Morgunblaðið - 19.04.1952, Side 7

Morgunblaðið - 19.04.1952, Side 7
Laugardagur 19. apríl 1952 MORGUISBLAÐIÐ <f -V Hjónavígsla á Norðursjó igurður Kristjáissen IHinningarorð Ung dönsk stúlka, Annelise Thygesen fór nýlega til Ergiantís til þess að giftast tíönskum skip- verja á Ameríkufari og ætlaði síðan að sigla með honum vestur. Danski presturinn í HuII gaf þau saman, en þar sem vigslan varð að fara fram á alþjóðasvæði, urðu presíurinn, brúðhjónin og vígsluvottarnir að fara út á Norðursjó í báti, út fyrir landhelgislínuna. — Arnelise tókst þó ekki að' komast með bónda sínum vestur, þar sem hún fékk ckki áritað vegabréf áður en skipið sigldi. EINN af elztu og merkustu borg- urum þessa bæjar er nú fallinn frá. Það er Sigurður Kristjáns- son, bóksali, sá er gerði íslenzku þjóðina læsa á fornrit sín. Hann hóf útgáfu íslendingasagna í svo ódýrum og aðgengilegum bún- ingi, að sögurnar urðu alþjóðar- eign og komust inn á svo að segja hvert heimili í landinu. Það eitt ætti að véra nóg til þess að geyma minningu hans og setja hann á bekk með beztu sonum þjóðar- Sigurður Kristjánsson var fæddur 23. september 1854 að Skiphyl. á Mýrum, sonur Krist- jáns bónda Gíslasonar og Berg- Ijótar Jónsdóttur konu hans. — Sigurður fluttist til Reykjavíkur árið 1874 og hóf litlu síðar prent- nám hiá Einari Þórðarsyni og vann nokkur ár við þá iðn. Árið 1883 hóf hann bókaútgáfu, og varð það æfistarf hans. Nú eru þeir xlestir komnir PYRIR skömmu var frá því skýrt í dagblaðinu Vísi, að staðfest heíði verið í sakadómi Reykja- vikur, að starfsemi trésmiðjunnar Heiðmörk h.f. skyldi teljast iðja en ekki iðnaður, þ. e. að ekki þyrfti að nota faglærða iðnaðar- menn við framleiðsluna, heldur mætti láta ólært verkafólk vinna að henni. Samkvæmt skýrslu tveggja sérfróðra manna um hús- gagnasmíði er sakadómari kvaddi til að rannsaka ffamleiðslu tré- smiðju þessarar, er framleiðslan eingöiigu máluð húsgögn, er að mestu leyti eru framleidd með vélum en bekkvinna í því fólgin að setja á skrár, lamir og annað hliðstætt, og har.dslípun fram- kvæmd þar sem vélum verður ekki við komið. Framleiddar eru ýmsar teg- undir skápa og borða, svo og kommóður, rúmfatakassar og eldhússtólar, og efniviðurinn fura og krossviður úr birki og fleiri viðartegundum. Þótt fyrrgreindur dómur vcrði eigi talinn ná neitt út fyrir það svið, sem hér að framan greinir, þá er ljóst, að hann heimilar ólærðum verkamönnum að fara býsna langt inn í þann verka- hring, sem húsgagnasmiðir hafa til þessa eingöngu talið sinn. — Dómi þessum verður að visu skotið til Hæstaréttar, en ef svo íer fram, sem nú horfir, þá verð- ur ótvírætt sótt mjög á að koma 'ólærðum verkamönnum til fleiri starfa í húsgagnaiðnaðinum en að framan greinir, og má búast við, að þá fari fleira á sömu leið sem hér. Þótt þessi dómur heimili ólærðum verkamönnum aðeins að vinna að smíði húsgagna undir málningu, þá gætu á sama hátt gengið aðrir dórna’r, er heimiluðu ólærðurn verkamönnum að smiða húsgögn, er síðan skyldi t. d. bæsa eða pólera, og þótt hér sé aðeir.s um að ræða húsgögn úr furu og krossviði, þá gætu eins gengið aðrir dómar, er á sama hátt heimiluðu ólærðum verka- mönr.um að smíða húsgögn úr öðrum og verðmætari efnivið. | íslenzkir húsgagnasmiðir horfa nú þannig fram á þann mögu- leika, að réttindi þeirra og kunn- átt.a verði gerð lítils sem einskis yirðí fneð því að héirriilá ’ólærði j um verkamönnum að virma verur legan hluta af þeim störfum, serri hingað til hafa aðeins verið verk- eíni húsgagnasmiöa. Eru það sánnarlega harðir kostir fyrir þf, ef þanr.ig á að svipta þá mögu- leikum til þess að njóta arðs af fé því og tíma, er þeir hafa eytt í sérnám sitt. Geti dómstólarnir ekki fallizt á, að réttarvernd sú, er iðngrein þessi hefur verið talin njóta, eigi sér næga stoð í lögum, — og þá munu fleiri iðngreinar brátt leiknar á sama hátt — þá verða húsgagnasmiðir, sem og aðrir iðnaðarmenn, að leita nýrra ráða til þess að tryggja rétt sinn, en þá þurfa þeir fyrst og fremst að fylkja sér sem fastast um sam- tök síh og eflá þau, til þess þann- ig að geta til hlítar beitt þeim til sigurs málstað sínum. I þéssu sambandi er vert að gera sér nokkra grein fyrir því, hvort það sé æskilegt eða hag- kvæmt frá sjónarmiði neytand- ans eða þjóðfélagsins, að óiærðir verkamenn komi að verulegu leyti í stað húsgagnasmiða, en það er hið eina, kem hér greinir á um, en ekki t. d. að hve miklu leyti séu notaðar vélar við smíð- ina eða hversu víðtæk verka- skipting'n kann að vera. Sá verðmunur, sem eingöngu leiðir af því, hvort ólærðir verka menn eða húsgagnasmiðir vinna verkið, hlýtur að verða hverf- andi lítill. Kaup iðnverkamanna er að vísu ca. 28% lægra en kaup sveina í húsgagnasmíði, en sá munur lækkar aldrei heildarverð húsgagna um mörg prósent, þar sem verulegur hluti andvirðis þeirra liggur í öðru en vinnu, t.d. efni, húsnæði, orku til vinnuvéla, afskiftrum af vélum og verkfær- um, tollum og söluskatti, vöxtum sölukostnaði o. fl. Efnisrýrnun hlýtur til jafnaðar að verða mun meiri hjá ólærðum verkamönn- um en fagmönnum, auk þess sem afkastageta fagmanna verður til jafnaðar meiri en ólærðra verka- manna, og vegur þetta tvennt áreiðanlega að verulegu leyti upp á móti þeim kaupmismun, er að framan greinir. Þá er þó enn ótalinn veigamesti þátturinn, er greinir milli fag- manna og ólærðra verkamanna, en það er munurinn á vinnugæð- unum, sem ótvírætt gerir stórum meira en að vega upp á móti kaupmismuninum. Störf iðnaðar- manna eru yfirleitt þannig, að þau verða ekki unnin, svo að í lagi se, nema af þeim, er til þesp hafa kunnáííú og leikni. Er öll- um'er nokkuð til þekkja auðvelt {ið gera sér í hugarlurid, hvernig þau störf verða Jeyst af hendi af rinönnum, er við þau fúska, án þess að hafa nokkuð til þeirra lært. Fúskarar geta að vísu oft blekkt kaupendur í bili með kítti ’ og málningu, en gallarnir eru íijótir að koma í Ijós, og kaup- 1 andinn verður brátt að velja á milli þtss, hvort hann skuli kosta 1 verulegu fé til viðgerða á hlutn- \ um eða fleygja honum og kaupa nýjan. Þjóðfélag vort hefur ekki efni á því að sóa fé og tíma í lélega 1 framleiðslu, hverju nafni, sem hún nefnist. Þjóðin verður að | berjast við erfið lífskjör í fátæku ; og hrjóstrugu landi. Helztu mögu leikar hennar til þess að bæta | lífskjör sín, liggja í því að hér geti þróazt mikill og blómlegur iðnaður. Það getur þó því aðeir.s . orðið, að kappkostað sé að fá 1 sem hæfasta menn til hvers starfs til þess með því að tryggja beztu fáanleg afköst og vinnugæði. — Skal hér látið nægja að vísa um það til ummæla hins bandaríska iðnaðarsérfræðings, Mr. T. H. Robinson, er hér dvaldi um mán- 1 aðartíma s.l. sumar á vegum j Efnahagssamvinnustofnunarinnar í París, en í ræðu er hann flutti á fundi hjá F. í. I. hinn 10. sept. s.l., og birt er í blaðinu „íslenzk- ur iðnaður“ 13. tbl. sept. 1951, segir hann m. a. svo: | „Það verður að leita allra ráða til þess að gera starfsmanninn eins færan í iðn sinni og mögu- legt er. Allar tilraunir, er lúta að árangursríkum iðnaði og hag- nýtingu hans munu fara forgörð- um, ef eigi er fyrir hendi nægi- legur fjöldi lærðra starfsmanna, sem njóta öryggis stöðugrar at- vinnu, því verður að leggja mjög mikla rækt við tæknilega fræðslu bæði í iðnskólum og æðri mennta stofnunum.“ Vert er að leggja sérstaka áherzlu á þessi orð, sem töluð eru af manni með rnikla reynslu og sérþekkingu, og mættu þau verða varnaðarorð öllum þeim, er vilja vinna að því að færa niður stig hæfni og kunnáttu þeirra manna, er að iðnaðarframleiðslunni vinna, í von um fijóttekinn stundargróða, en myndu, ef þeir fengju vilja sínum framgengt, baka iðnaðinum óútreiknanlegt tjón með því að rýra gæði fram- leiðslunnar, stuðla þannig beint að innflutningi iðnaðarvara og leggja um leið innlenda iðnað- inn í rúst. . y Éggerf, Jómssonu undir græna torfu, mennirnir, sem störfuðu með Sigurði Krist- jánssvni, meðan hann var í fuliu fjöri og rithöfundarnir og skáld- in, sem hann leiddi úr hlaði og bar föðurlega umhyggju fyrir, þó að þeir væru á líkum aldri og hann eða eldri, eins og Pétur Pétursson, biskup, Steingrímur Thorsteinsson og Benedikt Svein- bjarnarson Gröndal, Björn Bjarnason frá Viðfirði, Jón Jóns- son Aðils, Hulda og íleiri. Og miklar mætur hafði hann á Benedikt Sveinssyni, alþingis- manni, sem bjó margar af ís- lendingasögunum undir prentun og var honum handgenginn um margra ára skeið. Honum fannst þeir vera hold af sínu holdi og framtíð þeirra hvíla á herðum sér. En hann sagði þeim til synd- anna, þegar honum bauð svo við að horfa og var þá stundum ó- myrkur í máli, því að hann var einarður og hreinskilinn. Sigurður Kristjánsson var alla æfi hlédrægur maður og ómann- Llendinn. Hann fylgdist lítið með nýjungum og hafði litla trú á tækni siðari tíma. En hann hafði tröllatrú á íslenzkri al- þýðumenningu og var að eðlis- fari náttúrubarn, hrekklaus og tryggur. Siguiður kom til Reykjavíkur til prentnáms. Þar kynntist hann bókageið. En ástina til fornbók- mennta þjóðarinnar hafði hann í heimanmund. Hann þekkti þörf og þrá íslenzkrar alþýðu og xuddi þá braut, sem margir hafa siðart fetað, þjóð vorri til ómetanlegs gagns. Þótt Sigurður væri að eðlisr- fari ómannblendinn, þá var hann ræðinn og skemmtilegur, ef hann var sóttur heim og rniv- ræðuefnið var honum hugstætt. Hann hafði mikla ánægju af r9 ræða um þá menn, sem hann kyimtist á árunum sem hann vann að prenverki og kunni. margar og skemmtilegar sögur frá-þeim tímum. Og margt sagði hann skemmtilegt um GröndaV enda voru þeir nábúar og góðhr kunr.ipgjar. Sigurður var ekki tildurgjsvrg Bezt kunni hann við sig létt- klæddan, og flibbann hataði har.n eins og pestina. Hann var brgustbvggður og heilsugóður og. karlmenni að burðum. Alla æfi fór hann langar gönguíerðir og var bá að jafnaðr einn og fór ekki alfaravegu. . Rithönd Sigurðar var stórgerA 0" .yreinileg og stafagerðin nokk- uð íburðarmikil. Hann var lítiS hrifinn af ritvélum, eins og öðr-r- um nýjungum, og ekki var laurt við eð hann teldi kvittun miðlungi gott plagg, ef hún var vélrituð. Hann taldi hreystimerki og hollustu að fá sér öðru hvoru i staupir.u, og kvað þá við raust rimur og íornan kveðskap, þegar hann var orðinn hýr. En ekki vildi hann bvrja slíka skemmtun, aema hann væri öruggur um a'A birgðirnar entust, meðan harux vildi gleðja sig og þá ssm með honum voru. Sigurður var forn í háttum og íslendingur í húð og hár. Hanrx elskaði land sitt og þjóð og mat drengskap og orðheldni meira en aðrar dyggðir. Með Sigurði Kristjánssyni er- fallinn í valinn sérstæður og> merkur rnaður, sem íslenzka þjóðin má lengi minnast. Gunnar EinarssoiC Brefa í Malaja KÚALA LÚMPÚR — Templer hinn nýskipaði landsstjóri Breta í Malaja hélt ræðu í brezknta Rótarý-klúbb þar eystra um pásk- ana. Veittist hann að brezkum mönnum í Malaja, som hann sagði að verðu dýrmætum tíma og fé i íburðai mikla meðdegisverði, Cock- tail-drykkjur og golf-iðkanir, á sama tíma sem stríð væri háð við kommúnista í landinu. Sagði hann að allmargir Englendingar í .Malaja létu sig stríðið litltt skipta og lifðu í munaði. Benti Iiann þeim á að kommún- istar einbeittu sér við styrjaldar- reksturinn og verðu ekki tíma sún- um í slíkt tildur. Þykir fram liafa komið það sem spáð var, að Templer muiuli láta að sér kveða þar eystra og taka á málum með röskleika og festu. Olíoleit. LUNDÚNUM — Nú í fyrsta skipti er hafinn undirbúningur að oliuleit á Wighteyju. AÐALFUNDUR Stjórnarskráríálagsins 4,5 milljónir farartækja LUNDÚNUM — 4,5 milljónir; farartækja voru í r.otkun í Bret- I landi á síðastliðnu ári, þar af 900 þúsund vöruflutningavagnar. verður haldinn í dag, laugard. 19. apríl.kl. 4 síodegis í Þjóðleikhúskjallaranum. DAGSKRÁ: 1. Skýrsla félagsstjórnar og reikningar félagsins. 2. Stjórnarkosning. \ §t|órriarskrárfclögin bg , fjótðungssáinböndin. 4. Væntanlegt forsetakjör. Félag^rfivnri, múnið aðxmæta og greiða félagsgjöld ykkar á fundinum. Félagsstjórnin. i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.