Morgunblaðið - 07.10.1950, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagar 7. okt, 1950 ]
■ Framhaldssagan 56
FRÚ MIKE
Eftir Nancy 09 Benedicf Freedman
En þegar jeg fór að hugsa
um það var jeg fegin að hann
jskyldi ekki vera hjer. — Jeg
þurfti að fá tækifæri til að
tala við hann í einrúmi. Svo
jeg tók til matinn og fór með
hann til skrifstofu hans. Innan
úr skrifstofunni heyrðust há~
værar samræður og um leið og
jeg for fram hjá glugganum
Cægðist jeg inn. Dökkleitur
kynblendingur með óhreinan,
Culan vasaklút bundinn um
höfuðið sagði: „Hann reynir að
myrða mig á hverri nóttu“.
„Nei bíddu nú við“, sagði
Mike. „Við skulum athuga
hetta nánar“.
Mjer fannst betra að ónáða
þá ekki, svo jeg settist á tröpp
urnar og beið þess að sá með
Cula vasaklútinn kæmi út. En
þess var langt að bíða, svo jeg
tók brauðsneið úr matarpakk-
anum og tók að borða hana.
Jeg velti því fyrir mjer hver
það gæti verið, sem gerði til-
raun til að myrða þann með
Cula vasaklútinn og hvers
vegna og hvort það mundi tak
ast. Þeir hljóta að hafa fært
sig nær glugganum, því allt í
cinu heyrði jeg greinilega sam
tal þeirra.
Mike sagði: „Þú veist þá
ekki hversvegna Jonathan ger
fr tilraun til að myrða þig?“
Jeg hrökk við er jeg heyrði
nafnið Jonáthan nefnt.
Rödd mannsins með gula
vasaklútinn var ónotaleg. „Jeg
segi vður það, að jeg veit það
ekki. Hann hatar mig mjög.
Og hann hefur komið a£ stað
þessari lygi“.
„Um að þú stelir úr gildrun-
um hans?“ spurði Mike.
Jeg var svo áköf og æst, að
án þess að vita af fjekk jeg
mjer ,aðra brauðsneið.
„Já“, heyrði jeg að þessi
með gula vasaklútinn sagði,
„hann hefur borið þessa lygi á
mig oft“.
„Ert þú viss um að það sje
lygi?“ spurði Mike.
„Þú heldur að jeg steli úr
veiðigildrunum?“ hrópaði sá
með gula vasaklútinn. „Þú
heldur að jeg sje þjófur?
Vertu þá sæll“.
Je" færði mig til hliðar svo
hann ekki gengi ofan á mig,
er hann kæmi æðandi út. En
hann kom ekki, því Mike flýtti
sjer að segja: „Sjáðu nú til,
Cardinal. Það þýðir ekki að
vera firtinn. Ef að á þig er
ráðist að ósekju, þá stend jeg
með þjer. En jeg verð að vita
hvernig í málinu liggur áður
en jeg geri nokkrar frekari ráð
stafanir“.
„Hvernig í málinu liggur?“
Maðurinn með gula vasaklút- I
inn var utan við sig af reiði.
„Jeg hef sagt þjer hvernig í
því liggur. Þessi sláni, hann
Jonathan Forquet kemur á i
hverju kvöldi að húsi mínu og
skýtur að mjer örvum“. i
„Hve mörg kvöld hefur þetta
átt sjer stað?“
„Þrjú“. |
„Og hversu nálægt husinu
kemur hann?“
„Mjög nálægt. Ein örin flaug
aðeins hársbreidd frá höfði
mínu. Og síðastliðna nótt skaut
hann ör milli fingra minna“.
„Þetta er einna líkast því, j
að hann sje aðeins að hræða
þig“, sagði Mike.
„Hann er að reyna að myrða
mig“, sagði Cardinal með sann
færingu.
„Hvort sem það er nú til-
gangurinn eða ekki, þá getur
hann ekki komist upp með það
að skjóta á fólk“.
„Jeg segi þjer það satt,
hann er að reyna að myrða
mig. Hann kom og sagði við
mig: „Jeg mun myrða þig,
Cardinal, vesæli aumingi, sem
stelur úr gildrum annara“. En
það er lýgi og hann veit það
sjálfur, en samt sem áður skýt
ur hann á mig. Á hverri nóttu
reynir hann að myrða mig“.
„Allt í lagi“, sagði Mike, „þá
næ jeg í hann“.
„Hvað þýðir það, að þú ætl-
ir að ná í hann?“ sagði sá með
gula vasaklútinn tortryggnis-
lega.
„Það þýðir það, Cardinal, að
jeg ætla að vinna að málinu
eíns og mjer þykir hentugast“.
„Þú setur hann í fangesi,
já?“
„Sjáðu nú til, Cardinal. Jeg
vil helst að þú skiptir þjer ekki
af þessu. Jeg ætla að tala við
Jonathan og sjá til hvað jeg
fæ upp úr honum. En ef hann
sjer okkur saman, mun hann
þegja eins og steinn“.
„Allt í lagi, allt í lagi, ef þú
bara tekur hann fastan“.
„Jeg lofa því ekki“.
Dyrnar voru opnaðar svo
harkalega og snöggt að við lá
að jeg þeyttist ofan af tröpp-
unum. Stígvjel Cardinals mót-
uðu grá spor í hið þunna snjó-
lag.
Mike leit á mig óblíðu augna
ráði. „Kathy, hvað á þetta að
þýða, að sitja hjer úti í þessu
kalsaveðri?“
„Jeg þurfti að tala við þig
um Jonathan“.
| Mike gekk aftur inn og sett-
ist. Hann andvarpaði mæðu-
lega. „Þá hefðirðu eins vel get
að komið inn strax. Við höfum
ekki gert annað en að tala um
Jonathan“.
| „Er hann í raun og veru
morðingi?“ spurði jeg.
1 Mike glotti.
1 „Nú“, sagði jeg, „jeg gat
ekki komist hjá því að heyra
það sem fram fór því þessi
með gula vasaklútinn hrópaði
svo hátt“.
„Þessi með gula vasaklút-
inn?.. sagði Mike og hló. „Æ,
Cardinal“.
„Hlustaðu nú, þetta er ekk-
ert hlægilegt, því Oh-Be-Joy-
ful elskar Jonathan".
„Já“, sagði Mike. „Þú sagðir
mjer frá því“.
„En nú er það verra. í dag
skydi hann eftir á tröppimum
hrúgu af skinnum".
Loksins virtist Mike skilja
það sem á bak við þetta lá.
„Hann vill þá taka hana á brott
með sjer“.
„Já“, sagði jeg. „Það er það,
sem það táknar. Og jeg gat
ekki fengið hana til að lofa
mjer að hitta hann ekki. Þú
verður bara að gera eitthvað
til að aftra því, að hann geti
haft hana á brott með sjer. Þú
verður að tala við hann, og
segja honum, að halda sjer frá
henni og reyna að hræða hann
alvarlega, því annars gegnir
hann ekki“.
„Það er ekki auðvelt að
hræða Jonathan“, sagði Mike.
„Það er honum fyrir verstu,
því þá verður þú að setja hann
í fangelsi eins og hr. Cardinal
stakk upp á“.
„Elsku Kathy, jeg get ekki
sett mann í fangelsi fyrir það
eitt, að hann er ástfanginn“.
„En hann er hættulegur.
Gerum ráð fyrir að hann
myrði Cardinal, hvað mundir
þú þá taka til bragðs? Og
hvað mundi jeg gera? Því ef
hann myrti hann ihundi hann
flýja og taka Oh-Be-Joyful
með sjer. Mjer líður aðeins illa
þegar jeg hugsa út í þetta allt
saman. Ef til vill er drengur-
inn morðingi?“
„Kathy, þú átt ekki að vera
að ergja þig yfir svo litlu. í
fyrsta lagi get jeg ekki trúað
því að Jonathan sje morðingi.
Jeg hugsa að Cardinal hafi
j stolið úr gildrunum hans. Og
Jonathan tók til sinna ráða til
að hræða hann svo hann hætti
því“.
■HtXmiiiiiimaiiiil.
Til leigu
t desember 3ja herbergja íbúð
í 5 ára gömlu steinhúsi á hita
veitusvæðinu í austurbænum.
Æskilegt væri að leigutaki gæti
útvegað einum manni atvinnu
um óákveðinn tíma. Reglusemi
áskilin. Tilboð 6endist blaðinu
fyrir 15. þ.m. merkt: „Ibúð 1.
1 desember — 667“.
if •■Mniiiiiiiiiiiitiiiiit
IJngur reglu-
samur maður
! með Samvinnuskólaprófi, sem
I unnið hefur að verslunarstörfum
j 5
| | undanfarin fjögur ár, óskar eft-
1 ir verslunarstörfum í nágrenni
I Reykjavíkur eða úti á landi,
| helst við kaupfjelag. Ibúð þyrfti
i að fylgja. Tilboð merkt: „Reglu
| samur —>663“ sendist afgr. blaðs
. i íns fyrir 15. október.
«UMIIIIIIIIIIIiailllllllllllll»*Mtl«*MIIIHIIItllllllllllllllll
1 Ibúð j
| Reykjavík - Keflavík j
i Tvö herbergi og eldhús óskast j
| til leigu í Reykjavik í skiptum i
| við jafn stóra íbúð í Keflavík, j
i sem fengist leigð tímabillð ca. i
i frá 15. okt. n.k. til 11. maí 1951 i
i Tilboðum sje skilað til afgr. MbL j
i fyrir mánudagskvöld merkt: j
| „Húsgagnasmiður — 662“.
I Gólfteppi j
| rústrautt, 1. flokks Axminster |
1 til sölu á 400 krónur. Sömu- i
| leiðis Elektrolux ísskápur, Rafha |
i hvorutveggja nýtt. Lysthafendur :
I leggi nöfn og tilboð í ísskápánn |
Í til blaðsins fyrir þriðjudagsk- :
I kvöld n.k. merkt: „Haust 1950 i
! — 652“. {
iiuiiiiiiiiiiMiimmiminHiiiiiiiiiiiimiuinmiiHiinnii
JAZZ - jlNT/> VBBUH
ÍSLAABS
Fræbslufundur
verður í Breiðfirðingabúð í dag kl. 3 e. h.
Nýjar plötur leiknar og skyrðar út.
Fjelagar sýni skírteini við innganginn,.
nýjum fjelögum veitt móttaka.
Stjórnin.
Aðalfundur
Jazz-klúbbs íslands verður haldiun i BrciöfirJinga-
búð uppi, þriðjudagskvöld kl. 8,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjérnin.
■ F. S. V., fjelag starfsfólks í veitingahúsum:
! FUNDUR
u .
«
• verður haldinn að Þórsgötu 1, mánudaginn 9. þ. mán.
• klukkan 12,30 eftir miðnætti.
■ FUNDAREFNI: —
! Kosning fulltrúa á 22. þing Alþýðusambands Islands.
Fjelagar eru beðnir að greiða fjelagsgjöld sín
• á fundinum. —
: Stjórnin.
Móttökufagnaðurínn
FYRIR BRÚSSELFARANA
Nokkrir miðar verða seldir í Bókaversi. ísafoldar i dag.
4
BRUSSELNEFNDIN.
Rafstöðvar
fyrir diesel- eða vatnsafl, getum við afgreitt af öllum
stærðum og verði. — Við erum að reisa ratstöð í Hval-
biar soknar kommune á Suderöy. Notið tækifærið.
Ingeniörfirmaet Saugstad & Saugstad A./S.
Stavanger, Símnefni: „Saugstadkraft“.
Hafnorfjörður
Blý keypt daglega á nófaverkstæði mínu við hraðfrystí-
húsið Frost, Hafnarfirði.
Jón Gislasoa.
Fljúgið i dag
KRAKKAR, komið í Lækjargötu 10 B i dag, og seljið
flugvjelahappdrætti L. B. K.
Þeir, sem kaupa minnst fimmtán miða. fá ókeypis
flugfar yfir bæinn.
Há sölulaun og söluverðlaun.