Morgunblaðið - 07.02.1952, Blaðsíða 7
I'immtudagur 7. fébrúar 1952
MORGUNBLAÐIÐ
2 1
Landskj dlítamæ lingar d
íslandi hdlffimmtugar
LANDSKJÁLFTAR oru þær nátt-
•úruhamfarir, sem íslendingar hafa
borið meiri beyg af en flestu öðru
allt frá landnámstíð. En þess gæt-
ir um heim allan, þegar Loki brýzt
um í fjötrunum, svo að við erum
ekki einir um óttann við umbrot
lians.
Mikil fræðigrein hefir orðið til
kringum landskjálftana, en við Is-
lendingar höfum lítið getað lagt
þar af mörkum. Hér á landi hafa
þó verið gerðar landskjálftamæl-
jngar um árabil.
LANDSKJÁLFTAMffiLINGAR
HÉR HÁLFFIMMTUGAR
Blaðið hefir snóið sér til Hlyns
Sigtryggssonar, veðurfræðings, og
beðið hann að segja fáum orðum
frá iandskjálftamælingunum, en
hann hefir unnið úr þeim athug-
unum, sem hér hafa verið gerðar
jnörg undanfarin ár.
•— Hvað er að segja frá land-
skjálftamælingum á íslandi? (
•— Fyrsti landskjálftamælirinn
kom hingað upp úr aldamótunum
og annar var tekin í notkun
skömmu fyrir fyrstu heimstyrjöld-
jna. Á stríðsárunum lögðust mæl-
ingar þessar niður, og voru ekki
teknar upp aftur fyrr en 1926.
Lessir mælar sýna hinn lárétta
hluta jarðhræringanna, austur og
vestur, norður og suöur. Nýjasti
og þriðji landskjálftamælirinn var
tekinn hér í notkun í febrúar í
fyrra. Hann sýnir hinn lóðrétta
hluta jarðhræringanna. Er hann
af annarri og nýrri gerð en hinir
mæiarnir tveir.
SVEIFLURNAR BERAST
MISKRATT
— Hvernig má það vera, að
hægt sé að mæla hér hræringar
jafnvel hinum megin á hnettinum?
— í landskjálftamælinum er
þungt lóð, sem svo er frá gengið,
að þess gæti sama og ekkert á
því, þó að jörðin titri vegna land-
skjáifta. Aftur á móti kemur titr-
ingurinn fram á öðrum hlutum
Inælisins engu síður en á stólun-
um, sem við sitjum á.
Þetta kyrrstöðulóð er aðalhluti
landskjálftamælisins, en hreyfing-
ur jarðarinnar miðaðar við lóðið
eru stækkaðar með ýmsum ráðum
og ritar mælirinn þær jafnóðum
á pappírsrenning.
Á þeim stað, sem landskjálfti
verður, myndast ýmis konar sveifl-
ur í jarðskorpunni, og berast þær
mishratt eftir tegund þeirra út
frá staðnum í aliar áttir.
Þegar mælarnir sýna einhvers
staðar landskjálfta, vérður að at-
huga tímann frá því þær sveiflur
berast, er hraðast fara, þar til
mælarnir greina einhverja aðra
sveiflutegund, sem hægar berst.
Fyrirfram þekkjum við hraða
hverrar sveiflutegundar og þá eins
hraðamismun þeirra innbyrðis.
Við getum svo sagt til um fjar-
Viilal vii Hlyn Sigtryggsson, veðurfræiing
Illynur Sigtryggsson.
lægð þess stáðar, þar sem land-
skjálftinn á upptök sin, með því
að athuga, hve iangur tími líður
milli þess, að tvær sveiflutegundir
berast.
Finna má svo úr hvaða átt land-
skjálftinn berst með samanburði
á línuritum hinna einstöku mæla,
er ég gat um í upphafi.
SEGJA MÁ FYRIR
HITABELTI3STORMA
— Sýna mælarnir þá ongar
hreyfingar á jarðkringlunni aðrar
en þær, sem standa í sambandi við
landskjálfta?
— Á línuritinu sjást alla jafna
auk landskjálftanna sveiflur, sem
talið er að stafi af sjávaröldum.
Á seinustu árum hafa menn gef-
ið þessum sveiflum meiri gaum og
hafa rannsóknir leitt í ljós, að
með allgóðum árangri má segja
fyrir hitabeltisstorma mcð því að
athuga þær.
— Hvað stoða okkur annars all-
ar þessar landskjálftamælingar?
—- Þær gefa okkur vitneskju um
efnasamsetningu jarðarinnar, og
hafa þær leitt í ljós, að hún er
úr frekar föstu efni alldjúpt niður
eða niður í um það bil 2900 km
dýpt. Þetta, lag virðist úr mjög
svipuðu efni og yfirborðið.
Þar er eins og eðlisástand efna
hennar breytist snögglega. Ýms-
um getum hefir verið að því leitt,
hvernig á því stæði. Sumir hafa
gizkað á, að þarna niðri væri fljót-
andi járn aðalefnið. Aðrir draga
það þó í efa, en telja, að eðlis-
ástand efnisins breytist vegna hins
gífurlega þunga þeirra jarðlaga,
er ofar liggja.
Ennfremur hafa landskjálfta-
rannsóknir beinzt að því að finna
lagskiptinguna efst í jarðskorp-
unni.
í þessu sambandi má einnig
nefna, að vonir standa til, að land
skjálftarannsóknir hérlendis geti
hjálpað til að leysa ýmis vanda-
mál, er varða hagnýting jarðhit- ,
ans.
Erlendis tíðkast það og nokkuð, '
að menn leiti olíu með því að búa
til jarðhræringar. Gerðar eru þá
allmiklar sprengingar á yfirborði
jarðar og rannsakað, á hvern hátt
jarðhræringar berast út frá þeim.
UPPTÖKIN Á TAKMÖRK-
UÐUM SVÆÐUM
Ivomið hefii’ á daginn, að öflug-
ir landskjálftar eiga upptök sín á
fremur takmörkuðum svæðum, þar
sem brestir eru í jarðskorpunni.
Aðallandskjálftasvæðin eru kring-
um Kyrrahafið, á íakmörkum þess.
Annað belti liggur um Austur-
Indíur, Burma, Tíbet, Persiu,
Litlu-Asíu og Miðjarðarhaf. Svo
ei'u vitaskuld önnur minni háttar
landskjálftasvæði víðs vegar um
jörðina. Eitt þeirra liggur til að
mynda norðan úr Ishafi um ísland
og suður eftir Atlantshafinu
I miðju. Bugðast það nokkurn veg-
inn á sama hátt og strandlengjur
meginlandanna báðum megin hafs-
ins.
ÁSTÆÐUR LANDSKJÁLFTA
■— Vita menn með vissu, af
hverju landskjálftar stafa?
— Ýmislegt getur reynt á jarð-
skorpuna. Áreynslan getur orðið
svo mikil, að jarðskorpan gefi sig
og bresti. Verður þá landskjálfti.
Ekki þarf þó brestur alltaf að
myndast í jarðskorpunni við átak-
ið, því að vel geta eldri veilur
hafa verið fyrir, svo að sprungu-
barmarnir gangi til, er á herðir,
og landskjálfti myndist af þeim
sökum. Menn gætu þá spurt, hvaö
reyni þannig á jarðskorpuna, cg
má þar ýmislegt til taka. Ýmsir
| telja, að jörðin sé heldur að drag-
I ast saman og jarðskorpan leggist
j í fellingar. Landskjálfta hefir orð-
ið vart, þar sem ísaldarjöklar hafa
’ legið. Lyftist þá jarðskorpan smám
I saman í nokkrar árþúsundir cftir
! að fargi jöklanna hefir létt af.
Eftir smíði Boulder Dam í
' Bandaríkjunum myndaðist allstórt
I stöðuvatn, þar sem áður hafði ver-
1 ið djúpur árdalur. Ekki leið á
Iö‘ngu áður en menn urðu varir
svávegis jarðhræringa í kringum
hið nýja vatn, og hefir jarðskorp-
| an þá að líkindum haggazt vegna
' þess mikla fargs, sem á hana hafði
lagzt. Af þessu má sjá, að ástæður
eru margvíslegar.
Á FÖRUM TIL KEFLAVÍKUR
•— Ert þú ekki í þann veginn
að taka við nýju starfi suður á
' Keflavíkurflugvelli?
1 — Islendingar eru nú að taka
í sínar hendur veðurþjónustuna
I þar að allmiklu leyti. Fyrst um
sinn verða þar 4 íslenzkir veður-
fræðingar og tugur að«toðar-
manna.
Það cr Alþjóða flugmá’astofn-
unin, sem ber kostnaðinn af störf-
um Islendinga suður fra.
Svo fórust Hlyni Sigti yggssvn’,
veðurfræðingi, orð, en hann verð-
ur yfirmaður veðurþjónustunnar
á Keflavíkurflugvelli, þegar þar
að icraur.
lokiö
101 lisfamaður hlaut styrk
NEFNDIN, sem annast úthlutun listamannastyi'kja, hefir nú lokið
störfum. Hlaut 101 listamaður styrk, en upphæðin, sem úthlutað
var, nam kr. 609.200,00. Alls bárust 180 umsóknir. — í nefndinni
áttu sæti: Þorsteinn Þorsteinsson, sýslumaður, formaður, Þorkell
Jchannesson, prófessor, ritari, Helgi Sæmundsson, blaðamaður og
Sigurður Guðmundsson, ritstjóri.
Úthlutun listamannafjárins er á'
þessa leið:
15.000,00 krónur hlutu: Ásgrím-
ur Jónsson, Davið Stefánsson,
Guðmundur Gíslason Hagalín,
Halldór Kiljan Laxness, Jakob
Thorarensen, Jóhannes S. Kjar-
val, Jóhannes úr Kötlum, Jón
Stefánsson, Kristmann Guð-
mundsson, Tómas Guðmundsson,,
Þórbergur Þórðarson.
9.000,00 krónur hlutu: Ásmur.d-
ur Sveinsson, Elínborg Eárusdótt
ir, Finnur Jónsson, Guðmundur
Eöðvarsson, Guðmundur Ðaníels-
son, Guðmundur Einarsson, Gunn
laugur Blöndal, Gunnlaugur
Scheving, Jón Björnsson, Jón
Engilberts, Jón Þorleifsson,
Kristín Jónsdóttir, Magnús Ás-
geirsson, Ólafur Jóh. Sigurðsson,
Rikharður Jónsson, Sigurjón Ól-
afsson, Steinn Steinarr, Sveinn
Þórarinsson, Þorsteinn Jónsson.
8.000,00 krónur hlaut: Friðrik
Friðriksson, dr. theol.
5.400,00 krónur hlutu: Friðrik
Á Brekkan, Guðmundur Frímann
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
Ilalldór Stefánsson, Heiðrekur
Guðmundsson, Helgi Hjörvar,
Jóhann Briem, Jón Leifs, Karl Ó.
Runólfsson, Páll ísólfsson, Sig-
urður Einarsson, Sigurður Þórðar
son, Sigurjón Jónsson, Snorri
Arinbjarnar, Stefán Jónsson,
Svavar Guðnason, Vilhjálmur S.
Vilhjálmsson, Þorvaldur Skúla-
son.
3.600,00 krónur hlutu: Árni
Björnsson, Árni Kristjánsson,
Elías Mar, Eyþór Stefánsson,
Gunnar Benediktsson, Hallgrím-
ur Helgason, Haraldur Björnsson,
Helgi Pálsson, Höskuldur Björns-
son, Jakob Jónsson, .Jón úr Vör,
Iýristinn Pétursson, Kristín Sig-
fúsdóttir, Kristján Emarsson frá
Djúpalæk, Magnús Á. Árnason,
Ólafur Túbals, Rögnvaldur Sigur
jónsson, Sigurður Helgason, Sig-
urður Sigurðsson, Valur Gísjason.
3.000,00 krónur hlutu: Ásgeir
Jónsson frá Gottorp, Barbara W.
Árnason, Bragi Sigurjónsson, Ein
ar Pálsson, Friðfinnur Guðjóns-
son, Gerður Helgadóttir, Gísli
Ólafsson, Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir, Guðmundur Jónsson, Guð
rún Árnadóttir frá Lund.i, Gúðrún
Indriðadóttir, Guðrún Á. Símon-
ar, Gunnar Gunnarsson yngri,
Gunnar M. Magnúsá', Gunnfriður
Jónsdóttir, Gunnþórunn Halldórs
dóttir, Halldór Helgason, Hall-
dóra B. Björnsson, Hannes Sig-
fússon, Hörður Ágústsson, Ingi-
biörg Steinsdóttir, Tngólfur Krist
jánsson, Klemens .Tónsson, Óskar
Aðalsteinn Guðjónsson, Pétur Fr.
Sigurðsson, Ragnheiður Jónsdótt
ir, Sigurður Róbertsson, Vetur-
liði Gunnarsson, Vilhjálmur Guð
mundsson frá Skáholti,_Þorbjörg
Árnadóttir, Þóroddur Guðmunds
son, Örlygur Sigurðsson.
VöruhappdrælH
S. 1. B. S.
kr. 50.000.00 — nr. 15186
kr. 5.000.00 — nr. 38506
kr. 2.500.00 — nr. 28930
kr. 2.000.00 — nr. 17640
kr. 1.000.00 — nr. 26674
kr. 500.00 — nr. 3444
21 70 170 361 618
656 692 1055 1304 1642
1815 1868 2084 2200 2721
2768 2810 2831 2886 2945
3016 3081 3309 3323 3383
3393 3866 3970 4050 4115
4166 4482 4631 4951 4960
5009 5230 5913 5922 6036
6295 6531 6557 7182 7288
7380 7561 7698 7879 8064
8759 8839 9218 9338 9430
9458 9590 9579 9624 9868
9887 9935 9965 10593 10761
10805 11142 11248 11398 11515
11742 11863 12174 12294 12331
12495 12510 12617 12851 12978
13060 13102 13103 13495 136Ö7
13671 13964 13975 14066 14214
14252 14373 14437 14485 14514
14575 14783 15264 15330 15406
16078 16138 16173 16222 16414
16453 16692 16702 16999 17049
'17238 17296 17399 17768 17877
18022 18065 18152 18201 18220
18443 18488 18639 18724 18851
19182 19200 19366 19555 19969
20936 20980 21137 21581 21630
21723 21768 21920 22006 22164
22454 22480 22563 22637 23071
23556 23853 23875 23889 24175
24397 24491 24550 24629 24718
25519 25527 25851 25914 25981
26147 26342 26423 26480 27219
27231 27635 27739 28029 28212
28375 28509 28557 28602 28612
28738 28798 28815 28834 28842
28853 29045 29349 29355 29366
29795 29809 29832 30068 30083
30882 31096 31300 31593 31693
31761 31801 32006 32182 32405
32465 32560 32930 32972 33023
33233 33355 §3399 33402 33660
33938 34057 34233 34309 34601
35068 35451 35753 35999 36021
36305 36361 36578 36616 36867
36928 37297 37367 37430 37573
37638 37798 37888 37976 38209
38473 38592 39092 39810 39946
Nýi landskjálftamælirhm « S3Ó!n?nn?skóIanum.
- Brelakonungur
brariiij. ai bis b
feykilegra vinsælda. Uin gjör-
valt Bretland og hvarvetna «m
hið víðáttumikla brezka sam-
veldi var George konungnr og
f jölskylda hans dáð og elskuð.
Sú tryggð sem þjóðin bar til
hans kom skýrlega fram i veik
indum konungs á s.l. hausti.
Þá sögu þarf ekki að rekju, því
hún miin í fcrsku minni allra
heirra hjéða er frelsis njáta.
Mjög escskin sicarisensi
Pqii Americon Airways
Kikil lækkun flugfargjalda I sumar.
PAN AMflRICAN World Airways flutti 1.289.000 farþega 1951 og
34.984.786 kg. vörur og póst, er það nær 300.000 farþegum og
10.000 tonnum meira en 1950.
Félagið gerir ráð fyrir mjög aukinni starfsemf 1952 á öllum
sviðum, sérstaklega á hinum nýskipulögðu ódýru „Turista“-áætl-
unarflugferðum yfir Atlantshafið, sem byrja í maí-júní og félag-
ið hefur sem kunnugt er haft forgöngu um. Með „Turista" flug-
ferðum þessum gerir Pan American World Airways ráð fyrir tvö
faldri aukningu á fólksflutningum. Einnig ráðgrir félagið „Tur-
ista“ flugferðir um Kyrrahafið.
LÆKKUN FARGJALDA
Árið 1952 mun marka nýtt
spor í sögu félagsins eftir að sam-
pykkt var af öllum stærstu ame-
rísku flugfélögunum „Turista“-
flugferðir um Atlantsbafið, r>r’
þar með stórfelid verölækkun á
fargjöldum, bæði sumar og vet-
ur. Með þessari verðlækkun verð
ur mörgum báðum megiri Atlants
hafsins gert klevft að fer^arf,
Framh. á Hls, 8