Morgunblaðið - 23.08.1950, Blaðsíða 6
6
MORGUTSBLÁÐIÐ
Miðvikudagur 23. ágúst 1950
llliwptnMafrife
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Askriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók.
' Þáttaskil í Kóreu
f
í Í>Á TÆPA tvo mánuði, sem styrjöldin í Kóreu hefur stað-
íð, hefur innrásarher kommúnista frá Norður-Kóreu verið
í svo að segja stöðugri sókn. Hersveitir Norðanmanna,
sem undirbúið höfðu ofbeldisverk sín vendilega og með
hinni mestu leynd, hafa sótt lengra og lengra suður Kóreu-
Skagann og er nú svo komið að Suður-Kóreumenn og her
Sameinuðu þjóðanna hafa aðeins lítinn skika af landinu á
sínu vaidu *wmm
•Þetta er það, sem kommúnistar um allan heim eru látnir
kalla „innrás Bandaríkjanna og Suður-Kóreumanna í Norð-
úr-Kóreu“. í tvo mánuði hafa blöð kommúnista um allan
heim keppst við að segja þjóðum heimsins frá þessari
grimmdarfullu innrás í Norður-Kóreu!!!
Aldrei hefur brjálaðri og tilgangslausari áróðri verið
iiáldið uppi en þeim, sem felst í þessum málflutningi komm-
únista. Aldrei hefur heilbrigðri skynsemi fólksins verið
sýnd jafn hyldjúp fyrirlitning. Er nú þannig komið að eng-
inn, ekki einn einasti maður með fullu viti, getur trúað
þessum geðbilunaráróðri kommúnista.
En nú virðast vera þáttaskil í Kóreustyrjöldinni. Suð-
úr-Kóreumenn og hjálparsveitir Sameinuðu þjóðanna hafa
hingað til verið á stöðugu undanhaldi fyrir ofbeldisliði
kommúnista. Sunnanmenn voru liðfáir og óviðbúnir. Sam-
finuðu þjóðirnar voru einnig óviðbúnar árásinni. Það hefur
tekið langan tíma að flytja nægilega öflugt hjálparlið til
Kóreu, ásamt nauðsynlegum vopnum. Nú er hinsvegar svo
komið, að sókn kommúnista virðist vera stöðvuð. Sunnan-
menn og hjálparlið Sameinuðu þjóðanna hefur nú fengið
töluverðan liðsafla og sókn kommúnista er að stöðvast. -
Allar líkur benda til þess að sú spá McArthurs hershöfð-
ingja, að Bandaríkjamenn muni ekki láta hrekja sig í sjó-
inn, muni rætast. Fyrsti sigur Sameinuðu þjóðanna í Kóreu
héfur þannig orðið varnarsigur. Annar sigur var óhugsan-
legur eins og allt var í pottinn búið. Innrásarherinn hlaut
að vinna fyrstu lotuna. En taflið er að snúast við. í tvo
mánuði hafa kommúnistar sótt fram með ofurefli liðs og
rússneskra vopna. Á þeim tíma hefur hinn liðfái her Sunn-
ánmanna og Sameinuðu þjóðanna reynt að tefja tímann
roeðan beðið var meiri liðsafla og varnartækja. Flugher
þeirra hefur að vísu verið athafnasamur og eyðilagt sam-
göngutæki, járnbrautir, vegi og brýr að baki innrásarhern-
um. Er það tekið að valda honum miklum erfiðleikum.
Fram til þessa tíma hafa Bandaríkjamenn borið hita og
þunga varnarinnar í Suður-Kóreu. Margar aðrar þjóðir inn
an vjebanda Sameinuðu þjóðanna hafa að vísu heitið virk-
um stuðningi sínum. Sá stuðningur er nú óðum að berast
til landsins. Flugher og floti margra þjóða er þegar kom-
' íun þangað. Landher er á leiðinni.
- Heimurinn hefur fyrr sjeð svipaða sögu gerast. Árið
1939 hófu hinir þýsku nasistar skyndiárás á Evrópu óvið-
búna og vopnlitla. Hvert landið á fætur öðru fjell fyrir
cfurvaldi hinna þýsku vopna. En taflið snjerist að lokum,
hægt og bítandi. Niðurstaðan varð alger og ægilegur ósigur
r.asismans og árásaraflanna.
Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur að þróunin
verður hin sama nú. í þetta skipti var það hinn alþjóðlegi
kommúnismi, sem hleypti af stað fyrstu skotunum, hóf
árásarstríð og kveikti þann eld, sem enginn veit, hversu
mikilli útbreiðslu kann að ná.
En niðurstaðan hlýtur að verða ósigur árásaraflanna, hins
alþjóðlega kommúnisma og villimennsku hans. í fyrsta lagi
vegna þess að árás hans er beint gegn yfirgnæfandi meiri-
hluta mannkynsins, sem hefur yfir að ráða varnartækjum,
sem tryggja honum sigur.
í öðru lagi vegna þess að kommúnisminn er í andstöðu
ýúð þá þróun, sem leiðir til fullkomnari, betri og rjettlátari
þeims. Hann er spor aftur á bak til hinna myrku alda kúg-
unar og yfirgangs.
Hinn frjálsi heimur fagnar þáttaskilum Kóreustríðsins
bg væntir þess að surtarlogi ofbeldisins verði sem fyrst
íæfður.
.. .. ku. btitái W
,l"">ÚR DAGLEGA LfFINU
Á BERJAMÓ
„Á BER JAMÓ er gamah... . “, segif í gömlu ís-
lensku stefi. Og nú er berjatíminn kominn og
berin verða þroskaðri, safameiri og betri með
hverjum deginum, sem líður.
Reykvíkingar munu vera þeirrar skoðunar,
að gaman sje að fara á berjamó, ef dæma má
eftir þeim fjölda, sem daglega fer úr bænum í
berjaheiði hjer í nágrenninu og nær hámarki
um helgar þegar fólkið á frí. Einkum eru það
börnin, sem hafa gaman af að tína ber.
•
GAGNLEG SKEMTUN
BERJATÍNSLA er líka gagnleg skemtun, því
ber eru holl fæða. Sennilega ein vítaminauð-
ugasta fæða, sem til er hjer á landi, ef trúa má
vísindamönnunum. Margar húsmæður gera saft
og gómsætt mauk úr berjum og geyma, sem
forða til-vetrarins. í Noregi og víðar er berja-
tínsla atvinnugrein og Norðmenn flytja út ber
í allstórtHn stíl, auk þess, sem þau eru mikið
notuð heima fyrir.
Þótt ekki'sje komíð svo langt, að við höfum
gert ber *ð útflutningsvöru er hjer um að ræða
gagn og gaman, sem sjálfsagt er að efla eftir
föngum. «*
YFIRTROÐSLA OG OKUR
LANDEIGENDUR í nágrenni höfuðstaðarins
amast sumir við fólki, sem fer um land þeirra
og tínir ber. Er það út af fyrir sig skiljanlegt,
að menn kæri sig ekki um, að ókunnugt fólk
vaði um land þeirra og taki þar verðmæti og
geri eftilvill landspjöll um leið. — Er ekkert að
segja við því þótt amast sje við yfirtroðslum.
En hitt er jafn fráleitt, ef menn ætla að gera
sjer berjatínslu almennings að fjeþúfu og bók-
staflega okra á henni. — Það á að fordæma.
•
SKAÐLEGT
TÍNSLUVERKFÆRI
EINHVER hugvitsamur náungi hefur fundið
upp verkfæri, sem kallað er „berjatína". Verk-
færi þessi munu fást víða í verslunum. En þetta
er sagður skaðræðisgripur.
Kunningi minn, sem er vel að sjer um alla
ræktun, íullyrðir, að þar sem tínan sje notuð
vaxi ekki ber framar. — En menn sækjast eftir
þessum tínum, þar sem berjatakan er fljótvirk-
ari, að alt að því helming, að sögn, en ef tínt
er með fingrunum einum.
Sje þetta rjett með farið ættu menn að neita
sjer um áð nota verkfærið.
•
NOTUM BERJATÍMANN
VEL '
AÐ ÖÐRU leyti er ástæða til að hvetja Reyk-
víkinga til að nota sjer berjatímann vel og fara
eins oft og þeir koma því á berjamó. — Takiö
börnin með. Þau eru oft dugleg og drjúgt, sem
þau tína, þótt talsverður hluti af afrakstri ferð-
arinnar fari beint upp í litlu munnana.
Ef vel er tint ætti það að spara gjaldeyri, sem
annars færi í erlent ávaxtamauk og hollur er
heimafenginn baggi, eða er það ekki svo, sem
máltækið segir?
BRJEF UM FÁNANN
ORÐIN, sem hjer fjellu á dögunum um meðferð
- þjóðfánans, virðast hafa vakið athygli. Gott er
það, því tilgangurinn með þeim var sá einn, að'
fá menn til að gefa þessu máli meiri gaum en
hingað til og bæta úr augljósum ágöllum. Hús-
vörður hefur skrifað um málið og segir m.a.:
„Jeg hefi veri'ð að hugleiða orð yðar, Víkverji
góður, um hve erfiðlega gengur að fá almenning
• til að draga fána að hún á flaggstöngum sínum
'■ á hátíðisdögum. Það er vissulega lofsverður ár-
angur, sem náðst hefir með skrifum yðar fyr
og síðar. En svo var það önnur hlið á þessu
máli, sem jeg vildi árjetta enn betur.
•
A SJÁLFUM HÆSTARJETTI
„ÞAÐ ER vissulega ekki nóg að draga fána að
hún á hátíðisdegi. Það verður líka að taka hann
niður að lokinni hátíð. En á því vill oft verða
nokkur misbrestur, þar sem dæmi eru til, að
fánar hánga uppi, jafnvel á opinberum bygg-
ingum, yfir nótt og fram á næsta dag.
„Jeg var að sjá það síðastliðinn laugardags-
morgun, er jeg kom á fætur, að á nokkrum hús-
um hafði fáninn verið skilinn eftir uppi alla
nóttina. Meira að segja á byggingu sjálfs hæsta-
rjettar við Arnarhvol, var þessi svívirða framin.
Betra að hengja ekki upp flagg, en að fara
þannig að‘.
Gott væri að fá fleiri husverði í lið með okk-
ur, sem viljum vekja virðingu fyrir þjóðfán-
anum. Þeir eru einmitt mennirnir, sem mæðir
einna mest á i þessum efnum.
Þjjóðverjar þekkja leyndardóm
iyrsta flokks knattspyrnu
Fram (2) 3 Þjóðverjar (1) 6
(Ríkarður 3) (Gauchel,
Ahlbach 3, Warth, Oden)
ÚRVALSLIÐ Rínarlandanna hóf
keppnisferð sína hjer í gærkvöldi
með leik gegn Fram. Veður var
hið ákjósanlegasta, norðaustan
andvari og bjartviðri, svo að
ekki verður við náttúruöflin sak-
ast um hve aðsókn að leiknum
var lítil, aðeins rúmlega 3000
manns sóttu hann.
Strax í upphafi varð bert að
hjer er á ferð lið, sem þekkir
leyndardóma fyrsta flokks knatt
spyrnu til hlítar, tæknin slík, að
hjer hefur sjaldan sjest önnur
eins knattmeðferð, og samleikur
svo hraður og nákvæmur, að oft
var engu líkara en þeir væru að
fífla andstæðingana. — Sjerstak-
lega var leikur þríhyrningsins,
Hilbert, Gauchel og Warth,
skemmtilagur og flest markanna
voru undirbúin af þessum þrem-
ur.
Þjóðverjarnir hófu leikin.i með
hröðum upphlaupum, sem öll
strönduðu á öftustu vörn Fram,
ellegar rúnnu út í sandinn fyrir
ljeleg skot. Skyndilega gerist síð-
an hið óvænta, er Hermann send-
ir langa sendingu inn á vítateig
Þjóðverjanna, Ríkarður tekur við
og — Fram hefur eitt yfir. Um
stundarfjórðungi síðar kemst
hann aftur í færi og skorar fram
hjá aðvífandi markverðinum. —-
Við mörkin færist aukinn bar-
áttuhugur í Fram og veittist
Þjóðverjunum erfitt að ná á ný
þeim tökum á leiknurri, sém þeir
höfðu I upphafi, en undir lok
hálfleiksins ljek Gauchel á tvo
varnarleikmenn Fram og skoraði.
í síðari hálfleiknum höfðu
Þjóðverjarnir lengstum undirtök-
in og þess var ekki lengi að bíða,
að mark yrði skorað. — Warth
komst út undir hornfána og miðj-
aði i þvögu við markið, en Ahl-
bach tókst að „nikka“ knöttinn
inn í hornið. Nokrum mín. síðar
ljek Ahlbach í gegn um vörn F.
og skoraði með föstu skoti undir
stöng. Heldur dró af löndunum
við þessi skyndilegu mörk og
ekki bætti úr skák er Halldóri
varð á sú skyssa að senda knött-
inn beint fyrir fætur Warths,
sem var ekki seinn á sjer að
senda knöttinn í netið áður en
Halldór fengi staðsett sig á ný.
Nokkru síðar skoraði Ahlbach á
ný með föstu jarðarskoti af 20
m., en Fram gaf sig ekki fremur
en endranær og í einu upphlaup-
inu fjekk markvörður Þjóðverj-
anna á sig vítaspyrnu. í baráttu
um knöttinn tók hann til þess
ráðs að grípa um ökla Magnúsar,
en Ríkarður skoraði með illverj-
andi skoti úr vítaspyrnunni. Síð-
asta mark leiksins skoraði Oden
eftir mjög snögga skiptingu
Warths og Gauchels.
Allir Þjóðverjarnir eiga það
sammerkt að búa yfir leikni á
mjög háu stigi, sjerstaklega veitti
maður athygli miðfrh., vinstri út-
herjanum og vinstri framverði
fyrir þá sök. Markvörðurinn er
öruggur í gripi og hefur einhverja
lengstu útspyrnu, sem við höfum
sjeð hjer um árabil. Kom iðulega
fyrír, áð knötturinn lenti út und-
ir vítateig Fram.
Nokkru eftir miðjan síðari
hálfleik Vildi það óhapp tíl áð
Jahn og Lárus skullu saman og
varð Lárus að yfirgefa vöilinn.
Kom Þórhallur Einarsson i hans
stað.
Lið Fram: Halldór, Karl, Guð-
mundur, Sæmundur, Haukur,
Hermann, Óskar, Ríkarður, Lár-
us, Magnús, Karl Bergmann.
Þýska liðið: Helmut Jahn, Rudi
Voightmann, Hermann Osten,
Jakob Milz, Georg Unkelbach,
Babtist Hilgert, Rudi Gutendorf,
Jakob Oden, Gunter Ahlbach,
Jupp Gauchel, Firdl Warth.
Dómari var Guðjón Einarsson.
Álvarlegur mat-
vælaskorfur
í Indlandi
DELHI, 22. ágúst: .— Nehr.u,
forsætisráðherra Indlands,
flutti útvarpsræðu í dag, vegna
hins alvarlega matvælaástands
í landinu. Kenndi hann um ó-
hagstæðu veðri og jarðskjálftun
um mjklu, sem urðu í síðastlið-
inni viku.
Nehru skoraði á þau fylki, er
hefðu matvæli aflögu, að miðla
hinum, sem ekki hefðu nóg.
— Reuter.
Mótmæli
LONDON: Júgóglayar hafa
sent Búlgörum mótmæli, vegna
óviðeigandi framkomu búlgösku
stjórnarvaldanna gagnvart Her-
málafulltrúa Júgóslávíu i Siber-
íu. —