Morgunblaðið - 23.08.1950, Blaðsíða 1
Loltárás á Kóreu.
Risaflugvirki Bandaríkjamanna gera nú hverja loftárásina á
ífetur annarri á hernaðarlcga mikilvæga staði í Kóreu. —
Myndin, sem tekin er úr bandariskri flugvjel, sýnir geysistóra
verksmiðju, er orðið hefur fyrir sprengjum. —
Fulitrúar Atlantshais-
ráðsins á Lundúnai undi
Ræða um það, hvernig flýta meqi fyrir eflingu
hervarna á Norður Atiantshafssvæðinu.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
I.ONDON, 22. ágúst. — Fulltrúafundur meðlimalanda Atlants-
hafsbandalagsins kom saman hjer í London í dag, til þess að
læða ráðstafanir, sem miða að því ,,að flýta fyrir eflingu her-
varna á Norður Atlantshafssvæðinu“, eins og það er orðað í
opinberri tilkynningu, sem gefin var út í kvöld.
Ráðslefna um endur-
vígbúnað Brefa
1 LONDON, 22. ágúst: — Attlee
forsætisráðherra hefir kvatt á
sinn fund á morgun (miðviku-
dag), 24 helstu ráðamenn
breska verkalýðsflokksins. —
Eiga þeir að ræða með sjer á
lokuðum fundi, hvernig hægt
sje að hraða endurvígbúnaði
Breta.
' Attlee mun skýra fulltrúun-
um frá því helsta í hervarna-
stefnu stjórnarinnar. — Reuter.
„Menningarmiðstöð"
STRASSBOURG, 22. ágúst. —
Tyrkneska stjórnin hefur til-
kynnt menningarmálanefnd Ev
rópuráðsins, að hún hafi ákveð-
ið að setja á stofn ,.evrópiska
menningarmiðstöð“ í Istambul.
Nefndin hefur heitið stjórn-
inni stuðningi sínum.
Risaflugvirki varpa 700
tonnum af sprengjum á
verksmiðjur kommúnista
Litlar breytingar á vígstöðunni í Kóreu í gær.
Bandaríkjamenn sækja fram fyrir norðan Potiang.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LONDON, 22. ágúst. — Skeyti frá frjettariturum Reuters á
vigstöðvunum í Kóreu bera með sjer, að engar teljanlegai'
breytingar hafa í dag orðið á vígstöðunni þar. Sveitir komm-
únista lalda áfram tilraunum sínum til að brjótast gegnum
varnir S. Þ. á suðurvígstöðvunum, en þrátt fyrir smærri áhlaup
og eitt stóráhlaup snemma í morgun, hefur þeim ekki orðið
úgengt. Búist er þó við því, að stórárás sje í aðsigi á þessum
slóðum. — Fyrir norðan Pohang á norðurströndinni halda
Bandaríkjamenn og Suður Kóreumenn áfram sókn sinni norð-
ur á bóginn. —•
Skriðdrekahersveitir á her
* Sprengju- og orustuflugvjel-
ar Sameinuðu þjóðanna hafa á
hinn bóginn haft sig mjög i
frammi yfir Kóreu.
æfingum í A. Þýskalandi
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BERLÍN, 22. ágúst. — Sjónarvottar skýra svo frá, að rússnesk-
ar skriðdrekasveitir sjeu nú að miklum heræfingum í Sax-
landi í Austur Þýskalandi.
Þýskar vþruflutningalestir
hafa verið teknar til skriðdreka
flutninga, og ein slík fór í gegn
um Leipzig fyrir nokkrum dög-
um, með um 60 skriðdreka.
■ ■
Oflutþi hervarnir
samveldislandanna
70 flugvjelar
— 700 tonn.
Sjötíu bandarísk risaflug-
virki hafa þannig gert nýja
sprengjuárás á iðnaðarhverfi
í Norður Kóreu, fyrst og fremst
á járnbrautarstöðvar um 30
mílur frá landamærum Man-
churíu.
Risaflugvirkin komu frá flug
völlum í Japan og á Okinava,
og varpað var niður nærri 700
tonnum af sprertgjum.
Þýsk þátttaka?
Sumir sjónarvottanna full-
yrða jafnvel, að menn úr áust-
ur-þýsku öryggislögreglunni
stjórni nokkrum þeim skrið-
drekum, sem þátt taka í rúss-
nesku heræfingunum.
1000 Frakkar
sendir til Kóreu
PARÍS, 22. ágúst: — Frakkar
hafa afráðið að senda 1,000
manna fótgönguliðasveit til
stuðnings herjum Sameinuðu
þjóðanna í Koreu.
Akvörðun þessi var tekin í
dag á fundi, sem Frakklands-
forseti stjórnaði. — Reuter.
LONDON, 22. ágúst: — Menzi-
es, forsætisráðherra Astralíu,
sem nú er staddur á Nýja-Sjá-
landi, ságði í ræðu þar í dag,
að bresku samveldislöndin yrðu
á næstu árum einkum að
legg.ia áherslu á þrennt: Aukna
þróun iðnaðarins, aukið fjár-
hagslegt öryggi og öflugri her-
varnir. — Reuter.
J árnbrautarsamband
rofið. —
Orustuflugvjelar S. Þ., þar á
meðal ástralskar Mustang- flug
vjelar, hafa gert tíðar árásir á
hersveitir kommúnista og flutn
ingaleiðir þeirra. Má nú heita,
áð allt járnbrautasamband
kommúnistaherjanna við Norð-
ur Kóreu sje rofið.
IVfesta járnbrautarverk-
fallið í sögu N. Ameríku
Einkaskeyti til Mbl. frá Reutér.
NEW YORK, 22. ágúst. — Eitt mesta járnbrautarverkfall í
sögu Norður Ameríku breiddist í dag óðflug'a út í Bandaríkj-
i.num og Kanada.
Brelar hraða framlerðslu
fjarsfýrðra leynivopna
> í tilkynningunni segir: <
„PULLTRÚAR Atlanshafs-
ráðsins, sem frestuðu fund-
um sínum 4. ágúst 1950, til
• þess að gefa hverjum full-
trúa tækifæri til viðræðna
við rikisstjórn sína, komu í
dag saman á ný í Lancaster
House.
„FUI.LTRÚARNIR hjeldu á-
fram viðræðum sínum um
ýmiskonar aðgerðir þar að
lútandi að flýta fyrir eflingu
hervarna á Norður-Atlants-
hafssvæðinu, þar á meðal
með stækkun herjanna og
aukinni framleiðslu á her-,
gögnum.
„FULLTRÚARNIR munu sitja
á rökstólum þar til snemma
í september“.
LONDON, 22. ágúst. —
Breska stjórnin hefur ákveð-
ið að hraða framleiðslu á
leynilegum, fjarstýrðum
vopnum.
Frá þcssu var opinhcrlega
skýrt í dag og tekið fram, að
stjórn þessarar vopnafram-
leiðslu hefði nú verið falin
einum mauni, Sir W. Alec
Coryton, fyrrverandi flug-
sveitarforingja.
FULLKOMIN VOPN
Aðeins fátt hefur verið
sagt opinberlega um hin fjar
stýrðu vopn Breta, en margt
bendir þó til þess, að þau
sjeu hin fullkomnustu. —
Þannig hefur breski flotinn
á prjónunuin áætlanir um
fjarstýrðar sprengjur, sem
eru mun langdrægari og ör-
uggari í meðferð en fall-
byssuskeyti. — Reuter.
10 farast í jarð-
skjálfta
LONDON, 22. ágúst: — Vart
varð í dag sjö vægra jarð-
skjálftakippa í borginni Doom
í Assam. Vitað er að tíu menn
ljetu lífið af þeirra völdum.
— Reuter.
100 miljón dollara lán
WASHINGTON, 22. ágúst. —
Opinberlega var skýrt frá því,
hjer í dag, að Alþjóðabankinn
hefði veitt Astralíu 100 milljón
dollara lán. — Reuter.
“^124,000 í Kanada
í Bandaríkjunum nær verk-
fallið nú þegar til stórborganna
Pittsburgh, Chicago, Louisville,
Cleveland og Minneapolis.
I Kanada náði vinnustöðvun-
in í morgun til 124,000 járn-
brautarstarfsmanna, auk þess
sem starfsbræður þeirra í Ný-
fundanlandi gerðu verkfall.
Hærri laun — styttri vinnu
Verkföll þessi eru gerð til
stuðnings kröfu járnbrautar-
manna um hærri laun og
skemmri vinnutíma.
Leiðtogar í fjelögum járn-
brautarstarfsmanna í Banda-
ríkjunum áætluðu í kvöld. að
verkfallið hefði þar náð til um
50,000 manna.