Morgunblaðið - 21.12.1951, Síða 2
Föstudagur 21. des. 1951.
r 2
MO RGUNBLAÐIÐ
JðBSl@K
Ásgeir Magnússon frá
Ægissíðu samdi hug-
* anir og sneri bókinni í
Ijóð. — Úígefandi ísa-
foldarprer.tsmiðja h. f.
Beykjavík 1951.
í flóði bókanna, sem svo er
nefnt, flýtur líka Bókin, Bibl-
ían. Hefur reyndar metið og
margfaldlega það í sölu og út-
bréiðslu. Og með he.nni fljóta
óte'ljandi útleggingar af ýms-
um gráðum. Auk allra lista-
verkanna, innblásinna af henni,
í litum, háttum, stuðlum. Is-
lendingar hafa ort biblíuljóð
manna mest. Sum slik urðu í
fremstu röð listrænna afreka,
ævo sem Passíusálmar Hall-
gríms, önnur aðallega eða ein-
göngu höfundum sínum til af-
þreyingar. Margir myndu sjálf-
sagt telja slíka bókmenntaiðju
ótímabæra nú og gamaldags.
En þeir vara sig ekki á Biblí-
unni. Hún er löngu hætt að eld-
ast. Var meira að segja með
þeim ósköpum fædd að geta
ekki elzt. Einhver hefur sagt,
að ráðið til þess að kynnast
nýjum hugsunum sé að lesa
gamlar bækur. Biblían á það
vissulega til að taka menn
.sterkari tökum en nokkur orð
dagsins. Hún er ekki æti handa
þeim, sem geta lifað á dægur-
flugum. En þegar mannsand-
inn leitar ódáinsfæðu fer hann
ekki erindisleysu inn fyrir
gáttir hennar.
Og viti menn: Á þessu Herr-
ans ári kemur út Jobsbók, snú-
in í Ijóð. Ég átti þess kost
að líta yfir þetta verk í hand-
riti og má játa, að ég hóf lest-
urinn með hálfum huga. Höf-
undinn þekkti ég ekki neitt,
fann að vísu þegar, að hann
liafði aflað sér furðulegrar
þekkingar á þessu riti, jafnvel
kvnnt sér nokkuð hebreska
tungu. En mér óaði við því,
sem hann hafði færst í fang,
að rírna þetta djúpúðga snilld-
arverk og hafði fyrirfram ótrú
á, að slíkt fyrirtæki gæti farið
vel úr hendi. En ekki lagði ég
frá mér blöðin fyrr en lestri
var lokið og var þá satt að
segja bæði hissa og glaður. —
í>að er óhætt að segja, að höf.
kemst vel frá þessu verki og
er þá mikið sagt. Ég óska hon-
um til hamingju með að hafa
komið bókinni út. Og útgefand-
inn hefur ekkert sparað til þess
að gera hana hið prýðilegasta
úr garði.
Vegna hvers er Biblían lif-
andi bókmenntir, lifandi orð?
i’ar er glímt við „hið eilífa og
stóra“, þar er glímt við Guð.
í einu elzta riti hennar er kunn
saga um mann, sem þreytti
fangbrögð við Guð og sagði:
Ég sleppi þér ekki nema þú
blessir mig. Þetta eru einkunn-
arorð allra þeirra mörgu, sem
hafa mótað hana. Hinn óþekkti
höfundur Jobsbókar er einn
þeirra. Hann berst við þyngstu
gátuna: Bölið, slysin, þjáning-
una. Korfist í augu víð hana
nakta, vægðarlausa, í persónu-
legu, hatrömmu návígi. Setur
hana sér fyrir sjónir í róttæk-
ustu mynd. Og horfist að lok-
um í augu við Guð þvert í gegn
um hina óræðu rún. Guð al-
vizkunnar og almáttarins. —
Jobsbók er einn af hátindum
þeirrar trúarþróunar, sem ligg-
ur um Golgata, þar sem úr-
slitaglíman er háð. Þar er það
Guð kærleikans, sem gengur
fram úr myrkrunum og skýr-
skotar ekki til almættis síns
og vísdóms, ekki til þess, að
hann þurfi engum manni reikn-
ingsskap að lúka. Það stendur
óhaggað að sönnu, en á Gol-
gata er það Guð, sem sjálfur
gengur á hólm við böl og synd
og syndagjöld. Þar er það hann,
sem segir við manninn: Ég
sleppi þér ekki fyrr en ég fæ
blessað þig, — þótt það kosti
mig píslir, sem allar Jobs-
raunir blikna fyrir.
Ég býst eindregið við að
margir vilji eignast þessa fall-
egu og sérstæðu útleggingu
Jobsbókar. Hitt efa ég ekki, að
nafn mannsins, sem hefur leyst
þessa ljóðun af hendi og aukið
við hana gagnlegum skýringum
og athugunum, verðskuldar að
varðveitast í sögu íslenzkra
bókmennta.
Sigurbjörn Einarsson.
*
An efa ea*
vinsælasta jólagjöíin handa
drengjum. — .....
LAUGAVEG 10 — SIMI 3367
ftlylon
undirkjóðaa*
Lífstykkjaljúðin
Hafnarstræti 11.
STÓRBROTNASTA OQ VIÐBURÐARÍKASTA EELENDA SKÁLDSAUA ÁRSINS
í SNILLDARÞÝÐINGU KONRÁÐS VILHJÁLMSSONAR:
Hreimur fossin
Er talin eitt sérstæðasta
og áhrifaríkasta skáldrit
síðari ára og náði á
skömmum tíma að verða
metsölubók Norðurlanda.
Hún lýsir órjúfandi
tryggð og karlmennsku
fjallafólksins, stórbrotn-
um og stórlyndum bænd-
um, lifi þeirra og starfi,
ástum þeirra og örlögum.
Hreimur fossins hljóðnar
minnir að nokkru á hin
svipríku og vinsælu skáld
rit „Glitra daggir, grær
fold“ og „Dag í Bjarnar-
dal“, sem notið hafa meiri
hylli en dæmi eru til um
þýddar bækur hér á landi.
En eitt er víst, að lesand-
inn mun finna við lestur
þessarar bókar loftið titra
við hugaræsingu sína og
hrifningu og hita blóðsins
koma fram í kinnar sínar.
Heiðríkja og tign hvílir yfir söguþræði bókarinnar,
norrænn andi, kaldur en miskunnsamur.
Hreamur fossins SiBjéðaiar
er bókin, sem mest vcrður umtöluð, mest lesin og flestir
óska sér að eignast, enda er upplag hennar á þrotum.
.,**** ** #0-0» + & + & ** + *& **#* & ■ ðm
Hinir margeftirsurðu PRESTCOLD kæliskápar
eru komnir. — Þeir, sem eiga pantaða skápa,
tali við okkur scm fyrst.
CJ'ri&rih $3erieláen (S? CCo. L.j.
Ilafnarhvoli — Sími 6620
Wylon brjósta^
baldarar
Lífslykkjabúðin
HafnarsUæti 11.
HIULTIIVilX
ÞYZKA GKÆNMETISKVÖRNIN
Ný sending væntanleg á næstunni. Tökum á móti pöntunum
til afgreiðslu strax eftir hátíðina.
MULTIMIX malar grænmeti, korn, baunir og kaffi. MULTIMIX
er bezta og ódýrasta grænmetiskvörnin, sem nú er á boðstólum.
Vcrð aðeins kr. 950,60 pr. slykki.
Gjafakort afgreidd til jólagjafa. — Sýnishorn fyrirliggjandi.
SIGIÍRÐUR BJARIMASÖIM, réfvirkjameistari
/ , Lindargötu 29. — Sími 5127^ -j- Reykjavík.
.......... íl
i ■ a ■■Waafe ■■■ i ■■■■■*■ a ■■a f d*a a «Va ■ ■ ■'■ • *■■•■■•■*■ ■rfena’iaa « ■'l «■ ■ tnlnt *■ • wtrm m wm-nm
Eyfellskar sagnir III.
eftir Þórð Tómasson
er ómissandi hverjum manni,
sem ann íslenzkum fræðum.
BÓKAÚTGÁFA PÁLMA H. JÓNSSONAR
Til sölu af sérslökum ásiæðum
kjólaverzlun og sanmastofa
í Miðbænum. Uplýsingar í dag í síma 1171.
Skipið slglir sinn sjó
eftir
IMordahfl Grieg
i . .(.#> t c ._ ' v q- «1
BÓKAÚTGÁÉAiPÁLMA H. JÓN^ONAR 5
VaOi.Kca a ■ ■ ■ a ■ ■ a ■ ■ a ■ ■■ ■ ■ ■’■■■■■■■■■■■*■■■ ■■■■■■ ■*■■■■■.■■ •■ ■■■■■_■■^•■JUUÚUl