Morgunblaðið - 28.10.1950, Page 1
16 sáður
trnMðMð
37, árgangu/
251. tbl. — Laugardagur 28. október 1950.
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Indverjur aðvura kín-
verska kommúnista
Minna þá á gefin ioforð m að fara samninga-
ieiðina í líbefmálinu — Harma nú svik þeirra
Einkaskeýti til Mbl. frá Reuter.
DELHI, 27. október — Sardar Pannicker, sendiherra Indlands
í Peking, afhenti .kínversku kommúnistastjórninni í dag „harð-
orðar orðsendingu“, þar sem lýst er yfir furðu indversku stjórn-
arvaldaima yfir þeim tíðindum, að kommúnistar hafi sent her-
sveitir sínar gegn Tíbet.
Fyrr í dag hafði talsmaður
stjórnarinnar í Delhi lýst yfir
„undrun og harmi“ stjórnar
sinnar yfir þessum atburðum.
En fneð því er talið, að ind-
versku stjórnarvöldin viður-
kenni það sem staðreynd, að
kommúnistar hafi afráðið að
grípa til vopna gegn Tíbet.
AÐVÖRUN
Samkvæmt góðum heimild-
um, - hafa indversku stjórnar-
völdin nú varað kínversku
kommúnistastjórnina við því,
að hernaðarárás á Tíbet hljóti
að gerbreyta afstöðu Indverja
til tilrauna kommúnistaleiðtog-
anná til að fá viðurkenningu
Sameinuðu þjóðanna. En fram
að þessu hafa fulltrúar Ind-
lands hjá S. Þ. stutt kröfu kín-
versku rauðliðanna um full-
trúaxjettindi hjá Sameinuðu
þjóð'unum.
Aminning
Pannicker sendiherra mun nú
hafa verið falið að kref ja komm
únista skýringar á aðgerðunum
gegn Tíbet. í orðsendingunni,
sem hann hefur afhent Peking-
stjórninni, er hún ennfremur
minnt á fyrri heit sín um að
fara samningaleiðina að Tíbet-
búum.
Leynifundur 1,000
þýskra komma
Einkaskeyti frá Reuter.
BERLÍN, 27. okt. — „Neues
DeutschTand", hið opinbera
málgagn austur-þýskra komm
únista, skýrði frá því í dag, að
siðastliðinn sunnudag hefði ver
ið efnt til leynilegs fundar
„einhversstaðar í Austur Þýska
landi“ milli Wilhelm Pieck,
austur-þýska forsetans, Otto
Grotewohl forsætisráðherra og
1,000 pólitískra leiðtoga frá
Vestur-Þýskalandi.
Meðal hinna „pólitísku leið-
toga“ voru 400 vestur-þýskir
kommúnistar, segir blaðið.
Fundurinn, en hann stóð yfir
í sex ldukkustundir, ræddi það,
hvernig hægt yrði að sameina
Þýskaland undir eina „lýðræðis
stjórn“.
Fyrsfi snjórinn í Englandi
LONDON, 27. okt. — Fyrsti
snjórinn í Englandi fjell í dag
í fjöllunum við Bath, Soir.er-
set.
—Reuter.
Kommar fancelsa erkibiskup
ROMABORG, 27. okt. — Út-
varpið í Páfagarði fullyrti í
dag, að Joseph Beran, erki-
biskup í Prag, hefði verið num
inn á brott af heimili sínu, þa:
sem -kommúnistar hafa að und-
anförnu haldið honum í stofu-
fangelsi.
FANGELSAÐUR
Utvarpið hefur þessar upp-
lýsingar frá tjekkneskum flótta
mönnum, sem segja, að erki-
biskupinn hafi verið settur í
eitt að aðalfangelsunum í Prag.
—Reuter.
Loftárásir á komm-
únisfa í Indo-Kína
PARÍS, 27. okt. — Fregnir frá
Indo-Kína herma í kvöld, að
franskar flugvjelar hafi í all-
an dag gert árásir á hersveitir
kommúnista í nánd við kín-
versku landamærin.
Frökkum gengur vel að
treysta hina nýju varnarlínu
sína í landinu. — Reuter.
Horfni atomfræffingurinn HARÐNAIMDIAIMDSTAÐA
KÓREUKOMIHIJIMISTA
Lýðræðisherirnir þó
í vægðarlausri sókn
Kínakommar efla varnir sínar við landamærin
Myndin er af Bruno Pontecorvo
atomfræðingnum, sem hvarf
nýlega og nú er talið að kom-
inn sje til Rússlands. Hvarf
lians hefur vakið geisimikla
athygli um allan heim.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
TOKYO, 27. október — Andstaða kommúnista í Kóreu fer
harðnandi, eftir því sem nær dregur landamærum Manchuriu.
Þær hersveitir Suður-Kóreumanna, sem í dag voru staddar um
40 mílur frá landamærunum, mættu í dag allöflugri mótspyrnuy
og tókst kommúnistum á tímabili að stöðva þær með öllu. Síð-
degis í dag tókst þó að brjóta þessa andstöðu á bak aftur, eftic
að sunnanmenn höfðu fengið bensín og vistir loftleiðis. Þess
ber þó að geta, að sumar hersveitir Suður-Kóreumanna, eða
þær, sem fyrstar sóttu yfir 38. breiddarbauginn, eru þegar
komnar að landamærunum.
Þýskur radarfræðingur
hverfur á dularfullan
Fullyrt að Rússar hafi láfið nema hann á brotf
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
FRANKFURT, 27. okt. — Bresku hernaðaryfirvöldin hjer i
Frankfurt tilkynntu í kvöld, að þau hefðu fyrirskipað rannsókn
á hvarfi Walter Zimmermann, eins kunnasta raketlu og radar-
sjerfræðings Þýskalands. Nokkur vesturþýsku blaðanna full-
yrða, að Rússar hafi látið ræna Zimmermann.
TVISVAR AÐUR «
Blaðið Frankfurt Abendpost
skýrir frá því, að radarfræðing-
urinn hafi starfað L nokkur ár
við rússneska rannsóknarstofu
í Austur-Þýskalandi, Að lokum
hafi honum þó tekist að flýja
og komast til breska hernáms-
svæðisins.
Blaðið bætir því við, að lausa-
fregnir hermi, að Rússar hafi
tvívegis áður gert árangurs-
lausar tilraunir til að nema
Zimmermann á brott.
Fjekk aðsvif á
stjórnarfundi
Frakkar iengja her-
þjónusfufíma sinn
PARÍS, 27. okt. — Franska
þingið samþykkti í kvöld að
lengja herþjónustutímann í
Frakklandi úr einu ári í átján
mánuði.
Aðeins kommúnistar greiddu
atkvæði gegn þessu.—Reuter
Bretar varaðir við skyndiúrús
„al Pearl Harbour tegundinni
u
Einkaskeyti frá Reuter
LONDON, 27. október: —
Sir John Hodsoll, sem sjer
um undirbúning „atom-
varna“ í Bretlandi, varaði í
dag opinberlega við því, að
Bretar yrðu að vera við því
búnir, að þeir gætu orðið
fyrir launárás „af Pearl
Harbour tcgundinni“.
í skýrslu, sem hann hefir
samið fyrir bresku stjórnar-
völdin, segir hann meðal
annars:
„Við megum ekki treysta
því, að við verðum aðvarað-
ir. Pearl Harbour aðferðin
hefir tvívegis verið notuð í
tíð margra okkar, og jeg er
þcirrar skoðunar, að við
verðum að vænast þess, að
þessari aðferð verði aftur
beitt“.
I skýrslunni er á hinn bóg
Inn fullyrt, að Bretar geti
staðið af sjer atomsprengju-
árás — ef þeir sjeu nægilega
og rjettilega undir hana
búnir.
^KÍNVERJAR
ATHAFNASAMIR
Reutersfregn frá Bombay
hermir, að kínversldr kommún-
istar sjeu mjög athafnasamir
sín megin við Kóreulandamær-
in. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum, vinna þeir af alefli
að eflingu víggirðinga sinna á
þessmn slóðum, auk þess sem
liðsauki hefur verið sendur á
vettvang.
BRETARNIR
Bresku hersveitirnar, sem
berjast með her Sameinuðu
þjóðanna í Kóreu, áttu og í dag
í höggi við mun öflugri komm-
únistaflokka en undanfarna
daga. Bretarnir sækja fram á
vestanverðum Kóreuskaga. — í
dag stöðvaðist sókn þeirra al-
gerlega um stundarsakir, eða
þar til flugsveitir voru sendar
til aðstoðar. En nú hafa her-
sveitirnar hafið ferð sína á nýj-
an leik.
LIÐSAUKI
Bandarískur liðsauki kom f
dag enn til Wonsan á austur-
strönd Kóreu. Hersveitirnar,
sem þangað komu í fyrradag,
eru þegar lagðar af stað inn í
landið.
t '__________________
STOKKHOLMUR, 27. okt. —
Gustav Svíakonungur fjekk að-
svif í dag, er hann var í forsæti
á stjórnarfundi í höll sinni,
skammt frá Stokkhólmi.
Læknar segja, að kongur, en
hann er 92 ára, sje mjög þreytt
ur. — Reuter.
★
LONDON, 27. okt. — Stokk-
hólmsútvarpið skýrði frá því í
kvöld, að líðan Gustavs kon-
ungs færi hrakandi og að hann
væri mjög máttfarinn.
Gustav Adolf krónprins hef-
ur verið kvaddur í skyndi til
konungslialiariiinar. — Reuter.
Vinstriflokknum
falin sfjórnarmynd-
un í Danmörku
| Einkaskeyti til Mbl.
KAUPM.HÖFN, 27. okt. —
Friðrik Danakonungur fól í dag
Erik Eriksen, leiðtoga vinstri-
flokksins, að gera tilraun til
stjórnarmyndunar.
Hjer í Kaupmannahöfn er
þess vænst, að Eriksen leiti
samvinnu íhaldsmanna um
myndun tveggja flokka stjófn-
ar. — NTB.
Hershöfðingi sýknaður
PARÍS, 27. okt. — HerrjettuC
í París sýknaði í dag þýska hers
höfðingjann Otto Ottenbacher
af þeirri ákæru, að hann hefði
staðið fyrir stríðsglæpum í Su3
vestur Frakkiandi 1 júní og júll
1944. — Reuter. j