Morgunblaðið - 28.10.1950, Blaðsíða 11
| Laugardagur 28. okt. 1950.
MORGUNBLAÐIÐ
11'
BókviKið og askarnir Riisljóraskifli við
TRAKTORBOKIN
ÚTGÁFA bóka um búskap, er
að vonum ekkl svo mikil, að
|>að taki mikið rúm í blöðunum
að geta þeirra, og erlendra bun-
aðarbóka er hjer sjaldan að
neinu getið. Það er illa farið,
þótt segja megi að þýðingarlítið
sje að benda bændum og bænda
efnum á -shkar bækur, þar eð
þær sjeu nær forboðin vara,
íeins og hjer er högum háttað
um innflutning bóka.
Þó er það varla einleikið, og
líklega ekki rjett að kenna
gjaldeyrisyfirvöldunum einum
lum, hve sjaldgæft það er, að
til búfræðinga og bænda slæð-
Sst útlendar bækur, sem slægur
er í, þeim til fróðleiks og þekk-
tngarauka. En það megum vjer
vita hjer á hólmanum, að
imargar búnaðarbækur, sem út
koma á Norðurlöndum (og
raunar víðar), eiga vissulega
erindi til hjerlendra manna,
sem vilja eflaust að viti og
kröftum, til að verða nýtir
foændur og hugsandi menn um
málefni landbúnaðarins.
í sveitum landsins snúast
iijólin enn, þótt kalt sje undir
kötlum togaranna. Og það er
mikils um vert að hjólin snúist
sem best og þarflegast. Fræðsla
um búvjelar og tækni ætti því
að vera mörgum manni, er bú-
skap stundar, kærkomin.
Snemma á þessu ári kom út
fojá L. T. forlaginu (Lantbruks-
forbundets tidskriftaktibolag) í
Stokkhólmi bók, er nefnist
Traktorboken, eftir Nils Berg-
lund próf. í búvjelafræði, við
foúnaðarháskólann í Ultuna, og
Karl-Áke Svensson, kennara
við sama skóla. Þetta er 300
fols. bók í Skírnisbroti, með 280
myndum og kostar 10 krónur
sænskar.
Hinn fyrnefndi höfundur er
Slkunnur á Norðurlöndum fyr-
fr störf sín á sviði húnaðar-
tækninnar. Hann hefur skrifað
Stennslubækur í búvjelafra-ði
og 1945 gaf hann út ásamt Y.
Andersson tilraunastjóra, hina
gagnmerku bók Lantbruks-
maskiner ock redskap en önn-
Srr útgáfa hennar; 11.—18. þús-
undið, kom út 1947 (475 bls.,
430 myndir. Verð 8,75 krónur
Eænskar).
Svíar standa orðið mjög
framar-lega varðandi margt, er
íið búnaðartækni lítur. Um
íangt skeið hefur verið starf-
tandi þar í landi fjelagsskapur,
er nefnist Jortbrukstekniska
föreningen. Eins og nafnið
foendir til, vinnur fjeiag þetta
©ð rannsóknum varðandi bún-
aðartækni og fræðslu um þá
foluti. Það hefur gefið út fjölda
af skýrslum og smáritum, og
foefur haft ágætum manni á að
skipa, þar sem er agr. Yngve
'Andersson tilraunastjóri.
Tilraunir með búvjelar ann-
ast Statens Maskinprovningar
í Ultuna, undir forustu H. Arson
Moberg, hins snjallasta manns.
Par er ennfremur Jortbruks
tekninska institutet, sem vinn-
ar að merkilegum tilraunum og
rannsóknum í sviði búnaðar-
íækni og bústarfa. Próf. Berg-
lund veitir þeirri stofnun for-
stöðu, jafnframt kennslustöðu
einni við háskólann.
Báðar eru þessar stofnanir
fevo vel búnar að húsum og tækj
um að af ber, og langtum best
öf hliðstæðum stofnunum á
Norðurlöndum.
Úr bessum jarðvegi er Trakt-
orbókin upp runnin. Má segja,
að góður sje að henni nautur-
£nn, enda er þetta ágæt bók og
greinagóð. Engin önnur bók er
til á Norðurlandamálunum, er
gerir þessu efni jafngóð og ýt-
arleg skil.
Hún er í 23 meginköflum:
1. Sambandið milli hita og
vinnu.
2. Starfshættir mótora af
mismunandi gerðum.
3. Bruninn í strokk mótors-
ins.
4 Eldsneytið.
5. Stokkar, bullur, ásar og
lokar.
6. Mótorar með blöndung.
7. Blöndungurinn.
8. Kveikjan.
9. Disilmótorinn.
10. Hesselmanns-mótorinn.
11. Glóðarhaus-mótorinn.
12. Kælikerfið.
13. Smurolían og smurkerfið.
14. Traktorar af mismunandi
gerðum.
15. Traktor-mótorar af mis-
munandi gerðum.
16. Tengsli, gírkassi, mismun-
munadrif o. fk
17. Okuhjól, framhjól, stýri,
sporvídd- og hemlar.
18. Rafmagnskerfi, ræsir og
ljós.
19. Gangráður, lofthreinsari og
hljóðdeyfir.
20. Vökvalyfta og tenging.
21. Traktorinn revndur, af-
köst og ökuhraði.
22. Meðferð traktorsins.
23. Traktorakstur.
Myndakostur bókarinnar er
sjerstaklega athyglisverður, því
að flestar eru myndirnar teikn-
aðar og skýra efnið á auðveldan
og ágætan hátt.
Traktorbókin er ætluð mönn
um til lestrar, sem eiga og aka
traktor og bíl og vilja afla sjer
meiri þekkingar um mótor og
aðra vjelarhluti, heldur en fæst
í smáritum og á stuttum nám-
skeiðum. Hún á um margt að
koma bílamanninum að sömu
notum eins og traktormannin-
um.
Jafnframt því er bókin ætluð
sem kennslubók við skóla og á
námskeiðum. er veita allfull-
komna fræðslu um þetta efni.
Loks er hún greinagóð hand-
bók fyrir þá, er viíja, án sam-
felds lesturs um efnið, fá veiga
miklar upplýsingar um einstök
atriði, eftir því, sem að höndum
ber, í starfi og við viðhald
traktora.
Bókin á mikið erindi til
þeirra, sem eiga að sjá veru-
legri notkun traktora farborða,
eins og t. d. hjá ræktunarsam-
böndunum. Þar sannarlega
þörf þekkingar og forsjár.
Ef jeg ætti eitthvað að finna
að bókinni, hefði jeg óskað að
meira væri um samanburðar-
upplýsingar um hinar rnismun-
andi tegundir traktora er sýndu
t. d. í töfluformi, sem flest um
stærð og gerð vjelanna. íslensk-
ir íesendur þægju einnig meira
um beltatraktora, heldur en er
í bókinni, er það að vonum, því
að þeir koma miklu meira við
sögu við jarðrækt og aðrar. bún-
aðarframkvæmdir hjer á landi,
en í Svíþjóð.
En ekki verður á allt kosið,
er vjer viljum fræðast af er-
lendum bókum til framdráttar
búskap vorum, og það eigum
vjer að gera langtum meira en
raun vill á verða. Að því er
bændum og bændaefnum frami
og fengur. Og leiðbeinendum
bændanna um búnaðarmál, er
það svo mikil nauðsyn, að ekki
er vansalaust hve ltið þeir gera
að því, sumir hverjir.
Árni G. Eyiands.
Fylki í Eyjum
í FYLKI, blaði Sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum, sem
kom út 20. okt., er skýrt frá j
því, að ritstjóraskifti hafi orðið j
við blaðið. Björn Guðmundsson j
bæjarfulltrúi, hefir tekið við,
ritstjórn þess af Gunnari Hlíð-
ar. —
j í tilefni af ritstjóraskiftum,
skrifar hinn nýi ritstjóri á þessa
jleið:
„Það hefur orðið að samkomu
lagi við ráðamenn þessa blaðs,
að jeg taki að mjer ritstjórn
þess um nokkurra mánaða
skeið. Þessi ráðstöfun er á eng-
an hátt gerð vegna þess, að jeg
sje á nokkurn hátt betur til þess
fallinn eða hafi betri tækifæri
til að sjá um ritstjórn blaðsins
heldur en þeir, sem að undan- '
förnu hafa haft hana á hendi,
'l síður en svo. ' ■
Ráðstöfun þessi er einungis ■
■ gerð út frá þeirri staðreynd, að
blaðamennska við blöð út á
; landi, er svo að segja eingöngu
borið upp af áhugasömum
flokksmönnum, sem fórna til
þess frítíma sínum. Hinsvegar
er það talsvert starf að hugsa
um þó ekki stærri blöð, en hjer
urn ræðir og æskilegast að
reyna að dreifa því, sem mest.'
Vegna þessa hefi jeg nú um
skeið tekið að mjer ritstjórn
blaðsins, þó hinsvegar mjer sje
sjálfum ljóst að mikið skortir
á að jeg hafi tíma eða aðstæð-
' ur til þess að leysa það eins
vel af hendi og jeg vildi. |
I Ritstjóraskiptin munu ekki
f hafa neina stórvægilega breyt-
j ingu í för með sjer í sambandi
við stefnu eða útkomu blaðsins. j
Rúmi þess mun fyrst og fremst'
verða helgað málefnum þessa1
byggðarlags og þeim lagt það,
lið sem rök eru á, á grundvelli'
starfs og stefnu Sjálfstæðis- j
flokksins í bæjar og land. mál- j
um.
Blaðið mun, sem að undan-
förnu opið öllum flokksmönn- j
um fyrir greinar er varða stefnu
og starf flokksins svo og þeim
öðrum, er í það vilja rita um
það er þeim liggur á hjarta,
framara- og menningarmálum :
byggðarlagsins viðkomandi.
Nauðsyníegf að gera ráð-
sfafanir gegn vörusmyglinu
Verkefni Fjárhagsráðs og annarra yfirvalda
FREGNIR af smygli á alls-
konar vöruin, hafa verið áber-
andi í blöðum bæjarins á sið-
ustu tímum. Það er vitað, að
mikið af smyglvarningi kemst
inn í landið og gengur manna
á milli á svörtum markaði. Þó
slíkt sje ekki nýtt fyrirbrigði,
sýnist eins og smygl hafi farið
í vöxt, ef dæma má eftir hinum
tíðu frjettum, af því, þegar toll
verðir finna smyglvarning sem
farmenn á millilandaskipum
eiga.
þekkist ekki í sundur nema
af rannsóknum, sem geta verið
flóknar, hvort vara er smygluð
' eða orðin löghelguð á upþboð-
J um þess opinbera. Fyrst inn-
flutningsyfirvöldin gera marg-
1 ar vörutegundir að raunveru-
j iegum bannvörum, með því að
neita um venjuleg leyfi fyrir
! þeim, er sjálfsagt að hið opin-
bera sjái um, að slíkar vörur
1 komi ekki á markaðinn eftir
öðrum leiðum, sem íeljast lög-
legar, enda er þá auðveldara
að hafa hendur í hári smygl-
GAGNRAÐSTOFUN. SEM UM ara.
LEIÐ ER TEKJUÖFLUN
Barnasamkomur
í Tjarnarbíói
BARNASAMKOMUR í Tjarn-
artúó á vegum dómkirkjusafn-
aðarins, hefjast að nýju á morg-
un, sunnudag, kl. 11 og verða
að jafnaði heldnar annan hvern
sunnudagsmorgun. Eins og að
undanförnu mun sjera Jón Auð
uns dómkirkjuprestur annast
þær. Talar hann til barnanna,
segir þeim sögur við þeirra
hæfi, en börnin taka þátt í
bænum og söng. Að lokum eru
sýndar kvikmyndir.
Geysileg aðsókn hefur verið
að þessum barnasamkomum
undanfarna vetur, Tjarnarbíó
! jafnan fulit út úr dyrum af
jánægðum börnum.
I Sjera Jón Auðuns biður þess
I getið, að búið sje að prenta nýtt
! sálmakver fyrir börnin, sem
[kostar kr. 2.50 og verður
| selt á samkomunum. Er þess
óskað, að foreldrar láti börnin
kaupa þeta nýja kver, svo að
barnasöngurinn verði almenn-
J ur í hinum stóra barnahópi, sem
: þarna kemur saman.
J Annan kostnað hafa foreldr-
' arnir ekki af því að veita börn-
um sínum gagnlega og ánægju-
lega stund á sunnudagsmorgn-
ana, stund, sem aðsóknin sýriir
að börnin sækjast mjög eftir.
jBæði börnum og foreldrum er
mikil þökk á þessu starfi.
Eins og verslun okkar er nú
háttað, er vafalaust erfitt að
stöðva smyglið, en beinasta að-
ferðin til þess er að leyfa venju
legum innflytjendum að flytja
vörurnar inn. Margar af smygl
vörunum teljast til óþarfa-
varnings, sem ekki er talið að
við höfum efni á að kaupa. Þó
væri athugandi af yfirvölduíi-
um hvort ekki væri rjett að
veita nokkur gjaldeyrisleyfi
fyrir ýmsar vörur, sem eru
mjög hátt tollaðar og mikið ber
á í smygli, til þess að ríkissjóð-
ur fari ekki á mis við tolitekj-
urnar og afhendi þær smygl-
urum. Hafa margar leiðir ver-
ið farnar til tekjuöflunar
handa hinu opinbera, sem eru
fráleitari en það, sem hjer er
vikið að. Slík ráðstöfun gæti
líka orðið til að draga úr smygl-
hættunni.
DÆMI UM
SMYGLARAOKRIÐ
Þær vörur, sem þæ diegar
eru til smygls, eru ýmsar má-
vörur svo sem ljelegir kúla-
pennar, varalitir, ýmis konar
fyrirferðarlitlir skrautmunir
og tyggigúmmi, svo nefnd sjeu
aðeins nokkur dæmi. Smyglar-
ar kaupa ódýrar og ljelegar
tegundir erlendis, en selja þær
aftur á markaðnum við iangt-
um hærra verði, en góðar teg-
undir mundu kosta hjer, ef
þær væru fluttar inn af versl-
unum. Sem dæmi um þetta,
má nefna kúlupennana, sem
rnikið hefir borið á í smygli.
Smyglarar kaupa slíka penna í
búðurn í Ameríku. en þar kosta
þeir 1 dollar, sem er kr. 16,32
með núverandi gengi. Engar
„fyllingar" fylgja þessum penn
um smyglaranna og eru heldur
ekki fáanlegar hjer. þannig, að
pennarnir eru fólki ónýtir eftir
stutta notkun. Síðan selja
smyglarar slíka penna hjer á
allt að kr. 150.00. Ef samskonar
penni væri fluttur inn á venju-
legan hátt, mundi hann kosta
ca. kr. 45.00 út úr búð hjer, en
í því verði cr innifalinn allur
kostnaður, þar á meða! ca.
G0% tollur tii ríkissjóðs. Er
augljóst að smyglaramir draga
drjúga burst úr nefi ríkissjóðs,
og hafa um leið af almemiingi
álitlegar upphæðir mcð starf-
semi sinni.
SMYGLVÖRURSELDAR
AF HINU OPINBERA
Þegar náðst hafa smyglaðar
vörur, hafa yfirvöldin hafí þá
aðferð að gera þær upptækar,
og selja þær síðan hæstbjóð-
anda á opinberum uppboðum.
Slík aðferð gerir smyglui'unum
og svartamarkaðsmönnum auð-
veldara með að dyljast, því þá
! TIL ATHUGUNAR
| FYRIR FJÁRHAGSKÁÐ
Ástæðurnar fyrir smyg'linu
og svartamarkaðnum liggja í
hinum almenna vöruskorti og
ringulreiðinni á gjaldeyris-
málum okkar. Á siðastliðnu ári
fengu farmenn og sjómenn til
umráða ekki minna era um 10
miljónir íslenskra króna í er-
lendum gjaldeyri, era eins og
nú er ástatt, er óhjákvæmilegt
annað, en að verulegur hluti
þeírrar upphæðar komi fram í
allskonar óeðlilegum vörukaaip
um og smygli. Þessi gjaldeyrir
hlýtur að vera ein aðal undir-
staða smyglsins og svartamark-
aðarins. Það mun vafalaust
vera talið erfitt að kippa að
sjer hendinni um að gjaldeyrir
sje fenginn sjómönnum og far-
mönnum, fyrst það fyrirkomu-
lag er einu sinni komið á. -En
hitt er jafn augljóst að hinu op-
inbera ber skylda til að vernda
almenning eftir mætti gegn
smyglinu og því, sem þar af
leiðir, en hingað til virðist lít-
ið hafa verið gert í því efni.
Innflutnings og gjaldeyrisdeiM
Fjárhagsráðs ætti að taka til
athugunar hvað hún gæti fyrir
sitt leyti gert til að bamla á
móti smyglinu, sem virðist fara
í vöxt og getur orðið enn hættu
iegra, þegar frá liður, ef ekk-
ert er gert til að afstýra því.~'
frjafir franska sendiráðS"
ins tif Handíða-
myndlisfaskólans
FYRIR NOKKRUM dögum
sendi franska sendiráðið Hand-
íða- og myndlistaskólanum
(verðmæta og góða gjöf. Voru
það rúmlega 130 ljósmyndir af
ifrægum listaverkum, málverk-
jum, teikningum og höggmynd-
,um i frönskum listasöfnum.
J Í þessari viku hafa skólanu.m
jenn borist yfir 70 myndir að
giöf frá franska sendiráðinu.
jMeðal þessara mynda eru all-
^margar af franskri byggingar-
jlist. Hinar eru af málverkum og
höggmyndalist.
Á undangengnum 12 árum
hefur skóiinn unnið að bví að
koma sjer upp listmynda- og
bókasafni. Hin síðustu ár hefur
nálega ekkert verið unnt að
kaupa til safnsins sökum gjald-
eyrisörðugleika. Þessi franska
gjöf kemur því í góðar þarfir
og er mjög mikilsverður feng-
ur til eflingar listfræðslu
þeirri. sem skólinn að staðaldri
heldur uppi fyrir neínendur
sína í myndlista- og keimara-
deildunum svo og fyrir a'raenn-
ing.