb vim.linMim ,-|R DAGLEGA LlFINU Otg.: HI. Arvakur, Reykjavlk. rramkv.stj.: Sigfús Jónsson. titstjóri: Valtýr Stefánsson (&byrg8aim,l Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. luglýsingar: Arnl Garðar Kristinsson. Ristjóm, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstrœti 8. — Sími 1600. Lesbók: Arni óla, aimi 8043. Axkriftargjald kr. 14.00 á mánuði, t lauaaaðla M aura aintakið. 83 aura meO Lcsbók. „Brjóstvörn friðarins“ og Stokkhólmsávarpið FIMTA HERDEILDIN hjer á landi hefir gefist upp við áróð- tir sinn með Stokkhóbnsávarpið. Hann hefir ekki svarað kostnaði. Svo tiltölulega fáir, sem hafa kært sig um, að skrifn undir skuldbindinguna um það, að þjóna kommúnista- flokknum til skemdaverka, eftir fyrirskipunum austanað Foringjar hinnar íslensku Fimtu herdeildar hafa þó gert tilraunir til þess, sýnt viðleitni í þjónustunni, í því sem öðru Eftir að upplýst var orðið hvað Moskvastjórnin ætlaðist til af þeim mönnum, sem ljetu tilleiðast að skrifa undir ávarpið, hefir fjöldi manna á Norðurlöndum afturkallað undirskrift sína. Þ. 30. fyrra mánaðar hafði t.d. einu dag- blaðanna í Kaupmannahöfn borist tilmæli frá 14.567 undir skrifendum, að blaðið gengist fyrir því, að nöfn þeirra yTðu strikuð út af undirskriftalistunum. ★ Frá því hefir verið sagt áður hjer í blaðinu, að aðalmál gagn Moskvastjórnarinnar, „Pravda“, hefir lýst því yfir, að Moskvastjórnin líti svo á að allir þeir, sem undirrita ávarp þetta skoðist skuldbundnir til þess að vera reiðubúnir til skemdaverka gegn þjóð sinni, þegar Fimtu herdeildirnar í Vestur Evrópu æskja þess. í löndunum vestan Járntjalds er undirskriftasmölun 'þessi því liðskönnun kommúnista- flokksins. Austur í Rússlandi þarf enga slíka líðskönnun, ellegar rjettara sagt, hún er óframkvæmanleg. Vegna þess, að þar þorir enginn, sem hirðir um líf og limi, annað en að hlýða íyrirskipunum stjórnarvaldanna í einu og öllu M.a. að skrifa undir þetta ávarp, þegar þess er óskað á æðstu stöðum. Fyrst í stað lagði Sovjetstjórnin ekki áherslu á, að láta Rússa eða fólkið í Leppríkjunum skrifa undir. Það var ekki fyrr en innrás kommúnista í Suður Kóreu hófst með rúss neskum vopnum, að komin var röðin að alþýðunni þar eystra kominn var tími til að uppnefna hina rússnesku einræðis- stjórn sem „verndara friðarins“. Jafnskjótt og rússneskar fallbyssur voru notaðar til frið- rofanna í Kóreu, var hafin hin svonefnda „friðarsókn“ í Rússlandi, með fundahöldum, brauki og bramli, þar sem því var haldið fram, að Moskvastjórnin væri „Brjóstvörn frið- arins“ eins og Pravda komst að orði, en Jósep Stalin væri hinn ljómandi merkisberi friðarsóknarinnar. Þess var ekk' getið í því sambandi, að hinn holdi klæddi friðarengill hafði viðurkent, að hann gæti stöðvað styrjöldina í Kóreu, en kærði sig ekki um það. Sömuleiðis ljet Pravda þess getið, að hundrað miljónir manna hefðu undirritað hið glæsilega friðarávarp, sem kent er við höfuðborg Svía. En þeir sem hefðu látið nöfn sín undir ávarpið, hefðu með því skuldbundið sig til þess að auka afköst sín í verksmiðjum og vopnasmiðjum Sovjet- ríkjanna, til þess að auka styrk þjóðarinnar. En vitað er, að Sovjetstjórnin hefir a. m. k. 3 miljónir manna undir vopn um, og framleiðsla hennar er fyrst og fremst við það miðuð, að þessi mikli her verði sem mest vígbúinn. ★ Þegar „friðarsókn“ sú, sem kommúnistar hafa efnt til, í sambandi við þetta margumræddt ávarp, er skoðuð niður í kjölinn, kemur það í ljós, að undirskriftasmölun sú sem þeir hafa unnið að, er prófraun á það, hvaða fylgismenr. þeir hafa í lýðfrjálsum löndum, sem þeir geta treyst til hverskonar óhæfuverka sem þeim lýst. En innan Sovjetríkjanna er „friðarsóknin" notuð, til þess að herða á þrældómi verkamanna við vígbúnaðariðjuna. Þó þessi tvöfeldni kommúnistanna, jafnt æðri sem lægri, sje hverjum manni kunn orðin, haggar það ekki hlýðni og auðsveipni Fimtu herdeildarmannanna. Enda verða þeir, sem innritaðir eru í deildir herveldis, að hlýða boði og banni yfirboðara sinna. Jafnvel þegar þeim er fyrirskipað að snúa öllum sannleika við, segja það hvítt sem svart er, blóðuga styrjöld frið, og vígbúnað sem ógnar öllum heimi „brjóst vörn friðarins“. KÍKT Á KIRKJUGLUGGA ERLENDUR fræðimaður, sem hjer er á ferða- lagi um þessar mundir kom að Hólum um daginn. Hann hafði vitanlega mestan hug á að skoða kirkjuna og þá einkum að innan, ef þar skyldi vera að sjá einhverja gripi og minjar um biskupana. — En fræðimaðurinn — sem hafði ferðast þúsundir kílómetra m.a. til að skoða Hólakirkju — varð að láta sjer nægja að kíkja inn um glugga á kirkjunni, því að kirkjan var læst og maðurinn, sem hafði lyklavöldin var ekki heima og vissi enginn á bænum hvenær hans væri von heim. • Á AÐ LÆSA GUÐSHÚSUM? ÞAÐ HEFUR illilega vantað blað í mína biblíu, ef það stendur einhverstaðar í ritn- ingunni, að læsa skulu guðshúsum fyrir gest- um og |angandi. Kaþólskir menn læsa t.d. aldrei kirkjum sínum. • ÞJÓFHRÆÐSLA ER ÓÞÖRF ÞAÐ ER vafalaust alveg óþarfí að læsa ís- lenskum^ kirkjum. Ótrúlegt að það sje af þjófhræðslu, sem íslensku kirkjunum er læst. í fyrsta lagi er litlu að stela, víðast hvart, og ekki ætti að hræðast spellvirkja. Og er þá ekki nema ein ástæða eftir, en það er að gestir, sem koma í kirkjurnar óhreinki gólfin. • LYKLATOLLUR EN EF nauðsynlegt þykir að læsa kirkjum, sem eru á sögustöðum, mætti krefjast lykla- tolls og hafa þá jafnan til taks einhvern, sem hefði lyklavöld og gæti opnað fyrir gestum, sem skoða vildu sögustaðinn. Það fyrirkomulag, sem nú er getur ekki gengið. Ferðaskrifstofa ríkisins, sem hænir gesti til landsins, getur ekki látið þetta mál afskiftalaust. En varla kemur til neinnrar þrjósku af hendi kirkjuhaldara í þessum efn- um, er þeir hafa sjeð hve fráleitt það er, að fólk komi langar leiðir að, hvort, sem er inn- anlands eða utanfrá, til þess að kíkja í gegn- um glugga! • RANNSAKAR ÆTT CHURCHILLS ÞAÐ VAR gaman að frá brjef á dögunum frá vini okkar í þessum dálkum, hinum kunna fræðimanni, dr. Jóni Stefánssyni. Hann er nú kominn heim eftir fimm vikna dvöl í bóka- safni British Museum, en þar hefur hann sem kunnugt er dvalið meirihluta ævi sinnar. Það er alltaf hressandi andi yfir brjefum dr. Jóns. Nú er hann genginn í þjónustu Churchills til að rannsaka ætt hans. Því Churchill vill fá fyrir því sannanir, að hann sje af ættum Normana. Og dr. Jóni verður ekki skotaskuld úr því, þar sem hann er allra manna fróðastur um sögu Normana. er á leið til rúðu DR. JÓN Stefánsson, sem ritaði hina vin- sælu bók „Úti í heimi“ og sem varð metsölu- bók fyrir jólin í fyrra, vinnur nú að öðru hefti endurminninga sinna, sem væntanlega kemur út í vetur. En innan skamms hefur hann í hyggju að leggja upp til Rúðu-borgar í Frakklandi til að kynna sjer þar gömul skjöl, sem verið er að afrita. Eru þau frá 10. og 11. öld og munu varpa ljósi á Hróðólf í Bæ og ætt Winston Churchills í Normandiu, segir dr. Jón. Fyrir þá, sem ekki vita það, má geta þesS til fróðleiks, að fræðimaðurinn, sem hefur þessar ferða- og rannsóknarfyrirætlanir er á áttugasta og áttunda ári. • ÞRÖNGT MEGA SÁTTIR SITJA Á DÖGUNUM hitti jeg erlendan gest, sem hafði komið hingað með Heklu frá Skotlandi. Spurði jeg hann hvernig ferðin hefði gengið. Hann ljet ekki vel yfir. Sagði að skipið væri of lítið fyrir alla þessa mergð farþega. Það væri hvergi hægt að koma sjer fyrir. Best væri þegar veður væri vont og margir sjó- veikir. En viðurværi og hjálpsemi skipverja í hví- vetna taldi hann alveg einstaka. Hefði hann ekki kynnst henni betri annarsstaðar og sama sögðu allir farþegar, sem hann hefði talað við. — LITLI FERJUBÁTURINN LJÓSMYNDIR af skipum gefa ekki ætíð rjetta hugmynd um raunverulega stærð farþegar, sem höfðu pantað sjer far með Heklu þeirra. Þess vegna var það einu sinni er far- til íslands, en aldrei sjeð skipið nema á aug- lýsingamyndum, sögðu er þeir voru leiddir um borð í skipið þar sem það lá í höfninni í Glasgow: — Þetta hlýtur að vera ferjubátur frá stóra skipinu, sem á að flytja okkur til ís- lands! Húsmóðir skrifar um: Sviksemi og hreinlætisskort í matargerð í FRJETTABRJEFI um heilbrigð ismál (júní-mán.), er mjög at- hyglisverð grein, sem nefnist „Matareitranir og matarmeðferð" eftir próf. Níels Dungal. Jeg er þakklát prófessornum fyrir að rjúfa þögnina, og benda á það sem miður fer í matvæla- og mat argerð okkar, og hvað beri að gera til þess að hún komist í betra horf en nú er. Mjer hefur fundist læknarnir of hljóðlátir um þetta mikilsvarðandi mál, því „matur er mannsins megin“ og það er ekki sama hvað það er og hver matbýr það, sem verða á heilsu okkar til heilla. Við húsmæðurnar höfum upp- götvað fyrir löngu, að tilbúning- ur á löguð(um mat, eins og t. d. kjötfarsi, bjúgum, kæfu, pylsum o. fl. hefur 'stórhrakað. Og nú hef ur komið á daginn, að sumt af þessum mátvælum getur verið lífshættulegt, sbr. kæfuna frægu, sem lagði fjölda fólks í rúmið. Það er því krafa okkar húsmæðr anna, að strax verði sett þau ákvæði af heilbrifðisyfirvöldun- um, að tilbúinn matur verði fram leiddur á einum og sama staS. Þá er auðveldara að hafa eftirlit með því, að hann sje ósvikinn og hreinlæti sje viðhaft. Við slík störf á auðvitað að vinna kunn- áttuf ólk. Svo eru það nú matsölustaðirn- ir hjer í bæ og úti á landsbyggð- inni. Á ýmsum þeirra kennir margra grasa, og margt er þar brasað bak við tjöldin, sem lysti- lega lítur út, en skaðar heilsu okk ar vegna sviksemi og óvandaðra vinnubragða. Grunsamlegir eru oft rjettir eins og t.d. „gullach“ og „biksemad“, sem puntað er uppá með steiktu eggi. Það er víst ekki alltaf nýsoðið kjöt í slíkum glásum, sem þó eru seld- ar með uppsprengdu verði, en geta valdið hinum afdrifaríkustu afleiðingum, svo sem magapínu og uppköstum. Verst er þegar útlendir gestir verða fyrir slíkri reynslu í sambandi við matar- gerð okkar. En það kvað ekki vera óalgengt. Upp á síðkastið hefur tölu- vert verið deilt á veitingastaði hjer sunnanlands, sem flestir útlendingar er hingað koma sækja heim, þegar þeir skoða eitt af þekktustu náttúruundr- um okkar. Mjer finnst, að fyrst beri að sjá til þess, að veitinga- og gististaðir sjeu óaðfinnanleg- ir, bæði hvað hreinlæti og mat- argerð snertir, áður en farið er að hæna hingað erlent fólk. — Margir veitingastaðir úti á landi eru prýðilegir, en svo eru nokkr ir Ijelegir, sem koma óorði á veitingastarfsemina í landinu, og eru sannarlega ekki góð land kynning. Jeg hef oft velt því fyrir mjer, hvort ekkert eftirlit sje með mat- argerð á greiðasölustöðum úti á landi. Mjer finnst undarlegt af körlum og konum, sem enga kunnáttu hafa á fcví sviði, leyfist að stunda þá iðju, og jafnvel reka hótel. Eítt er þó sameiginlegt með góðu og Ijelegu matsölustöðun- um: verðlagið. Þeir ljelegu standa hinum sannarlega ekki að baki í því. íslendingar eru víst mjög um- burðarlyndir. Alltof oft kemur það fyrir, að framleiddur sje svik inn og jafnvel eitraður matur. En sjaldan eðg aldrei er minnst á þá staði opinberlega, sem það gera. Oft sjer maður í blöðunum nöfn óhamingjusamra manna, sem ýmsar skyssur hafa gert í ölæði og vitfirring, og eru sann- kallaðir aumingjar sem þurfa hjálpar og lækningar við. En þótt algáðir menn og konur leggi næstum að velli fílhraust fólk, með eitraðri kæfu og öðrum mat- vælum, sem búin eru til af svik- semi og óhreinlæti, er slíkra eit- urbrasara ekki getið opinberlega, svo fólk geti varað sig á þeim. Ef það væri gert, væri það álit- inn atvinnurógur. En jeg get nu ekki betur sjeð, en slík fyrirtæki eigi engan rjett á sjer. Ógeðsleg er t. d. lýsingin hjá próf. Dungal í fyrrnefndri grein, um konuna sem hafði matsölu í Reykjavík, og smitaði kostgangara sína hvern af öðrum af taugaveiki, vegna þess að hún þvoði sjer ekki um hendur eftir salernisferð. Skyldi matsölunni hafa verið lokað? Mjer finnst að heilbrigðiseftirlit- ið ætti að setja í eldhús matsölu- staðanna og matgerðarfyrirtækj- arma prentaðar áskoranir til fólks Framh. af bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.