Morgunblaðið - 28.07.1951, Síða 6

Morgunblaðið - 28.07.1951, Síða 6
H II h ' H < I fII t Laugardagur 28. júlí 1951. Jtl0r0iM#l&íúíí) Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavik. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgrtarm Lesbók: Árni Óla, sími 3045 A.uglýsingar: Árni Garðar Kristinssoi* Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla Austurstræti 8. — Sími 1600 Askriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innamanQs í lausasölu 75 aura eintakið. l krónu mefl LesbOk Hvað gerðist 30 mars ? HVAÐ GERÐIST hinn 30. mars árið 1949? Það er ómaksins vert að rifja það upp í stórum drátt- um. Vikurnar á undan þeSsum degi höfðu miklar umræður staðið im þátttöku íslands í varnar- bandalagi hinna vestrænu lýðræð isþjóða. Meðal þings og þjóðar ríkti glöggur skilningur á nauð- syn þess að íslendingar slægjust í för með öðrum vestrænum þjóðum um myndun þessara sam- taka, í því skyni að vernda öryggi og sjalfstæði lands síns. En fimmtaherdeild kommún- ista hjer á landi var á öðru máli. Hún hafði fengið ströng fyrir- mæli um að berjast af alefli gegn hverskonar tilraunum til þess að vernda sjálfstæði landsins. Þessa „dagskipan“ Stalins framkvæmdu kommúnistar hjer af slíku ofur- kappi, að þeir hikuðu ekki við að beita ógnunum um ofbeldi ef löggjafarsamkoman færi sínu fram og hefði hróp þeirra að engu. Blað þeirra lýsti því yfir að stjórnmálamenn lýðræðis- flokkanna, sem samþykktu aðild íslands að varnarbandalaginu, skyldu sjálfa sig fyrir hitta. Slík ráóstöfun yrði ekki „þoluð“. For- maður kommúnistaflokksins, Brynjólfur Bjarnason, ljet jafn- vel í það skína, að forystumenn lýðræðisflokkanna skyldu hengd- ir eða skotnir þegar Sovjet-Rúss- land hefði náð yfírráðum í heim- inum!!! Þetta var aðdragandinn að 30. mars árið 1949. Lýðræðisflokkarnir höfðu of- beldishótanir kommúnista að engu, eins og að likum lætur. Mátti heita að þessir flokkar stæðu sameinaðir um aðild Is- lands að Atlantshafssáttmálan- um. — En kommúnistar vildu sýna yfirboðurum sínum í Komin- form að þeir væru menn með tnönnum og þyrðu að standa við hótanir sínar. Þegar Al- þingi var í þann mund að samþykkja þingsályktunartil- lögu ríkisstjórnarinnar um þátttöku íslands í Norður-At- lantshafsbandalaginu, hóf sið- laus kommúnistaskríll, sem í margar vikur hafði verið æstur upp til óhæfuverka, árás á þinghúsið og þar með hik- lausa tilraun til mamidrápa og blóðsúthellinga. Árangurinn af þessari árás varð sá, að flestar rúður Alþingishússins voru brotnar, grjót flaug um bekki þingsala og nokkrir lög- gæslumenn og friðsamir borg- arar urðu fyrir meiri og minni meiðslum. En ofbeldisárás kommúnistaskrilsins var hrundið. Þúsundir friðsamra borgara og lögreglulið höfuðborgarinnar, varði löggjafarsamkomuna og tiyggði henni starfsfrið. Alþingi sp.mþykkti þátttöku íslands í varnarbandalagi lýðræðisþjóð- anna undir látlausri grjóthríð fimmtu herdeildarmanna. Þetta er það, sem gerðist hinn 30. mars íyrir tveimur árum. Þegar á eðli þessara atburða er litið, sætir það ekki lítilli furðu, að kommúnistar skuli þora að rr.innast á þá. Ætla mætti að þeir kysu fremur að þeir hyrfu sem fyrst í djúp gleymsk-unnar. Sannleikurinn er nefnilega sá, að síðan þetta gerðist veit hver ein- asti íslendingur, að kommúnistar eru opinberir flugumenn Rússa og yfirlýstir svikarar við íslenskt þjóðfrelsi. íslendingar hafa sjeð að' kommúnistar ætluðu að hir.dra löglega kjörna fulltrúa þjóðarinnar á Alþingi í að vinna störf sín. Ætlan þeirra var að beita Alþingi ofbeldi, taka hús á því og beita þingmenn lýðræð- isflokkanna misþyrmingum og cfbeldi. Þetta var tilgangurinn með skrílsárásinní 30. mars. — Vegna þess að hún mistókst, snúa tilræðismennirnir allri reiði sinni upp á löggæslumennina og frið- sama borgara, sem komu t veg fyrir hana. En kommúnistar mega vera þess fullvissir, að íslenska þjóðin gleymir ekki því sem gerðist hinn 30. mars 1949. — Hún man ofbeldi þeirra og svikræði. Hjeraðsmót Sjálfstæðismanna. MÖRG UNDANFARIN ár hafa Sjálfstæðismenn í flestum hjer- uðum landsins haldið hjeraðsmót, sem mikill fjöldi manna hefur sótt. Hafa þessar samkomur orðið svo vinsælar, að aðrir flokkar hafa nú siglt í kjölfarið og efnt til slíkra móta. Á þessum hjeraðsmótum Sjálf- stæðismanna hafa þingmenn og leiðtogar flokksins haldið ræður ásamt fjölda innanhjeraðsmanna í hinum einstöku byggðalögum. Yfirleitt má segja að yfir þess- um samkomum hafi ríkt blær frjálslyndis og víðsýnis. Þangað hefur oft sótt fólk úr öllum stjórnmálaflokkum og í raun og veru hafa allir verið þangað vel- komnir. Þannig hafa þessi hjer- aðsmót Sjálfstæðismanna orðið að almennum hjeraðshátíðum, sem fólk hefur sótt bæði til þess að rifja upp ýms atriði stjórn- rrálanna á hverjum tíma og til þess að njóta þar almennra skemmtana og samvista við vini og nágranna . Á þessu sumri hafa nokkur slík hjeraðsmót verið haldin við á- gæta aðsókn. En önnur verða haldin um næstu helgar. Þúsund- ir manna í sveitum og kauptún- um landsins munu sækja þessi móí. Jepparnir. AF ÖLLUM þeim tækjum, sem landbúnaðurinn hefur fengið á undanförnum árum, hafa fá orð- ið vinsælli en jeppabifreiðarnar. Þær hafa ekki aðeins verið hand hægar við ýms landbúnaðarstörí, heldur einnig ágætt samgöngu- tæki. Má ekki á milli sjá, hvort gildi þeirra er fneira sem rækt- unar- og heyvinnuvjelar eða samgöngutækis í þágu fjelagslífs og ferðlaga sveitafólksins. Það var nýsköpunarstjórnin og nýbyggingarráð, sem upphaflega áttu frumkvæði að innflutningi þessa vinsæla tækis. Hefur eftir- spurn jafnan verið gífurleg eftir jeppunum. Sjest það best á því, eð á s. 1. vetri, þegar ákveðið hafði verið að flytja inn nokk- uð á annað hundrað bifreiðar, bárust á þriðja þúsund umsóknir um þær. Nú eru nokkrar þessara bif- reiða komnar til landsins. Þær eru áreiðanlega kærkomnir grip- ii á þeim býlum, ,sem fá þær. Væri æskilegt ef hægt væri að halda áfram innflutningi þeirra eftir því, sem gjaldeyrisgeta þjóð arinnar leyfir á hverjum tíma. styrk til náms Fá greiddan aiEan náms- eg stúdentar fá ^3mdarík|issiH!m I----- Höfðingleg gjöf til Krabbameinsfje- j lagsins NILS WILLIAM OLSSON (lengst til hægri) menntafulltrúi við bandaríska sendiráðið, óskar þeim Þóri Kr. Þórðarsyni, Hólmfriði Jónsdóttur og Tómasi Árnasyni góðrar ferðar tii námsdvalar í Bandaríkjunum. 1 DAG ERU 100 ár liðin frá ‘'æðingu hins merka bónda og gæða manns, Guðmundar Rósinkarsson- ar í Æðey. Kona hans var Guðrún Jónsdóttir, írá Arnardal. Guð- mundur dó 1906, en Gurðún 1931. ^au eignuðust alls 13 börn og ern nú sjö þeirra á lífi, .Takob trje- smiður á Flateyri, Elísabet okkja Tónasar .Tónassonar útvegsbónda í jÆðey, Guðjóna, kona Lárusar Guðnasonar ctarfsfmanns hjá Landsímanum, Ragnhildur, kona Lofts Gunnarssonar búfr. og kaup manns, allar búsettar í Reykjavík, Á sgeir bóndi og hreppstjóri í Æð- ey, Halldór bóndi s. st. og Sig- ríður húsfreyja s. ot. S. L. MIÐVIKUDAG lögðu af stað hjeðan flugleiðis til Bandaríkj- cnna þrír af fjórum námsmönnum, sem hlotið hafa styrk frá Bandaríska utanríkisráðuneytinu. VIÐ ÝMISKONAR NÁM Stúdentar þeir, sem styrkinn hlutu, voru Þórir Kr. Þórðarson, sem ætlar að nema semítísk mál við háskólann í Chicago, Hólm- fríður Jónsdóttir, sem mun nema kennarafræði við Ohio-háskóla í Columbus, Tómas Árnason, sem niun nema lögfræði við Harward- háskóla og Stefán Júlíusson, sem mun nema enskar bókmenntir við Cornell háskólann í Ithaca. Þrjú hin fyrstnefndu hjeldu fjugleiðis til Bandaríkjanna á miðvikudag og munu fyrsta mán- uðinn taka þátt í námsskeiði til að kynnast bandarískum lifnað- arháttum og venjum og til að komast niður í málinu. Skyndihjálp til flótlamanna WASHINGTON, 27. júlí. — Tru- nian forseti hefur beðið banda- ríska þingið um að veita fimm milljónir dollara til skyndihjálp- ar við hina arabisku flóttamenn Á þesum merka afmælisdegi föður síns hafa systkinin gefið Krababmeinsfielagi íslands 10.000 kr. minningargjöf um foreldra s'na, er fjelagið rhá hagnvta sjer eins og það telur sjer hagkvæmast, að því einu tilskyldu, að krabba • meinssjúklingar úr Snæfjalla- hreppi eigi rjett til að njóta ár- )egs styrks frá Krabbameinsf je- laginu, er svari til allt að hálfs árs vaxta af minningargjöfinni, til þess að leita s.ier læknishjálpar. Fjelagið biður Mbl. að færa hin- um mætu gefendum kærar þakkir fyrir þessa höfinglegu gjöf. 0B DAGLEGA LÍFIMU HOFÐINGLEGUR STYRKUR Það er bandaríska utanríkis- ráðuneytið, sem veitir fje til námsstyrkja þessarra, en Alþjóða n enntastofnanir í New York út- hlutar þeim. Styrkurinn er ó- venjulega höfðinglegur, þar sem greiddur er ferðakostnaður, skólagjald, uppihald og náms- bækur. HJÁLP, SEM KEMUR SJER VEL Ástæðan fyrir því að svo marg- ir íslendingar hljóta hann nú, er sú, að mjög aukinn náms- kostnaður, m. a. vegna gengis- lækkunar, hefur torveldað íslensk um stúdentum nám í Bandaríkj- unum. * Islenskir stúdentar hafa getið sjer mjög gott orð í bandarísk- um háskólum og þessvegna vill bandaríska stjórnin gera sitt til þess að hjálpa minnsta kosti nokkrum þeirra fjárhagslega yfir erfiðasta hjallann. Gömul klukka í nýjum turni NÝR og spengilegur klukku- turn hefur risið af grunni vestur í kirkjugarði, þar sem áð- ur stóð líkhúsið. Laglegur turn þetta og laus við allt prjál. Sjást nú engar minjar gamla líkhússins utan klukkan, hún heldur áfram að kalla þá dauðu til grafar. Og þótt líkhúsið kiknaði eigin- lega alltaf undir nafninu vegna þess, hve ófullkomið það var, þá var það alls ekki ómerkilegt hús. Það nafði fylgst með þungum skrefum syrgjandi Reykvíkinga í hart nær öld. Minning slíks húss hlýtur að endast mörgum ævina. ,,6 í bíl" vel fagnað á Húsavík HUSAVlK, 27. júli: — Leikflokkur- inn „6 í bíl“ sýndi gamanleikinn „Carvallo“ í Húsavik í gærkveldi. Húsið var þjettskipað áhorfendum, sem tóku leiknum mjög vel. Það má segja að koma þessa flokks sje orð- inn fastur liður i leiklistarlífi Húsvík inga og fleiri staða úti á landi. Er hans ávalt beðið méð eftirvæntingu og flokkurinn kvaddur með ósk um að hann komi sem fyrst aftur. H' Þar voru sungnar messur INU mun færri óra fyrir, að í því gamla og hrörlega húsi, sem fyrir stundu kúrði vestur í kirkjugarði, hafa menn öðlast huggun og gleði. í líkhúsinu var fyrir eina tíð messað og fermt, meðan dyttað var að Dómkirkj- unni. Þóttu það ekki ómerkar at- hafnir í þann tíma, svo að húsið hefur hlotið meiri vegsemd en margan grunar. Holienskur floti í Oslo OSLO, 27. júlí. Hollensk flota- deild kom til Oslo í dag í kurt- eisisheimsókn.. M. a. eru í flota- deild þessari beitiskipið Tromp, tvær freigátur og tveir kafbátar. — NTB. o: Gamalt hús í nýjum garði G TIL að gleðja þá, sem þótti vænt um þennan fornfálega kumbalda, þá var timbrið úr honum ekki brotið í eldinn. Það var ekki bútað niður, ekki einu sinni selt hverjum sem hafa vildi. í kirkjugarðinum í Fossvogi stendur .líkhúsið endurreist. — Ásamt kirkjugarðsstjórninnimun svo auðna ráða, hvert verður hlutskipti þess í framtiðinni. — Kunningjar þess vona a. m. k. að það eignist þóknanlegt ævi- sinn. Henni brá heldur en ekki í verða fyrir valinu. Þar mundi líknéskið blasa við, þegar komið er inn i garðinn frá Suðurgötu. Nokkur kostnaðúr yrði af þess- ari framkvæmd, en varla þarf að draga í efa, að einhver fjelags- skapur eða jafnvel kirkjugarð- arnir sjálfir, mundi fúsir að taka málið að sjer og hafa af því veg og vanda. Heimaríkur gestur FYRIR nokkrum dögum kom óþekktur gestur í heimsókn í Stórholt 32 hjer í bæ. Hann fet- aði ljettum skrefum gegnum garðinn og var yfirlætislaus í fasi. En viti menn, hann gerði ekki vart við sig við dyrnar eins og sómakærra gesta er háttur, heldur kaus hann að laumast inn um gluggann. Þetta hefði svo sem ekkert gert til, ef kauði hefði ekki gerst nokkuð heimaríkur, þegar hanh kom inn. Hann ruddist inn í eld- húsið og heimtaði mat. Hagaði hann sjer dólgslega í hvívetná, braut leirinn og vann önnur spjöll, sem ekki er hægt að þola ókunnugum. Sneri á lögregluna ÞÓ kastaði fyrst tólfunum, þeg- ar sá óboðni komst í smjörið og hámaði það í sig upp til agna. Stóðst þá húsfreyjan ekki lengur mátið, heldur gerði lögreglunni viðvart og skyldi hún handsama þrjótinn. En hann sá við henni, og var allur á bak og burt, þegar hún kom. Undir rifsberjarunn- unum OÍÐDEGIS á fimmtudaginn átti iA húsfreyjan leið um garðinn kvöld. í einar Kristlíkneski dyrnar. VO að við snúum okkur aftur að nýja turninum, þá mundi fara vel á, að Kristlíkneski væri komið fyrir í einum dyrum.hans, austurdyrnar mundu sennilega S brún, þegar hún rakst þar á gest- inn óboðna, þar sem hann lá á tveiinur kettlingum undir rifs- berjarunmmum. n— Ef : einhver skyldi hafa misst svartan kött með stálpuðyrn Jkettlingum, þá ætti hann. að, vita, hvort ,hann kannast ekki við smjörþjófinn í Stórholtinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.