Morgunblaðið - 24.08.1950, Side 6

Morgunblaðið - 24.08.1950, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. ágúst 1956 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfus Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ristjórn, auglýsingar og afgreiðsla: • Austurstræti 8. — Sími 1600. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. • Askriftargjald kr. 14.00 á mánuði, innanlands. 4 I lausasölu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók. Frá Gljúfrasteini • til Kantaraborgar MAÐUR úr Gljúfrasteini lýsir því í gær yfir í blaði komm- únista að Fischer erkibiskup af Kantaraborg, yfirmaður bresku kirkjunnar hafi „tekið metið sem fulltrúi satans“!!! Þetta er mjög rösklega til orða tekið. Hverju skyldi erki- biskupinn eiga þessa hógværu nafngift að þakka? Jú, ástæðan er sú að fyrir skömmu var birt ávarp frá hohum til biskupsins í Moskvu. í því skýrir hinn breski kirkjuleiðtogi þá afstöðu sína að skora á klerka bresku kirkj- uni^ar að undirrita ekki Stokkhólmsávarpið, „friðarávarp“ konpmúnista. Fischer biskup segist vera sammála Moskvubiskupi um nauðsyn þess að efla heimsfriðinn, en hann fái ekki sjeð, hvaða styrkur honum megi verða að undirskriftum undir slík, skjöl jafnhliða því, sem frumkvöðlar þeirra fari fram með ofbeldi og blóðuga styrjöld. Maðurinn úr Gljúfrasteini verður ævareiður við þessa skoðun biskupsins af Kantaraborg á hinu ástfólgna ávarpi. Orðrjett kemst hann þannig að orði í kommúnistablaðinu: „Þetta þýðir á hagnýtu máli: Gef oss atomsprengjuna umfram allt annað.“ Ú,t af þessum pistli leggur ávarpsmaðurinn síðan. Hann segir að hinn breski biskup sje „á fíngerðan hátt að panta kjarnorkusprengju frá þeim, sem vilji fyrstur til verða að kasta þessu góðgæti yfir breskar borgir.“ Síðan lætur hann þá ,?koðun í ljós af alkunnu yfirlætisleysi að biskupinn sje „útsendari djöfulsins", sem skýli sjer „bak við kápu ljóss- ins“. Hann berjist nú móti því að því sje andmælt að „varn- arlaus börn, konur og gamalmenni sjeu myrt með múg- morðstækjum.“ ★ Á öðrum stað í blaði kommúnista í gær getur að líta stór- frjett um að ríkisstjórn Islands vinni nú að því „að gera örlög Reykjavíkur að hinum sömu og Hirosima“ Sem sagt, íslehska stjórnin hefur þá „pantað kjarnorkusprengju“ yfir íslenskt fólk á sama hátt og erkibiskupinn yfir breskar borgir!!! Það er rík ástæða til þess að hvetja hvern einasta íslend- ing til þess að lesa blað kommúnista í gær og kynna sjer til blítar þau ummæli, sem hjer hefur verið vitnað í. Ekkert - er betur til þess fallið að opna þjóðinni nokkra innsýn inn í myrkviði hinnar sjerstæðu brjálsemi, sem kommúnistar eru, haldnir af. En í sambandi við atombombupantanir þær, sem komm- únistar ræða um mætti varpa fram einni spurningu. Hjá hverjum hafa ríkisstjórn íslands og erkibiskupinn af Kaptaraborg pantað kjarnorkusprengju yfir íslenskar og breskar borgir? Er það skoðun kommúnistablaðsins að samvinna íslend- inga og Breta við aðrar vestrænar lýðræðisþjóðir um ör- yggismál skapi líkur fyrir því að Bandaríkjamenn og Kan- adamenn hafi mikla löngun til þess að beita slíkum vopn- um. gegn þeim. Það er ótrúlegt. En hvaðan eiga kommúnistar þá von á atomsprengju yfir ísland og Bretland? Liggur það ekki nokkurnveginn í aug- um uppi? Yfirlýsing mannsins úr Gljúfrasteini afhjúpar algerlega það myrka hugarfar, sem liggur til grundvallar undirskrifta- smöluninni undir Stokkhólmsávarpið. Þar kemst engin glæta heilbrigðrar skynsemi eða dómgreindar að. Þeir menn, sem ekki vilja leggja nafn sitt við þetta einstæðasta hræsnis- plagg sögunnar eru, að áliti kommúnista, „útsendarar djöf- ulsins“ og hafa „tekið metið sem fulltrúar satans.“ Það er löng leið milli Gljúfrasteins og Kantaraborgar. Miklu lengra er þó milli þeirra lífsviðhorfa, sem ávarpsáróð- ur kommúnista og yfirlýsing hins breska erkibiskups byggj- ast á. Milli þeirra er mikið djúp staðfest. En vel á minnst, hvað hafa margir íslendingar undirritað Stokkhólmsávarpið? Kommúnistum hlýtur að vera áúðvelt að gefa upplýsingar um það. ggjgjfe ÚR DAGLEGA LlFINU LAGT ÚT í ÓVISSUNA Á DÖGUNUM leit hollenskur ferðamaður, dr. Max Horbach inn til mín. — Hann fæst m.a. við að skrifa í blöð heima hjá sjer og þurfti á ýmsum upplýsingum að halda. Þessi ferðalang- ur tók bifreið sína með frá Hollandi og hefur ekið henni víða um landið. „En þa ðverð jeg að segja, að jeg lagði beint út í óvissuna þegar jeg fór í þessa íslandsferð", sagði dr. Horbach. „Það var sama hvert jeg sneri mjer, hvergi var hægt að fá neinar upp- lýsingar um ferðalög á íslandi. Ferðaskrifstof- urnar vissu ekkert og jafnvel bifreiðaeigenda- fjelagið hollenska, sem hælir sjer af að geta leiðbeint meðlimum sínum um ferðalög hvar sem er í heiminurn, stóð á gati um ísland“. • VORU VEGIR, EÐA GISTIHÚS TIL? „ÆTLI ÞAÐ sjeu nokkur gistihús á íslandi- hugsaði jeg, er jeg var að undirbúa íslandsferð- ina. Og'til hvers er að taka bílinn með, ef það eru nú engir vegir þarna á íslensku jöklunum. „En jeg hætti á þetta og sje ekki eftir því að hafa fárið út í óvissuna. Bílvegirnir finst mjer bara mjíig sæmilegir. Það má segja, að þeir sjeu nokkuð bugðóttir, en hvað gerir það til, þegar hvorteð er ekki hægt að aka hraðar, þótt þeir væru beinir?" ' • „FERÐAMENN EINS OG ÞIÐ VILJIГ ÞESSI HOLLENSKI kunningi sagði eitthvað á þessa leið: „Viljið þið fá ferðafólk til íslands? Þið getið fengið svona hjerumbil eins mikið og þið viljið frá Hollandi. Það er ekki vandi að vekja áhuga fyrir landinu ykkar meðal Hollendinga. „En það kostar ykkur að þið verðið að láta vita svona hjerumbil hvar landið er á hnettin- um, hvernig hægt er að komast til landsins og hvers ferðafólk má vænta þegar hingað kemur. „Segið bara söguna eins og hún er. íslend- ingar þurfa ekki að skammast sín fyrir neitt gagnvart ferðamönnum“. Þá vitum við það. • LANDNÁMSHÁTÍÐIN AÐ GIMLI UM FYRRI helgi var haldin landnámshátíð að Gimli í Manitoba í tilefni að á þessu sumri eru liðin 75 ár frá því að íslendingar settust að á þessum stað við Winnipeg-vatn, þar sem nú er hið myndarlega elliheimili þeirra, Lárus Sch. Ólafsson, sem er áhugamaður um að viðhalda sem bestu sambandi við íslendinga vestan hafs kvartar yfir, að ekki skuli enn hafa borist frjettir af þessari hátíð. — Frjetta- leysinu mun vegalengdin valda, en án efa koma góðar frjettir frá Gimli innan skamms. En það var ýmislegt annað, sem Lárus drepur á í brjefi sínu, sem er þess vert að minst sje á það opin- berlega. • VESTUR-ÍSLENSKU VIKUBLÖÐIN „YFIRLEITT má segja, að við fylgjumst illa með lífi og starfi landa okkar í Ameríku", segir Lárus „og vil jeg í því sambandi minna á, að miklu fleiri hjer á landi ættu að kaupa viku- blöðin í Winnipeg en nú er gert. „Þá ætti að vera hægt að auka útbreiðslu Tímarits Þjóðræknisfjelágsins og Almának Ólafs Thorgeirssonar, sem dr. Richard Beck, prófessor, er ritstjóri að nú“. • BÓKASENDINGAR LOKS LEGGUR Lárus til, að við hjer austan hafs sendum til Islendinga í Winnipeg góðar bækur hjeðan að heiman. „Með því að senda löndum okkar vestra bækur, rjettum við þeim hendi, sem fúslega verður tekið í á móti“, bætir Lárus við. Þeir, sem vildu senda bækur vestur geta skrifað utan á til bókavarðar íslenska bóka- safnsins, Mr. J. Johnson, 735 Home Street, Winnipeg, Man., Canada. • SKEMTIFERÐ GAMLA FÓLKSINS í FYRRASUMAR gekst undirritaður fyrir því, að bifreiðaeigendur hjer í bænum buðu gamla fólkinu, bæði vistmöhnum Elliheimilisins og öðrum, í skemtiferð til Þingvalla. Tókst ferðin vel og var þá þegar ákveðið, að farin yrði slík ferð næsta sumar. Lýsti Aron Guðmundsson, formaður FÍB þessum yfir. í fyrradag var ákveðið að efna til skemmti- ferðar gamla fólksins einhvern næstu daga. — Eru ýmsar ástæður fyrir því, að þessi ferð hefur ekki verið farin fyr. En aldrei hefur annað komið til mála, en að standa við gefin loforð. Ekki skortir mörk, 18 í tveimur leikjum Víkingur (3) 4 .. Þjóðverjar (2) 5 (Hörður, Gunnl., (Gutndorf, Od- Sveinn, Ellert) (en, Sveinbj. s.m. ÞAÐ MÁ með sanni segja, að í þeim tveimur leikjum, sem þýska liðið hefur leikið hjer hefur síst skort æsandi augnablik og falleg mörk, einmitt þau atriði íþróttar- innar, sem hafa gert það að verk- um, að hún mun nú vinsælasta og fjölsóttasta skemmtun manna um allan heim. En einhvern veg- inn virðist sem Reykvíkingar, sem á undanförnum árum hafa sýnt að þeir kunna að meta vel leikna knattspyrnu, hafi enn ekki áttað sig á að mitt á meðal þeirra er nú þessa dagana knattspyrnu- flokkur, sem býður upp á öll þau atriði, sem gera knattspyrnuna aðlaðandi, Öruggt má telja að enginn, sem fer til að sjá Þjóð- verjana hverfi vonsvikinn af í- þróttavellinum. Þýska liðið var nú nokkuð breytt frá fyrsta leiknum og þótt ekki sje ftægt að segja að breyt- ingarnar-hafi verið veikjandi, var leikur þess allur ljelegri en gegn Fram. Má eflaust kenna þar um hinni fyrstu reynslu af malarvelli en fæturnir vilja búa fulllengi að henni. Ekki bætti úr skák er lið Víkings sýndi svo einn hinn besta leik, sem það hefur sýnt um áratug, en að sjálfsögðu átti láns- mennirnir sinn stóra þátt í því, að leikmönnum Víkings ólöstuð- um. Gunnar markvörður hefur sjaldan verið eins góður og í fyrrakvöld, varði örugglega hin ólíklegustu skot. Bakverðirnir voru einna sísti hluti liðsins, sjer staklega fjekk Gutendorf fullmik ið svigrúm, einkum í fyrri hálf- leik. Virtist Sveinbjörn aldrei geta gert upp við sig hvort hann Jskyldi gæta hans eða taka sjer stöðu við markstöngina. Helgi fastur og ákveðinn og gaf knött- inn frá sjer af viti. Sæmundur jafn iðinn við að mata framherj- ana en Kjartan ekki nógu ná- kvæmur, spyrnur alltof óhreinar. Hörður Óskarsson, sem ljek húth. var sísti maður framlínunn ar, gekk honum illa að átta sig á stöðunni og sótti fyrir kraft vanans um of inn á miðjan völl. Gunnlaugur var framherjanna bestur, vann af elju og reyndi án afláts að leika samherjana upp. Öfugt við það, sem var í fyrsta leik, var nú leikið mun meir á Gutendorf en á Warth og skoraði hann þrjú mörk. Fyrir gæslu- skort Sveinbjarnar ljek hann um of lausum hala og má rekja áhrif hans á gang leiksins til þess. Eftir rúmlega hálfrar stundar leik komst Hörður í gott færi og skoraði með föstu skoti, en nokkru siðar fjekk Gutendorf sendingu frá Ahlbach inn að marklínu og tókst honum að bægja knettinum mjög laglega fyrir Gunnar og inn í markið. — Undir lok hálfleiksins henti Sveinbjörn það slys að bægja skoti, sem var á leið fram hjá inn í hornið, en fyrir lokin hafði Víkingur þó tekið forystuna á ný, er Gunnlaugur skoraði úr víta- spyrnu og síðan Sveinn með góðu skoti. í síðari hálfleik tókst Guten- dorf að skora tvö falleg mörk, sem steypt voru í sama mót og Oden tryggði síðan sigur með skoti frá vítaspyrnudepli eftir prýðilegan undirbúning Miltz. — Ellert skoraði síðasta mark Vík- ings (úr mjög greinilegri rang- stöðu) með því að lyfta knettin- um yfir markvörðinn, sem kom úti til að „loka“ markinu. Þýska liðið: — Helmuth Jahn, Herbert Scháffers, Hermann Ogt- en, Franz Mohrs, George Unkel- bach, Rudi Voightmann, Rudi Gutendorf, Jakob Oden, Gúnther Ahlbach, Jakob Miltz, Firdl Warth. VíkingTir: Gunnar, Guðmund- ur, Sveinbjörn, Sæmundur Gísla son, Helgi, Kjartan, Hörður Ósk- arsson, Gunnlaugur, Sveinn Helgason Jngvar, Ellert Sölva- son. — Dómari var Hrólfur Benedikts- son. Áhorfendur voru um 2500. Brjef: Enn um Vatnxberann Herra ritstjóri! GUNNAR Einarsson, prent- smiðjustjóri, birtir í Vísi í fyrradag kafla úr brjefi minu um Vatnsberann, sem jeg skrif- aði yður. 18. þ. m. og bendir hann rjettilega á að þar sje að finna kjarna málsins um þetta listaverk. Ber að þakka Gunn- ari viðiu-kenningu þessa. Hins- vegar hefur hann í ályktunar- orðum sínum, máli sínu til framdráttar, rangfært hin til- vitnuðu orð mín, með því að fella þar niður eina setningu, sem talsverðu máli skiftir, ef rjett er lesið. Hæfa slík vinnu- brögð mætavel málstað hans. Að öðru leyti eru öll skrif Gunnars um Vatnsberann, eins og hann sjálfur. segir, — bar- áúa við drauga, — en ímynd- afSa þó. Er vitanlega ekkert við því -að segja. Það hefur hver sitt „hobby“. eftir því, sem FíL. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.