Morgunblaðið - 24.08.1950, Qupperneq 1
192. tbl. — Fimmtudagur 24. ágúst 1950
Prentsmiðja Morgunblaðsina
37. árgangur
Þau ilýja styrjöldina.
S-Kóreukonan ber litla drenginn sinn burt frá stríðsgnýn-
um. Hun verður líka að rogast með það lítilræði, sem hún
hefir getað tekið með sjer að heiman. Á eftir henni geng-
m- ungur maður með ósjáifbjarga öldung á bakinu.
Kommúnistallokkar
allra landa eru verk-
færi í höndum Rússa
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
LUNDÚNUM, 23. ágýst. — Miðstjórn bresku verklýðsfjelag-
c'hna sakar Rússa og Kominform um að róa að alheimsbyltingu
raeð aðstoð kommúnistaflokka allra landa.
Kommúnistaflokkarnir
cru fimmta herdeild
Segir í ályktun miðstjórnar-
innar á þessa leið: „Af reynslu
undanfarinna ára er verklýðs-
hreyfingu Bretlands og annara
landa ljóst, að í öllum þeim
lqndum, þar sem starfandi eru
kommúnistaflokkar, skapa
Rússar og kominform af þeim
fimmtu herdeild, sem þeir beita
fyrir sig í baráttunni fyrir
heimsbyltingu“.
Borgarastyrjaldir að undirlagi
Rússa
„Niðurrifsstefnan verður að
hverfa. Víta ber harðlega, og
berjast gegn þeirri ósvinnu, að
koma af stað borgarastyrjöld-
um í þágu erlendrar stjórnmála
og árásarstefnu“.
Verkfall járnbraufar-
sfarfsmanna óleyst
OTTAWA, 23. ágúst. — Verk-
fall járnbrautarstarfsmanna er
óleyst í Kanada. Yfir 120 þús-
undir manna eiga í .verkfalli,
en það veldur ýmsum erfiðleik-
um sem vænta mál, svo að boð-
að hefur verið til aukaþing-
fundar. Kemur þingið saman
á þriðjudag, en þeir þingmenn,
sem búa langt í burtu frá höf-
uðborginni, verða að fara flug-
leiðis til þings. — Reuter.
WASHINGTON: — í Bandaríkj
unum eru um 200 þúsundir
lækna, og er þá einn læknir fyr-
ir hverja 740 íbúa að meðaltali.
Snarpar orustur, en litlar
breytingar í S - Kóreu
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
TOKÍÓ, 23. ágúst. — í dag geisuðu grimmilegar orustur norð-
ur af Taegu, sem er önnur stærsta borgin í höndum sunnan--
manna. Síðdegis í dag gerðu lýðveldismenn þarna gagnáhlaup
og náðu þá aftur hæðum nokkrum, sem þeir höfðu ný misst.
Harðir bardagar á
suðurvígstöðvunum.
Eigi að síður þykja ástæður
lýðveldismanna háskasamlegar
á þessum vígstöðvum. Einnig á|
suðurvígstöðvunum eiga þeir í j sem haft hafa sig í frammi bak
vök að ver jast þar sem innrás-1 við víglínuna.
arherirnir sækja afar fast á. —
Samt hefir þeim tekist að halda
stöðvum sínum þar.
Lýðveldismenn vinna nú að
því að uppræta leyniskyttur,
Hdenauer
aukningu
veldanna
Wesíerling er á leið
fil Lundúna
CAIRO. 23. ágúst. — Wester-
ling, höfuðsmaður, sá er stóð
fyrir uppreistinni gegn stjórn
Indónesiu sællar minnar, kom
á Farouk-flugvöllinn með ástr-
alskri flugvjel í kvöld. — Er
hann á leið frá Singapoore til
Lundúna. Að beiðni _yfirvald-
anna fer hann hjeðan aftur í
kvöld með annari flugvjel, en
hann ætlaði. Verður dvöl hans
hjer þannig stytt um 6 stundir,
þar sem stjórnin óskar ekki
eftir nærveru hans. —Reuter.
biður um talarlausa
hernúmsliðs vestur-
í Vestur - Þýskalandi
Vili, að þýskt lögreglu-
lið gæti landamæranna
Varnir Þýskaiands fil afhugunar í Bandaríkjunum.
! Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BONN, 23. ágúst. — Adenauer, forsætisráðherra V-Þýska-
lands og Schumacher, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, eru báðir
á einu máli um, að varnir V-Evrópu verði ekki efldar í skyndi
að neinu marki nema með aukningu bandaríska hernámsliðs-
ins í ’ Þýskalandi. Skoðanir þeirra beggja hneigjast í þá átt,
að endurvígbúnaður Þýskalands eða stofnun öflugs lögreglu-
liðs sje út af fyrir sig ekki viðhlítandi lausn á öryggismálum
landsins.
áldrei fleiri pílagrímar
fil Rómar en nú
RÓM — Árið helga það, sem
nú stendur yfir, er 25. í röðinni.
Hinn 30. júní s.l., er af því var
fyrra misserið, höfðu fleiri kom
ið í pílagrímsferð til Rómaborg-
ar en nokkurt ár í sögu kirkj-
unnar, eða 1,3 milj. — Flestir
pílagrímanna hafa .gengið á
fund páfans, Píusar XII. Hafa
þeir ýmist fengið sjerstaka á-
heyrn eða margir saman. Munu
dæmi til, að hann hafi tekið
á móti 50.000 frá 3^ löndum
í einu.
Dularfullf hvarf þýsks
embæffismanns
KARLSRUHE, 23. ágúst. —
Lögreglan hefur nú til rann-
sóknar hvarf dr. Ottos Nikolaus,
skrifstofustjóra fjármálaráðu-
neytisins í Wurttemberg-Bad-
en. Yfir 200 lögreglumenn leita
í nærliggjandi sveitum. Þykir
ekki ósennilegt, að unninn hafi
verið á !nnum glæpur af stjórn
málaástæðum. Menn vita vel,
að hann hefur fengið hótunar-
brjef að undanförnu. —Reuter
Miklar loftvarnaræfing-
ar í Brússelríkjunum
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BRÚSSEL, 23. ágúst.r— Fyrir dyrum standa nú þriggja daga
loftvarnaæfingar á vegum Brússelbandalagsins. Munu þær verða
frá föstudegi og fram á sunnudag.
Tillaga um einokun
á tóbaki feld í Strassborg
STRASSBORG, 23. ágúst. —
Efnahagsnefnd Evrópuráðsins
hafnaði i dag tillögu, sem Tyrk-
ir og Grikkir báru fram í sam-
einingu um einokun á tóbaki.
til að afla stofnuninni tekna.
Aftur á móti afrjeð nefndin að
leita ráða til að koma tyrk-
neskri og grískri offramleiðslu
í verð. — Reuter.
Rússar sleppa manni,
sem þeir rændu í vefur
BERLÍN, 23. ágúst. — Yfirvöld
Bandaríkjamanna í Berlín
skýrðu frá því í dag, aðryfirvöld
Rússa í borginni hefði nú látíð
lausan mann að nafni Alfred
Yankow, sem hvarf 17. apríl.
Segja Rússar, að hann hafi far-
ið um hernámssvæði þeirra skil
ríkjalaus. Sjálfur segir hann, að
erindi-ekar Rússa hafi ginnt sig
frá V-Berlín. — Reuter.
'#„Árásir“ í Frakklandi, Hollandi
og Belgíu
Landvarnanefnd bandalags-
ins héfur skýrt frá því, að
bandarískar sprengjuflugvjelar
muni „gera árásir“ á staði í
Frakklandi, Belgíu og Hollandi.
Að öðru leyti verður hvorki lát-
ið uppi um stund nje stað árás-
anna.
Risaflugvirki verða með
Er 'risaflugvirkjun ætlað að
taka þátt í þessum æfingum. Þá
er og búist við, að bandarískar
orustúflugvjelar, sem eru í V-
Þýskalandi, taki þátt í þeim.
Morðingja Lahauf
er ákaff Seifað
BRUSgEL, 23. ágúst: — Það
ættu varla að líða margar stund
ir áður en gengið verður úr
skugga um, hverjir myrtu Juli-
en Lahaut, leiðtoga kommúnista
í Belgíu. Skýrði maður sá, er
stjórnar leitinni, að morðingjun
um tveimur, frá'þessu í kvöld.
— Reutér.
Efling lögreglunnar
nauðsynleg.
-Á fundi, sem Adenauer átti
með frjettamönnum í morgun,
lýsti hann yfir því, að nauð-
syn bæri til, að herafli banda-
manna í V-Þýskalandi yrði auk
inn eins fljótt og auðið væíi. Þá
lagði hann og áherslu á, að efla
þyrfti lögreglu V-Þýskalands,
til að skapa andvægi gegn víg-
búnaðinum á rússneska her-
námssvæðinu. er ætlað væri að
kollvarpa V-Þýskalan(ii.
Vill ekki þýskt varnarlið.
Schumacher sat fund með
frjettamönnum seinna í dag. —
Hann lýsti þeirri skoðun sinni
yfir, að V-Evrópa yrði ekki var
in með öðru móti en því, að
verulegum hluta herafla lýðræð
isríkjanna væri safnað 'saman
í V-Þýskalandi. Hins vegar gat
hann ekki fallist á þá tillögu
Adenauers, að komið yrði á
fót v-þýskum „varnarsveitum“.
Sagði, að þar væri um endur-
vígbúnað landsins að ræða.
Ekki þýskur her.
Adenauer lagði áherslu á, að
hann færi ekki fram á, að kom-
ið yrði á fót þýskum her á borð
við þann, sem tók þátt í sein-
ustu styrjöld, heldur vildi hann
fá „varnarsveitir“ til að gæta
landamæranna. Skyldi þær
búnar vopnum frá bandamönn-
um. Bæri mönnum að gera sjer
ljóst, að ekkert gæti komið í
veg fyrir 3. heimsstyrjöldina
annað en það, að kommúnistum
yrði komið í skilning um, að
þeir fengju ekki auðunnin sig-
ur. —
Til athugunar í
VVashington.
Acheson, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, skýrði frjetta-
mönnum frá því í dag, að þátt-
ur Þýskalands-í endurvígbúnaði
Norðurálfunnar væri til ræki-
legrar athugunar í Washinton.
Gaf sig fram
RÓM: Einhver skæðasti stiga-
maður Sikileyjar heitir Frances-
co Mortillaro. Hefir hann nú
gefið sig fram við yfirvöldin. Er
talið, að hann hafi framið tvö
morð, gert tuttueu og átta morð
tilraunir og framið 16 rán.