Morgunblaðið - 22.03.1952, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 22.03.1952, Qupperneq 5
[" Laugardagur 22. marz 1952 MORGVNBLAÐIÐ 3 1 Minningarorð um lómas Tómasson bónda, AuðshoHi, Biskupslungum 1 DAG verður borðinn til grafar, Tómas Tómasson bóndi frá Auðs- holti í Biskupstungum. -— Tómas var fæddur í Auðsholti 10. okt. 1874, sonur hjónanna Tómasar Guðbrandssonar hreppstjóra og Guðrúnar Einarsdóttur. Hefur föðurætt Tómasar búið í Auðs- Siolti síðan 1801 og lítur út fyrir að afkomendur hans búi þar enn um skeið. Tómas ól allan aldur sinn í A^uðsholti, fyrst sem ungur mað- tur og síðan sem bóndi langa æfi. Tómas var góður búhöldur og naut hann þar aðstoðar sinnar ágætu konu og barna þeirra, er Jtau komust á legg. Auðsholt er landlítil jörð og einatt margbýit þar, en moldin er þar frjósóm, ]því Hvítá hefur a. m. k. við og við öldum saman, flætt yfir alla Sandareignina nema túnin og veitt Sienni frjósemi og líf. Þá hefir það oft vaidið margvíslegum erfið- Seikum að vera í nábýli við Hvítá og' ekki ætíð heiglum hent. Jörð sina bætti Tómas mjög mikið, sléttaði túnin og byggði öll Ihús vönduð frá grunni. Mér er sérstaklega Ijúft að minnast Tómasar sem hins örugga ®g ágæta ferju- og leiðsögumanns yfir Hvítá. Alltaf glaður og reif- sur hafði hann þennan starfa á hendi og rækti með ágætum, eins ©g öll önnur störf sín, meðan kraftar entust, oftast fyrir lítil 3aun eða engin. Vera má að þetta hafi verið hlutskifti ferjumanna á voru landi til þessa dags. Á íilium tímum sólarhringsins var Tómas reiðubúinn til fylgdar ef þess var óskað. Hvort sem var að isumri er ferjað var, eða að vetri er ísar voru ótryggir, mátti alltaf treysta glöggskyggni og öruggri fylgd Tómasar. Aldrei hlekktist honum á við störf sín. Marga kalda stund mun hann hafa átt í þessum ferðum, en um það var aldrei fengist. Ferðirnar voru margar um æfina og dæmi ég þá eftir þeim 15 árum er við vorum nágrannar, er var aðeins lítill hluti æfi Tómasar. Nú fækkar óðum þeim stórvötn- nm á landinu sem ferja þarf yfir daglega og ber að fagna því. Enga ésk á ég betri þeim til handa, er á því þurfa að halda að fara á ferju yfir stórvötn, en að þeir hafi jafn góðan ferju- og leið- BÖgumann og Tómas var. Tómas var kvæntur Vilborgu Jónsdóttur frá Seli í Hrunamanna hreppi, hinni ágætustu konu, sem lifir mann sinn. Börn þeirra eru 9, öll mannvænleg, 5 synir og 4 dætur, þrír synirnir eru heima og munu þeir taka upp merki föður síns, enda hafa þeir verið ásamt dætrunum, öflug stoð hans hin BÍðari áj'. Tómas verður lagður til hinztu hvíldar, eftir -iangan starfsdag, í heimagrafreit að Auðsholti. Biessuð sé minning hans. Ól. Emarsson. MiamÍEsgarorð um Slg- lús Sigurhjartarson bæjarfulltrúa ÞEIR eru margir, sem sakna Sig- fúsar Sigurhjartarsonar. Ég er einn þeirra. Skoðanabræður hans í stjórnmálum og samherjar í Góð templarareglunni hafa misst einn af starfhæfustu liðsmönnum og leiðtogum. En margir samstarfs- menn hans, er aðrar skoðanir höfðu um grundvallaratriði þjóð- málanna en hann, hljóta að við- urkenna, að gáfur hans og frá- bær elja þokuðu mörgu góðu máli áieiðis. í bæjarstjórn Reykiavíkur átti ég kost á að kynnast Sigfúsi all- náið. Við vorum samtíða bæ.iar- fulltrúar í 10 ár, og síðustu 6 ár- in í bæjarráði saman. Einnig á öðrum vettvangi kynntist ég hon- um vel. Á Alþingi sátum við scm- an í menntamálanefnd í 7 ár og unnum m. a. sameiginlega að skólalöggjöíinni frá 1946. í þess- um störfum, þar sem skiptist á vinsamleg, einlæg samvinna um málin og harður ágreiningur, hafði ég tækifæri til að kvnnast mörgum þáttum í skapgerð hans og framkomu. Andstæðingum R.C.A. Victor Til sölu er sem nýr R. C. A. Victor radió- grammófónn. — Skipíir 12 piötum. Upplýsingar í síma 9529. ■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■ Rafmagnstakmörkun Álagstakmörkun dagana 22. marz—29. marz frá kl. 10,45—12,15. Laugardag 22. marz 4. hluti Sunnudag 23. marz 5. hluti Mánudag 24. marz 1. hluti Þriðjudag 25. marz 2. hluti Miðvikudag 26. marz 3. hluti Fimmtudag 27. marz 4. hluti Föstudag 28. marz 5. hluti Laugardag 29. marz 1. hluti IIANDKNATTLEIKSMOTIÐ hélt áfram í gærkveldi. Leikar fóru þá þannig, að Ármann vann FH'í II. flokki kvenna með 1:0, Valur vann KR í III. flokki karla með 3:2, FH vann Fram í II. fl. karla með 5:3, Víkingur vann KR í II. flokki karla með 10:7 og Ár- mann vann Þrótt með 6:3. Leikur fór einnig fram milli Ármanns og Víkings í III. flokki, en leiktími reyndist of langur, þannig að félögin verða að leika aftur„nk. þriþjudag. Mótið heldur áfram á morgun og hefst kl. 8 e.h. Skemmttlegf smá- myndasafn Sigurgeirssonar 1 GÆRKVÖLDI hafði Eðvard Sigurgeirsson l.jósmyndaii frá Akureyri, sýningu á nokkrum kvik myndum sínum, fyrir troðfullu húsi áhorfenda í Nýjabíói. Hér er eiginlega um smámynda- safn að ræða. Voru myndirnar allar hver annarri betri. Fyrsta myndin var frá hreindýraslóðum við Kringihálsrana. Gaf þar að líta fjölda mörg falleg hreindýr. Munu nær undartekningar- iaust allir áhorfendur hafa þarna í fyrsta sinn séð þessi margurn- töluðu hreindýr, sem eftir hoidar- fari að dæma lifa góðu lífi. Önnur myndin heitir Sumai' í sveit. Hún er tekín urn hásláttinn við fyrirmyndarbú norður í Eyja- firði. Þessi stutta mynd gefur t. d. mjög góða lýsingu á þeim breyttu vinnubrögðum, er orðið hafa hér á landi við heyskap, á síðustu 20 árum, eða frá því að hestasláttuvélin var orðin ailal- menn hér á landi, þar til að al- mennir eru orðnir léttbyggðir traktorar, sem ekki aðeins siá, heldur og flytja heyið heim og láta það sjálfir upp á heyvagninn og í hlöðuna. Að sjálfsögðu sést lítill kaupstaðardrengur vera að sækja kýr í haga. Þriðja myndin sýnir, er Eðvard heimsótti fólka- ungahreiður, en þar voru tveir ungar um það bil að verða fleygir. Giimmdin í þessum ófleygu ung- um var furðuleg. -— Þá fer Eð- vard um Mývatnssveitina og eru þær myndir mjög fallegar, svo sem vænta mátti úr þeirri sveit. Að lokum er svo stuttur kafli um björgun Geysis-áhafnarinnar. A. St. hans þótti stundum við hann í ' opinberum umræðum. Slíkt er . lögmál stjórnmálanna. En í nefnd ! arstörfum var hann jafnan róleg- (ur, hygginn, fljótur að-átta sig á málunum og samvinnulipur. Eftir að hafa setið með honum á 4. hundrað bæjarráðsfundi get ég með góðri samvizku kveð- ið upp þann dóm, að þar var hann ágætur starfsmaður, stund- Vís, samvizkusamur, samvinnu- þýður og eljumaður hinn mesti við að kynna sér málin niður í kjölin. Hann vildi leysa allan þorra mála með samkomulagi og gerði sjaldan ágreining, nema um veruleg pólitísk ágreiningsmál. Þegar á bæjarstjórnarfundi kom, birtist okkur önnur hlið hans. Þá var hann orðinn hinn ótrauði og óhlífni bardagamaður flokks síns og áhugamála. Hann var Ijúf- lyndur í bæjarráði, sóknharður i bæjarstjórn. Um leið og ég flyt Sigfúsi látn- um þakkir fyrir allt það, sem hann hefur látið gott af sér leiða, færi ég frú Sigríði, konu hans, og börnum þeirra þrem, einlægar samúðarkveðjur. Gunnar Tlioroddsen. Straumurinn verður rofinn skv. þessu þegar og að svo miklu leyti scm þörf krefur. SOGSVIRKJUNIN Tilkyimiiig Vegna orðróms þess efnis, að Bólsturgerðin, Brautarholti 22, framleiði bólstruð húsgögn, sem seld séu í húsgagnaverzlun hér í bænum annarri en okkar eigin verzlun, viljum við taka fram, að það er ekki rétt. Oll okkar húsgagnaframleiðsla hefur verið og er seld í sölubúð okkar, Brautarholti 22, en hvergi annarsstaðar. Bólsturgerðin Brautarholti 22. INGÍMAR JONSSON. BÆJARSTARFSMENN! 2. spilakvöld Starfsmannafé- lags Reykjavíkurbæjar er í kvöid kl. 8.30 að Borgartúni 7. SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM, 23. marz. — Aðalritari Sameinuðu þjóðanna Tryggvi Lie heíur sent kommúnistastjórn Kína og Norð- ur-Kóreu símskeyti þar sem boð- in er hjálp Alþjóöa heilbrigðis- málastolnunarinnar í baráttunni gegn landfarsótt, sem upp hefur komið í þessum löndum. Skeytið- var sent Utanríkisráð- herra Kína, Kú En Læ og Pak Hen En, utanríkisráðherra Norð- ur-Kcreú. Lögð var áherzla á cð svar bæi'ist hið fyrsta. Al- þjóða rauði krossins hefur sem kunnugt er þegar boðið aðstoð sína. — Reuter. , IRAUVÉLARNAH KO&iNAR Bc-rið verð og gæði SPEED QUEEN strauvclarnar saman við aðrar gcrðir, og þér munuð sanrrfærast um að hjá okkur gciið þér bcztu kaupin. Verðið frá kr. 1990.00. Komið, skoðið og kcupið meðan birgðir cru fyrir hentli. Skclavörðustíg 3 Reykjavík. nTi'rt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.