Morgunblaðið - 05.04.1952, Side 14
14
MORGUISBLAÐIÐ
Laugardagur 5. apríl 1952
Framhaldssagan 50
cox. ,,Heima hjá yður. Getið þér
ekki komið því í kring fyrir
mig?“
Wiicox fór á undan og átti
orðaskipti við Morey. Svo kom
hann aftur. „Violet“, sagði hann.
„Herra Morey og Perrin burfa að
gera innkaup hérna og þeir vilja
gjarnan að þú komir með þeim.
Ég ek East heim á eftir“.
Hún yfirgaf þá, endarþótt hún
virtist treg.
Wilcox fylgdi Mark.að eldhús-
dryunum. Pansy vár líklega kom
in heim og ef hanh þekkti hana
rétt átti hún kaffi á könnunni.
Jú, Pansý var komin heim. —
Hún var reyndar ekki búin að
taka af sér. hattinn, en kaffið var
sjóðandi á eldavélinni. Hún fór
inn i stofuna til að kveikja á ofn-
inum.
„Nei, Pansy. Farðu heldur með
bakkann inn á skrifstofuna mína.
Við East þurfum að tala saman
éinslega".
„Það er gott að ég var búin að
kveikja upp þar“, sagði hún. Hún
fór inn á undan beim með bakk-
ann og rjúkandi kaffikönnuna.
„Mér þykir vérst að ég komst
ekki til að vera við jarðarförina,
en mamma ' vildi ekki slepþa
mér“. Hana langaði auðsjáanlega
til að segja frekari fréttir af
móður sinhi, en eiginmaður henn
ar gaf henni vinsamlega bend-
ingu um að fara út.
Þegar hún var farjn, snéri
han sér að Mark.
„Jæja, hvað er að? Mér sýnist
þér ekki eins vrongóður og þér
voruð í gærkvöldi".
„Náðuð þér í þessa menn í
simanum“.
„Já. Hann var allur á hjólum,1
lögerglustjórinn í Citrus Qity. —
Hann lofaði að athuga þetta fyrir
mig og láta mig vita .um leið.
Það gekk ekki eins hljóðalaust
með samtalið við V/ashington, en
ég lét mig ekki. Þeir ætla að
gera það sem hægt er og ef sahn-
talið verður ekki í kvöld, þá á
ég að vera viðbúinn í fyrramál-'
ið“. '
„Bezt væri að fá það í kvöld.
Ég kviði fyrir næstu tuttugu og
fjórum tímunum".
„Nú?“
„Hvernig var það, ætlaði ekki-
konan yðar að taka að sér dætur
Morey daginn sem átti.að jarða
frú Lacey? Hvernig.stóð á þv.í?“
„Pansy er svo hjálpsöm'. H-ún:
frétti að allt fóikið' mundi vilja
fara og þá bauð hún sina;hjálp“.
„Mundi hún vilja bjóða hjálp
sína aftur, ef þörf krefðist?" ►■■■■■
„Guð minn góður. ....,. Þér eig-
ið ekki við...."
„Nei, og þó' að það kæmi fyrir-
aftur, veit ég ekki hver það yrði.
Það er einmitt það, s«m mér ifk-
«r ekki .... Nei, það getujr verið
að það væri gott'að losna yið
stúlkurnar urrt stund“. ‘ '•
„Hún tekm- þær -til sín. Hún
telur það ekki eftir sér“. Hann
leit íhugandi á jjfíaijk^ ,;En hvað
er komið nýtt á daginn?"
„Já. Morev heldur að Stone-
man sé á lífi“.
„Hvar er hann þá?“ » ,
„Morey heldur að hann. hafi
farið til New York“.
„En þér trúið .þvL ekki, eða
hvað?“
„Nei. Vel á minnzt. Voru Tait-
tvíburarnir við jarðarförina?"
„Já, og satt að segja varð ég
undrandi. Eg hef-afdrei séð þá
áður við nokkra jarðarför. Ég
var btinn að gieynta að. þeir
þékktu !Florrie"nokiu.ð ríá‘o. %iiv
"TtWWWmtWHiHh
af henni, þegar hún var telpa.
Atti að vera við gosbrunn eða
eitthvað þess háttar".
„Ætli þeir hafi styttuna hjá sér
núna?“
„Sennilega. Þeir fleygja aldrei
neinu, éins og þér sáuð kannske
á fataburðinum. En svo að við
snúum okkur aftur að aðalefn-
inu, Mér sýnist þér búa yfir ein-
hverju".
„Ja. Eg veit hvar Stoneman
er“.
„Á lífi?“
„Nei“. .
„Getum við þekkt hann?“
„Já“! ' ‘
„Vitið þér hvort hann hefur
yerið. myrtur, eða var það slys?“
„Það var ekki slys“.
„Ég fer og sæki bílinn. Þér
segið mér nánar frá því á leið-
inni“.
Mark gekk á eftir honum út
að bilskúrnum. Floyd stóð úti á
bak við húsið. „Heyrðu mig,
Eloyd“, sagði Mark. „Ég get sagt
þér hvernig þú átt að því að fara
að vinna þér inn aðra fimm dali.
Leitinni er að verða lokið, svo þú
skalt g^ki hugsgmeira um það“.
“ WÍlfcÓx 'héyfðr áð þeir töluðu
.saman í hálfum.i.hljóðum. Hann
sá að ‘sonur háns gerði kross-
rhárk* á- brjóstksér og spýtti yfir
yinstri. öxlina; Hann ók bílnum
út úr bílskúrnum og beið.
„Þú segist1 vita hvar hann er“,
heyrði hann að Mark sagði.
_„Já. Ég gkal ná í hann“. Floyd
hvarf inrr í bílskúrinn og kom
aftur Ineð ‘sleða. „Þú skemmir
hann ekki?“
„Nei, ég :skal fara eins vel með
han-n, ei-ns-eg ég ætti hann sjálf-
ur“, sagðí Mark. „Hérna, við setj-
u'm' hanrr^í aftursætið. Hefurðu
gamlan póka eða eitthvað til að
sfeljá ífhdir hann?“
Floyd dró frám óhreinan
strigapoka. ■ ' •
Wilcox horfði þegjandi á.
Mark brosti. „Floyd er búinn
að lofa mér að vera heima í
kvöld og alian daginn á morgun
| líka. Hann ætíar ekki einu sinni
að fara til kirkju. Þér verð:ð:að
koma móðir hans í skilning um
það. Hann má ekki fara út. Þár
| skiljið það. Og sama gildir um
Chester".
Það fór hrollur ■ um Wilcox;
„Farðu inn aftur, Floyd“, sagði
hann. „Heyrirðu það“. Hann beið
þangað til Floyd var horfinn inn
um dyrnar. „Tilbúinn?“ spurði-
hann Mark. Þeir óku. hægt af
stað.
Mark fór fótgangandi frá stöð-
irini upp að húsinu. Hann mætti
Violet í andd.vrinu. Hún ætlaði
að fara að kalla fólkið til kvöíd-
verðar. „Vinnst mér tími til s.ð
fá mér hressingu fyrirt kvölcf-
matinn?" RDurði hann.
„Nei. Fólkið vildi' borðð
snemma. 'Það er að pakka niðljr
í kjallaranum. Ég verð líka að
ganga um beina, *því Perríh er
svo önnum kafinn. Þú skalt!'nota>
tækifærið og fara snemraa að
hvíla þig í kvöld, og ég skal vita
hvort ég get ekki lætt upp einri
flösku handa þér. Það er ekkí
hægt að reka mig úr vistihni þyí
þau eru hvort eð er .að fara. —-
Annars er ég í vondu skapi. Ég.
fékk þá ekki einu sinni til að
kaupa egg í Bear River, og ég
hef ekkert til að mátreiða úr.
Þeir vildu bara fá mig til frú
Simmons".
„Frú Simmns?"
„Já, móður Florrie. Herrá
Morey ætlaði að gefa hennj fimm
þúsund dala ávísun frá frú Mortr.
ey með innilegum samúðarkveðj-
,um, en frú Simmons vildi ekfti
i taka við peningunum. Hún þakk-
9 — 10 fterbergfa íbúð '
alveg út af fyrir sig, ÓSKAST TIL KAUP3, helzt [:
milliliðalaust. — Mikil útborgun. ;l
Tilboð merkt: Hlíðarhverfi —537, sendist afgreiðslu :
■
Morgbl. fyrir 7. apríl n. k. S
ARNALESBOK
jHovgimbla&sins ■
ÆVINTÝRI MIKKA V.
Brottnumda prinsessan
Eftir Andrew Gladwyn
'•*. _ 16.
“Hvernig í ósköpunum eigum við nú að fara að því að
’ finna konungsríkið þitt?“ sagði Mikki við prinsessuna, þegar
1 þauf-gengu niður götuna.
„Vonandi er það ekki mjög langt í burtu,“ sagði Hunangs-
dögg.
*Kannske að við verðum svq heppin að hitta einhvern,
sem getur sagt okkur hvar það er “ |
„Heíur þú ekki landakort?“ spurði stúlkan, sem var nú
orðin glaðari en áður.
„Nei, ég er hræddur um að ég hafi ekkert," svaraði Mikki.
„hau eru notuð á þurru landi, ekki á bátum.“
;,Ef til vill verðum við þá að reika hér um dögum saman,
og ég finn aldrei leiðina heim,“ sagði Hunangsdögg, og var
orðin mjög hrygg.
„Við munum hafa einhver ráð með að finna konungsríkið.
Við skulum gera allt, sem haégt er til að komast frá þessum
hræðilega stað“, sagði Mikki, og reyndi að hugga prinsessuna.
Þau voru nú loksins komin að ánni, og fundu brátt staðinn,
þar sem báturinn var.
Þeg'ar Hunangsdögg kom auga á hann, huldi hún andlit
sitt með höndunum, og varð sorgmædd á svipinn.
„Ó, þetta er aðeins lítilfjörlegur árabátur. Ég hélt, að hann
væri miklu stærri, með vél og káetu.“
„Þetta er ágætur bátur,“ kallaði Mikki. „Ef þú getur ekki
s^ett.þig yið hann, þá. ...“ Hann láuk ekki við setninguna, en
hún gat vel skilið hvað hann meinti. Éf satt skal segja, þá var
Mikki orðinn hálfleiður á nöldrínu- í Hunangsdögg. Hún
Virtist.alls ekkert vera Mikka hakkTáf fyrir allt það; sem hann,
MHiMHf ......... .r
ökiam upp í dag:
L'Slar -peysur
Verð frá kr. 99,00.
Gólffreyjur
Verð frá kr. 95.00.
Jersey-peysur og pils
í mörgum litum.
Jeí'clu,- //
TILKYNIMIIMG
írá ílugvallastjóra ríkisins
Eáðnir verða til starfa á Keflavíkurflugvelli allmargir
menn í eftirtöldum starfsgreinum: verkamenn, málarar,
járnsmiðir, blikksmiðir, trésmiðir, skrifstofumenn, síma-
stúlkur, rafvirkjar, matsveinar o. fL
Sérstök eyðublöð við umsóknir um störf þessi eru
afhent í Ráðningarstofu Reykjavíkur við Lækjartorg.
Umsóknirnar má skilja eftir í ráðningarstofunni, eða
skila þeim í skrifstofu flugvallastjóra ríkisins á Reykja-
vikurflugvelli fyrir klukkan 6 n.k. þriðjudagskvöld.
Reykjavík, 4. apríl 1952.
DLf ua ÍL tfóri n í
'jon
nkmyis
Agnar Kofoed-Hansen.
V.S. „JÉ IIM ' CR. 341
er til sölu. Báturinn er byggður úr eik 1946, talinn 36
smál. að stærð og er með 145—160 ha. Tuxham-dieselvél.
Allar nánari upplýsingar veita Þorgils Ingvarsson og
Björn Ólafs bankafulltrúar í Landsbankanum í Rvík.
oCanclálcinlí DóLncló
Stofnlánadeild sjávarútvegsins
5 herbergja íbúð
með sérinngangi, sérþvottahúsi, sérhitaveitu og sér
lóð í Vesturbænum TIL SÖLU.
Skipti á góðu einbýlishúsi (ca. 4—5 herbergja íbúð)
sem má vera í Höfðahverfi, Laugarneshverfi eða
Kleppsholti koma til greina.
NÝJA FASTEIGNASALAN, Bankastræti 7.
Bezt að auglýsa í Morguúblaðinu; —
i * i « i * e * c * *
íift