Morgunblaðið - 07.02.1952, Blaðsíða 12
Veðurúflif í dag:
NA kaldi, síðar gola c'ða hæg-
viðri. Léttskýjað.
JfftovfitmMafciO
30. tbl. — Fimmtudagur 7. febrúar 1952
Reykjaíossmenn
og Laxfoss (Sjá frétt á fcls. 2).
iVíaður brennist til bana —
Annar hlaut brunasár
Övenju sviplegf sfys í viðgerðarverkslæði
í GÆRMORGUN brendist maður til bana og annar brenndist
nokkuð, á viðgerðarverkstæði Olíufélagsins á Reykjavíkurflugvelli.
— Voru menn þessir báðir að vinna með rafsuðutækjum í geymi
ú einum benzín- og olíuflutningabíl félagsins. — Maðurinn, sem
beið bana, var Walter Theódór Ágústsson, Mávahlíð 24. Sá, sem
slasaðist heitir Guðmundur Birgir Ólafsson, Skipasundi 34. Var
fcann fluttur á Landsspítalann.
frá krýninp Georgs VI. Brelðkomsngs.
Fyrir rúmum mánuði var fyrst®
byrjað að gera við geyminn á
bílnum. Hafði þá eins og nú, ver-
ið notað rafsuðutæki, en áður eni
byrjað var að vinna við geyminn
þá, hafði hann verið gufuhreíns-
aður, til þess að fyrirbyggja eld-
og sprengihættu.
BYRJUÐU f FYRRADAG
Fór síðan fram viðgerð á
benzíngeyminum, og að henni
lokinni, var hann fylltur með
vatni til að sjá hvort nokkuð
læki. — Kom þá leki í ljós, og
var vatnið látið renna af geym-
inum. Síðan hefur bíll þessi og
geymir staðið ónotaður, þar til i
fyrradag, að þeir Walter Theódór
og Guðmundur Birgir, hófu við-
gerð á geyminum á ný. Þá var
enn sem fyrr notuð rafsuðutæki,
sem farið var með inn í geyminn
sjálfan.
ANNAR Vlf) GEYMISOPIÐ —
HINN í GEMINUM
Verkinu átti að haga þannig, að
annar væri í einu inni í sjálfum
geyminum, en hinn við op hans
til aðstoðar þpim, sem inni var og
til öryggis. í gærmorgun tóku
þeir enn til starfa við geyminn.
Bíll þessi var í sérstökum bragga
og voru þar ekki aðrir menn að
störfum en þeir félagar tveir.
Telur verkstjórinn sig hafa
brýnt fyrir þeim, að víkja ekki
frá geyminum meðan annar hvor
væri inni í hanum með tækin.
KVIKNAÐI í INNI f
GEYMINUM
Klukkan rúmlega 11 í gær-
morgun, kom Guðmundur Birgir
Ólafsson hlaupandi til manna, er
voru að störfum skammt frá. Var
hann talsvert brenndur bæði á
höndum og í andliti. Sagði hann
mönnum þessum að kviknað hafi
í inni í geyminum.
ENGINN VAR ÞAR
Einn af mönnum þessum brá
þegar við og hjóp út í skúrinn
sem bíllinn var í og stökk upp á
geyminn. Lítilsháttar reykja-
stybbu lagði upp um hann, en
enginn eldur var í honum. Hann
fullvissaði sig um, að þar væri
enginn maður og slökkti síðan á
rafsuðuvélinni og íór aftur til
vinnufélaga sinna. Var þá sjúkra
bíll kominn til að flvtia Guð-
mund Birgi í Landsspítalann.
WALTERS SAKNAÐ
Verkstjórinn, er hafði farið i
snögga ferð niður í bæ, kom inn-
an stundar suður eftir, og er
hann spurði tíðindin, spurði hann
strax eftir Walter Theódór, vinnu
félaga Guðmundar Birgis. Bað
hann menn fara strax að leita
hans. — Maður sá, er fvrst hafði
farið út í skurinn og slökkt hafði
á rafsuðuvélinni, fór þangað nú
aftur. — Þegar hann kom að
skúrnum, veitti hann því eftir-
tekt, að rafsuðuvélin var nú í
gangi. Er hann kom inn í skúrinn
sá hann, að nokkurn reyk lagði
upp um opið á geymnum. Stökk
hann þegar upp á hann og sá um
leið, að Walter Theódór lá hreyf-
ingarlaus á botni geymisins. •—
Náði hann þegar í hjálp og var
Walter heitinn tekinn upp úr
geyminum og var þá örendur.
Voru föt hans að mestu brunninn
og hann tírfenndur mjög um allan
Jíkamann.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
OG VERKSMIÐJUEFTIRLITIÐ
Rannsóknarlögreglan ‘hefur
fengið slys þetta til rannsóknar.
Hefur hún fengið sér til aðstoðar
véia- og verksmiðjueftirlitið, til
að takast megi að upplýsa með
hverjum hætti sprengingin hafi
myndazt. — Guðmund Birgi hef-
ur rannsóknarlögreglan ekki rætt
við um tiiélrögin. — En svo virð-
ist sem Walter Theódór heitinn
muni ekki hafa vitað, er Guð-
mundur Birgir slasaðist.
Walter Theódór var sonur
Ágústar Kr. Guðmundssonar,
verkamanns og konu hans, Báru-
götu 2 hér í bæ. — Walter var að-
eins 25 ára gamall. Hann lætur
eftir sig konu og tvö börn, hið
eldra fjögurra ára en hið yngra
tæplega íveggja ára.
Mynd þessi er frá athöfninni, er Georg VI. var krýnd.ur konungur Bretlands. Konungur er í Edwards-
stólnum (t. h.) með kórónu á höfði. ,
Minningargjaiir
um íorsefa fslands
SJÓVÁTRYGGINGARFÉL. ís-
lands hefur gefið Krabbameins-
féiagi Reykjavíkur kr. 5.000 til
minningar um forseta íslands, hr.
Svein Björnsson, til kaupa á
geislalækningatækjum.
Þá hefur Brunabótafélag ís-
laiids afhent kr. 5.000 til minn-
ingar um forsetann.
Ulanríkisráðherraa
Brela votfuð samúð
UTANRÍKISItÁÐHERRA hef-
ur vottað utanríkisráðherra Breta
samúð íslenzku ríkisstjórnarinnar
í tilefni af láti Bretakonungs.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Tveir átísarmenn handfeknir
ÞAÐ HEFUR tekizt að hafa hendur í hári íllvirkjanna tveggja, eij
réðust aðfaranótt miðvikudagsins á annan þeirra tveggja manna,
er fyrir árás urðu og rændir voru þessa nótt á götu hér í bænum.
Árásarmennirnir eru Lýður Kristinn Jónsson, 19 ára, Selbúð 6 og|
Kristján Friðriksson, 16 ára, Höfðaborg 32. Báðir þessir piltafe
hafa oft áður komizt í kast við lögregluna. ,
WASHINGTON •— Eisenhower,
|hefir marglýst yfir, að hann telji
.vígbúnað Atlantshafsríkjanna
I draga stórum úr árásarhættunni í mann, eftir að hafa rotað hann
heiminum. Já gatnamótum Skothúsvegar og
BEITTU BÆÐI HÖNDUM
OG FÓTUM
| Þeir hafa báðir viðurkennt að
hafa rænt Einar Björnsson sjó-
Gó5ur fiskur úseljaulegisr í Bret-
landi vegna mikils framboðs
við húströppur og munu þæf
hafa lagt eyrað á hjartastað Ein-
ars til að ganga úr skugga unaj
að hann yæri á lífi.
Enn er unnið að því að rann-
j Laufásvegar. —• Viðurkenndu saka árásina og ránið er ÓlafuP
þeir að hafa beitt bæði höndum Anton Þórarinsson varð fyrir
og fótum til að rot.a Einar. Það þessa sömu nótt. j
var Kristján, er sparkaði í | — ■ — j
hnakkann á Einari, er hann var
að reyna að sefa Lýð Kristinn.
Lýður skýrði frá því, að þegar
þeim hafði tekizt að rota mann-
inr, hafi hann rifið utan af hon-
um r.egnfrakka. v
STÓRFELLD verðlækkun á ísfiski hefur orðið á Bretlandsmarkaði, ÞÝFINU SKIPT
vegna gífurlegs fiskmagns, er borizt hefur þangað. Hefur jafnvel
mikið af fiski reynzt óseljanlegur þó að um góðan fisk væri að
ræða. —• ........ ' *
{ Lýður tók 425 króna ávísun þá,
er Einar var með í vasanum en
NEPTÚNUS LANDAÐI
AÐEINS HLUTA AFLANS
Samkvæmt símskeyti, sem Fél.
ísl. botnvörpuskipaeigenda barst
í gærkvöldi frá Bretlandi, var frá
þvi skýrt, að togarinn Neptúnus
hefði aðeins fengið að landa
hluta af farmi sínum í Grimsby.
Þar var alls landað í gær 14.500
kittum af ísfiski. — í dag mun
enn meira fiskmagn verða þar,
eðt. um 17.000 kitt.
ÞRÍR TOGARAR MEÐ
TALSVERT AF FISKI
í gær voru þrír íslenzkir tog-
arar í Hull og var þar landað
19000 kittum, var fisklöndunin
þar allmiklu meiri en í Grimsby.
Ekk: gátu þó hinir ísl. togarar
Keflvíkingur, Jón forseti og Jón
Baldvinsson selt allan fisk sinn.
— Af afla Keflvíkings voru ó-
seld í gærkvöldi 254 kitt, af afla
Jóns forseta 630 og Jóns Bald-
vinssonar 125. — Var hér um
ágætan fisk að ræða, sem seldist
íyrir 6000—9000 pund.
MIKILL FISKUR —
LÁGT VERÐ
Svo sem kunnugt er, var fisk-
vtrðið mjög hátt í Br^tlandi fyrir
nokkru ,svo hátt, að fisksalarnir
hafa orðið að greiða mikið fé
með fiskinum. — Nú geta þeir
rétt sig fjárhfagslega við, þegfar
verðið er svona lágt
fiskmagn berst að.
Kristjári fékk 1Ó kr. og var það
aleiga Einars í handbæru fé það
kvöld. Stúlkurnar 3 er voru með
og mikið árásarmönnunum aðsoðuðu við
lað berja manninn í öngvit upp
Irska þingið votlsr í
samúð yegna fráfalls
forseía íslands i
BÁÐAR þindeildir írska þings-
ins samþykktu hinn 30. janúart
svohljóðandi þingsályktun:
| „Þingið ályktar að votta ríkis-
stjórn íslands og íslenzku þjóð-
jinni djúpa samúð sína í tilefni af
Tæpl. 2 ára drengur fell-
ur út um glugga á 2. hæð
Lenti í snjóskafli slapp ómeiddur
SÁ einstæði atburður vildi
til hér í bænum nú um helg-
ina, að barn á öðru ári féll
út um glugga á annari hæð.
Barnið lcnti í djúpan snjó-
skafl og sakaði ckki hið
minnsta.
Tildrög þessi slyss voru þau,
að dag einn var reykvísk
húsmóðir að daglegum hrein
gerningum á heimili sínu. —
Sonur hcnnar, tæplega
tveggja ára gamall, var að
leik í íbúðinni.
Skyndilega verður konan
vör við, að barnið er komiÁ
upp í glugga og sér hún á
eftir dregnum út um glugg-
ann, sem hafði verið opinn.
Móðirin hljóp í skyndi út og
kom að syni sínum, sem lent
lent hafði í snjóskafii mikl-
um við húsið. Barnið grét
hástöfum, cn er að var gáð,
var litli drengurinn með öllu
óskaddaður
Telja má víst, að hinn mikli
snjóskafl hafi bjargað lífi
barnsins. Drengurinn sökk á
að gizka meter ofan í skafl-
inn, enda var fallhæÁin um
6 metrar. Skaflinn var þarna
hærri vcgna þess, að mokað
hafði verið frá dyrum húss-
ins óg talsverður snjóbyngur
myndast við dyrnar.