Morgunblaðið - 09.03.1951, Qupperneq 11
Föstudagur 9. mars 1951
MORGIJIS BLAÐIÐ
11
■ fmiarNfcvsi*
Fjelagslíf
Armenningar, Skíðamenn
Skíðaferðir í Jósefsdal verða á
laugardag kl. 2 og kl. 6 og á sunnu-
dag kl. 9. Farið frá Iþróttahúsinu
við Lindargötu. Farmiðar í Hellas
og Körfugerðinni. — Þeir A- og B-
flokksmenn, sem ætia að keppa í
Skíðamóti Islands um páskana, láti
i»'f mgarstjóra eða formann vita
strax. Stjúrnin
SkiSadeild K. IL
Skiðaleikfimi í kvöld kl. 7.
Stjórnin.
GuSspekif jelagiS
Reykjavíkurstúkan heldur fund í
kvöld. Hefst hann kl. 8,30. Fundar-
efni: I. Fyrirlestur: Er oss endur-
lioldgun nauSsynieg? — II. Aðal-
fundarstörf. — III. Fjelagar mega
taka með sjer gesti.
íþróttafjelag kvenna
Skíðaferð á laugardag kl. 6. Hiið-
arbúar teknir á horninu Reykjahlíð
— Miklubraut kl. kortjer fyrir 6. —
Stansað verður við Tungu og Lang-
holtsveg. — Farmiðar í Höddu.
í. B. D.
Taflfjelag drengja (T. D.). Hrað-
skákmótið hefst í kvöld kl. 8.00 í ÍR-
húsinu, uppi. Keppendur mæti með
töfl. Stjúrnin.
Handknattlciksstúikur Ármanns
Áríðandi æfing verður í kvöld
i húsi Jóns Þorsteinssonar. — Mætið
yel og stundvíslega.
Nefndin.
Sknutakeppni
fer fram á Tjörainni iaugardag og
sunnudag, ef veður leyfir. Þátttaka
tilkynnist í síma 3704. fyrir föstu-
dagskvöld. —-
Skautafjelag Keykjavíkur.
ASalfundur
skiðadeildar ÍR verður i kvöld kl.
9 i iR-húsinu, uppi. — I. Venjuleg
aðalfundarstörf. — 2. Afhent verð-
iaun frá seinasta innanfjelagsmóti. -—
3. Rætt um þátttöku í Skíðamóti Is-
lands o. fl. — Fjelagar, fjölmennið
og mætið stundvíslega. Sljórnin.
SkíSamót Reykjavíkur
heldur áfram að Kolviðarhóli á
sunnudag 11. þ.m. Keppt verður í
svigi. Kl. 10.15 B.-fl. og kl. 13.30 A,-
fl.
Skíðadeild f. R.
Skíðaferðir
að Kolviðarhóli um helgina: Laug-
ardag kl. 2 og 6 og sunnudag kl. 8,
10 og 13. Farið frá Varðarhúsinu. —
Stánsað við Vatnsþró, Undraland og
Langholtsveg. Farmiðar og gisting
selt í kvöld kl. 8—9 i t.R.-húsinu,
uppi. Þeir, sem ekki tryggja sjer
gistingu á auglýstum tíma, eiga á
hættu að fá ekki pláss.
Skíðadcild Í.R.
Skíðamót skólanna
heldur áfram að IColviðarhóli um
næstu helgi. Keppt verður í bruni
ög svigi karla og svigi kvenna.
Ncfndin.
I.B.D. „íþróttafjel. drengja (TD)
Skiðaferð verður farin á sunnu-
daginn kl. 9, upp að Lögbergi. Miðar
á kr. 12,00, verða seldir i Bílabúð-
inni Vesturgötu 16 í dag og á morg-
un og í ÍR-húsinu á morgun kl. 5—6.
Munið að búa ykkur vel í ferðina.
Stjórnin.
Samkomur
Hjálpræðisherinn
t kvöld verður haldin söng- og
hljómleikasamkoma I samkomusal
hersins i Kirkjustræti 2. — Þar
syngur tvöfaldur kvartett undir stj.
Ottós; Guðjónssonar. Horna- og
strengjasveit spilar. Auk þess verð-
ur einsöngur, tvisöngur o. fl. Deild-
arstjórinn major Bernh. Pettersen tal-
ar. Aðgangur að samkomunni er
ókeyþis og allir eru yelkomnir.
Betania
Munið samkomuna i kvöld kl.
15,30. —
Hjálpræðisherinn
Föstudag kl. 8.30: Söng- og hljóm
leikasamkoma, homa- og strengja-
sveit. Tvöfaldur kvartett undir stjórn
Ottós Guðjónssonar. Einsöngur o. fl.
Allir velkomnir.
! Toilet- pappír !
I I
i ^
Frá Verðgæslustjóra
Almenningi er hjer með bent á, að ýmsar vörur frá
Spáni, sjerstaklega vefnaðarvörur, hafa reynst talsvert
gallaðar og er því sjerstök ástæða til að athuga gæði
vörunnar vel áður en kaup eru gerð.
Að sjálfsögðu eru þeir innflytjendur, sem hjer hafa
fengið staðfest verð á þessum vörum, skuldbundnir til að
selja aðeins ógallaða vöru, enda er verðið samþykkt
á þeim forsendum, að varan sje óskemmd. Hið sama
gildir að sjálfsögðu um smáverslanir gagnvart almenn-
ingi. Ef svo aftur á móti verður samkomulag milli kaup-
anda og seljanda um verð á gallaðri vöru, sem er lægra
en leyft hámarksverð, er það að sjálfsögðu heimilt.
Reykjavík, 8. mars 1951.
Uppboð
Opinbert uppboð fer fram í Bólstaðarhlíð 3, hjer í
bænum, þriðjudaginn 13. þ. m., kl. 3 síðdegis og verður
þá seld Vz húseignin, efri hæð og rishæð m. m., Bólstað-
arhlíð 3, eign fjelagsbús Gísla Halldórssonar og Sigríðar
Einarsdóttur. Húsið er bygt á árinu 1947—1949, og verður
hið selda húsnæði allt laust til íbúðar 14. maí n. k.
Teikning af húsinu og uppboðsskilmálar eru til sýnis
hjá undirrituðum. Þá verður húsnæðið til sýnis fyrir
þá, er þess óska laugardaginn 10. þ. m. kl. 3—4 e. h.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík, 8. mars 1951.
Kr. Kristjánsson.
Hin vatnsþjettu höggheldu og marghluta FRANGART . GÍIMMf
VASALJÓS, óska samhands
við heildsölu á Islandi. Hin til-
valda lugt fyrir bílstjóra, sjó-
menn, fiskimenn, lögreglu
íþróttafólk, verkstæöi o. fl.
Þolir raka, kulda, hita og högg
C. FRANK JENSEN & HJÉLMGART,
Hedebygade 10 — Köbenhavn V.
Húsnæði fyrir iðnað
(ca. 100 ferm.) með upphitun og niðurfalli í gólfi
óskast sem fyrst. — Uppl. í síma 4484.
Vinna
Hreingerningar
Vanir menn. Fyrsta flokks efni, —
Simi 1273. — Bcggi.
Tek hreingerningar
Pantið frá kl. 2—5. — Sími 4652.
Þorsteinn Ásnnindsson.
Húshjálpin
annast hreingemingar. Sími 81771
og 81786 eftir kl. 7. — Verkstjóri:
Flaraldur Björnsson.
Tek hreingerningar
Sími 4967. Jón Bencdiktsson.
Tek lireingerningar
Pantið frá ki, 2—5. — Sími 4652.
Þorsteinn, áður hjá Guðmundi
Ilólm.
Saup-Sala
Kaupum flöskur og glös
Bækkað verð. Sækjum. Sími 80818
ig 4714.
f O. G, F.
I. O. G. T.
Þingstúka Reykjavíkur
Fundur í kvöld, föstudag, að Frí
kirkjuveg 11 kl. 8.30 stundvíslega. —
Fundarefni: Stigveiting. — Erindi
Pjetur Sigurðsson: Hvernig við get-
uin náð settu niarki. — önnur mál,
Fjölsækið stundvíslega. Þ. T.
EP LOFTVR OETVR ÞAÐ EKKl
ÞA HVER?
Öllum þeim, sem sýndu mjer sextugum vinarhug með
gjöfum, skeytum og nærveru sinni 4. þ. mán., óska
jeg allra heilla. — Guð blessi ykkur öll.
Ormur Ormsson,
Borgarnesi.
ainnra vb ■■ ■ ■ ■ ■ ■ im ■ ni ■ ■■■■■■■■■■■■■ NBNir«a ra ■■■■■■■■■■■■■•■■■■ aN maa
Við þökkum hjartanlega öllum þeim mörgu, sem með
heimsóknum, gjöfum og heillaóskum, heiðruðu okkur á
50 ára hjúskaparafmæli okkar, 4. mars.
Þorgerður Jónsdóttir, Tómas Nikulásson,
Þorfinnsgötu 12, Reykjavík.
Atvinnuhúsnæði til leigu
Rúmgott og sólríkt húsnæði, ca. 200 fermetrar að stærð,
á ágætum stað í miðbænum er til leigu nú þegar.
Tilboð merkt: „Sólríkt“,—801, sendist afgreiðslu Morg- *
unnblaðsins fyrir n.k. mánudagskvöld.
LOKAÐ
f siðdegiskaffinu í dag vegna jarðarfarar Kristmundar
GuÁmundssonar, framreiðslumanns.
Sjálfstæðish úsið
EGGERT BRANDSSON
andaðist 8. mars 1951.
Jónína Erlendsdóttir og börn.
Sonur okkar og bróðir
JÓN MAGNÚS HELGASON
ljest af slysförum hinn 6. þ. m.
Elísabet Magnúsdóttir, Helgi Jónsson,
Skúli Helgason, Herdís Helgadóttir.
Maðurinn minn
ÞORLEIFUR GUNNARSSON
bókbandsmeistari,
andaðist aðfaranótt 8. mars.
SigríðurStefánsdóttir.
Kveðjuathöfn yfir konunni minni
INGUNNI HALLGRÍMSDÓTTUR
fer fram í dag í Fossvogskirkju kl. 3 síðdegis.
Agúst B. Jónsson, Hofi.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Miðhúsum í Garði. — Sjerstaklega þökkum við for-
stjóra Elliheimilisins Grund, hr. Gísla Sigurbjörnssyni og
konu hans, alla ástúð og rausn henni veitta fyrr og síðar,
einnig hjúkrunar- og starfsfólki, fyrir umönnun og vin-
semd, ásamt öðrum, er sýndu henni kærleika.
Systkini og systkinabörn.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, er sýndu hluttekn-
ingu og vinarhug við fráfall og jarðarför
GUÐFINNU INGVARSDÓTTUR,
Fyrir hönd aðstandenda,
Erlingur Pálsson.