Morgunblaðið - 03.08.1951, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.08.1951, Blaðsíða 5
I Föstudagur 3. ágúst 1951. MORGUNBLaÐIB í Hiifn minna notað en skyldi Sfutt samlal viö Þorfinn Krisfjánsson prenara ÞORFINNUR Kristjánsson, prent ari, var meðal farþega xneð Gull- fossi frá Kaupmannahöfn í gœr- morgun. — Það eru aðeins fjögur ár síðan jeg var hjer síðast, sagði Þorfinnur, er blaðið átti stutt tal við hann í gœr, en nú er jeg aítur kominn til þess að sjá a-skustöðvarnar, iíklega í síð- asta sinn. Jeg vildi fá að sjá þœr erm einu sinni. SKIPSHÖFN TIL FYRIKMYNDAR — Hvað er að frjetta af starfi yðar ytra? — Það er nú lítið í frásögur færandi, segir Þorfinnyr, en það var annað, scm jeg vildi gjarnan Þorfinnur Kristjánsson s-ninnast á. Jeg vissi að Gullfoss «r glæsilegt skip, en jeg haíði ■ekki hugmynd um, hve vel mann að skipið er. Þjónusta öll og framkoma skipshafnarinnar er tii fyrirmyndar. Það er oft talað um það, sem miður fer, en sjaldnar minnst á hitt, sem vel «r gert. ÞÚSUNI) BINDA BÓKASAFN — Hvernig gengur með bóka- safn íslendingafjeiagsins i Höfn? — í fyrrahaust fjekk fjelagið .margar nýjar bækur að gjöf frá Islandi og eru nú á safninu alls vm 1000 bindi. Við íslcndingar í Danmörku hljóíum að vera ■mjög þaldtíaTir íyrir þá velvild, sem bókaútgefendur og einstak- lingar hafa sýnt okkur. Sjáifir verðum við svo að sýna að við kunnurn að meta það, með því að motfæra okkur saínið. Það hefur þ>ó til þessa verið minna en skyldi. En á byrjunarstigi geng- ur allt verst. Ef til vill hefur það ekki verið auglýst nóg, en safnið er til húsa hjá Dansk Islandsk Samfund. Það fjelag hefur einnig afnot af því fyrir meðlimi sína. Við höfum i staðinn afnot af Jpeirra saíni. AHSTOÐ-VIÐ ALDRADA ÍSLENDINGA Eins og kunnugt er, er Þorfinn- ur Kristjánsson aðalhvatamaður að fjársöfnun þ&irri, sem fram fer til þess að gera öldruðum íslendingum í Danmörku kleift að heimsækja æskustöðvar sínar. Hann lætur þó lítið yfir starfi .sínu í sambandi við það og vill sem minnst urn það tala. ICn nú hafa alls níu Islendingar komið hmgað heim vegna þessarar að- stoðai* síðan 1948. Gó8 gleraugu eru fyrir 6llu | Afgreiðum flest gleraugnaresspt | og gerum við gleraugu. Augun þjer hvílið með gleraugu | frái t n i h.f. Austurstræti 20. I 1 GÆFA FYLGIB trúlofunarhring unum frá SIGLRÞÓH Hafnarstræti 4 — Sendir gegn póstkröfu — — Sendið n4 fcvæmt mál Fongohjálpin hefm starfoð i 2 ár ag unnið þjóðnytjaverk UTGAFUSTARFSEMI Þorfinnur vinnur að þessu. í frítímum sínum, en hann hefur eínnig fleiri járn í eldinum. Hann gefur út timaritið „Heima og er- lendis“, sem er ársfjórðungsrit og hefur einnig íslenska frjetta- stofu, ,.Pressebureauet Island“. Auk dönsku blaðanna og frjetta- stofanna eru ýms verslunarfyrir- tæki, bankar og fleiri aðilar kaup cndur að frjettablaði hans. Kem- ur það út hálfsmánað&rlega. VERÐUR í REYKJAVÍK — Ferðist þjer eitthvað um landið að þessu sinni? — Nei, ekki geri jeg ráð fyrir því. Reykjavik er fæðingarbær minn, og hjer finnst mjer best að vera. Þó getur verið að jcg skreppi austur fyrir íjali, aust- ur á Eyrarbakka. — Hve lengi dveljið þjer hjer? — Það er ekki fyllilega ákveð- ; ið, en jeg vonast eftir að komast j utan með Gullfossi 18. ágúst. Dragtir Kápur Hálf-kápur : I Noíað og Nýtt I.ækjargötu 6A. NOTNASTOLAR- póleraðir í mahognilit. Naktur stj-kki til sölu. Einar GuSmnndsson hejldverslun. — Austurstræti 20 KP LOFTVR CF.TUR Þ.4Ð EKKt ÞÁ Ilí'LRt RehnettabáSur! Nú þegar óskast góður reknetabátur til leigu, ekki minni en 25 tonn. Upplýsingar í síma 9G70. í TVÖ ÁR hefur nú starfað hjer á landi hjálparstofnun fyrir af- brotamenn, sem kölluð hefur ver- ið „Fangahjálpin". Hún var upp- haílega ^stoí'nuð á vegum góð- tcmplarastúkunnar Andvari nr. 265 hjer í bæ fyrir tillögu Oscars Clausens hins góðkunna rithöf- undar. Oscar hefur frá upphafi verið formaður Fangahjálparinn- ar og hefur unnið merkilegt brautryðjandastarf á þessu sviði. T'íðindamaður Mbl. kom að máli við Oscar fyrir nokkru og spurði hann fregna af starfsemi Fanga- hjálparinnar. — Markmið Fangahjálparinn- er, segir Oscar, er að Ixjálpa dæmdum afbrotamönnum til þess að verða aftur nýtir þjóð- fjelagsborgarar, þótt þeir hafi einu sinni lent í hrösun og kom- ist í kast við dómstólana. Það hefur oft viljað við bregða, að þegar fangar hafa lokið gæslu- vist sinni, að þeir eiga hvergi höfði sínu að að halla, Þeir leið- ast því brátt til nýrra afbrota cg þannig koll af kolli, þar til þeir verða forhertir afbrota- menn, tapaðir fyrir þjóðfjelagið. I-RJÚ AÐALATRIÐI — Og í hverju hefur aðstoð Fangahjálparinnar aðallega ver- ið fólgin? — Það er þrennt, sem er frum- skilyrði til þess að bjarga mönn- um út af glæpabrautinni, það er ao þeir eignist fást heimili, hafi yinnu og sæmilegan klæðnað til að ganga í. Þá er rjett að benda á, _að mestur hluti allra afbrota á Islandi á rót sína að rekja til áfengisnautnar. Má óhaett full- vrða að 90% stærri afbrota standi að einhverju leyt.i í sambandi við áíengisnautn. Þarna er starf Fangahjálparinnar sjerstaklega fnikilvægl, að hjálpa afbrota- manninum til að losna úr slæm- um drykkjufjelagsskap, hjálpa honum til ,að efha bindindisheít. —- Álítur þú að starfsemi þessi hafi komið að tilætluðUm notum? — Já, það má telja, að sæmi- legur og jafnvel ágætur árangur hafi náðst. Starfsemin er ennþá ung, en hefur mætt mikilli vel- vild dómsmálastjórnarinnar og er víst að aldrei hefði náðst sá árangur, sem raun hefur á orðið, el sakadómarinn í Reykjavík og dúmsmálaráðherra hefðu ekki sýnt eindæma skilning á starf- seminni. AF 83 HAFA AÐEINS i FALLIÐ 4FTUR í SEKT — Á þessum tveimur árum, sem Fangahjálpjn. hefur verið starfandi hefur hún hjálpað 20 föngum sem fengið hafa skilorðs- bundna náúun og 13 iöngum, sem • fengið haía reynslulausn. Bæði , skiloi ðsbundin náðun og reynslu I iausn er veitt föngum með vissum ; skilyrðum. um að þeir dveljist á ákveðhum stöðum ,sjeu bindindis samir á áfenga drykki o. s. frv. Af þcssum 33 föngum hefur einn dáið og fjórir hafa fallið aftur í afbrot. Hinir 28 vinna nú ! að ýmsum störfum í þjóðfielag- J inu. 13 eru við fiskveiðar, 7 við j landbúnaðarstörf, 3 við vielsmíðr i ar og aðrir vinna að garðyrkju, j við hraðfrystihús o. s. frv. — Þegar Fangahjálpin hóf starf sitt hafði jeg ekki vænst að það heppnaoist að bjarga nema 10% af föngunum, en nú huía aðeins rúnr 10% þeirra fa.ll- ið- aft.ur í ;;ekt. NAUÐSYN AÐ KYNNAST HÖGUM FANGANNA — Er þetta þá ekki betri ár- angur en náðst. hefur á hinum Norðurlönduhum? — Jú, svo virðist vera. Kemur það aðalrega. til af mismunandi starfsháttum Fartgahjálparinnar hjer og á hinum Norðurlöndun- um. Þar er fangahjálp aðallega fólgin í þvi að gefa mönnum peninga, þegar þeir korna út úr fangelsum, í rauninni líkt og Hfálpar afbrotamönnum að byrja nýtt fíf Samlai við Oscar ílaussn íormanr, fangahjálparrrtEisr Oscar Clausen. starfsemi vetrarhjálparinnar og annarra góðgerðastofnana. En Fungahjálpin hefui* hinsvegai* legt aðaláhersluna á það að gera &llt sem hægt er til að bjarga mönnum af aíbrotabrautinni. Súmir fangar eru eí til vill orðnir svo harðnaðir afbrotamenn, að það er lítil von um að hægt sje &ð hjálpa þeim. — En hvernig getið þið úr því skorið fyrirfram, hverjir íang- anna sjeu iíklegir til að vilja byrja nýtt lif? — Jeo' hef haft óteljandi göng- ur í fangelsin á þessum árum til þess ao kynnast föngunum og mynda mjer skoðun um, hvort hægt sje að hjálpa þeim og er þá fyrsta skilyrðið, að þair vilji hjálpa sjer sjálfir. Og fiestir, að mmnsta kosti yngri fangarnir, fá eítir nokkur samtöl einlægan á- huga á að bæta fyrra liferni sitt, og þá kemur til kasta Fanga- hjálparinnar í samráði við fang- ann sjálfan og aðstandendur hans að finna þann veg, sem ætla má að honum sje fyrir bestu. Þessi athugun tekui* stundum nokkuð langan tinia, enda verður að vanda hana. Það getur verið heppilegt fyrir fangann að .kom- ast á rólegt sveitaheimili hjá góð- um húsbændum eða að komast á sjóinn u&dir handleiðslu góðs skipstjóra. BJARGAÐ UR SKULDAKRÖGGUM En auk þess að újvega atvinnu er ýmislegt anuað, sem þarf til sð hjálpa fanganum til að komast yfir erfiðasta hjailann. Það get- ur t. d. verið, að hann sje svo sokkinn ofan í skuldir, að hann sjái engan .veg. út úr. því og þá grípi hann vonleysi og skeyting- arleysi. Oftast er hjer um að ræða opinber gjöld, skatta og útsvör, barnsmeðlög o. fl. í slík- um tilfellum hefur Fangahjáipin haft milligöngu um að fá þcssar skuldir lækkaðar eða íelidar niður. Ber að geta þess í þvi sambandi, að borgarstjórinn í F-eykjavik og sömuleiðis toll- stjóii hafa sýnt mikinn skilning á þvi, að lækkun eða niðurfall þessara skulda getur munað hci*slumarkinu. um það, hvort viðkomandi afbrotamaður getur áljyggjulaus byrjað nýtt starf- andi lif í þjóðfjelaginu. ÞAKKLÆTISYOTTUR í UMSLAGI — Hvaöan hefur Fangahjálpin fje til þessarar starfsemi? — Við höfum notið styrks fiá Stórstúku íslands og auk þess fiá einstaklingum, sem hafa gef- ió fje til starfserninnai*. Þar á meðal hafa nokkrir íangar, sem hjálpað hefur verið styrkt starf- sc-mina með frjálsum, fjárfram- lögum, eftir að þeir hafa komí® sjer fyrir i lífinu. T. d. korn eir.i* sinni til mín úti á götu ungur* maður. sem notið hafði aðstoðar* : Fangáhjálparinnar. Hann rjettS mjer sem þakklætisvott umslasf með 1000 kr. í. Einnig vildi jeí»* mega þakka kvenfjelagi í Holt— unum, sem sendi okkur fyrir skömmu myndarlega peninga— gjöf, og er það eina slíka fje— lagið utan af landí, sem það hef- ur gert. EN BESTr STYRKURINN ER SAMSTARFSVILJI — En í rauninni er besti styrh- urinn. sem Fangahjálpinni veit- ist skilningur og samstarf. Ein» og jeg gat um áðan, er það sum- u.m föngunum fyrir bestu a'3- komast á gott sveitaheimili. Þeg- ,ar kom í Ijós, að við þyrftum á. jsveitadYÖl að halda fyrir unga aibrotsmenn, voru það nokkur bændaheimili í Rangárvallasýslu» sem komu til roóts við okkur með mikiili velvild og tóku fang— ana til ávalar. 1 STEFNUBREYTING í. HEGNINGARMÁLUM j — Fýrst starfsemi Fangahjálp- arinnar hefur gefið svo góða. raun, verður henni þá ekki jhaldið áíram í framtíðinni? j — Jú, og nú síðasta rnissei 13 jhöfum við vikkað starfsemina |nokki;ð. Komu til okkar rnargar j hjálparbeiðnir frá fjölskyldunt diykkjusjúkra manna, sem þ» höíðu ekki af sjer brotið. ÞacF síarf heíur gefið góða raun, er þó enn aðeins skammt komið. j En ef tala skal um framtíðar- viðhorfin, þá er rjett að benda á- merkdlega þróun, sem nú er aS \ erða i hegningarmálum. Er sjer staklega að verða mikil stefnu- breyting á Norðurlöndum. T. d. I eru Svíar að rífa niður stærsta fangelsi sitt á Langholmen í Stokkhólmi. Hóhnanum verður breytt í skemmtigarð, en föng— unum verður. komið fyrir í opn- um fangelsum, víðsvegar ura. landið. Sama er og í uppsiglingu jí Danmörku. I Það er verið að hverfa frá inni- Jokun isnga i stórum fangelsurrt og þróunin gengur í þá átt að) koma þeim fyrir í betrandi vinnifc við landbunaðai'störf o. s. frv. Þetta er rökstutt með þvi aiS 3’firborðið af afbrotamönnunum ei u unglingar, ungir menn, sem íyrir ýmis óviðráðanleg atvik hafa leiðst út á glæpabrautina. F\*rir þessa menn er innilokun- arfangelsi mjög óheppilegt. Þeir* þyrftu að kornast í dvöl á vinnu- heimili, þar sem þeir verða fyrirr betrandi áhrifum. Og að lokum segir Oscar Clau- sen; — Jeg hef nú mikinn áhuga fyrir að konta slíku hæli upp- rneð aðstoð þess opinbera og’ góðra manna. Vinnuhæii þetta þyrfti að hafa nóg landrými til ræktunar og ættu vistmenn sjálf- H og eingöngu þeir að vinna afí ræktunar*starfi og húsabygging- um. Y'rði þarna stór búreksturr og handverk að vetrinum. Mjer* kenrur enginn staður í hug, seni væri heppilegri til þessa en út- sveitir Rangárvallasýsiu s. s. Holtin eða Landsveitin. Þetta er að visu aðeins hugmynd enn, sem. eftir á að framkvæma. En sama þróun hiýtur að verða í hegn- ingarmáium hjer á landi og á hinum Noiðurlöndunum og þá eir Farrgahjalpin reiðubúin að Ijá utbeina sinn til þess að fyrstu' til- raunirnar megi takast vel. — Er þessi tillaga Oscars ek’ki' þess verð, að hemii sje gaumur gefinn? L U Þ. Th.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.