Morgunblaðið - 27.03.1952, Page 8

Morgunblaðið - 27.03.1952, Page 8
MORGUNBLAÐIB Fimmtudagur 27. marz 1952 Hjálparbeiðni AÐFÁjvANÓTT s. 1. sunnudags bianii l'.úsið ofan af fátækri fjöl- skyldu á Sauðárkróki eða skemmd- jst svo, að ekki er íbúðarhæft fyrr en mikiu hefur verið kostað til viðgerðar á því. Eigandinn hafði nýlega kcmið þessu húsi yfir sig cg fjöiskyldu sína og unnið mest að því sjálfur. 1 brunanum misstu þau hjónin mestallan fatnað sinn og innanstokksmuni. Tjón þeirra ei stórmikið og tilfinnanlegt. Mað- i.rinn er atvinnulaus sem stendur. Jvjrnin eru fimm, öll ung. Hér er vissulega þörf að rétta hjálpar- i.önd. Er nú þess farið á leit, að gúðsamir og hjálpfúsir Reykvík- ingar, sem alltaf eru svo viðbragðs fljótir, þegar náunginn verður fyr i; áfalli, hugsi til þessarar fjöl- f kyldu og hlaupi undir bagga með Lenni í vandræðum hennar. Sigurbjörn Einarsson. Háskólafyrirlesiur um þjéSfélagsþró- unma i áfrekaskrá íslands í frjálsum íþróttum SJÖ Islendingar hlupu 100 metra á eða undir 11 sekúndum á s. L sumri, en aðeins þrír náðu betri tíma en 22 sekúndum í 200 metra hlaupi. — Afrekaskrá Islands í frjálsum íþróttum er birt í „Allt um íþróttir“ janúar-febrúar heft- inu sém er nýkomið út. 1 ritinu er og að finna frásögn frá Ólympíuleikunum, grein um ný íþróttahús, ítarleg frásögn um getraunastarfsemina, auk skák- þáttar o. fl. Hálfan eyri a( hverju kílói FORVÍGISMAÐUR úr hópi norskra fiskimanna leggur til, að fiskimenn greiði hálfan eyri af hverju kg., sem þeir veiða, til Slysavarnafélagsins. Slysavarnafélagið norska nýtur einskis ríkisstyrks, heldur er starfi þess haldið uppi með frjáls um framlögum einum. Félagið á álitlegan flota björgunarskipa, sem hafa bækistöðvar með endi- langri ströndinni. Tillögumaður telur, að fé þetta eigi að greiðast af veiðunum í bönkunum, þar sem rekstrarféð muni varla hrökkva af öðrum kosti. GA. Samkoma að Hlégarði LAUGARDAGINN 22. þ. m. efndu félögin Sjálfsvörn í Reykja lundi og Berklavörn í Reykjavík til skemmtisamkomu að Hlé- garði, hinu nýja og fagra sam- komuhúsi Mosfellssveitar. Samkoman var hin ánægjuleg- asta og sóttu hana um 150 manns. Emilía Jónasdóttir leikkona flutti leikþátt, Áshildur Tynes söng gamanvísur, Skúli Halldórs- son lék á píanó og Einar Magn- ússon á munnhörpu. Þá var dansað og iék dans- hljómsveit strætisvagnabílstjóra fyrir dansinum. Eigendur Hlégarðs, hreppsfélag Mosfellinga, lánaði húsið og lét bera fram rausnarlegar veiting- ar, hvorttveggja endurgjalds- laust. Sömuleiðis voru skemmti- atriðin flutt án þess að gjald væri tekið. Félögin, sem fyrir samkomunni stóðu, hafa beðið blaðið að flytja alúðarþakkir til Mosfellinga og þeirra er sáu um fiutning skemmtiatriða, fyrir rausn þeirra og vinsemd.______________ Þýzkur borgarsfjóri SJALFSTÆÐISBARATTA ís- lenzku þjóðarinnar hefir að miklu leyti verið með öðru sniði en hinna norsku. Þegar þessi bar- átia hófst í fullri alvöru undir forystu glæsilegra skálda og stjórnvitringa eins og Jónasar Hallgrímssonar og Jóns Sigurðs- sonar, var það tiltölulega auðveit að sameina alla þjóðina um aðal- atriði málsins. íslendingar bjuggu að gömlum þroskuðum bók- menntaarfi. Þeir áttu lifandi rit- mál, sem var þeim ómetanleg auð iind og um leið vígvopn. Þeir áttu þjóðrhenningu, sameign allra stétta landsmanna, að undir- stöðu og aðalbækistöð allra á- hlaupa. Mótspyrnan gegn þjóð- ernishreyfingunni kom aðallega frá erlendu áhrifavaldi og varð þess vegna til þess að knýia landsmenn sem fastast saman í baráttu fyrir sameiginlegum hags munum og hugsjónum. Þetta var allt öðru vísi í Nor- egi þegar norska þjóðin varð sjálfstæði á árinu 1814, voiu tvær megin stéttir í landinu, yfir- stéttin (embættisstéttin og auð- manna) og alþýðan. Munur þessara stétta, hvað uppruna, menningu, mál og félagstilfinn- | ingu snertir, var svo djúptækur, I að liggur við að ræða um tvær , þjóðir í sama lar.dinu. Barátta þessara tveggja „þjóða“ og sam- runi mynda uppistöðu norskrar þjóðfélagsþróunar á nítjándu öld. En þessi þróun fæddi um leið af sér nýjar stéttir, sem tóku vi ðarfi hinna gömlu stríðs- aðila og hafa orðið næsta þýð- ingarmiklar í norsku félagslífi og menningu, verkamannastéttina og „millistéttina“ sem eiga margt j sameiginlegt enda erfitt að að- greina þær. Hallvard Mageröy sendikenr.- ari ætlar að flytja tvo fyrirlestra, sem shúast um þessi efni, fyrra fyrirlesturinn sérstaklega um þjóðfélagsþróunina og þýðingu hennar fyrir hin nýju viðhorf í hinni kunnu málabaráttu Norð- manna, hinn síðara um mál- akademíuna norsku, sem til hefir verið stofnað skömmu fyrir jól síðastliðið ár. Fyrri fyrirlestur- inn er nefndur „Samfunns- vokster og kulturstrid“. Hann verður fluttur í I. kenslustofu Háskólans föstudaginn 28. þ. m. kl. 8,15. Öilum heimill aðgang- fil Oslóar BERLÍN, 26. marz — Borgarstjóri Vestur-Berlínar, Ernest Reuter, mun n. k. föstudag koma til Osló- fcorgar í\boði Verkamannaflokks- ins, til viðræðna við ríkisstjórn- 5na norsku. — Til heiðurs hinum þýzka borgarstjóra verður efnt til vegíegrar móttökuhátíðar í Ráð- túsinu í Osló. —Reuter-NTB. Fyrsfu kosningun- um er lokið ERITREA, 26. marz — Fyrstu almennu kosningunum í Eritreu lauk í dag og höfðu þær farið friðsamlega fram. Kosnir eru fulltrúar á þing sem fjalla mun Um uppkast að nýrri stjórnar- skrá sem lögð er fram af S. Þ., en þessi fyrrverandi ítalska ný- lenda verður sjálfstætt ríki undir vernd S. Þ. —Reuter-NTB. Um 60 bátfi Eru mjög margir þeirra utan af landi UM NÆSTU helgi hefst danslagakeppni SKT, en þátttaka i henni er mjög mikil. Hafa um 60 danslög borizt víðsvegar að af landinu, eins og t. d. frá Siglufirði, Sauðárkróki, Hvammstanga, ísafirði, Patreksfirði, Keflavík, Valþjófsstað og víðar. Þá er og allmikíl þátttaka héðan úr Reykjavík. FER FRAM í TVEIMUR HÚSUM Keppnin fer samtímis fram í Góðtemplarahúsihu og að Röðli að því er snertir nýju dansana, en eingöngu í GT-húsinu, þegar Um gömlu dansana ræðir. DÓMNEFND VELUR 28 LÖG Sama þriggja manna nefndin og í fyrra, skipuð þeim Þórarni Guðmundssyni, hljómsveitar- stjóra Ríkisútvarpsins, Árna Björnssyni og Bjarna Böðvars- syni hljóðfæraleikurum, hefur flokkað sundur aðsend lög, en 28 þau beztu verða tekin með í keppnina, — 12 í gömlu dansana og 16 í nýju dansana. Dansgestir verða síðan látnir ákveða það með atkvæðum sínum, hvaða lag skuli telja bezta lagið. Verðlauna- veitingar verða 600 kr 1. verð- laun — 400 kr. 2. verðlaun — 300 kr. 3. verðlaun o. s. frv. í hvorum flokki. Höfundanöfn lag- anna eru að sjálfsögðu á huldu þar til keppninni er lokið. — A meðan bera þeir gerfinöfn. STENDUR yfir UM ÞRJÁR HELGAR Keppnin mun standa yfir um þrjár helgar. Verðá sex lög leikin hvert laugardagskvöld í görrilu dönsunum og 8 hvert sunnudags- kvöld í nýjú dörisunum. TVÆR HLJÓMSVEITIR Hljómsveit Braga Hlíðberg mun leika lögin í GT-húsinu, en hljómsveit Stefáns Þorleifssonar að Röðli. Söngvarar með hljóm- sveitunum verða: Svavar Lárus- son og Edda Skagfield í GT-hús- inu, en Haukur Mortens og Sig- rún Jónsdóttir að Röðli. Keppni þessari verður útvarp- að. Beefhovens minnsi víða BERLÍN, 26. marz — Stjórnirn- ar tvær í Austur- og Vestur- Þýzkalandi kepptust í dag um að heiðra Beethoven á 125. árstíð hans. Heuss forseti V.-Þýzkalands, Adenauer og fjöldi ráðherra hans gengu fyiktu liði að húsínu þar' sem tónskáldið fæddist 17. des. 1770. Húsið er nú safn, þar frammi liggja áhöld tónskáldsins og hand- rit. i i-iWílgl Hátíðahöldin í Austur-Þýzka- landi höfðu yfir sér pólitískan blæ. Allir forsprakkar kommúnista og málpípur voru saman komnir í Austur-Berlín til hátíðahalda. Hápunktur þeirra var ræða Wil- helms Piek, sem samanstóð af kommúniskum vígorðum. -—Reuter-NTB jafnír á skákþlngi Horðlendinga AKUREYRI, 25. marz — S. 1. sunnudag lauk níundu og síðustu umferð í meistaraflokki á skák- þingi Norðlendinga, sem háð hef- ur verið að undanförnu hér á Akureyri. Úrslit úrðu þau, að Jón Þor- steinsson, Jón Ingimarsson og Júlíus Bogason urðu jafnir með 614 vinning hver af 8 möguieg- um. Verða þeir þess vegna að tefla til úrslita um titilinn skákmeist- ari Akureyrar 1952. I Næstir að vinningum urðu Jó- hann Snorrason með 5 v. og Unn- steinn Stefánsson með 4 v. I fyrsta flokki varð hæatur Ármann Rögn- valdsson með 4 v. af 5 möguleg- jum, og gengur hann upp í meist- araflokk. — 1 öðrum flokki vaið j Halldór Jónsson (15 ára) hæstur með 514 v. af 6 mögulegum, og 'gengur hann upp í 1. fiokk. j Mikill áhugi er hér meðal félags manna á skáklistinni. Sérstaklega ! er það athyglisvert hversu marg- ir unglingar iðka skák. —H. Vald. — Grein sr Bjsrna Framb. af-'bts. Sí lestrá í sópikoniuhúsuui þeirra um ísland o:é síarf kirkjú vbrrar. Það gevmast engar sögur um róg- burð af vörum mínum, er ég var á þessum fyrirlestrarferðum. Aldrei skal ég gleyma þeirri heill, sem mér hlotnaðist, er ég kynntist hinum mætustu leiðtog- um dönsku kirkjunnar, Fenger prófasti, prestunumOlfertRicard, Þórði Tómassyni, Mariusi Th. Nielsen, Bachevold o. fl. Bréf þeirra geymi ég sem dýran fjár- sjóð. Ætli þessir menn hafi nokkru sinni heyrt mig níða mína eigih kirkju? •—Ö-- Sannleika mæli ég, er ég segí, að mér rennur til rifja og ég fyllist sárri hryggð, er ég verð þess var, að svo ömurleg hugsun skuli geta fæðst hjá nokkrum manni og um leið vaknað hjá honum spurningin: „Er það rétt, að síra Bjarni hafi pantað óhróð- ur um þá kirkju, sem hefir fóstr- að hann?“ Kirkjan er oss kristnum móðir. Er mér trúandi til að stuðla að því, að illa sé talað um móður mína, þó að_ henni sé í ýmsu ' ábótavant? Á ég ekki á allan hátt að hjálpa móður minni, sem ég elska, af því að hún hefir hjálpað mér? Ef menn trúa því, að ég vilji gera kirkjunni og þjóð minni vansæmd, þarf ég ekki frekar um þetta mál við þá að ræða. Bj. J. Matvælaskrffstofa SAM. ÞJÓÐIRNAR — Aðalfor- stjóri FAO hefur sent ríkisstjórn um 18 Evrópulanda boð um að sækja ráðstefnu, sem haldin verð ur síðar á þessu ári, en þar mun FAO leggja til, að stofnuð verði sérstök matvælaskrifstofa fyrir Evrópu, sem fær það hlutverk að stuðla að heilbrigðara matar- æði, matargjöfum barna í skól- um og bættu mataræði iðnaðar- manna. Óeirðir Framh. af bls. 1 1948. Sagði blaðið að sá samn- ingur hefði ekki til að bera not- hæfan grundvöll fyrir lausn þess- arar deilu Júgóslóvakíu og ítali'J. Samningurinn kveður svo á um að Tríest skuli aftur hverfa und- ir yfirráð ítala. Júgóslafar halda því hins vegar fram, að ítalir eigi að fá þann hluta, sem nú er undir yfirráðum brezk-amerísku hernámsyfirvaldanna. Hinn hlut- ann, sem að mestu er byggður Slöfum, beri Júgóslafíu. — Slysavarnir Framh. af bls. 7. Á öllu landinu urðu 11 dauða- slys í sambandi við bifreiðar 1951, en af þeim gátu þrjú ekki talizt venjuleg umferðarslys. Það er einkum áberandi við dauðaslysin síðastliðið ár, hversu margir gangandi menn hafa beð- ið bana að því er virðist fyrst og fremst sökum þess, að ekki hefur verið gætt nægjanlega að um- ferðinni áður en gengið var út á akbraut innanbæjar eða þjóð- veg. Ótrúlegt er hversu margir full- orðnir gleyma því að það er í rauninni jafnhættulegt að ganga út á götu án aðgæzlu og að ganga fram af hafnarbakkanum, en þar gæta menn þó að jafnaði fyllstu varúðar. IIÆTTAN VIÐ STRÆTISVAGNANA Til viðbótar því, sem begar hefur verið sagt, er ástæða til að beina þeim tilmælum til bifreiða stjóra, að þeir taki upp þann sið að draga verulega úr hraðanum, þar sem strætisvagnar hafa numið staðað til að hleypa út fólki. Þar er sérstök hætta á ferð- um, sem oft hefur leitt til hörmu- legra slysa, sökum þess að fólk hefur farið að eins og börnin, og gengið í hugsunarleysi út á göt- una fram undan strætisvagnin- um, án þess að huga að umferð- inni. RAGNAP JÓNSSON hæstarcttarlÖKmaSixr Lögfræðistörf og úgn.aimisýöla, Laugaveg 8, slmi 7TIÍ2. Msrkúju A kttir Ed ttnnniiiiKiiiniMiH In a desperate effort to RESCUE A SWIMMING DEER. { DCC I nQCQ Ul^ D.AI ZÁNr.D .. I 1) Raggi gerir allt, sem hann hallar sér of langt út yfir borð-1 2) Raggi og hjörturinn fljóta I 3) Nú fyrst verður Raggi var getur til að bjarga hirtinum, en ' stokkinn og missir jafnvægið. I á sjónum. I við hákarlinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.