Morgunblaðið - 28.11.1950, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.11.1950, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 28. nóv. 1950 > nuniniiiainji Framhaldssagan 6 ■" ....... iimiiitiiiiiiiiiiiia* TACEY CROMWELL Skáldsaga eftir Conrad Richter, „Mjer finnst þetta nokkuð óviðfelldið, Cromwell“, sagði hann. „Það finnst mjer ekki“, sagði hún. „Eitt herbergi nægði okkur í, Socorro“. „Það gæti líka nægt okkur hjer“, sagði Tacey, „ef við vær- um gift“. Það var eitthvað í rödd henn or sem gerði það að jeg leit undrandi á hana. Hún hafði tek- fð af sjer hattinn og kannske burstað hárið og þyegið sjer í sínu herbergi. En það var ekki [?að. Hún stóð og horfði á hann Og græni liturinn í augunum á henni var meira áberandi en venjulega, og það þá eitthvað ú bak við þau. En jeg vissi ekki hvað það var. Svo snjeri Gaye bakinu í hana og þá urðu augu hennar stálhvöss. „Jeg ætla að fara niður í bæ- Lnn og athuga aðstæðurnar“, sagði hann. „Jeg segi þjer hvernig hefur gengið, þegar jeg kem aftur“. „Segðu mjer það á morgun“. Rödd hennar var allt í einu orð- in dálítið .óstyrk. „Jeg ætla a@ fara að sofa“. „Hvað? Klukkan er bara tíu eða ellefu“. „Jeg verð að fara að venj- ast því að sofa á næturna. Jeg get eins byrjað á því strax“. Þessi koparnámubær, Bisbee, reyndist stærri en jeg hafði gert mjer í hugarlund um kvöldið. Húsaröðin var áreið- anlega tveggja mílna löng eft- ir aðalgötunni. Taeey hafði rif- ið mig snemma upp úr rúm- inu hiá Gave. Hann hafði ekki komið heim fyrr en undir morg un, og jeg var þreyttur eftir ferðalagið og mig langaði til að hvíla mig lengur. „Þú átt að koma með. mjer, Ugget“, sagði hún. Hún sagði ekki fivers vegpa hún vildi hafa mig með. en jeg fók eftir því að hún vildí leiða mig, þegar við fórum niður stigann og þegar við gengum ihn á veitineahús til þess að fá okkur moreunmat. Og alltaf áður en við fórum inn ein- hversstaðar til að spyrja um laust húsnæði, þá tók hún í hendina á mjer. Allir brostu til mín og voru kurteisir við hana og eftir dálitla stund tók jeg eftir því að handleggurinn á henni var hættur að sveiflast óeðUlega mikið. Það var orðið áliðið dags, þegar við komum aftur upp á gistihúsið. Gave stóð yfir þvotta skálinni og var að raka sig. „Þetta er vont vatn“, sagði hann. ..Fjekkstu herbergi handa okkur?“ t „Jeg var ekki að leita að her- bergi“, sa»ði Tacey. „Má jeg legiast á rúmið þitt snöggvast?“ Hún tevgði úr sier á rúminu og lokaði augunum. | Hann leit soyrjandi á hana en sagði ekkert. | „Jeg var að leita að húsi“, sagði hún án þess að opna aug- un. j „Húsi?“ I Tacey svaraði ekki fyrr en hún var sest upp aftur. „Það er best að við Uugget förum á undan“, sagði hún. Hún tók kvittunina fyrir farangr- inum upp úr tösku sinni og rjetti honum. „Segðu burðar- manninum að við eigum heima í Brevery Gulch“. Gaey starði á hana. j „Við O.K. götu“, sagði Tacey. „Líkar þjer ekki götuheitið?“ j „Jeg held að þú sjert búin að missa vitglóruna“, sagði hann. Jeg beið á pallinum fyrir j framan húsið og sá hvar Gaye kom með burðarmanninum neðst í brekkunni. Þó að þeir væru allangt í burtu fannst mjer jeg sjá Gaye horfa undr- andi í kring um sig. Mjer finst það engin furða. Brevery Gulch var skrítinn staður. Hesturinn skreiddist með vagninn upp bratta og mjóa götuna. Mjer fannst skrítið að fólki skyldi hafa dottið í hug að setjast að í þessum bratta en þó var öll hamrahlíðin byggð og húsin stóðu á sillum eins og fugla- hreiður hvert upp af öðru. Sólin skein glatt á austan- verða hlíðina og hjer og þar stóðu menn og virtu fyrir sjer útsýnið. Hátt uppi í klettunum Isá jeg að stúlka var að taka inn þvott af snúrum og enn hærra uppi sá jeg að kona var að rífa upp rabarbara og jeg I vissi að moldin í garðinum henn ar hafði verið borin alla leið * þangað upp í fötum. Drengir hlupu og ljeku sjer uppi í bratt anum þar sem hvert skjótráð- I ið fótmál gat orðið þeim að bana. I Hesturinn var kominn með vagninn þar sem gatan endaði og við tók aðeins troðningur. Jeg kallaði í Tacev, og hún kom út. Hún var búin að setja á sig svuntu og Ijetta skó, sem hún hafði stungið í handtösku sína. „Það er hjer“, kallaði hún eins hátt og hún gat niður til þeirra. Þeir voru lengi að komast upp með ferðakisturnar og það brakaði og brast í tröppunum undan þunganum. „Hjerna inn, Gaye“, sagði hún þegar þeir voru komnir upp á litla pallinn fyrir fram- an húsið. „Við skulum hafa kist una undir glugganum. Það verð ur ágætt sæti“. Þegar burðarkarlinn var far- inn með peningana sína sá jeg að Gave fór að líta í kring um sig. Það mátti sjá á honum að honum þótti ekki mikið til koma um húsið. Flest húsgögn- in höfðu verið skilin eftir af þeirri einföldu ástæðu að þau voru föst við húsið. Rúmfletin voru ekki annað en trjebekkir. Borðin, skápurinn, legubekk- urinn og dragkistan voru á- föst við veggina. Orgels garm- urinn og stólarnir höfðu auð- sjáanlega ekki verið þess virði að setja á uppboð. Allt var þetta smíðað úr pílvið með út- skornu rósamunstri. Ekkert tepni var á gólfunum. „Hvernig líst þjer á?“, kall- aði Tacey innan úr eldhúsinu. „Hvernig líst þjer sjáfr á?“, sagði hann en svaraði ekki. Hún kom inn rrleð lykilinn að kist- unni og fór að tína upp úr henni. Hún setti skrautlega á- breiðu, sem hún hafði heklað sjálf, á rúmið í fremra herberg inu. Á legubekkinn setti nún útsaumaðan púða. Hún hengdi rautt veggteppi á annan vegg- inn og marglitan fjaðravönd á hinn. Og á borðið setti hún dúk með síðu kögri og þar ofan á lítinn olíulampa og við hliðina á lampanum háan stafla af tísku og kvennablöðum. Alls konar annað dót kom upp úr kistunni og loks hvítt loðskinn, sem hún lagði á gólfið. Það var varla stærra en svo að maður gat staðið á því með báðum fót um, en það setti þó hlýiegri svip á stofuna. Jeg varð að hjálpa Tacey í svefnherberginu og þegar jeg kom aftur inn í stofuna, var Gaye kominn úr jakkanum og var sestur við orgelið'. Það var lítið, náði honum varla upp að mitti, gulmálað og nótnaborðið var stutt. Mjer fannst gaman að sjá hann sitja þarna, stíga upp og niður og halla undir flatt með hattinn aftan á hnakka Jeg hafði aldrei heyrt hann spila áður og mig langaði til að hlusta, en Tacey sendi mig fyrst eftir vatni og svo eftir eldivið og svo niður í búðina eftir kaffi og mjólk og brauði. Við borðuðum kvöldmatinn í eldhúsinu. Þegar því var lokið, kveikti Gaye sjer í vindli og greiddi sjer. „Jeg ætla að fara niður í bæ- inn og leita mjer að einhverju að gera“, sagði hann. Mjer fannst það skrítið að fara út að kvöldi til að leita sjer að vinnu. „Fáðu stöðu við spilabanka fyrst um sinn, ef ekki er völ á öðru“, sagði Tacey. Gaye leit á hana en svaraði ekki. „Þú mannst að við ætlum að vera heiðvirt fólk hjer í Bis- bee“, sagði hún aðvarandi. „Og ef einhver spyr þig hvar þú eig ir heima, segðu þá ekki Bre- wery Gulch. Segðu O.K. Street eða Youngblood Hill“. 5. kafli. Jeg hafði tekið eftir henni strax fyrsta daginn í gættinni, þegar jeg gekk upp tröppurnar. En þá sá jeg bara að hún var krakki á stærð við mig, með úfið hár og hún var að horfa á mig. Næsta dag þegar jeg kom heim, var Tacey einhvers staðar úti. Jeg sat á tröppunum hjá pkkur og var að sóla mig. Brátt kom stelpan út úr hús- inu við hliðina á okkar húsi og fór að hringsnúa sjer á hand- riðinu fyrir framan pallinn. Húsið hennar, ef hús skyldi kalla, stóð á sömu klettasill- unni og okkar hús, en það var engin gangbrú á milli, og jeg var fegin því. Jeg vissi hvers vegna hún hafði komið út og þegar hún fór að sýnast og gera sig alla til þá sneri jeg mjer undan. Nú þegar jeg hafði sjeð hana í dagsbirtunni sá jeg að jeg mundi ekki hafa mikið gagn af henni. Hún var í óhreinum kjól, sem minnti mig á óþvegnu fötin okkar í Cat Creek. Þegar hún hjekk á hnjánum á hand- riðinu, flettist kjóllinn upp um hana og jeg sá að hún var alveg eins óhrein á fótunum. Hákon Hákonarson 25. 1 Jeg var nú kominn upp á háa klettabungu. Bæði fyrir framan mig og til beggja handa voru djúp skörð. Skarðið fyrir framan mig var að minnsta kosti fimmtíu metrar á dýpt. Á botninum sá jeg vatn, en það var ómögulegt að segja um, hvort það var salt eða ekki. Það gat verið á, en það gat eins vel verið fjörður, sem skarst hjerna inn. Landið hinum megin virtist vera sannkölluð paradís. Skógurinn þar var þjettur og fallegur, og milli tr’jánna nið- aði lækur. En, til allrar óhamingju, það leit út fyrir, að það yrði erfitt að komast í þessa paradís. Nú var orðið svo áliðið dags, að jeg gat ekki dvalið hjeT lengur, ef jeg átti að geta komist heim, áður en dimmdx. Jeg var í raun og veru ánægður með árangur dagsins, og allt erfiðið hafði ekki verið til einskis. Jeg hafði fundið skjaldbökur. Jeg hlaut að geta veitt eina eða tvær, og jeg hafði eld til þess að steikja þær við. Eld, já,-jeg var hræðilega taugaóstyrkur yfir því, hvort bálið mitt brynni enn, þegar jeg nálgaðist hellinn minn. Og jeg gat ekki varist því, að flauta af ánægju, þegar jeg sá að það rauk af þvL Mjer fannst jeg ekki vera eins einmana þegar jeg hafði eld. Það var fjelagsskapur og vemd í því, svo að jeg talaði nú ekki um, að jeg bæði steikt og soðið matinn minn á honum. Jeg skaraði í glæðurnar og bráðlega logaði eldurinn glatt. Við hafði jeg ekki, svo að jeg kynnti með þangi. Sem betur fór var nóg af því núna eftir óveðrið. Það var orðið skræl- þurrt af að liggja í brennandi sólskininu, svo að jeg fjekk nóg bæði til að nota sem brenni og til að þekja gólfið £ hellinum mínum með. Sem kvöldmat borðaði jeg nokkur egg og ostrur og á eftir gekk jeg inn með ströndinni í von um að finna eitthvað gagnlegt rekið þar á land. Það eina, sem jeg fann, var flauta fyrsta stýrimanns, sem, þótt undarlegt megi virðast, hafðÉ borið þar að landi. Jeg kunni ekki að leika á flautu, era mjer fannst að það gæti samt verið gaman að hafa hana, svo að jeg tók hana með mjer heim. ^lfífhixT4 nnrw*uiusrJicJl^AsruA. « BERGUR JÓNSSON Málflutningsskrifstnfa Laujiaveg 65. Sími 5833. EINAR ÁSMITNnsSON hn’ctnráttnri '\am afíur SKBIFSTOFAs TJarnarcolu 10. — 8 „Nei, þetta er ekki rjett hönd, Pjetur minn.“ I ★ Svertingi, sem var umferðaprestur, naut þess að töfra fram „yfirnáttúr- lega atburði“ þegar hann var að halda ræður. Eitt sinn kom hann í þorp og undirbjó sjerstaka stemningu með því að setja lítinn svertingja- dreng upp á raft í lofti kirkjunnar með dúfu í búri. 1 miðri ræðunni ætlaði svo prestur að kalla á Heilgag- an anda, og þá átti strákur að sleppa dúfunni og láta hana fljúga niður. Augnablikið kom og prestur kallaði: „Heilagur andi, komdu niður“. Ekk ert kom fyrir. Prestur æpti i skelfingu „Heilagur andi, komdu niður“. Þá birtist svart höfuð milli raftanna í loftinu, sem sagði: „Gulur köttur er búinn að gleypa Heilagan anda, á jeg að henda kettinum niður?“ ★ Það var i litlu svertingjaþorpi. Kirkjan hafði engan stað til þess að halda samkomur í nema kjallarann undir danshúsi þorpsins, sem alltaf var mikil aðsókn að. Oft, þegar prest- urinn hjelt kvöldsamkomur, átti hann bágt með að láta heyrast til sín í gegnum hávaðann, sem heyrðist nið- ur. Húsið var hrörlegt mjög, og eitt sinn er prestur var að halda ræðu, var verið að leika sjerstaklega fjörugt danslag uppi. Allt í einu heyrðist brak og brestir, og þegar presturinn leit upp i ofboði, sá hann að planki ( gólfinu hafði brotnað og niður um gatið, sem myndast hafði, hjekk fót- leggurinn á svertingjastúlku. Prestur- inn hrópaði í ákafa: „Hvern þanUp sem lítur upp í loftið, mun forsjóniis gera blindan.“ Þögn fjell yfir söfnuðinn, þangað til rödd gamals negra, sem s:it ii miðri kirkjunni, heyrðist: „Jæja, jeg held að jeg hætti öðru auganu.“ ★ Skipsþjónninn reyndi að hugga far- þega, sem þjáðist hörmulega. „Verið þjer rólegur, það hefir aldrei neinn dáið úr sjóveiki." „Ö, ó,“ kveinaði farþeginn. „Hvem ig getið þjer verið svona harðbrjóstal Það er einungis vonin um að fá aS deyja sem hefir haldið í mjer lífinis hingað til.“ Pósthússtræti 13. Sími 7394 Ásta Johnsen. Bifröst Dag- og nætursími 1508 lll!lllll!IMVItl!MMItMM«M!MtMlit9MMItll«IMÍMIMI!l!lfl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.