Morgunblaðið - 03.08.1951, Page 10
MOKGÍ/A DLAÐIÐ
10
Fostöðagur '3,- ágúst 1031.
Framhaldssagan 29
rmfiiimiiiiiiiin
STðLKAN 06 DAUBINN
Skáldsaga eftir Quentin Patrick
„Líklega þá helst leikritum,“
svaraði hann og svo bætti hann
við eins og honum hefði skyndi-
lega dottið það í hug: „Eigúm
við að fara í fjölleikahús?“
„Það væri gaman,“ sagði jeg
kurteislega. „Og það væri líka
gaman að vita ástæðuna fyrir
þessum óvænta bíltúr.“
„Það liggur ekkert á því,“
sagði Trant og horfði á veginn
framundan. „Við komum kannske
dálítið of seint, en við fáum að
sjá eitthvert ljettmeti og söng,
svo það gerir ekkert til þó að
við sjáum ekki byrjunina.“
Svo talaði hann um hversdags-
lega hluti og hann var svo
skemmtilegur, að jeg freistaðist
til að halda að hann hefði aðeins
komið til Wentworth til að hitta
mig.
Satt að segja vaknaði enginn
grunur með mjer, fyrr en hann
ók inn á Broadway og stöðvaði
toílinn fyrir framan Cambridge-
leikhúsið. Hinum megin við göt-
una og beint á móti var „Amber
Ciub“.... sem vakti hjá mjer
óþægilegar endurminningar.
Þegar hann leiddi mig yfir göt-
una þar sem við Eiaine höfðum
hlaupið fram og aftur kvöldið
sem Grace hafði verið myrt, datt
mjer í hug að hann mundi ætla
að byggja upp aftur atburðarás-
ina.
En jeg róaðíst þegar jeg sá að
leikhúsið var lokað. Þar voru
ekki nema kvöldsýningar. Trant
lcgreglufulltrúi hafði keypt blað
og las nú yfir leikhúsauglýsing-
arnar.
„Þykir yður gaman að Gilbert
Og Sullivan?" spurði Ijann loks.
„Já. Við Ijekum einu sinni „The
Gondolier“ í Newhampton til
ágóða fyrir fátæka og sjúka og
jeg ljek Tessa.“
„Það var fallega gert.“ Trant
tók úndir handleggínn á mer og
gekk fram há Cambridge-leik-
húsinu. „Þeir eru með „Pinafore"
á Vandolan-leikhúsinu í dag,“
sagði hann.
Þegar við kornum inn í and-
dyrið á Vandolan, fannst mjer
snöggvast jeg kannast við mig.
Það var ekki fyrr en Trant fór
til að kaupa aðgöngumiðana, að
jeg áttaði mig. Elaine og jeg
höfðum óvart villst hingað inn,
þegar við ætluðum að fara yfir
í Cambridge-leikhúsið í fyrsta
hljeinu. Nú mundi jeg eftir aug-
lýsingunum, þar sem stóð með
svörtum og rauðum bókstöfum:
, H. M. S. Pinafore" og „Box and
Cox“.
„Það er næstum útselt, en jeg
fjekk tvö sæti á svölunum,"
sagði Trant þegar hann kom aft-
ur.
Við komum seinna en jeg hafði
haldið. Annar og síðasti þáttur
var byrjaður þegar við komum
inn. Trant hafði keypt stóra
öskju með súkkulaði og rjetti
mjer hana.
Jeg hafði ekki sjeð „Pinafore"
áður, en það var margt líkt í
því leikriti, eins og reyndar öll-
um leikritum Gilbert og Sulli-
van .og gamlar endurminningar
vöknuðu með rnjer.
Lögin sem ómuðU frá leiksvið-
inu og askjan með súkkulaðinu
á hnjám mjer, gerði það að verk
um, að mjer fannst jeg vera orðin
barn í annað sinn. Jeg gleymdi
Trant/lögreglufulltrúa og áform-
um hans og jeg gleymdi Grace.
Jeg hallaði mjer aftur á bak í
stólnum og naut þess að fylgjast
með leikritinu. Jeg minntist þess
þegar við höfðum verið að æfa >
,,The Gondolier" í leikfimissaln-
um í Newhampton. Og jeg minnt
ist sigurhróss míns, þegar Jerry,!
sem ljek ungan og laglegan j
„gondolier" hafði boðið mjer út
eftir sýninguna, og gleymdi að
hann hafði ákveðið að hitta feg-
urðardísina Emily Clarke....:
þeirra tíma Normu Sayler.
Atburðarásin í „Pinafore“
aiinnti líka á „The Gondolier“.
Meðal leikendanna var strangur
skipstjóri, ástsjúk dóttir hans, og
myndarlegur sjómaður, sem líka
var ástsjúkur, en af mjög lágum
stigum. Skipstjórinn komst að
ástum þeirra og ljet setja sjó-
manninn í bönd. En á hættu-
stundinni, bjargaði gömul fóstra
öllu við með því að segja að það
hefði verið skipt á sjóhianninum
og skipstjóranum strax eftir
fæðinguna og það var óbreytti
sjómaðurinn sem var af heldra
fólki. Þrátt fyrir mikinn aldurs-
mun, urðu þeir að skipta um
hlutverk, sjómaðurinn varð skip
stjóri og fjekk dóttur skipstjórans
i kaupbæti.
Það var ekki fyrr en fór að
líða að leikslokum að jeg fór að
sjá þetta leikrit eins og hvert
annað leikrit á Broadway með
lifandi leikurum.... en ekki sem
endurminningu frá æsku minni.
Og þegar jeg fór að horfa á leik-
ritið frá rjettu sjónarmiði, varð
mjer smátt og smátt ljóst hver
tilgangur Trants hafði verið.
Gamla fóstran hafði einmitt
opinberað leyndarmál sitt. Kór-
inn stóð á miðju leiksviðínu og
fyrir framan hann gekk leikarinn
sem hafði farið með hlutverk
sjómannsins. 'Hann hafði haft
fataskipti og var kominn í glæsi-
ltgan sjóliðsforingjabúning.
Jeg hafði ekki tekið eftir þess-
um leikanda fyrr en einmitt þá.
Jeg hafði ekki sjeð leikenda-
skrána og vissi ekki hvað hann
hjet. Og mjer hafði ekki dottið
í hug að jeg hafði sjeð hann
áður.
En nú var enginn vafi á því
hvar jeg hafði sjeð þetta eldrauða
hár, reglulegan vangasvipinn og
glæsilega einkennisbúninginn
með gullborðunum.
Jeg hallaði mjer aftur á bak
og mjer sortnaði fyrir augum.
Af öllum þeim s.dnx, voru við-
riðnir morðið á prácé, höfðum
við mest velt fyrir okkur hver
sjóliðsforinginn var. Qg þarna
stóð hann ljóslifandi á leiksvið-
inu. Maðurinn sem svo auðveld-
lega hafði getað myrt Grace, var
lítt þekktur. óperusöngvari. Hann
stóð á leiksviðinu og söng af
fullum hálsi ástarvísur með hand
legginn um mitti skipstjóradótt-
urinnar.
Jeg fann að Trant horfði á mig.
Svo lagði hann höndina á hand-
kgg minn og hvíslaði:
„Er það rjett?“
Allir sungu á leiksviðinu.
Hijómsveitin Ijek lokalagið.
„Já, það er rjett,“ hvíslaði jeg.
Það var hann, sem var með Grace
á Cambridge-leikhúsinu sama
kvöldið og hún dó. Hann er sjó-
liðsforinginn. með rauða hárið.“
16.
Næstu mínútur voru vægast
sagt mjög óþægilegar. Þarna á
leiksviðinu stóð sjóliðsforingi
jGrace. Jeg horfði á hann og
heyrði hann syngja. Hann var
nálægt okkur, en þó svo langt
burtu að við náðum ekki til hans.
j Þrátt fyrir áfall mitt, var þó
margt sem jeg fór nú að skilja.
Þegar jeg starði á þennan rauð-
,hærða leikara, skildi jeg hvers
Ivegna jeg hafði fundið til tor-
tryggni strax og jeg kom auga
á hann við hlið Grace. Jeg skildi
jhvérs vegna mjer hafði fundist
hann undarlega hvítur í framan
'og hvers vegna mjer hafði fund-
ist einkennisbúningurinn hans
illa til reika.
j Hinn leyndardómsfulli aðdá-
;andi Grace hafði ekki verið sjó-
jliðsforingi, heldur söngvari.
j Trant lögreglufulltrúi tók
hattinn sinn sem hann hafði lagt
undir stólinn.
„ Nú förum við,“ sagði hann
og jeg fylgdi á eftir honúm út.
Fyrir utan leikhúsið fórum við
inn um litlar dyr ,sem lágu að
búningsherbergjum leikendanna.
Trant lögreglufulltrúi sneri sjer
að dyraverðinum.
„David Lockwood?" sagði hann
spyrjandi og þegar dyravörður-
inn setti upp tortryggnissvip,
sýndi Trant honum lögreglu-
merki sitt.
„Gerið svo vel.... fyrstu dyr
á annarri hæð. Hann kemur rjett
strax.“
Jeg hafði aldrei komið að leik-
tjaldabaki í raunverulégu leik-
húsi áður. Loftið var þrungið
lykt af púðri og andlitsfarða.
Tveir leikendur í gamaldags bún
ingum stóðu í tröppunum og
reyktu. í gegnum glerhurð sá
jeg snöggvast bregða fyrir leik-
sviðinu og leikendunum. Tjaldið
wiwi»«wmBi»^uiwunni«Mn»iminwiiniiB8w
§ s
I Tannlœkninga- l
stofan
£ lokuð til 21 ■ ágúst vegna sum- £
| arleyfa. |
E Engiilíert Guðniurtdsson s
f ■llll■l■lltl■llllll■ll■llll■l■■llllll■lllll•fl••llllll*ltlllllll |
| íbúð í bragga {
: Laugarnes-kamp 39 til sölu. — E
I Fagúrt útsýni, afár sólríkt. —- |
| Uppl. eftir kl. 5 í dag og frá i
I hádegi á morgun. |
= s
“ lllllllllllllllllllll■■ll■llllllllllll•llllll■l■l•lllIll■lllllc■ 5 = iiiiiiiiiin
rlsO 1
VERZUiIlfN —' 1
EDINBORG I
J|| Hálf- I
Wm dúnn [
nýkominn.
■ miiiiiiiiiiiiiiiilitliiiiiiiiiniiiiiiiiiii Z.
Sá,
LtTIL
t sem tók pakka með kjólaefni og |
-amerísku bláði, í Bafha, Hafn- |
arstræti, í gær milli kl. 3.30 =
—4, er vinsarúl. beðinn að skila =
honum þangað aftur.
= E
Steypu-
j brærivjel j
| og olíufyringarofn til sölu, — |
I Karfavog +8. —
z iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiHiii s : uiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiHiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiinMii
Pr ar
iano
til sölu.
Tlljóðfæraverkstæði
Pálmars ísólfssonar
Skólavörðustíg 13A.
| \
5 fiiiiiiiiiiimmiim
iHiiiimii 3
Ný, amerísk
A veiðimannaslóðum
EFTIR LAWRENCE E. SLADE.
17.
Við nánari athugun kom Beggi auga á, að út úr ísbrúninni,
nokltuð ofarlega, var gamall trjástofn. Óg í kringum hann voru aug-
sýnilega för eftir járnaða skó og auk þess virtist, sem kaðli hefði
verið fest á trjástofninn.
Þannig hafði Jim þá komist upp. En hann virtist hafa haft kaðal
og fyrst svo var, þá var Beggi lítið þættari, því að hann hafði
éngan snærisspotta, meðferðis. Sleðinn var víst nokkra hundruð
metra í burtu.
Rjett í þessu varð Begga litið upp á sprungubrúnina og hvað
haldið þið að hann hafi sjeð þar. Þar var kominn forustuhundur-
inn góði. Hann virtist ekki vera með nein aktygi. Einhverja>5
shtrur af aktygjunum virtust þó enn vera á honum. Sennilega
hafði hann nagað sig lausan.
Beggi athugaði málið um hríð. Þegar hann færði sig aftar í j
sprunguna, sá hann, að þeir óþokkarnir, Bolli og Ragnar, höfðú
.'ært sleða hans alveg fram að brúninni á íssprungunni. Þar höfðu ,
þeir velt síeðanum um koll og var auðsjeð, að þeir ætluðu að
lála líta út fyrir, að sleðinn hefði oltið um koll í slysni og Béggi
fiefði þá faiið ofan í sprunguna. Það vantaði eklti, að þetta var allt j
þrauthugsað hjá þeim.
En samt gaf þetta Begga nýja von. Hver veit, nema hundurinn j
gæti hjálpað honum. Það var nóg af köðlum á sleðanum og ef hann
gæti fengið hundinn til að draga sleðann að eoá flytja til hans
kaðlana, þá hugsaði Beggi, að hann gæti ef til vill komist upp úr. |
Hann reyndi nú að gefa hundinum merki og gera honum skilj-
r.nlegt, að hann ætti að sækja sleðann og koma honum fram á
brúnina, en hundurinn aðeins gelti og hoilði á hann.
| Sá, sem getur lánaS eða útveg- | =
| að að láni
f 25—30 þúsund f |
I getur fengið leigða þriggja her- | =
| bergja íbúð í haust. Tilboð send i 1
l ist Mbl. merkt: „Vönduð íbúð I 1
1 — 819“. { |
; '1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Z
| Sem ný
| suniarkápa ||
5 nr. 44 til sölu. Barmahlíð 47, = =
| uppi. —■
S llllllllllllllltllllHlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli = =
ISvkomnir
KAYSER ]I
1 Nylonsokkar { |
jj ódýrir. — Millifóðui'strigi. -— j j
f Blúndur —1 Gardínuefni.
VefnaSarvöruversIunin, E E
Týsgötu 1.
r iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii s =
IHaður
= sem er reglusamur og hefir f E
f sæmilegar ástæður, vill kynnast = =
5 stúlku eða ekkju á aldrinum = E
= 30-J-45 ára. Má hafa með sjer | i
f börn 1 eða fleiri eftir samkomu = = IIIIIIIIIIHHHIHIIIHIIinil
| lagi. Uppi. ásamt nafn'i og heim
I ilisfangi. Ennfremur. símanúmer
S og mynd, ef fyrir hendi er, sem
| verður endursend leggist inn á
f afgr. Mbl. merkt: „Þögn —-
= 818“ fyrir 10. ágúst. Fullkom-
I in þagmælska. — Drengskapar-
I heit. —■
Ibúð
Óska eftir 2—3ja herhergja íbiið
frá 1. september n. k., helst ut
Í an við baúnn. Tilboð sendist
E afgr. Mbl. merkt: „Utan við
I bæinn — 820“.
- IIIIIIIIIIIItMlllllflHIHHHIHHIIHIIIIIIHIIIHIIIIIIIIIII
Einn
háseta
vanan síldveiðum, vantar á m.s.
íslending, BE-73, nú þegar. —
Uppl. gefur:
Kristján Cuðlaugsson,
Austurstræti 1.
MIIHIIIIIIIIIHIIIHiIIIIHHHIHHiIHHIIHHIIIHIIHHHI
stofuskápur
Höfum nohhur stykki stofuskápa
til sölu með tækifærisverði. —
Nýtt iag, sem ekki er til ann-
arsstaðar. Til sýnis í Trjesmiðj-
unni, Borgarfúiii 1.
III Mf 11111111111111111111111111
kdpa
nr. 16. til sölu. Yesturgötu 7,
fyrir liádegi.
linilllllllHHIIIHIIIIIIIIIIIIIlHHHIIIIHHIIHIIHMHie 1
Góður
íbúðarbraggi
í Selby-kamp 15, Sogamýri, til
sölu. Uppl. á staðnum.
5 ;
BARNAVACNI
I Vil kaupa vel með farinn bnrna
= vagn. Hringið i síma 7098 i dag.
: 'HIIIIIMMHitMH'HIIIIIIMfM*
I 8 lampa Philips-
! !
ir
útvarpstæki
E til sölu. Njálsgötu 34, niðri. I I
Haínaríjörður
Barnlaus hjón óska eftir 1—3
herbergja íhúð í Hafnarfirði nú
þegar eða í haust. Tilboðum
sje skilað fj-rir hádegi ó laug-
ardag til Morgunhlaðsins, —
merkt: „Maður í siglingum“.
; 822“.
! 111111111111111111IIIIHIIIIMIMII
Plastic-
vörur
Barnabaðker
Skálar í ísskápa
$eaAi#*aeHÍ
R i r n j 4 v í h
3 =
Nýr blll til sölu
til sölu, Hillmann, minx, modél
1950, til sýnis í dag á bifreiða-
verksta'ði Jóns Loftssonar, Hring
braut 121.
z Z ••IMIIIMMIMIIIIIIimilllllHIIIIIHIIIIHHIHIHIIIMIMII
Herhergi
í kjallara í nýju liúsi í Höfða-
hverfi til leigu. Inngangur úr
ytri forstofu. Uppl. í sima 5461.