Morgunblaðið - 19.04.1952, Page 14
14
MORGJJTSBLAÐIÐ
Laugardagur 19. apríl 1952
Framhaldssagan 58-
„Hnífurinn!“ æpti Bessy. „Hr.íf
urinn!“
Skothvellur kvað við. Morey
missti fótanna og féll á hnén. —
Blóð streymdi úr hægri hendi
hans. Hann komst á fætur aftur
og tók til fótanna í áttina að
tröppunum.
Mennirnir hlupu á eftir hon-
um._ Allir nema Mark.
„Ég veit hvað hann hugsar
sér að gera“, sagði hann við kon-
una, sem grét hljóðlega. „Og ég
vona að honum takist það, en
aðeins vegna þess að það gerir
allt einfaldara fyrir yður“. Hann
leit upp til lofts og hlustaði. „Það
er glugginn, sem snýr fram að
klettunum".
Þau sátu þegjandi og hlustuðu
á fótatök ofan af loftinu. Þau
■heyrðu rödd Amosar. „Það er
þessi gluggi!" hrópaði hann,
„Þessi gluggi“. Dyr skelltust aft-
ur. Svo varð þögn. Svo komu
fótatökin aftur r.iður og menn-
irnir þustu fram að dyrur.um cg
út.
Perrin kom .inn ásemt Amos
og Tait-bræðrunum. Þeir V'oru
lafmóðir. „Þvi er lokið sagði
Perrin.
Violet staulaðist . á fætur úr
stólnum.
„Komdu hingað“, sagði Mark.
„Ert þú öll í heilu lagi?“
Hún komst að legubekknum,
en þá gáfu fæturnir eftir og hún
hné niður með höfuðið í fangi
Bessy.
„Mig langar til að spyrja yður
einnar spurningar", sagði Mark
við Perrin og reyndi um leið að
koma sjálfum sér í skilning um
að hann héti Oliver og væri fræg
ur brezkur skurðlæknir. „En þér
þurfið ekki að svara, nema þér
viljið. Hvað hafði hann mikið fé
af yður?“
„Hann hefur íengið um 'imm-
tíu þúsund. Hann átti að fá
meira þegar við kæmum til New
York“.
„Þetta er ekkert bet>-a en mar-
tröð“, saeði Beulah. „Ég bið ykk
ur um að vekja mig eða útskýra
þetta fyrir mér“.
„Og hver er hver?“ sagði
Bessy. „Þú ert þung, vina nín“,
sagði hún við Violet. „Viltu ekki
heldur setiast á góifið .... og
hvaðan er Ivy litla?“
„Ivy“, sagði Laura veikri
röddu, „er Ivy Oliver. Ég hefði
gert þetta opinbert, ef ekki hefði
verið vegna Ivy. Eftir lögunum
er hún óskilgetin“. Hún fór að
gráta. „En það er ekki allt. —
Hann talaði oft um að nema
hana brott. Fyrst sagði hann
hvað hann vorkenndi Ivy og
betra væri fyrir hana að hún
væri ekki til. Ég varð að grípa
fyrir eyrun til þess að heyra ekki
hvað hann sagði. Ég var alltaf
hrædd um að ég mundi aldrei
sjá hana aftur. En ef mig hefði
grunað að frú Lacey og Florrie
hefðu látið lífið vegna þess að
ég þagði, þá hefði ég farið í mál
við hann og gert allt kunnugt.
En ég vissi það ekki fyrr sn um
seinan“.
Oliver beygði sig niður að
henni. „Segðu það allt“, sagði
hann. „Við höfum farið undan í
flæmingi allt of lengi. Ssgðu það
allt og á eftir getur það ekki gert
þér neitt illt“.
„En .... börnin .... hvar cru
þau. Ilerra East sagði....“
„Þær eru hjá frú Wilcox og
þar er beim óhætt. Þér burfið
ekki að hafa neinar áhyggjur af
þeim“, sagði Mark og brosti hug-
hreystandi.
Hún rétti úr sér og daufur
roði færðist yfir vanga hennar.
„Eiginmaður minn var ekki hæf-
ur til að lifa“, sagði hún. „Ég
yfirgaf hann þegar Anne var
tveggja ára og fór til Englands.
Eg átti enga nána ættingja, en
hafði góð ráð. Þið vitið hvað
skeði þar. Einmitt þegar ég ætl-
aði að byrja skilnaðarmálið,
fékk ég bréf frá Stoneman. Það
kom frá Fiorida. Har.n var gam-
all vinur eiginmanns míns. Ég
hafði aldrei vitað nema gott eitt
um hann og hafði enga ástæðu
til að vantrevsta honum. Hann
sagði mér að Jim væri dáinn og
bréfir.u fylgdi úrklippa,. sem
sannaði að ég væri orðin ekkja.
Auðvitað trúði tg því. Ég hætti
strax v[ð að fá skilnaöinum íram-
f.ylgt. Ég giftist. Sex mánuðum
siðar komum við til Parísar. Þar
fór ég til kvenlækrús og mér var
I sagt að ég ætti von á barni. Ég
■ fór í bankann. Ég þekkti rithönd
I Jims á bréfinu. Hann haíði skrif-
j að utan á það til heimilis míns
í London .... til frú Morey ....
Á ég að segja ykkur hvað var í
bréfinu?"
„Haltu áfram", sagði Oliver.
„Iíar.n sagði að Stoneman
hafði rétt einu sinni enn skjátl-
azt. Maðurinn, sem hafði orðið
fvrir bílnum og hann hafði hald-
ið að væri .Tim, var flækingur,
en Jim hafði gefið honum gömul
föt af sér. Hann sarði að hann
hefði skilið við Stoneman í
Citrus Citv og "arið i veiðiför.
Kann var burtu lengur en Stone-
man hafði búist við. Sjálfur sagð-
ist hann ekki hafa vitað neitt um
það sem skeð hafði fyrr en r.okkr
j um dögum seinr.a og þá sagði
. Stoneman honum að hann hefði
skrifað mér. Þeir voru báðir
] skelfdir. Þeir ákváðu að gera ekk
ert frekar í málinu. Seinna
skipti hann þó um skoðun. Hann
var hræddur um að ég mundi
gifta mig aftur .... ólöglega. -—■
Hann vonaði að ég skildi þetta
allt .... ég skildi það mæta vel.
Hann hafði beðíð þangað til ég
hafði verið gift í sex mánuði .áð-
ur en hann skrifaði bréfið. Og
hann bað mig að taka sig í sátt“.
I „Hvar er bréfið núna?“ spurði
Mark.
' „í bankaboxinu mínu í New
York“.
„Þar hefðuð þér líka átt að
geyma úrklippuna“.
I „Ég veit það. núna. En af ein-
hverjum ástæðum hafði ég hana
með mér. Hún var eins og eina
hughreystingin. Ég las hana oft
yfir. Ég hafði verið að lesa hana
daginn áður .... daginn áður en
Florrie dó. Hann var nýbúinn ',3
biðja mig urn tvö hundruð þús-
und dali. Ég sagðist vera að
huesa mig um. En ég vissi að
það mundi enda með því að hann
fengi peningana. Hann lofsði að
fara burt og láta mig í íriði. —
Þegar hann var farinn út, lagði
ég úrklippuna á borðið. Hún hlýt-
ur að hafa dottið óvart í rusla-
1 körfuna. Ég veit bað ekki. Þegar
ég fór að leita að henni, fann ég
hana hvergi. Hann varð "okreið-
ur þegar ég sagði honum frá bví.
Hann var hræddur um að ein-
hver mundi finna hana og sögur
mundu komast á kreik. En
hræddastur sagðist hann vera
min vegna“.
Mark leit á Oliver. „Grunaði
yður nokkurn tímann að þetta
slys var undirbúið fyrirfram af
þeim sjálfum?“
„Já, og Lauru grunaði það
líka. En við gátum ekki sannað
neitt þá, og ég efast um að við
gætum það núna. Morey gekk
vel frá hlutunum. Ég ímynda mér
að hann hafi fengið Stoneman til
ARNALESBOÍf
jTLc rgimbla&sins -
VI. ÆVINTÝRI MIKKA
Eyfa drottnmgarircnar
Eítir Andrew Gladwyn
Mikki var nú kominn alveg að eyjunni, og var þar fyrir
honum ágætur staður, sem hann lenti bátnum. Hann hopp-
aði nú í land og batt bátinn fastan við trébol. Þessu næst
fór hann að litast um, hvort hann sæi ekki gangstíg einhvers
staðar. En þar eð hann sá engin merki þess að svo væri
þarna í grendinni, gekk hann spölkorn fram með ströndinni
I til þess að vita hvort hann fyndi ekki götu, sem lægi inn
; á eyna- Mikki þuríti ekki að ganga lengi þar til á vegi hans
. varð mjór gangstígur, sem lá inn í skóginn.
I „Það væri gaman að vita hvort þessi gangstígur liggur
.að kastalanum... . ef það er þá kastali," hugsaði Mikki.
Hann fylgdi nú götuslóðanum inn í skóginn, sem var
dimmur og svalur. — Mikki var ekki búinn að ganga lengi,
I þegar hann varð fyrir mjög óvæntri árás- Hann vissi ekki
| fyrr til, en gripið var sterklega utan um hann. Hann brauzt
| um af öllum kröftum og reyndi að slíta sig lausan, en það
bar engan árangur. Það kom nú í Ijós, að hann var um-
kringdur af sex mönnum, sem voru í gráum hermannabún-
ingum. Þetta voru allstórir menn og vel vopnum búnir.
j „Þá erum við búnir að ná þér,“ muldraði í einum, sem bar
öil einkenni þess að vera liðsforingi.
„Látið mig lausan,“ hrópaði Mikki og brauzt um.
„Vertu stilltur, ungi maður,“ sagði liðsforinginn. „Mér
þykir leiðinlegt að þurfa að koma svona fólskulega fram.
: Við skulum nú sjá... . ég þarf að athuga málið,“ bætti liðs-
foringinn við, og athugaði Mikka mjög gaumgæfilega.
„Við sáum þig koma róándi að eyjunni, og það er skylda
mín að vera vel á verði þegar hennar hátign er í höllinni.
Alsíaesinur dansieikur
í Tjarnarcafé í kvöld klukkan 9.
Hljómsvelt Kristjáns Kristjánssonar.
Aðgöngumiðasala frá kL 6.
1. N. S. í.
ÞORSCAFE
j Gösnlu dsansarniar
: Á ÞÓRSCAFÉ í KVÖLD KL. 9.
■ \
m
•
: Aðgöngumiða má panta í síma 6497 eftir kl. 1.
m “
VETKARGARÐURINN
VETRARGARÐURINN
DAKSLEIKUB
í KVÖLD KLUKKAN 9.
Miðapantanir í síma 6710 frá kL 3—4 og eftir kl. 8.
Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar.
F. L. S.
a
hcldur ,,Fimleikafélagið Björk“
í Alþýðuhúsmu, Hafnarfirði,
í kvöld Mnkkan 9.
Ýmiss skemmtiatriði.
Fjölmennið.
líósir, rósabúnt, Írís, Amarillls og Túlipanar
í miklu úrvali.
BLGM OG GRÆNMETI
Skólavörðustíg 19 — Sími 5474
lióð 4ra herbetp íbú5
á 2. liæð í steinhúsi nálægt SundhöILinni til sölu.
Upplýsingar hjá
KONRÁÐI Ó. SÆVALDSSYNI
löggiltum fasteignasala,
Ausíurstrseti 14 — Sími 3565.
Rafmagnstakmörkun
Álagstakmörkun dagana 19. apríl—26. apríl
frá kl. 10,45—12,15.
Laugardag 19. apríl 2. hluti. m m
Sunnudag 20. apríl 3. hluti z
Mánudag 21. apríl 4. hluti m
Þriðjudag 22. apríl 5. hluti l
Miðvikudag 23. apríl 1. hluti m
Fimmtudag 24. apríl i 2. hlutL iii i > * * b i.v 1 Z
Föstudag 25. apríl 3. hluti m
Laugardag 26. apríl 4. hluti m
Straumurinn vcrður rofinn skv. jþessu þcgar og að
svo miklu leyti sem þörf krefur.
SOG5VIRKJUNIN
— Morgunblaðið með morgunkaffinu —