Morgunblaðið - 18.07.1952, Síða 2
[
T 2
MORGUNBLAÐIÐ
Brainh. af bls. 1
S' jaðar og lagðist fyrir akkeri, en
vórpuna dró hann ekki inn, held-
ur lá yfir henni. Gerði nú varð-
skipið staðarákvörðun, sem sýndi
•að togarinn var þá enn þrátt fyr-
ir eltingu 0,2 sjóm. fyrir innan
nýju fiskiveiðitakmörkin. En við
dufl það, sem varðskipsmenn
settu út við kjölvatn togarans, kl.
3,03, og gerð var staðarákvörðun
við, kom í ljós, að togarinn hafði
verið þá 1,1 sjóm. innan fisk-
veiðitakmarkanna.
BREZKA EFTIRLITSSKIPIÐ
KEMUB
Síðan segir orðrétt í skýrsl-
unni um viðskipti varðskipsins
og togarans:
„Skipstjóri tögarans óskaði
eftir því, að beðið væri eftir því,
að enska eftirlitsskipið kæmi á
vettvang. Var það samþykkt.
Kl. 6,06 kom enska eftirlits-
skipið „Maríner“ á staðinn. Komu
yfirmenn frá því um borð í varð-
skipið og litu á staðarákvarðanir
þess. Foringi enska eftirlitsskips-
ins óskaði þess, að ef togarinn
yrði tekinn til hafnar, þá yrði
farið með hann til Reykjavíkur.
NEITAÐI FYRST
— TIL REYKJAVÍKUR
Skipstjóri togarans neitaði í
fyrstu algerlega að fylgjast með
varðskipinu til hafnar, og taldi
sig ekki hafa verið að fiska í
íslenzkri landhelgi. En eftir að
enski foringinn hafði bent hon-
um á, að réttast væri að fara
eftir fyrirmælum hins íslenzka
var&kipsforingja, samþykkti
liann það.
Það var svo um kl. 8,30 í fyrra-
kvöld að dufl varðskipsins var
tekið um borð.
Klukkan rúmlega hálf ellefu í
fyrrakvöld var lagt af stað U1
Reykjavíkur og komið hingað kl.
10. árd. í gær. En alla leiðina
voru þriðji stýrimaður og einn
háseti af varðskipinu á verði í
togaranum til Reykjavíkur.
Að lokum er í skýrslu skip-
herrans á Ægi, Þórarins Björns-
sonar, að er togarinn var tekinn
í landhetgi hafi verið logn og
léttskýjað.
FRÁSÖGN 6RETANS
Skipstjórinn á togaranum, Mr.
Jones, hafði allt aðra sögu áð
segja fyrir réttinum. Taldi hann
skýrslu skipherrans vera mjög
villandi. Ég fór aldrei nær land-
inu en það að til lands voru
4% sjóm., sagði skipstjórinn. —
Hann sagði og að hann hefði
árangurslaust reynt að ná tali af
skipherra og fyrsta stýrimanni
á miðvikudagsmorgun, og áð þá
hafi sér verið sagt að varðskipi'ö
myndi hafa samband við hann á
hádegi. Hann sagði að á fundi
sínum við skipherra varðskipsins
hefðu aðeins verið rædd dægur-
mál.
SKOTHRÍÐIN OG
SKAMMBYSSAN
Skipstjórinn sagði réttinum að
hann hefði ekki áttað sig á því
að skotið væri að skipi sínu frá
varðskipinu fyrr en þrem skot-
um hafði verið hleypt af. — Þá
segist skipstjórinn hafa stöðvað
togarann tafarlaust. Á eftir hafi
fjórum skotum verið skotið að
skipinu og hafi hann óttast að
skipsmenn sínir yrðu fyrir slys-
um. Hafi hann kallað í talstöðina
um að hætta skothríðinni, en því
hafi ekki verið svarað.. Varskip-
ið var þá í um 2 mílna fjarlægð.
Síðan sagði hinn brezki tog-
araskipstjóri frá því, að fyrirliði
Ægis-manna heföi er hann ásamt
Hiönjmm sínum kom um borð í
togarann, ógnað sér með skamm-
toyssu, er hann, skipstjórinn,
hafi neitað að taka inn vörpuna,
og sömnlgiðis hafi byssnnni verið
miðað á sig-, er hahn hafí ætlað
að fara í talstöðina og reyna að
»á sambandi við skipherrann á
Ægi. Eftir að dregið hafðr verið
afþjóðlegt fiagg að hún er táknar
að sambands sé óskað við skip.
Þá bað íogaraskipstjórinn brezka '
eftirlitsskipið Mariner, að koma
á vettvang.
Fyrir réttinum kvaðst skip-
stjórinn ekki hafa heyrt í há-,
talara varðskipsins, og hann neit
aði að hafa séð stöðvunarmerkið
dregið að hún. Loks sagðist hann
aldrei hafa siglt skipinu til hafs. *
.1
RADARTÆKI VARBSKIPSINS
Skipstjórinn skýrði frá bví að
loftskeytamaður sinn hefði skýrt
sér frá því er hann fór með hon- 1
um yfir í varöskipið um hádegið,
að raísjá varðskipsins hefði ver-;
ið í ólagi. Skipherra var spurður
að þvi hvort svo hefði verið. —
Upplýsti hann að öryggi fyrir
ratsjána hefði losnað, en það lag-
fært tafarlaust, en hvort loft-
skeytamaður togarans hafi
vitað um þaö, taldi hann sig ekki
vita neitt um. Skipherra sagði
ratsjána hafa verið í fullkomnu
lagi er siglt var að togaranum og
hann tekinn.
NEITAR AD SKIP8TJÓRI
HAFI VERID DRUKKINN
Síðan kom loftskeytamaðurinn
á togaranum fyrir réttinn sem
vitni.
Loftskeytamaðurinn sagðl að
hann hefði reynt að hafa sam-
band við varðskipið kl. 10,25 á
miðvikudagsmorgun en það hefði
þá ekki svarað. Þá sagðist hann
hafa farið um borð í varðskipið
og hafi loftskeytamaður varð-
skipsins kveikt á ratsjá varð-
skipsins, en það hafi þá verið
óvirkt. Hann neitaði því alger-
lega að hafa séð vín á skipstjór-
anum né hafa séð hann neyta
áfengis. Hann sá hinsvegar eng-
an varðskipsmann handleika
skammbyssu.
Að lokinni yfirheyrslu yfir
loítskeytamanninum var sótt nið-
ur í togarann blað úr dagbók
hans. Þar stóð, að hann hefði
fyrst reynt að ná sambandi við
varðskipið Ægi kl. 11,20. Tók
hann þá aftur fyrri framburð
sinn um fyrra tímamark og kvað
það hafa verið misminni.
Réttarhaldi var síðan írestað
til morguns.
Þeir Otto B. Arnar loftskeyta-
fræðingur og Friðrik A. Jónsson
útvarpsvirkjameistari voru skip-
aðir skoðunarmenn til að skoða
ratsjá varðskipsins Ægi og íog-
arans Yo.rk City.
sofi kosiim forseli
AKUREYRI, 17. júlí — Golfþing-
ið í ár var haldið hér á Akureyri
í dag. Dagskrá var skýrsla sam-
bandsstjórnar, reikningar Golf-
sambandsins, fjárnagsáætlun,
reglur um landgmót, Árbók
íþróttamanna, sérreglur um lands
mót, goifreglur og floira.
Forseti þingsins var kosinn
Helgi Hermann Eiríksson og rit-
ari Björn Pétursson. í stjórn ssrn
bandsins til eins árs voru kosnir:
Forseti Þorvaldur Ásgeirsson í
stað Helga Hermanns Éiríksson-
ar, sem verið hefur forseti sam-
bandsins frá stoínun þess árið
1942, en skoraðist nú eindregið
undan endurkjörj. Meðstjórnend-
ur voru kosnir þeir Björn Péturs-
son, Reykjavík, Jóhann Þorsteins
son, Akureyri og Georg Gíslason,
Vestmannaey j um.
Að þinginu loknu var háð
öldungakeppni landsmótsins og
voru þátttakendur sjö. Sigurveg-
ari varð Gunnar Schram, Akur-
eyri, á 75 höggum nettó. Samtímis
var háð bæjarkeppni, þannig að
Akureyringar kepptu við Reyk-
víkinga og Vestmannaeyinga Og
er það í fyrsta sinn sem slík
bæjarkeppni er háð á landsmóti
golfþingsins. Akureyringar unnu
með 5% móti 2Vz vinning. Meist-
aramót í golfi hefst á föstudag
kl. 4.
ÖSyiripíuserían fáanSeg
fyrir svarmerki
FRÍMERKJAFÉLAG eitt í Finn-
landi, International Filatelist
tjánst, Postbox 311, Helsingfors,
hefur beðið Mbl. að skýra frá
því að félagið get.ur útvegað
hverjum sem þess óska seríu af
finnsku Olympíumerkjunum,
stimplað á útgáfudegi. Eru frí-
merkin á þremur mismunandi
umslögum. Fyrsta tegundin er út
gefin af finnsku póststjórninni
í samráði við Olympíunefndina.
Önnur tegundin er með áprent-
aðri mynd af hinum fræga
finnska hlaupara Paavo Nurmi,
þriðja tegundin er útgefin af frí-
merkjafélagi Tavastehus. — Is-
lendingar geta fengið senda eina
ástimplaða seríu fyrir fimm al-
þjóðleg svarmerki.
SJÖTTA norræna raffræðinga-
mótið hélt áfram í gær (fimmtu-
dag 17. júlí) með erindaflutningi
um morguninn.
Fyrir „sterkstraums“-flokkinn
var fluttur fyrirlestur af Kjeld
Jakobsen frá Danmörku, um ný-
tízku jarðstrengi fyrir mjög háa
spennu, Þá flutti Uno Lamm, yf-
irverkfræðingur frá Svíþjóð, er-
indi um nýjustu íramfarir á
kvikasilfurs afriðla. — Nokkrar
umræður urðu á eftir báðúm er-
indum.
Fyrir „vcikstraums“-flokkinn
voru á sama tíma einnig flutt
erindi í VI. kennslustofu háskól-
ans. Fyrst fluttu þeir verkfræð-
ingarnir Sture Wennerberg,
Martin Lindén og Gunnar Bengt-
son frá Svíþjóð, erindi um
„Strömförsörjningen i svenska
telestaioner“. Þar á eftir var flutt
erindi um „Problemcr i forbind-
else med televisionsmodtagere".
Höfundur þess erindis er O.E.
Grue, verkfræðingur frá Dan-
mörku, en hann kom ekki til
mótsins, og flutti L. Carstens,
verkfræðingur frá Danmörku,
erindi þetía.
ÍVTeðan á erindaflutningnum
'stóð skoðuðu konurnar' söfnin í
bænum.
Eftir hádegið fóru þátttakend-
ur til Þingvalla og að Sogi, en
skoðuðu Hitaveituna um kvöldið.
í dag er farið að Gullfossi og
Geysi og er ætlað að sú ferð taki
allan daginn og falla því fyrir-
lestrahöld niður í dag, en hefj-
ast aftur á morgun.
Þá verða flutt fyrst tvö erindi,
sitt fyrir hvorn flokkinn. Er það
fyrir „sírekstraum", erindi um
„Seriekondensatorer i distri-
butionsnát for 20 kv“, flutt af
verkfræðingunum Karl Frederik
Aakerström og Sigvard Smeds-
feít frá Svíþjóð. Fyrir „veik-
strauminn“ flytur símaverkfræð-
ingur E. Brockmeyer frá Dan-
mörku, erindi um „Sandsynlig-
hedsberegningens anvendelse i
telefontekniken paa basis af Er-
langs og Moes Undersögelser".
Að þessum erindum loknum
verður flutt sameiginlegt erindi
um húshitun er hefst með „Elek-
trisk boligopvarmning i Norge“,
eftir Biörn Lyche, yfirverkfræð-
ing frá Noregi, en á eftir því
kemur annað erindi frá Dan-
mörku, eftir A.K. Bak, yfir-
verkfræðing, stutt yfirlit um
hitaveitur þar í landi og sams-
Framh. á bis. 8
Föstudagur 18. júlí 1952 |
Þorsteinn Hannesson í hlutverki Lohengrins í samnefndri ópevrt
Wagners.
Þðrsleiaa Íf«ffla8©ss®:fi
helnr getið sér ápæti
©rS á BistakraKitiii&j
Keftir farið með mörg hlutverk við Lusidúnaónsruna
ÞORSTEINN HANNESSON,
söngvari og kona hans, frú Ilulda
Samúelsdóttir, eru nýlega komin
hingað til landsins. En Þorsteinn
hefur dvalið í Englandi svo að
segja óslitið síðan árið 1943. Þar
hefur hann stundað söngnám og
nú síðustu árin hefur hann unnið
við óperuna í London. — Hefur
hann þegar getið sér þar mjög
gott orð sem ágætur listamaður.
Þorsteinn Hannesson og kona
hpns eru nú á leið norður til
Siglufjarðar, þar sem þau
hyggjast njóta sumarleyfis síns
í heimahögum söngvarans.
Mbl. átti í gær stutt samtal við
Þorstein Hannesson og ræddi við
hann ýmislegt frá námi hans og
starfi.
9 ÁRA ÚTIVIST
— Hvenær hófstu söngnám
þitt? - "V'f!
— Ég fór til Englands í nóvem-
ber árið 1943 til söngnáms í
London. Hóf ég nám mitt þar hjá
Royal Callege of Music. Þar var
ég í fjögur ár. Var því næst náð-
inn að Covent Garden óperunni
sem hetjutenór. Hóf ég störf mín
þar haustið 1948, en hélt jafn-
framt áfram söngnámi hjá Josep
Hishlop, hinum fræga skozka
tenór.
HEFUR FARIÐ JVIED FJÖLDA
ÓPERUHLUTVERKA
— Hver cru helztu hlutverk
þín hjá Covent Garden?
— Fyrsta hlutverkið, sem ég
fór með þar var Radamcs í
óperunni Aida eftir Verdi. Á
fyrstu þrem mánuðunum sem ég
var við óperuna fór ég auk bess
með hlutverk Florestan í Fidelio
eftir Beethoven og mitt íyrsta
Wagner-hlutverk, Walter í Meist
arasöngvunmum. Síðan hef ég
m.a. sungið Eric í Hollendingn-
um fijúgandi, eftir Wagner og
farið með hlutverk Lohengrins í
samnefndri óperu Wagners. •—
Ennfremur hef ég sungið aðal-
hlutverk í tveimur nýjum ensk-
um óperum, „The Olympians11,
eftir Sir Arthur Bliss og „The
Pilagrims Progress“, eftir R.
Vauhan V/illiams.
GOTT AÐ VINNA MEÐ
ENGLENDINGUM
— Og hvernig hefur ykkur lið-
iðí London?
— Okkur hefur liðið þar vel,
enda þótt ýmsir örðugleikar
hafi verið á veginum, ekki sist
meðan á styrjöldinni stóð. En það
er ágætt að vinna með .Englend-
ingum. Þrautseigja og' dugnaður
eru höfuðeinkenni þeirra. Ástaná
ið í Englandi er líka óðum acS
lagast.
— Hvað viltu svo segja ura
framtíðina?
— Ég er ráðinn til þess a5
syngja áfram hjá Covent Garden.
Á næsta ári mun ég m. a. syngja
þar hlutverk Heródesar í óper-
unni Salóme, eftir Richard
Strauss. Auk þess mun ég í vet-
ur syngja sem gestur hjá Sadlers
Wells óperunni í London. Fyrsta
hlutverkið þar verður Samson, í
cperunm Samson og Delia, eftir
Saint-Sans. Fyrsta sýning henn-
ar verður 20. nóvember.
— Ætlarðu ekki að halda
hljómleika hér heima?
— Jú, það hafði ég hugsað mér.
að loknu sumarleyfi, en það verð
ur ckki fyrr en um mánaðamót-
in ágúst-september. Hinn 29.
september verð ég svo að byrja
æfingar að nýju við óperuna, seg-
ir Þorsteinn Hannesson að lok-
um.
Þeir, sem fylgst hafa með Þor-
'steini Hannessyní á listabraut
hans, munu á'reiðanlega fagna
þvi, að eiga kost á að heyra til’
hans.
Síðan hann kom hingað heim.
í belta skipti hefur hann sungiS
í útvarp og ennfremur í r.am-
kvæmi sem ríkisstjúrnin hélt
fyrir fulltrúa á fundi alþjóðasam-
bands samvinnumanna.
S. Rj.
Vikudvö! í Þmmtk
UM næstu helgi efna Farfuglar
til viku sumarleyfisdvalar í Þórs-
mörk. Verður Mörkin skoðuð
undir leiðsögn kunnugrar farar-
stjórnar.
Þátttakendum verður séð fyrir
tjöldum og matvælum. Upplýs-
ingar. eru gefnar í ferðaskrifstof-
unni Orlof og í skrifstofu Far-
fugla í Melaskólanum milli kl.
8,30 og 10 næstkomandi íöstu-
dagskvöld. , , ____