Morgunblaðið - 07.02.1952, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.02.1952, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 7. febrúar 1952 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 18,00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Kr. 1,25 með Lesbók. Andlát Georgs ENDA þótt Georg Bretakonung- ur hefði um alllangt skeið verið mjög heilsuveill kom andlát hans brezku þjóðinni og öllum heim- inum mjög á óvart. Konungurinn bafði ekki alls fyrir löngu gengið undir uppskurð, sem talið var að hefði eftir atvikum heppnast vel. Hann hafði fyrir nokkru tek ið að gegna opinberum störfum sínum og þess var almennt vænst að hann væri að ná heilsu sinni. Siðast kom hann fram opinber- lega er hann fylgdi Elizabeth prinsessu og manni hennar, her- toganum af Edinborg, til flug- vallar í London er þau löf’ðu upp i ferð sína til Afríku og Ástralíu. Andlát konungs hefur vakið djúpa hryggð meðal brezku þjóð arinna^ og þjóða brezka samveld isins. I engu landi stendur kon- ungdæmi eins föstum fótum og í Bretiandi. Það hefur í þúsund ár verið sú stofun, sem haldið hefur brezku þjóðinni saman. Á grund- velli þess byggði hún einnig upp ■'úðlendasta og fjölmennasta heimsveldi sem sagan greinir. Enda þó sjálft vald konungs ins hafi verið að þverra s.I. 300 ár hefur virðingin fyrir honum ekki minkað. Konungs hollusta brezku þjóðarinnar hefur bvert á móti aldrei ver ið meiri en hún er í dag. Kon nnírurinn er sameiningartákn hennar. Hann framkvæmir skvldur sínar fvrir hönd henn ar allrar. Allt líf hans og fjöl skvldu hans er belgað bví markmiði að sameina bjóðina oe tre^sta íenffslin rniiij hinna ýmsu hluta samveldisins. Um konúngdæmi sitt hefur brezka þjóðin í margar aldir bvget upo erfðaveniur, sem skap að hafa bví einstæða rótfestu í hugum fólksins. Þ°im, sem ekki þekkia brezkt þjóðareð’i. hættir oft við að van- meta þvðinvu hinna fiölmörgu erfðaveoja hennar og t°lia þær lítilverða formdýrkun. En í því felst mikiil mis^kiinineur. I.íf og starf brezku bióðarinnar hefur sótt til beirra ómetanlegan styrk og broska. Þetfa sézt grejnilega ef brezkt þingræði os lýðræði er athugað. Það er viðurkennt að Bretar séu í dag ein bros’'aðasta lýðræðis- þjóð heimsíns. f en?u landi stend ur þingræðisskipulafið traustari fótum en einmitt í Bretlandi. Þrátt fvrir það byggist brezk stjórnskioun fyrst og fremst á veniurétti. Þar er í raun og veru engin formleg stió'’narsk''á til. Um þessi ósknáðu stiórnlög standa envar deilur. Kröfur um „endurskoðun" þeirra hevrast sialdan. Aldirnar hafa skilað nú- tímanum þeim og núlifandi kvn- slóð fær afkomendum sínum þær vandlega varðveittar. Konungdæmið er einn þeirra þátta hins brezka stjórnskipu- lags, sem traustastur er_ og sam- ofnastur þióðareðlinu. f þúsund án hefur þióðin lotið því, elskað það og virt það. Konungurinn deyr en þá sezt sonur hans, dótt ir eða annar ættingi á veldisstól og bióð hans hefur eignast nýian þióðhöfðingia til þess að samein- ast um og líta upp til. Það er þessi festa og þetta ör- yggi. sem rótfest hefur konung- dæmið í hjörtum brezku þjóðar- innar. Eíizaheth prinscssa, sem nú er tæple.va 26 ára .gömul. sezt nú á valdastól í Bretlandi. Tveir af mikilhæfustu þjóð- hcíJi.igjum Erefa ltafa ver:5 konur, drottningarnar Eliza beth og Victoria. Á stjórnarár- um þeirra óx og dafnaði brezka heimsveldið. Nú blasa fjölþætt vandamál við brezku þjóðinni. Hún mun ganga á móti þeim undir forystu hinn- ar ungu drottningar sinnar. fslenzka þjóðin, sem einnig hefur nýlega staðið við líkbör ur þjóðhöfðingja síns, sendir hinni brezku vinaþjóð innileg ar samúðarkveðjur við fráfall konungs hennar. Okurhjal Alþýðuhlaðsins í OKURHJALI Alþýðublaðsins felzt m. a. sú blekking, að blað- ið staðhæfir, að það verð, sem ákveðið var af verðlagsyfirvöld- um hafi verið það verð, sem al- menningur gat fengið vörurn- ar á. Við þessu er í fyrsta lagi það að segja, að fjöldi vara, sem al- menning vanhagaði mjög um, mátti heita gjörsamlega ófáanleg- ar, nema þá einna helzt á svört- um markaði. Verðlag þeirra þar var að sjálfsögðu langtum hærra en það, sem verðlagsákvæði leyfðu. Þetta man allur almenningur. Fólkið man einnig að mikil fjöldi þeirra vara, sem Alþýðublaðið er að ræða um verð á samkvæmt verðlagsákvæðum var algerlega ófáanlegur vegna þess, að þær voru alls ekki fluttar inn. Þjóð- inni var þessvegna lítið gagn að lágu verðlagi á þeim á pappírn- um. Það er að sjálfsögðu rétt að verðlag hefur hækkað gífurlega undarxfarið. En það hefði það einnig hlotið að gera þótt verð- lagsákvæðum hefði verið beitt. Verðlag almennra nauðsynja þjóðarinnar í dag ákvarðast fyrst og fremst á verði þeirra á heims- markaðinum. En þjóðin á nú kost á að fá þessar vörur á venjuleg- an hátt. Hún þarf ekki að snapa eftir t. d. búsáhöldum og heim- ilistækjum á svörtum markaði, ein.c og hún þurfti á því tíma- bili, sem Alþýðublaðið grætur daglega. Um bátagjaldeyrinn er það að segia, að auðvitað hækkar hann verulega verðlag á einstökum vörutegundum. En með því, er þjóðin að koma í veg fyrir, að aðalgrein framleiðslu hennar stöðvist og almennt atvinnuleysi og örbirgð komi yfir hana. Al- þýðuflokkurinn gat ekki bent á nein? aðra leið til þess að hindra það Afstaða hans og blaðs hans er því gjörsamlega neikvæð. Almenningur hefur fagnað frjálsari verzlunarháttum, enda þótt verð á ýmsum nauðsynjum hafi hækkað. Það er ekki sök aukins innflutnings. Fólkið man vöiuhungrið og svarta markaðs braskið. Engin verðlagsákvæði dugðu til þess að hindra það. Kjarni málsins er sá, að full ai búðir eru hagkvæmari fyr- ir almenning en tómar búðir og frjálst vöruframboð og sam keppni um viðskipti fólksins er líklegra til þess að skapa heilbrigða viðskiptahætti en verðlagsákvæði, sem eru papp írsákvæði ein. Þetta skilur all- ui almenningur en Alþýðu- blaðið heldur áfram að lemja höfðinu við steininn þangað til að það hefur dauorotað sig cr f!o!:Þ slnn. ¥eMufi koMSfflsriki syrgir elskaðnn og dóðan koaung sinn VOLDUGASTA konungsríki veraldar syrgir konung sinn. Georg VI Bretakonungur and- aðist aðfaranótt miðvikudags á 57. aldursári. Albert Frederic George var fæddur 14. desember árið 1895 að York Cottage í Sandringham. Hann var annar sonur Georgs V. konungs og Mary drottningar. Hann stundaði nám í Osborne og hinum konunglega sjóliðsforingja skóla í Dartmouth, en í septernber i 1913 hóf hann starfferil sinn með þjónustu á ýmsum skipum brez.ka | flotans. Vegna heilsubrests rem ! hann varð fyrir er hann var á férðalagi um Vestur-Indíur. Kan- hans hjartans mál, eins og fyrr e. frá greint. Ýmsar fleiri ferðir um samveldislöndin og víðar heiur hann farið bæði sem hertogi af York og eins eftir að hann var krýndur til konungs. TEKUR VIÐ KONUNGDÓMI Það var 11. des. 1936 sem eldri bróðir hans sagði af sér konungdómi eftir nokkurra mánaða konungdóm, en til- drögin til afsagnar hans voru þau að hann hugðist ganga að eiga ameríska konu af borgara legum ættum, en slíkt er á móti brezkum lögum. Þar sem hann var barnlaus gekk kon- ungdómurinn að erfðum til bróður hans, Georges. Það var erfitt hlutverk að taka við konungdómi eftir að löglegur erfingi þeirrar tignar afsalar sér völdunum af áður- greindum forsendum. Þeim degi var lýst sem „alvarlegasta degi í sögu Bretlands“. Þann dag skrifaði The Times: „Dag- urinn í dag verður örlaga- þrungnari en nokkur annar dagur í síðari tíma sögu Bret- lands — og er heimstyrjölöin ekki undanskilin “ SANNUR ÞJÓÐHÖFÐINGI En George konungur hafði ekki lengi setið við völd er brezka b jóð | in fann að þar sat sannur þjóð- j höfðingi að völdum. Hann ávann sér traust allrar þjóðarinnar exida bjó hann yfir þeim mannkostum sem prýða hvern þjóðhöfðingja. Georg VI. í búningi flugliðsfor- ingja. Hann var fyrsti konungur Bretlands, sem klæddist slíkum búningi. ada og Nýfundnaland, þetta sama ár, tók hann ekki virkan þált í baráttu flotans á fyrstu árum styrjaldarinnar, en síðar tók hann þátt í orrustunni um Jótland, sem undirliðsforingi og gat sér þar góðan orðstír. l HÆKKAÐUR í TIGN | í árslok 1917 hóf hann þjón- ustu í flotadeild brezka flughers- ins og barðist sem flugmaður á Vesturvígstöðvunum 1918. Hækk- aði harin stöðugt í tign og varð flugliðsforingi 1920. Hann er \ fyrsti konungur Breta sem ber merki brezka flughersins á bún- ingi sínum. | Eftir að styrjöldinni lauk (okt. 1919) byrjaði hann nám í Trinity College, Cambrigde þar se'm hann var á námskeiðum í sögu, hag- fræði og fl. j Um þetta leyti sem ávallt síðar, sýndi hann mjög mikinn áhuga á málefnum iðnaðar og varð for- seti félags þess er nefnist Society , for Industrial Welfare. Beitti hann sér og fyrir því að sérstök stofnun veitti 200 ungum verka- mönnum og 200 skóladrengjum árlega dvöl á sjóliðsforingjastöð. Hann átti veigamikinn þátt í því að skapa einingu með brezku þjóðinni þegar hættan var mest á styrjaldarárunum. Hann, var fyrirmynd hins þrautseiga brezka manns sem ekki lét óvinasprengj urnar reka sig á flótta. Hvað eítir annað var konungshöllin stór- skemmd en konungurinn og fjöl- skylda hans neitaði að hvevfa þaðan. ALÞÝÐLEIKI HANS OG MANNELSKA Konungurinn og hin síbrosandi drottning hans, óku þúsundir mílna til að hughrevsta þá landá •sina sem áttu um sárt að binda eða höfðu misst allar sínar eigur í loftorustunum. Hann gerðist sjálfboðaliði í vopQaverksmiðjú og vann þar tvö kvöld í viku. Árið 1943 tók hann sér ferð á hendur til Afríku til áð þakká hermönnum sínum fyrir unninh sigur þar syðra. Mánuði síðar var hann aftur í fremstu víglínu til að sína hermönnum sínum þakk- lætisvott. í þetta skipti var það á Italíu. Ári síðar heimsótti hann stöðvar brezka hersins í Hollandi og svaf þá i tjaldi í aðalbækistöðv um Montgomerys, 7 km frá víg- línunni, þar sem barizt var af heift. Af þeim 91 þús. heiðurs- merjum sem konungurinn veitti brezkum hermönnum fyrir hetju lega framgöngu afhenti hann persóyulega 37 þús. þeirra. Öll þessi trygxrð við þá sem verkin vinna, öfluðu honum Framh. á bls. 7 Velvakandi skrifar: ÚB DACLEGA LÍFINU Estrella, Novia SÆLL og blessaður Velvak- andi. Ég skal segja þér, að hérna á dögunum fór ég í nokkr- ar verzlanir til að kaupa mér skyrtur. Ég var kynntur fyrir girnilegum flíkum af ýmsu þjóð- erni, en það þótti mér kynlegast, að engin hét íslenzku nafni, Kvað þá, að ýmsar áletranir, sem þær báru, ættu nokkuð skylt við ís- lenzku. | HLOTNA *'TST MARGVÍSLEGUR HETDUR I 1923 gekk George að eiga Lady j Elizabeth Bowes-Lyon, yngstu , dóttur -jarlsins og greifaynjunnar ! af Stratmore og Kinghorne. I Georg konungur sem 1920 var j tilnefndur hertoginn af York, fór ( margar ferðir fyrir föður sinn til annarra landa m. a. til Balkan- landa og einnig var hann sér- . legur fulltrúi föður síns við útför I Ástríðar Belgíudrottningar. Hann var kjörinn íorseti Heims * veldissýningarinnar brezku í WemblÖy 1925 og 10 árum síðar heimsótti hann Alþjóðasýninguna í Brussel, enda voru iðnaðaímál .... áletrunin lét mig ekki í friði. Ég skoðaði m.a. bæði Estrella- og Novia-skyrtur, og mér var sagt að þær væru saumaðar hér, þótt mér fyndist allt benda í gagnstæða átt. Orðabókin kemur í góðar þarfir EINKUM þótti mér flibbarnir tala annarlegar tungur. Tjl að mynda mátti sjá þessa áletrun á íslenzku skyrtunum: Do not starch — iron when very damp. Og maigt var þar fleira lokkandi fróðleikselskandi manni eins og mér. Jæja, ég keypti eina af þessum íslenzku skyrtum og hafði heim með mér, Satt að segja held ég að efnið hafi vérið sparað óþarf- lega í bol hennar, efnið sjálft var þó sómasamlegt, og flibbinn á- gætur. En áletrunin lét mig ekki í friði, svo að um kvöldið, þegar [ ég var að hátta, settist ég framan á, náði mér í orðabók Geirs og fletti upp. Eftir langa leit og íálm andi held ég, að mér hafi tekizt að nálgast merkinguna. | Nú langar mig að spyrja, hvað mælir með að ata íslenzkan iðnað 1 út með útlenzku? Og spyr ég því fremur, sem mér er kunnugt um, að skyrturnar okkar koma ekki í neinn sérflokk að þessu leyti. Fimbulbjörn“. Þarf nokkuð að dylja? ESSAR áletranir á útlendum málum á þeirri vöru, sem alls ekki er seld úr landi, koma fleir- um undarlega fyrir sjónir en þér. Það þótti mikill sigur, sem vannst hérna fyrir nokkrum árum, þegar tókst að fá íslenzkar áletranir á nokkra hluti, sem búnir voru til erlendis fyrir íslenzkan markað. Nú hefir komið á daginn, að allt slíkt er hégómaskapur, úr því að íslenzkir framleiðendur eru ekki þeir íturhyggjumenn að láta íslenzk heiti og áletranir fylgja íslenzkum varningi. Um flibbana, sem bréfritarinn minnist á, er það annars að segja, að þeir munu vera búnir til er- lendis og bera áletranir og merki eftir því. Leiðrétting við mannkynssögu SKELFÍNG er hún óvísindaleg þessi mannkynssaga, sem kennd er í skólum á ÍSlandi. Þar er sagt, að Gutenberg hafi fundið upp prentlistina á 15. öld, en svo er þetta tóm vitleysa. Nýjustu fréttir herma, að Kín- verjar hljóti nú heiðurinn af ýms um uppgötvunum, serri Rússar höfðu áður tekið einkaleyfi á. Nú er rússneskum skólabörnum til að mynda kennt, að Kínverjar hafi fundið upp prentlistina árið 1041, enda þótt Rússar hefðu að vísu unnið að uppgötvuninni síð- an 991. Það var svo ekki fyrr en mörg- um öldum seinna, sem maður að r.c.íni Gutenberg.....

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.