Morgunblaðið - 13.12.1951, Blaðsíða 12
f 12
-<~w
MORGUNBL'AÐIÐ
Fimmtudagur 13. des. 1951 1
- Marie Eliingsen
Framh. af bls. 9
lendinga erlendi's, þá finnst mér,
sem þeir standi mér nær en land-
ar mínir. 50 ár reynsla hefur
kennt mér, að þegar Islendingar
verða á vegi mínum, þá eru þeir
jafnan boðnir og búnir að leysa öll
mín vandræði, eftir því sem þeir
bezt geta. Svo eiginlega finnst
mér, að ég hafi með árunum eign-
ast nýja ættjörð, sem að minnsta
kosti að sumu leyti ér mér eins
hugstæð og' sú norska.
Á styrjaldarárunum síðustu, er
norska þjóðin átti sem erfiðast,
fann ég bezt, hve drenglund og
hjálpsemi er ríkur þáttur í skap-
gerð íslendinga. Það verða alltaf
mínar hjartfólgnustu endurminn-
ingar, er mér auðnaðiit að geta
annast gjafirnar, sem héðan voru
sendar til Kristiansund. Bærinn
var lagður í rúst og fólkið stið
uppi allslaust.
Hinu bágstadda fólki voru send-
ar héðan nauðsynjar í svo ríkum
mæli, að langt fór fram úr hinum
djörfustu vonum mínum. Og það,
sem bezt var. Ég fann, hve gjaf-
irnar voru gefnar af góðum hug.
Þegar ég kom til Noregs 1946
og gekk um Kristiansund, var
þetta orðin ný borg. Fólkið var
breytt, sem eðlilegt var eftir hörm
ungar styrjaldarinnar, og um-
hverfið óþekkjanlegt á gömlum
slóðum. Ég átti blátt áfram erfitt
að finna göturnar í fæðingarborg
minni.
En það verður svona, þegar
maður eldist og ný kynslóð er tekin
við. Fólkið breytist, umhverfið
breytist. Við getum átt erfitt með
að finna „göturnar" í hinni nýju
veröld.
Á þessa leið komst frú Marie
Ellingsen að orði á þann látlausa
hátt, sem hennar er vandi. Hef
ég engu þar við að bæta.
Nema því, að sennilega hefur
hún aldrei gert sér fulla grein
fyrir því, að allt það góða, sem
hún hefur mætt á lífsleiðinni, á
hún að þakka manngöfgi hennar
sjálfrar, og þeim hlýhug, sem hún
sjálf hefur til að bera í svo
óvenjulega ríkum mæli.
V. St.
★
Kveðja á sjöíugsafmælinu
13. desember 1951.
Manstu hásumardagana hvítu
og heiðblá og fögur kvöldin,
og sól á stöfuðum seglum
um sundin öll,
skógana sveipaða svefnró
um sumarnætur hljóðar,
og hrikadýrð hárra fjalla
í hvítri vetrarmjöll?
Manstu haustin með húm á
ströndum,
er heim sneru skipin stöfnum
með þungan þyt í reiða
við þyngjandi sjó.
Sérðu ekki enn fyrir sjónum,
hve Sætesdalur er fagur
með velli og víðlenda akra
undir vetrarins fyrsta snjó?
w
Þú veizt líka, kæra vina,
að vorið er Noregs undur
með ösp og ungar bjarkir
um angandi hlíð,
er bjöllukliðurinn blandast
blænum um sólheiða daga
Og hásigldum knörrum er haldið
á höfin blá og víð.
Hann flutti þig einn þeirra
forðum
um fornar víkingaleiðir
með honum, sem héztu tryggðum,
hingað til lands.
Svo gáfuð þið íslandi ótrauð
æfinnar störf og daga.
— Nú biðjum við þér alls hins
bezta
og blessum minningu hans.
Haf þökk fyrir komuna, kæra,
þú kaust þér í hjörtunum
landnám
og átt þar í kærleika óðul
ofan við daganna stríð,
og fléttaðir traustar taugar,
sem tengja Noreg og fsland
meðan hásigldir knerrir halda
um höfin blá og víð.
Sigurður Einarsson.'
Póstburður og simagjöid
verða hækkuð um áramót
VEGNA VAXANDI rekstrarkostnaðar við rekstur póst- og síma-
mála ,hefur stjórn þessara ríkisfyrirtækja tilkynnt að .póstburðar-
gjöld og símagjöld hækkí frá næstu áramótum að felja. — í
fréttatilkynningu um þetta frá póst- og símamálástjórninni
segir m. a.:
Vegna hins síhækkandi verð-*^
lags og þar af leiðandi hækkun-
ar á öllum rekstrarkostnaði, svo
og kostnaði við aðrar fram-
kvæmdir, hefir þótt óhjákvæmi-
legt að gera nokkrar hækkanir
á gjaldskrá pósts og síma frá
næstu áramótum að telja, svo
sem birt er í nýútkomnum Stjórn
artíðmdum.
Póstburðargjöld og símagiöld
hafa haldizt óbreytt síðan 1. maí
1950 eða rúmlega hálft annað ár.
Á sama tíma hefir kaupgjalds-
vísitalan hækkað um 44 stig, en
hvert vísitölustig eykur rekstrar-
gjöld pósts og síma um ca. kr.
219.000 á ári. Það skal þó tekið
fram að gjaldahækkunin er að
meðaltali mun lægri að hundr-
aðstölu en vísitöluhækkunin.
Helztu hækkanir samkvæmt
hinum nýju gjaldskrám eru sem
hér segir:
1. Póstburðargjöld
fyrir venjuleg bréf innanbæj-
ar hækka úr 50 aurum í 75 aura
og innanlands og til Norðurlanda
úr 1 kr. í kr. 1,25. Burðargjöld.
I til annara landa hækka ekki.
2. Símagjöld:
Gjöld af talsímum hækka að
meðaltaii um 12—15 af hundr-
aði.
Umfram-símtöl við sjálfvirkar
stöðvar, fram yfir 700 á ársfjórð-
ungi, hækka úr 20 aurum upp í
30 aura.
Símtalagjöld innanlands hækka
um eina krónu hvert viðtalsbil
og símskeytagjöld innanlands úr
40 aurum í 50 aura fyrir orðið.
Símtala- og símskeytagjöld til
útlanda hækka ekki.
Hin nýja gjaldskrá gildir frá
1. janúar 1952 að undanteknum
ákvæðunum um umframsímtöl,
er taka gildi 1. júlí 1952.
11. 12. 1951.
Bergenska varð
100 ára í gsr
í GÆR voru liðin 100 ár frá stofn
un Bergenska skipafélagsins og
var þess minnst bæði í Osló og
Þrándheimi. I Osló yoru Hákon
Noregskonungur og Olafur ríkis-
erfingi, í veizluhófi félagsins og
við það tækifæri var Falck fram-
kvæmdastjóri félagsins sæmdur
hæztu gráðu St. Olafsorðunnar.
í stórskipinu Venus, sem ligg
ur í Osló, var fagnaður fyrir sjó-
menn á skipum íélagsins, svo og
í Þrándheimi á skipinu Norður-
stjarnan.
Lengi vel héldu skip félagsins,
Lyra og Nova, uppi ferðum hing-
að til lands, sem kunnugt er.
— G.A.
Tíu borhclur við
jSkíðaskálanu
í leit að vatni
AÐALFUNDUR Skíðafélags
Reykjavíkur fór fram s.l. þriðju-
dagskvöld. í byrjun fundarins
minntist formaður félagsins,
Stefán G. Björnsson, Kristjáns
Skagfjörðs, sem var heiðursfé-
lagi Skíðafélagsins.
í Skíðafélaginu eru nú um 650
félagsmenn, og eru 100 þeirra
ævifélagar.
í skýrslu formanns kemur í
Ijós, að félagið hefur lagt í all-
mikinn kostnað vegna viðhalds
Skíðaskálans í Hveradölum, en
skálinn var m. a. málaður og
vatnslögn öll endurnýjuð. Borað-
ar voru 10 holur í leit að vatni.
Nam kostnaður við þetta allí um
30 þús. krónum.
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en hana skipa: Stefán G.
Björnsson, formaður, Lárus G.
Jónsson, Sveinn Ólafsson, Leifur
Múller, Eiríkur S. Beck, Jóhann-
es Kolbeinsson og Kjartan
H j altested.________
Framh. af bls. 6
endist um skeið, — en þetta er
bezta barnabók, sem völ er á, og
ættu foreldrar og barnavinir að
minnast þess
Myndir Þói'dísar Tryggvadótt-
ur eru einnig ágætar handa börn-
unum og í góðu samræmi við ævin-
týrin.
— Góð barnabók, er um leið
bók allrar fjölskyldunnar! Skildi
ekki þeim eldri, er lásu ævintýrin
í æsku sinni, þykja góð skemmtun
að rifja upp „Litlu hafmeyjuna“,
„Nýju fötin keisarans", „Nætur-
galan“, og „Ljóta andarungann",
svo nefndar séu fáeinar af þessum
sígildu perlum.
Ferðir Gullivers.
Eftir Jonathan Swift.
* Þýtt hafa Ævar Kvaran og
Olafur Halldórsson.
Leiftur.
BÓK þessi kom út í fyrsta sinn
fyrir tvö hundruð tuttugu og
fimm árum síðan — og er enn
tiður gestur á bókamarkaði flestra
mehningarlanda! Þá var hún sam-
in sem ádeila, harðsnúin ádeila á
þjóðfélag höfundarins. Nú er hún
vinsæl barnabók, og slagar tals-
vert upp í Ævintýri Andersens,
að frægð og útbreiðslu!
Svona kynleg eru örlög sumra
bóka. En vel er að þessi er nú
komin hér út í góðri þýðingu og
prýdd skemmtilegum myndum.
- ÆskulýðshöEIin
Framh. af bls. 9.
er tryggi á komandi árum fram-
gang þessa nauðsynjamáls.“
„4. ársþing B.Æ.R. skorar á
bæjarstjórn Reykjavíkur að
ákveða á næstu fjárhagsáætlun
bæjarins sem ríflegasta íjárhæð
til byggingar æskulýðshaílar.“
„Ársþing B.Æ.R. 1951, haldið í
Háskóla Islands þann 5. des., sam
þykkir að fela stjórn B.Æ.R. að
vinna að því að hafizt verði
handa um byggingu æskulýðs-
hallar eða hluta hennar á næsta
á|i.
'~Jafnframt felur ársþingið'
stjórninni og framkvæmdaráði að
táka ákvörðun um, á hvaða bluta
æskulýðshallarinnar skuli byrj-
að og sé þeim heimilt að hafa sam
ráð við Í.B.R. þar um, vegna fram
kominna tillagna frá Í.B.R. um
byggingu vissra hluta æskulýðs-
hallar.
Þá vill ársþingið lýsa yfir þakk
læti sínu við borgarstjóra Reykja
víkur fyrir stuðning hans við
þetta mál og fyrirheit um fram-
lag til byggingarinnar á næsta
ári.“
Ennfremur gerði þingið eftir-
farandi ályktun: „4. ársþing B.
Æ. R. samþykkti að lögð verði
áherzla á að sá hluti æskulýðs-
hallar, sem fyrst verði byggður,
komi að notum fyrir félagslegt
starf sem flestra bandalagsfélaga
B.Æ.R. og telur, að það verði
bezt tryggt mðð því, að.sá hluti
feli í sér aðstöðu til veitinga og
samkomuhalds."
Talsvert var um það rætt á
þinginu hvernig sá salur yrði úr
garði gerður, sem fyrst verður
fullgerður, og hefúr Gísli Hall-
dórsson komið með þá hugmynd
að sameina skauta- og íþróttasal
með því að nota færanlegt gólf
í þann sal, þannig að samræmd-
ar yrðu óskir manna í þessu efni.
Sýnist það vera snjöll hugmynd. '
LOFSVEUT STAEF
Sambandið á óskiptar þakkir
skilið fyrir þá lofsverðu viðleitni
sem það hefur sýnt í þessu vel-
ferðar- og menningarmáli og er
þess að vænta að málaleitanir
þær, sem það hefur sent alþingi
og bæjarstjórn fái jákvæða af-
greiðslu, svo að unnt verði að hefj
ast handa á vori komanda. Hálfn-
að er verk þá haíið er, eins og
þar stendur.
Eins og kunnugt er hefur vænt-
anlegri æskulýðshöll verið val-
inn staður austan Laugarnesveg-
ar milli Sigtúns og Hátúns með
anddyri að Hátúni.
Próf. Ásmundur Guðmundsson
var einróma endurkjörinn for-
maður sambandsins. Meðstjórn-
endur voru einnig endurkjörnir. '
ísland, 5ð úrvals- j
Ijcsmyndir
NÝ ÚTGÁFA bókarinnar „ísland
50 úrvalsljósmyndir“ er komin
út. í bókinni eru ljósmyndir víðs
vegar að af landinu, úr borg og
byggð og óbyggðum, bæði af
mannvirkjum og náttúruundr-
um. M'argir kunnir ljósmyndarar
hafa tekið myndirnar. •
Formáli er íyrir bókinni á ís-
lenzku, dönsku og ensku. Hefir
Hallgrímur Jónasson samið
han. Hilmar Foss og Bjarni Guð-
mundsson hafa annazt ensku þýð
ir.guna, en Martin Larsen, fyrr-
um sendikennari, hefir snúið for-
málanum á dönsku.
Framh. af bls. 8
sigrazt á öllum efasemdunum og
óttanum, sem liggur í leyni fyr-
ir hverju okkar. Við megum
blygðast okkur fyrir bleyði-
mennskuna. Hann hefir orðið
okkur tákn, sem veitir okkur
von.“
- KveiiþjóSin
Framh. af bls. 6
að hræra vel í því, og skal það
sjóða þangað til það er orðið
þykk leðja. Þá skal hella öllu
saman, og hræra í, þangað til
komin er svo þýkk leðja að hún
skiljist ekki, þegar hún er látin
í kalt vatn. Þá skal hella því á
vel smurt fat (slétt), það látið
storkna lítið eitt, og síðan skorið
í mátulega bita, sem síðan er velt
upp úr flórsykri.
| Sportvðruhús iieykjavikur
■ opnax sölubúð sína aftur í nýjum húsakynnum við
• Skólavörðustíg 25. Margir sjaldséðir munir á boðstólum
j ^sem eru kærkomnar jóla- og tækifærisgjafir. Allt nyt-
I . samar vörur.
SPORTVÖRUHÚS REYKJAVÍKUR
; SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25.
S
:
■i
■
■
3
inm nrvrrrf uci » -
SOME DOGS AND KltL 'EM ALLÍ
THAT WAY WE'LL MAKE"'SURE
THEM CU8S WON'T GQOW UP To
. BE SHEEP -KILLEÍ55/
IVE KNIOW IT'S AN OLD SHE-BEAR
WITH FOUR CUBS TO SLOW HE« ‘
OOWKI, WE OUGHT TO BE ABLE TO
GFT HEK OURZELVSS/ /
Ífí
Eftir Ed DoddJ
Starkús
1) — Nú þegar við vitum, að
hér er um að ræða gamla birnu
með fjóra húna, sem tefja fyrir
henni. Þá ættum við að geta gert
út af við hana sjálfir.
2) — Alveg rétt. Við skulum
bara tafarlaust sækja hundana! verði síðar að plágu á héraðinu.
og drepa þau öll. Sjáum um það, 3) Og brátt fara menn og hund.
að húnarnir vaxi þá ekki upp og ar af stað í eltingaleikinn. ____________